Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 21 Lífeyrissjóður 15,1% rauná- vöxtun AL VÍB ÁVÖXTUN fjármuna í ALVÍB, Almennum lífeyrissjóði VÍB, var hærri en nokkru sinni fyrr á síðasta ári eða alls 15,1%. í kjölfar lækkunar vaxta á síðustu tveimur mánuðum ársins varð umtalsverð- ur gengishagnaður sem skýrir að stærstum hluta þessa háu ávöxt- un. Raunávöxtun ALVIB var 7,4% á árinu 1992 en síðustu fjögur ár eða frá því sjóðurinn var stofnaður hefur raunávöxtunin verið 9,2% að meðaltali, að því er segir í fréttatilkynningu. í árslok 1993 var hrein eign sjóðsfélaga í ALVÍB rúmar 500 milljónir króna samanborið við 260 milljónir í árslok 1992. Framlög sjóðfélaga námu tæpum 190 millj- ónum á sl. ári. Stærstur hluti eigna ALVÍB er ávaxtaður í skuldabréf- um með ábyrgð ríkisins eða 49,1%. Rúm 39% af eignum sjóðsins eru ávöxtuð í skuldabréfum sveitarfé- laga og banka en 12% eru í öðrum skuldabréfum eða lausu fé. Sjóðfé- lögum fjölgaði um 315 á árinu 1993 og voru í árslok orðnir tæplega eitt þúsund. Kostnaður við rekstur ALVÍB sem hlutfall af eignum sjóðsins var 0,4% en hafði verið 0,5% árið á undan. Rekstrarkostn- aður sem hlutfall af iðgjöldum var 1% en hafði verið 0,9% á árinu 1992. ALVÍB er séreignasjóður þar sem framlag sjóðfélaga er séreign hans. Eignin veitir þó ekki rétt til neinna trygginga líkt og í sameignarsjóð- um. Það sem af er þessu ári hefur sjóðsfélögum í ALVÍB enn fjölgað og eignir haldið áfram að aukast. Iðnaður Nathan & Olsen kaupa Sápugerðina Frigg Efnahagsmál Atvinnulausum fjölgar í Japan Tókýó. Reuter. ATVINNULEYSI jókst í Japan í febrúar — hefur ekki verið eins mikið í sex ár og ólíklegt er að úr rætist í bráð að sögn japanskra sljórnvalda. Atvinnuleysið í febrúar jókst í 2,9% úr 2,7% í janúar. „Við höfum ekki ennþá séð nokkur merki um bata á atvinnuleysisástandinu," sagði talsmaður stjórnarstofnunar, „þrátt fyrir smáglætu í efnahags- málunum." „Botninum í efnahagsmálunum verður líklega náð annaðhvort á tímabilinu janúar/marz eða apríl/ júní,“ sagði hagfræðingurinn Shig- eru Kodama. „Atvinnuleysið mun ná hámarki um næstu áramót og minnka síðan smám saman.“ Masayoshi Takemura ríkis- stjórnarritari sagði að stjórnin ynni að áætlunum um að tryggja at- vinnu og fjölga atvinnutækifærum. í febrúar sóttu 65 manns um hver 100 störf, en 67 í janúar og 65 í desember. Sumir hagfræðingar telja ástandið ekki eins slæmt og af er iátið. Hagfræðingurinn Masaaki Kimura telur að nokkur batamerki kunni að koma í ljós á næstu mán- uðum vegna fyrri uppsagna og til- færslna. Þó sagði hann að búast mætti við fleiri uppsögnum og til- færslum, þar sem mörgum starfs- mönnum væri ofaukið í japönskum fyrirtækjum. Ráðningum ijölgaði í febrúar um 160.000, eða 0,3% miðað við árið á undan, í 63,02 milljónir. Ráðn- ingum karlmanna fækkaði hins vegar um 10.000 miðað við árið áður — í fyrsta skipti síðan í júlí 1984. Fjármál Lán til rafmagns- sæstrengs yfir Skagerrak Lúxembor g. FJÁRFESTINGARBANKl Evrópu (EIB) mun veita norsku orku- veitustofnuninni Statnett SF lán að upphæð 11,2 milljónir Banda- ríkjadala (10 milljónir ecu) til lagningar orkusæstrengs milli Noregs og Danmerkur að því er bankinn hefur tilkynnt. Strengurinn á að flýta fyrir flutningi raforku milli landanna og til annarra landa Evrópusam- bandsins (ESB), sem fjárfestingar- bankinn heyrir undir. Að síðasta láninu meðtöldu nemur heildarlán- veiting bankans til framkvæmdar- innar 95 milljónum ecu. Með íjármögnun sinni vill EIB bæta orkuveitukerfi Evrópu, sem Evrópusambandið telur forgöngu- verkefni, að því er segir í tilkynn- ingu frá bankanum. Norðmenn, sem væntanlega gangi í Evrópu- sambandið á næsta ári, eigi nægar umframbirgðir af vatnsafli til út- flutnings til ESB, en orkuver í aðildarlöndunum séu ekki eins umhverfisvæn. í tilkynningunni segir að sæ- strengurinn muni auka öryggi beggja aðila i rafmágnsbirgðamál- um og spara orku, því að komizt verði hjá kostnaðarsamri hámarks- framleiðslu. Heildarlánveiting EIB vegna Noregs nemur nú rúmlega 370 milljónum ecu að sögn bankans. Fyrri lán voru veitt til nýtingar olíu og gass á Snorre og Veslefri- kk-svæðum Norðmanna í Norð- ursjó. NATHAN og Olsen hf. hafa keypt Sápugerðina Frigg í Garðabæ af Burstagerðinni hf. og munu taka við rekstrinum nú um mánaða- mótin. Vilhjálmur Fenger, framkvæmdastjóri Nathans & Olsens, sagði í samtali við Morgunblaðið að kaupin væru fyrst og fremst til þess hugsuð að styrkja stöðu fyrirtækisins og þjóna viðskiptavinun- um betur en þeir hefðu getað gert hingað til. „Sápugerðin Frigg framleiðir áfram þá vöru sem hún hefur gert hingað til en salan og dreifingin mun fara í gegnum Nathan & Olsen," sagði Vilhjálmur. Nathan & Olsen keyptu á síðasta ári pökkunarfyrirtækið Hagver og að sögn Vilhjálms falla kaupin á Frigg vel að áætlunum fyrirtækis- ins. „Við erum sölu- og markaðsfyr- irtæki með öflugt dreifingarkerfi. Frigg mun sjá um kaup á hráefnum og framleiðslu líkt og áður en síðan taka Nathan & Olsen við.“ Vilhjálm- ur sagði ennfremur að Burstagerðin hefði gert góða hluti í rekstri sápu- gerðarinnar. „Við munum halda allri eðlilegri þróun áfram til þess að þessi starfsemi dafni.“ Böðvar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Burstagerðarinnar, sagði aðspurður um ástæðu sölunn- ar að þegar Burstagerðin keypti Frigg fyrir réttum þremut' árutn hefðu verið samdráttartímar. „Upp- byggingin var dýr og eftir miklar endurbætur á starfseminni var orð- ið erfitt með framhaldið vegna mik- ils fjármagnskostnaðar." Burstagerðin er nú rekin í nýju húsnæði sem byggð var við hlið Sápugerðarinnar Friggjar í Garðabæ en fylgdi ekki með í kaup- unum. Böðvar sagði að enn hefði ekki verið tekin ákvörðun urn hvort fyrirtækið flytti. Hvorugur aðilanna vildi upplýsa um kaupverðið, en auk Nathans & Olsens sýndu sveitarstjórnir í Aust- ur-Húnavatnssýslu áhuga á Frigg. Ekkert formlegt tilboð barst þó þaðan. Hlutabréf 15% hækkun hjá Sjóvá GENGI hlutabréfa í Sjóvá-Almennum hækkaði um 15% í gær. Þá voru skráð viðskipti að markaðsvirði ein milljón króna á genginu 5,40 en síðustu viðskipti voru á genginu 4,70. Þá lækkuðu hlutabréf í Skelj- ungi um 8% í viðskiptum sem voru 2,5 milljónir að markaðsvirði. Þetta eru fyrstu viðskiptin sem skráð eru eftir aðalfund félagins 15. mars sl. þar sem samþykkt var útgáfa 10% jöfnunarhlutabréfa og 10% arðgreiðsla. í heild voru í gær skráð hluta- bréfaviðskipti upp á 10,7 milljónir króna. Auk viðskipta í Sjóvá- Aimennum og Skeljungi áttu sér stað viðskipti með bréf í Eimskip upp á 3,9 milljónir króna á genginu 3,70-3,85. Stærstur hluti viðskipt- anna var á genginu 3,85. Einnig áttu sér stað viðskipti með hlutabréf í Mareí upp á 2,1 milljón á óbreyttu gengi, 2,69, og í Toll- vörugeymslunni upp á 900 þúsund krónur á genginu 1,10. PASKAGLEÐIHJA Q McDONALD’S 2 vænir og gómsætir bitar, 1/4 kjúklingur, á sérstöku páskakynningarverði KR.222, (Veniulegt verð kr. 349,-) áskaleikur fyrir börnin ERTU HEPPIN/N?!10 páskaegg af stærstu gerð frá._ Nóa-Síríus eru í vinning í páskahappdrættinu! /" 'X'N PS. Barnagamanið núna er VETRARÍÞRÓTTIR! (Barnagaman er McHamborgari eða McOstborgari \ m. litlum McFrönskum, gosdrykk og leikfangi.) LYST 0000 Leyfishofi McDonald's Islensktfyrirtœki íslenskar landbúnaðarafurðir y' \ i h 1 ■ \. ' y VEITINGASTOFA FJÖLSKYLDUNNAR, SUÐURLANDSBRAUT 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.