Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 ÁHÖFN Hólmaborgar SU var fagnað vel þegar skip- ið landaði 1.500 tonnum af loðnu á Eskifírði á sunnu- dag. Var afli skipsins kominn yfir 50 þúsund tonn á loðnuvertíðinni sem hófst í júlí. Hefur ekkert skip innan loðnuflotans veitt jafnmikið á einni vertíð frá upphafi loðnuveiða á 7. áratugnum. Á stærri mynd- inni sést áhofnin en á þeirri minni færir Björk Aðal- steinsdóttir, eiginkona Þorsteins Kristjánssonar skip- stjóra, manni sínum blóm í tilefni metsins. Að sögn Emils K. Thorarensens, útgerðarmanns Hólmaborg- arinnar, er aflaverðmæti alls aflans hátt á þriðja hundrað milljónir. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson Blóm fyrir fimmtíu þúsund tonn Fyrrum fanga dæmdar miskabætur j Framlenging fanga- vistarinnar í and- stöðu við stjómarskrá HÆSTIRÉTTUR hefur fallist á að greiða beri fyrrum fanga bætur, en hann var látinn sæta 10 daga einangrun með úrskurði yfirfanga- ! varðar vegna agabrots og bættist sá tími við refsivist hans. Hæsti- réttur staðfesti dóm Borgardóms frá því í maí 1991, en þar voru manninum dæmdar 40 þúsund króna miskabætur. Haustið 1988 hóf maðurinn af- plánun 280 daga refsivistar vegna skilorðsrofs og var meirihluta tímans í fangelsinu í Kópavogi. Þeg- ar langt var liðið á refsivistina fékk hann leyfi til að sækja AA-fund en virtist undir áhrifum vímuefna þeg- ar hann kom til baka og játaði að hafa tekið inn lyf. í framhaldi af því úrskurðaði yfirfangavörður hon- um 10 daga einangrunarvist, sem bættist við afplánunartímann, eins og þá var heimilt í lögum, en það ákvæði var fellt niður árið 1991. Maðurinn höfðaði mál og taldi að með því að fangaverðir gætu úr- skurðað um lengingu eða styttingu á refsivist manna hafí verið brotið gegn 2. grein stjómarskrárinnar, j . sem segir að dómendur fari með dómsvald. Þá hafi einnig verið brot- ið gegn Mannréttindasáttmála Evr- ópu, sem banni refsivist án dóms. Enginn sviptur freisi. án dóms í dómi Hæstaréttar segir, að það Frumvarp um iöfnun á flutninsrskostnaði olíuvara komið fram sé grundvallarregla íslensks réttar, ___________±______"__________________5______________________________________ að engmn verði sviptur frelsi sínu Flutningsjöfnun til hafna og lykilstaða á landinu Á ALÞINGI kom fram í gær frumvarp viðskiptaráðherra um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara þar sem lagt er til að flutningsjöfnun á olíuvörum nái framvegis til flutningskostnaðar milli olíuinnflutn- ingshafna og olíuhafna sem geti tekið á móti olíuskipum. Jafnframt nær flutningsjöfnunin til landflutninga til nokkurra lykilverslunar- staða þar sem höfn er ekki. Hins vegar nær jöfnunin ekki til olíu- vara ætlaðra til útflutnings svo sem til millilandasiglinga, millilanda- flugs, erlendra skipa og erlendra flugvéla. Sighvatur Björgvinsson, við- Ábyrgð á hagræðingu í dreifingu skiptaráðherra, hafði lagt fram olíuvara mun færast í auknum frumvarp um afnám flutningsjöfn- unarsjóðs en það strandaði í þing- flokkum ríkisstjórnarinnar vegna andstöðu þar. Ekki tókst að ná tali af viðskiptaráðherra í gærkvöldi vegna þessa máls. Ekki til alls landsins í athugasemdum með frumvarp- inu segir að lögin komi í stað nú- gildandi skipunar þar sem jöfnun flutningskostnaðar nái „til allra staða hvar sem er á landinu, inni á hálendi eða á ystu nesjum óháð tilkostnaði við dreifingu olíunnar. mæli á hendur olíufélaganna með nýju fyrirkomulagi Og þá um leið lækkar kostnaður við flutningsjöfn- unina samhliða aukinni sam- keppni." Þeir staðir sem flutningsjöfnun á landi nær til eru taldir upp í frum- varpinu, en jafnframt er þar að fínna ákvæði sem heimilar við- skiptaráðherra að íjölga aða fækka þessum stöðum að fengnum tilllög- um stjonar flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara. Staðirnir sem taldir eru upp í frumvarpinu eru: Hveragerði, Selfoss, Laugarvatn, Laugarás, Flúðir, Hella, Hvolsvöllur, Vik í Mýrdal, Kirkjubæjarklaustur, Fag- urhólsmýri, Egilsstaðir, Ásbyrgi, reykjahlíð við Mývatn, Laugar í S-Þingeyjarsýslu, Brjánslækur, Krókstjarðarnes, Skriðuland, Búð- ardalur, Reykholt í Borgarfirði og Borgarnes. nema úrskurður dómara komi til og ákvæði, sem hafi heimilað forstöðu- mönnum fangelsa ákvörðunarvald þar um hafi því verið í andstöðu við ákvæði stjórnarskrárinnar. Maður- inn hafí því sætt ólögmætri frelsis- skerðingu umfram dæmda refsivist og eigi þegar af þeirri ástæðu rétt til bóta úr ríkissjóði. Dómur Borgardóms um 40 þús- und króna bætur var staðfestur, en fanginn fyrrverandi hafði farið fram á 500 þúsund krónur í bætur. Þá dæmdi Hæstiréttur að kostnaður hans vegna áfrýjunar máisins skyldi greiðast úr ríkissjóði sem gjafsókn- arkostnaður, þar með talin málflutn- ingslaun skipaðs veijanda hans, Sig- urðar Georgssonar hæstaréttarlög- manns. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Hrafn Bragason, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason og Pétur Kr. Haf- stein. í dag 30 þúsund í sekt Leigubílstjóri hefur verið sektað- ur fyrir að hindra opinberan starfsmann í starfi 4 Listamannalaun_______________ 164 einstaklingar hlutu starfs- laun listamanna fyrir árið 1994 22 Leiöari Endurnýjun á Ítalíu 26 ^Uronublnbib Á úrVERJNU StMLM> UM SJÁVABUTVeo ► Tollar á sfld við inngöngu Svía og Finna í ESB - Gífurleg aukning á sölu saltaðra loðnu- hrogna - Góður árangur á Boston Seafood-sýningunni ► Páskaföndur - Skilafrestur í teiknimyndasamkeppni - Myndasögur - Myndir eftir krakka - Tindátar Sextán þingmenn vilja afnema aflamark á ufsa, ýsu og skarkola út fiskveiðiárið Ekkí þurfi veiðiheimildir fyrir aukaafla af þorski Verið að hlaupast frá vandanum, segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra GUÐJÓN A. Kristjánsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokks hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að afnema aflamark við veiðar á ufsa, ýsu, skarkoia og úthafsrælqu út þetta fiskveiðiár, sem lýkur 31. ág- úst. Jafnframt verði heimilt að landa þeim þorski, karfa og grálúðu sem slæðist með við þessar veiðar, ef sá aukaafli er innan við 15% af lönduðum heildarafla talið í þorskígildum. Aukaafli umfram 15% teljist til aflamarks og verði háður viðeigandi ákvæðum í lögum um stjórn fiskveiða. 15 þingmenn úr öllum þingflokkum eru meðflutnings- menn frumvarpsins með Guðjóni. Sjávarútvegsráðherra segir, að ef menn ætli að hlaupast frá vandanum með þessu móti, fari allar vonir um skynsamlega fiskveiðistjórnun fyrir lítið. Guðjón A. Kristjánsson sagði við Morgunblaðið, að hann væri ekki að Ieggja til beinar breytingar á kvótakerfínu, heldur væri um að ræða bráðabirgðaákvæði sem hefðu það í för með sér að auðveldara yrði að stunda veiðar á tegundum sem enn væru nægar aflaheimiidir fyrir. „Þá verða menn ekki í sífelldu bagsi við að umgangast miðin og geta þar af Ieiðandi fengið þennan meðafla. Mér telst til að við eigum óveidd um 120 þúsund tonn af ýsu, ufsa og Tónleikar Stefnis í kvöld RANGHERMT var í frétt Morgun- blaðsins í gær um síðustu vortón- leika Karlakórsins Stefnis. Tónleik- arnir verða í Bústaðakirkju í kvöld, miðvikudagskvöld, og hefjast klukkan 20.30. öðrum tegundum og menn koma ekki til með að stunda þessar veiðar án þess að fá einhvem þorsk með. Ég hygg að þorskveiðiheimildir flot- ans verði að stærstum hluta komnar það langt í endaðan apríl, að menn lenda þá í stórkostlegum vandræð- um,“ sagði Guðjón. Þegar Guðjón var spurður hvort skip hentu nú þegar miklum þorski í sjóinn sem aukaafla, sagðist hann ekki vilja segja um það eins og væri. „En ég held að framtíðin hljóti að bera það í skauti sér, að þegar menn verða alveg búnir með heimild- irnar lendi þeir annaðhvort í upptök- um og veiðileyfissviptingum og sekt- argreiðslum, eða gera eitthvað ann- að sem þeir eru alls ekki ánægðir með. Það er miklu heiðarlegra af Alþingi að reyna að horfast í augu við þetta vandamál frekar en humma það fram af sér og segja að kerfið sé gott, þegar það er ekki gott.“ Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði við Morgunblaðið, að það hefði verið miklu hreinna og beinna að flytja tillögu um að auka kvótann því frumvarpið fæli ekkert annað í sér. „Það má alltaf halda því fram, meðan takmarka á veiðar, að slíkt geti leitt menn í freistni að henda físki, og ef menn ætla að hlaupast frá vandanum með þessu móti, fara allar vonir okkar um skyn- samlega fiskveiðistjórnun fyrir lítið,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði, að stærsti hluti flot- ans hefði reynt að stýra veiðunum þannig að menn ættu eftir þorsk til að veiða með öðrum tegundum á síðari hluta fískveiðiársins. Það lægi í augum uppi að með ráðstöfunum sem þessum væri verið að koma í bakið á þeim sem tækju leikreglurn- ar alvarlega. Þorsteinn Pálsson sagði, að það væri fuilkomin rökleysa að gefa veið- ar fijálsar í þá stofna sem hefðu reynst veikari en áætlað var, og því hefði ekki náðst að veiða allan kvót- ann. Misjafnar undirtektir Málið var rætt á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks í gær og fékk mis- jafnar undirtektir samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins. Sex þing- menn Sjálfstæðisflokksins standa að frumvarpinu með Guðjóni, Sturla Böðvarsson, Eggert Haukdal, Guð- mundur Hallvarðsson, Guðjón Guð- mundsson, Ingi Björn Albertsson og Eyjólfur Konráð Jónsson. Tap Laiidsvirkjunar 3,25 milljarðar á síðasta ári TAP Landsvirlq'unar nam alls um 3.250 milljónum króna á árinu 1993 og er þetta annað árið í röð sem taprekstur er hjá fyrirtæk- inu. Þessa slæmu afkomu má einkum rekja til gengistaps vegna lækkunar á raungengi krónunnar. Þannig hækkaði fjármagnskostnaður fyrir- tækisins um 1.300 milljónii 7,5% gengisfellingar í lok júr Onnur meginástæða tapreki er aukinn kostnaður vegna i Blönduvirkjunar, en rekstra aður virkjunarinnar nam ; 1.500 milljónum án þess ac hafí aukist að ráði á móti. Sjá bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.