Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 51 KORFUKNATTLEIKUR Barátta, hraði og spenna Njarðvíkingar náðu að stöðva sigurgöngu íslands- og bikarmeistarana úr Keflavík NJARÐVÍKINGAR eru komnir í úrslit í úrvalsdeildinni íkörfu- knattleik. Þeir unnu granna sína í Keflavík í gærkvöldi, 91:98, í miklum baráttuleik sem hafði alit til að bera sem góður og skemmtilegur leikur þarf; frábæran varnarleik, ævintýralegan sóknarleik á köflum, baráttu, hraða og umfram allt mikla spennu. Það er því Ijóst að Keflvíkingar verða að sjá á eftir íslandsbikarnum eftir að hafa haft hann í sinni vörslu tvö undan- farin ár. Morgunblaðið/Þorkell Rondey Robinson skorar hér án þess að nokkur Keflvíkingur geri sig líkleg- an til að stöðva hann. Heimamenn byrjuðu betur og náðu 11 stiga forystu í fyrri hálfleik. Eftir það var eins og liðin tækju sig saman um að annað þeirra skoraði nokkur stig í röð og síðan hitt; slíkar voru svipting- amar. Keflavík nokkrum stigum yfir eina stundina, síðan góður kafli UMFN sem jafnaði. Svona gekk þetta fram að leikhléi en ÍBK hafði þá yfir 55:43. Leikmenn hittu vel í byrjun en síðan kom smá kafli þar sem allt gekk á afturfótunum. Sendingar mistókust og sum skotin komu ekki einu sinni nálægt körfunni. Þetta lagaðist fljótt og eftir þennan ÚRSLIT ÍBK-UMFN 91:98 íþróttahúsið í Keflavík, úrslitakeppni Úr- valsdeildarinnar í körfuknattleik, oddaleik- ur, þriðjudaginn 29. mars 1994. Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 15:7, 29:18, 32:30, 41:31, 43:41, 55:51, 63:61, 72:70, 78:78, 73:80, 82:80, 87:87, 89:89, 89:98, 91:98. Stig ÍBK: Kristinn Friðriksson 27, Albert Óskarsson 20, Guðjón Skúlason 19, Mike Brown 8, Sigurður Ingimundarson 6, Jón Kr. Gíslason 5, Brynjar Harðarson 4, Ólaf- ur Gottskálksson 2. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 19, Rondey Robinson 17, Teitur Örlygsson 16, Jóhannes Kristbjömsson 15, Friðrik Ragn- arsson 13, ísak Tómasson 10, Rúnar Áma- son 6, Ástþór Ingason 2. Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Al- bertsson sem dæmdu í heild mjög vel. Áhorfendur: Um 1500. NBA-deildin Leikir aðfaranótt þriðjudags: Indiana - LA Clippers...........126:93 Seattle - Denver................111:97 Evrópukeppni bikarhafa Fyrri leikir í undanúrslitum: París, Frakklandi: París St. Germain - Arsenal........1:1 David Ginola (49.) — Ian Wright (35.). 43.000. Ussabon, Portúgal: Benfica - Parma....................2:1 Isaias Soares (6.) Rui Costa (60.) — Ginafr- anco Zola (13.). 110.000. UEFA-keppnin Fyrri leikurinn í undanúrslitum: Salzburg, Austurríki: Salzburg - Karlsruhe................0:0 47.000. Æfingaleikur Valur er í æfinga- og keppnisferð í Skot- landi. Petershill - Valur..................4:4 ■Einar Öm Birgisson gerði tvö mörk, sitt I hvoram hálfleik, en Ölafur Brynjólfsson og Jón Grétar Jónsson skoruðu í seinni hálfleik á blautum vellinum. England Úrvaisdeildin: slæma kafla léku bæði lið mjög vel. Sóknir Keflvíkinga virtust þó ekki eins markvissar og oft áður í vetur en þeir bættu það upp með því að taka mikið af sóknarfráköst- um. Njarðvíkingar fóru sér heldur hægar í sókninni og vamarleikur- inn var góður, nema fráköstin um tíma. Hraðinn og spennan hélst í síð- ari hálfleik. Heimamenn beittari framan af en elja, sigurvilji og umfram allt reynsla Njarðvíkinga sagði til sín er á leið. Jafnt var, 89:89, er fjórar mínútur voru eftir. Þá gerðu Keflvíkingar nokkuð sem átti eftir að hafa mikil áhrif á gang leiksins. Þeir skiptu Jóni Kr. og Brynjari útaf. Við það riðlaðist sóknarleikur ÍBK og varnarleikur- inn var ekki eins góður en Brynjar hafði verið frábær í leiknum. Mike Brown fékk einnig sína fímmtu villu á þessum tíma. Teitur gerði þriggja stiga körfu og Rondey bætti tveimur stigum við þegar ein og hálf mínúta var eftir. Jóhannes og Friðrik gerðu næstu körfur og íslandsmeistar- arnir voru þar með slegnir út. Það var hart barist í þessum leik. Njarðvíkingar voru komnir með bónusrétt eftir rúmar 9 mínútur í fyrri hálfleik og í síðari voru það Úrslitukeppnin í körfuknattleik 1994 Þríðji leikur Sðanna í imdanúrslitum úrvalsdeildarínmr. Leildð i Keflavik. 91 ÚRSUT 98 14/19 Vftí 13/21 4/25 3jastíga 9/25 39 Fráköst 41 27 (vamar) 26 12 (sóknar) 15 8 Boltanáð 9 13 Boltatapað 17 12 Stoðsendingar 10 24 Villur 20 Keflvíkingar sem fengu bónusréttin eftir tæpar 7 mínútur. Keflvíkingar lentu í villuvandræðum því fjórir leikmenn fengu þtjár villur í fyrri hálfleikj en það var samt Njarðvík- ingur, Astþór, sem fyrstur fór útaf með fimm villur eftir þijár mínútur í síðari hálfleik. Hjá ÍBK lék Kristinn vel. Albert var mjög sterkur í fráköstunum og sama má segja um Brynjar. Brown náði sér ekki vel á strik enda í strangri gæslu Rondeys. Hann lenti í villuvanda og voru tvær villur sem hann fékk frekar í ódýrari kantin- um. Jón Kr. virtist vera sá eini sem gat stjórnað sókn ÍBK að þessu sinni. Hjá Njarðvík voru Valur, Teitur, Rondey og Jóhannes bestir og Rún- ar kom mjög sterkur inná í fyrri hálfleik og lék vel. Friðrik átti einn- ig mjög góðan dag og ísak stóð fyrir sínu. SKIÐI Skúli Unnar Sveinsson skrifar Ipswich - Man. City................2:2 Linighan (23.), Guentchev (67. - vítasp.) - Walsh (32.), Rosler (62.). 13.099. Newcastle - Norwich................3:0 Cole (45.), Lee (50.), Beardsley (70.). 32.216. Wimbledon - Blackbuni..............4:1 Fashanu (50.), Berg (75. - sjálfsm.), Holdsworth (79.), Earle (82.) - Wilcox (15.). 10.537. Staða efstu og neðstu liða: Man. Utd........33 21 10 2 68:32 73 Blackburn.......34 21 7 6 52:29 70 Newcastle.......34 19 6 9 68:33 63 Arsenal.........34 16 13 5 46:19 61 Tottenham.......34 8 12 14 44:47 36 Everton.........34 10 6 18 36:48 36 Southampton.....33 9 6 18 33:46 33 Man.City........35 6 15 14 28:42 33 Sheff Utd.......35 5 16 14 32:52 31 Oldham..........32 7 10 15 28:51 31 Swindon.........35 4 13 18 40:85 25 1. DEILD: Barnsley - Sunderland.......... 410 Bolton - Wolves..................1:3 Grimsby - Middlesbrough..........1:1 Oxford - Birmingham...............2:0 Pcterborough - Crystal Palace....1:1 Tranmere - Derby................ 4:0 Ástafimmta íNoregi Asta Halldórsdóttir frá Ísafirði varð í fimmta sæti í svigi á norska meistaramótinu í alpagreinum sem fram fór í Narvik í gær. Hún var 2,81 sekúndum á eftir sigurvegaranum Trine Bakke. Ásta fékk 27,81 (fis) stig fyrir árangur sinn, en hún á best 24,25 Stig. Theodóra Mathiesen úr KR hafnaði í 17. sæti í gær, var tæplega 10 sekúndum á eftir Ástu og hlaut 91,97 stig og bætti sig stigalega því áður átti hún best 117,27 stig. Kristinn Björnsson, Ólafsfirði og Arnór Gunnarsson, ísafirði, tóku þátt í svigi karla á sama stað í gær. Kristinn fór útúr í fyrri umferð en Arnór náði 16. sæti og fékk fyrir það 37,80 stig sem er langbesti árangur hans — átti áður best 47,77 stig. Arnór var 4,61 sek. á eftir Ólympíumeistaranum frá því í Albert- ville, Finn Chrisitan Jagge, sem sigraði. Lasse Kjus, Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson Ásta Halldórsdóttir er komin í fremstu röð Norður- landabúa í svigi. Hér er hún ásamt sænska þjálfaranum sínum, Hans Ottoson. Ólympíumeistari í tvíkeppni, varð annar, Harald Christ- ian Strand Nilsen þriðji og heimsbikarhafinn, Kjetil Ándre Aamodt, fjórði. Hvað sögðu þeir? etta var spurningin um að gefast aldrei upp, við áttum lengstum á brattan að sækja en þrátt fyrir það náðum við halda okk- ar striki þar til yfir lauk og það gerði— gæfumuninn, sagði Valur Ingimundar- son, þjálfari og leikmaður Njarðvík- inga, eftir leikinn. „Ég er mjög ánægður með hvernig við lékum, ietta var skemmtilegur leikur, hörku- barátta frá upphafi til enda og ekki skemmdi stemmningin í húsinu. Við erum með gott lið og ég held að við séum búnir að sanna það með því að slá Keflvíkinga út úr keppninni.“ „Við urðum svo sannariega að hafa fyrir þessu því Keflvíkingar eru með gott lið og það fer enginn með sigur úr Keflvík án þess að hafa lagt sig fram. Stemmningin í húsinu var rosaleg, það heyrðist ekki mannsins mál fyrir hávaða og nær útilokað að koma skilaboðum milli manna,“ sagði"' Teitur Örlygsson í liði UMFN. „Vörn- in hjá okkur var mjög góð og þá sérstaklega síðustu mínúturnar þegar við náðum að stöðva skyttumar hjá þeim og þá réðust úrslitin," sagði Teitur ennfremur. Brown fann sig ekki • „Þetta er alveg nýtt fýrir okkur að komast ekki í úrslit og ég held að það taki tíma að átta sig á því. Bandaríkjamaðurinn Mike Brown komst aldrei inn í leikinn að þes^^_ sinni og ég er viss um að ef hefðúm haft Raymond Foster þá hefði ekki þurft að spyija að leikslokum," sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmað- ur Keflvíkinga sem ekki gekk heill til skógar í leikinn. Jón er meiddur á læri og var hann deifður fyrir leikinn og í hálfleik. „Meiðslin háðu mér tals- vert og þá sérstaklega í síðari hálf- leik,“ sagði Jón sem var í sérstakri gæslu allan leikinn og notuðu Njarð- víkingar 3 menn sem skiptust á að gæta hans. „Það hefur gengið á ýmsu hjá okkur í vetur og í heildina má segja að við höfum staðið okkur mjög vel og ég er ákaflega ánægður með liðið og þá sérstaklega ungn strákana. Annars fannst mér leikur- inn vel leikinn og vel dæmdur. Ég - var og er sannfærður um að sigurveg- arinn úr þessum viðureignum mun hampa íslandsmeistaratitlinum þegar upp verður staðið," sagði Jón Kr. Gíslason. ÍÞRÚmR FOLK ■ KEFL VÍKINGAR urðu að taka til þess ráðs að loka húsinu þegar 20 mínútur voru í leik en þá v^ _ orðið uppselt á leikinn og er það f fyrsta sinn sem slíkt gerist á Suð- urnsejum að sögn formanns körfu- knattleiksdeildar ÍBK. ■ TEJTUR Örlygjsson lenti í því einu sinni að fara einn í hraðaupp- hlaup og ætlaði að leggja knöttin ofan í körfun. Það mistókst hjá honum, en hann fékk aftur send- ingu fram þegar hann var á leið- inni í vörnina og nú rétti hann upp hendina til að sýna áhorfendum hvernig ætti að gera hlutina, stökk upp og tróð. ■ ÍBK fékk aðeins þijú vítaskot í fyrri hálfleik. Kristinn Frirðiks- son hitti úr þeim öllum. í síðari hálfleik voru það Njarðvíkingar sem fengu þrjú vítaskot, en aðeins eitt heppnaðist. ■ TÆKNIVÍTI var dæmt á vara- mannabekk UMFN um miðjan fyrri hálfleikinn. Albert og Rondey lenti*. saman og Valur rauk af bekknum til að lesa yfir Alberti og fékk tæknivíti í staðinn. Björn Blöndal skrifar frá Keflavik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.