Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 9 VOR- OG SUMARFATIMAÐUR í FALLEGUM LITUM ALLAR STÆRÐIR SILKIPILS BLÚS5UR, PEYSUR, JAKKAR.BOLIR o.mfl. 4 nriTCTMlVrikn Þar sem Jr Ju 1*91 JN XI m vandlátir Kirkjuhvoli • sími 20160 L_JJHJ Verslcl. 164 kr. á dag koma sparnabinum í lag! Það þarf aðeins 164 kr. á dag til að spara 5.000 kr. á mánuði með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú bíður með að spara þangað til þú heldur að þú hafir „efni" á því byrjar þú aldrei. Líttu á sparnað sem hluta af reglulegum útgjöldum þínum, þannig verður sparnaðurinn auðveldari en þú heldur. Ert þú búin(n) að spara 164 kr. í dag? Hringdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og byrjaðu reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Hvað er á seyði? Nig-el Andrews, kvik- myndagagnrýnandi Fin- anciaJ Times og einn kunnasti rýnir Bretlands um þessar mundir, segir t.d. í blaði sínu 17. mars sl: „Hvað í ósköpunum er á seyði í höfðingjasetrinu Húsi andanna í sam- nefndri mynd Biile Aug- usts? Skáldsagan sem myndin er byggð á er metsölubók með riflegan skerf af töfraraunsæi, er eftir Isabei Allende, frænku Salvadors All- ende, fyrrverandi leiðtoga Chile. Isabel Allende skrifar prósa sem er upp- fullur af duirænu og hún er rithöfundinum Gabriel Gareia Marquez eins og Daphne du Maurier er Emily Bronte. Uppnumin, rómantisk, spannar allan tilfimiingaskalann - en þegar upp er staðið minnir hún meira á tíma- ritið Reader’s Digest en sannar bókmenntir. í þessari óendanlegu menningarútþynnkun fáum við svo kvikmynd- ina, sem er skáldsögunni það sem Sylvie Krin er Daphne du Maurier. í „nafnlausu" landi í Suður- Ameríku líða árin og ástríðurnar blossa upp og slökkna. Miðdepill mynd- arinnar er myndarlegur og harðbijósta Jeremy Irons, jarðeigandi og metnaðargjai-n stjórn- málamaður sem á „fijó- samasta búgarðinn í land- inu“ og hefur óskiljanleg- asta hreim frá þvi Loyd Grossman var og hét. (Er þetta bandarískur hreim- ur? Eða írskur? Og hvers vegna talar leikarinn eins og hann sé með gervitenn- ur sem ekki vi(ja tolla á sínum stað?) Um hann hringsnúast systirin Glemi Close, sem elskar konuna hans, skyggna eiginkonan Meryl Streep og dóttirin Winona Ryder, sem er ástfangin af byltingar- simianum Antonio Bande- ras, sem Irons hatar og eltir með byssu. Ljóst er að þessi ungi maður er Close og Streep í hlutverkum sinum í Húsi andanna. Hús andanna í breskum blöðum Að undanförnu hefur verið boðið upp á mikla veislu í reykvískum kvikmyndahús- um. Hver stórmyndin á eftir annarri hef- ur rekið á fjörur kvikmyndaunnenda, iðu- lega um sama leyti og í nágrannalöndun- um og því gefst tækifæri til að bera sam- an hvernig gagnrýnendur skrifa um þess- ar myndir hér heima og erlendis. Þar getur verið ólíku sama að jafna eins og Hús andanna er dæmi um, því hún hefur fengið heldur lofsamlegar umsagnir hér heima meðan það kveður heldur betur við annan tón í breskum fjölmiðlum. hættulegur utangarðs- maður. Hann virðist sá eini í Suður-Ameríku sem talar með spænskum hreim. Tengsl persónanna verða æ flóknari eftir þvi sem klukkustundirnar og áratugirnir liða. Ólgandi bakgrunnur stjómmála- umrótsins gerir illt verra. Close deyr, Streep deyr, Irons eldist; áhorfendum- ir eldast, handritið eldist, myndin teygir sig eftir iokauppgjöri eða að minnsta kosti einhvers konar hápunkti. En loks- ins þegar kemur að vaida- ráninu mikla og uppreisn- armennirnir sækja fram út um allt iand er hetjan okkar komin yfir sjötugt, eftir fjögurra tíma andlits- förðun, og handritshöf- undurinn/Ieikstjórinn August (sem á að baki Pelle sigurvegara) er í örvæntingarfullri leit að tilgangi með þessu öllu. Og hann er auðvitað ekki til. íjóðfélagslegt þema skáldsögunnar snýst að nokkm leyti um hvort hægt sé að sætta óvini samtímans undir andlegri leiðsögn úr fortiðinni. (All- ir ganga aftur og valda mikilli þröng í höfðingja- setmnum sem leikmynda- hönnuðurinn Anna Asp hefur úthugsað af næmni.) Myndin virðist hins vegar fremur snúast um það hvort hægt sé að blása lífi í áður stjöraubjartan feril þrigrgja leikara, sem von- ast til þess að ná flugi aftur í „metnaðarfullu" verki. Streep fær annan skammt af „sígildum“ nú- timabókmenntum eftir óheillamyndina Ironweed. Close fær að leika með Streep, sem hafði verið gamall draumur hennar ef marka má skmmaug- lýsingamar. Og Irons fær aftur að reyna sig við hlut- verk óeðlilegrar persónu eins og það sem færði honum Oskarinn fyrir Reversal Of Fortune. En þetta er versta frammi- staða hans á leikferlinum: tal hans og útlit er af- skræmt og sköpunin hálfkömð." Húsandanna er klúður The Daily Telegraph birti eftirfarandi gagn- rýni um kvikmyndina 20. mars og segir m.a.:. „Jeremy Irons er helsti sökudólgurinn, sem er sérlega óheppilegt þar sem hann leikur Esteban, höfuð ættarinnar, og er því langlengst á sýning- artjaldinu. Hann byggir upp búgarð af eigin rammleik, kvænist stúlku með yfirskilvitlega gáfu (Streep í sínum daprasta ham), lendir í rimmurn við þijóska dóttur sína (Ryd- er) og hrekur systur sina (Glenn Close) af heimilinu með heift sinni í garð kvenna. Close klæðist aðeins svörtu, líkt og geðveik pip- aijómfrú, og lítur út fyrir að ætla sér að leika frú Danvers, en sú persóna hverfur smám saman og deyr. Fæðing og dauði er eðlilegur hluti af sagna- hefð Rómönsku Ameriku en þegar þessu er þröng- vað inn í söguþráð mynd- arinnar virðist það handa- hófskennt og marklaust. Á meðan fer Irons á flakk með hreiminn, frá Dallas til Dublin, með við- komu í Dubai. Hann á að vera útitekinn en svo virð- ist sem hann hafi makað tómatsósu á kinnamar og þetta em ekki sísta vanda- mál hans ... Alkunna er að það er afar erfitt að gera kvik- myndir byggðar á töfra- raunsæinu ... Myndin Hús andanna er klúður og á lítið skylt við skáldsöguna sem hún er byggð á og August mistekst hrapal- lega að koma á framfæri eigin sýn.“ ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91-626040 Almennur lífeyrissjóður VÍB, ALVÍB, er séreignarlífeyris- sjóður þar sem öll framlög sjóðsfélaga eru hans eign og færast á sérreikning hans. Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð geta greitt öll sín iðgjöld í ALVIB. Sjóðurinn hentar einnig sem viðbótarlífeyrissjóður. • 15,1% RAUNÁVÖXTUN ÁRIÐ 1993 • INNEIGN ERFIST • ÍTARLEGT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGT YFIRLIT • LÁGUR REKSTRARKOSTNAÐUR Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um ALVÍB í afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í símá 91 - 60 89 00. Verið velkomin í VIB! VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • I_ Ármúla 13a, sími: 91 - 60 89 00. __l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.