Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 Sumartíð í blóma- garði Alþingis eftir Þorstein Sæmundsson „í ár ber sumardaginn fyrsta upp á fimmtudag." Þessi spaklega setning stóð í Morgunblaðinu fyrir mörgum árum og var ein af þeim fjólum sem færðu ónefndum blaðamanni landsfrægð. Enn spretta skrautblóm af sama tagi; og það við sjálfan Austurvöll. I greinargerð með nýlegri þings- ályktunartillögu um sumartíma, skipan frídaga og orlofs segir m.a.: „íslendingar taka þijá fasta frí- daga á fimmtudögum, skírdag, uppstigningardag og sumardaginn fyrsta. Að vísu kemur fyrir að uppstigningardagur og sumardag- urinn fyrsti falla saman" (letur- breyting mín). Blaðamaður Morg- unblaðsins gat haft sér það til afsökunar að fullyrðing hans væri rétt: sumardaginn fyrsta bar upp á fimmtudag það árið sem önnur ár. En þeir fjórir alþingismenn sem standa að umræddri þingsályktun- artillögu hafa ekki þá afsökun. Uppstigningardagur og sumar- dagurinn fyrsti geta aldrei fallið saman; stysta bil á milli þeirra er ein vika. Þetta er ekki eina gullkornið í greinargerðinni. Þar stendur: „Enn fremur hefur komið fram það sjónarmið að æskilegt sé að flytja sumardaginn fyrsta frá þriðja fimmtudegi í apríl yfir á sumarið, t.d. júní- eða júlímánað- ar“ (orðrétt tilvitnun). Hvaðan VINKLAR A TRE HVERGI LÆGRI VERÐ Mny ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI EINKAUMBOÐ co Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 skyldi sú hugmynd komin, að sum- ardagurinn fyrsti sé þriðji fimmtu- dagur í apríl? Hann er það reynd- ar þetta árið, en það þarf mikla fljótfærni til að draga af því þá ályktun, að þetta sé almenn regla. Undanfarin þijú ár hefur sumar- dagurinn fyrsti verið fjórði fimmtudagur í apríl. Og hvað eiga mennirnir við þegar þeir tala um að flytja þennan dag fram á sum- ar? Vilja þeir í alvöru taka upp frídag á miðju sumri og kalla hann sumardaginn fyrsta? Fyrsti flutningsmaður þings- ályktunartillögunnar, Vilhjálmur Egilsson, sannar það í DV hinn 11. mars að hann er ekki með það á hreinu hvenær þeir dagar eru, sem hann vill flytja til. Vilhjálmur segir: „Ég vil líka benda á að fimmtudagsfrídagarnir, bæði sumardagurinn fyrsti og uppstign- ingardagur, falla í apríl og stund- um fyrri partinn í maí.“ Af orð- anna hljóðan mætti ætla, að sum- ardagurinn fyrsti ætti það til að lenda í maí og hefðu það einhvern tíma þótt fréttir. Hvað uppstign- ingardag snertir, er hann oftar en ekki seinni hlutann í maí eða í byijun júní. Að hann sé í apríl er sjaldgæft, svo að ekki sé meira sagt. Það gerðist síðast árið 1818 og mun næst gerast árið 2285. í fyrrnefndri greinargerð segir enn fremur að „náttúrulegt há- degi“ hér á landi sé um klukkan hálftvö. Flutningsmenn virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því að hádegi er á mismunandi tíma eftir því hvar er á landinu og breyt- ist um þijá stundarfjórðunga þeg- ar farið er yfir landið frá austri til vesturs. Það að auki sveiflast hádegið til um hálftíma yfir árið vegna breytilegrar göngu sólar. Þannig getur hádegi á íslandi ver- ið allt frá klukkan 12:38 til klukk- an 13:53, en þau tímamörk spanna hvorki meira né minna en fimm stundarfjórðunga. í Morgunblaðinu 15. mars reyn- ir Vilhjálmur Egilsson að rökstyðja þá hugmynd, sem fram kemur í umræddri þingsályktunartillögu, að klukkunni skuli flýtt á sumrin frá því sem nú er. í grein Vil- hjálms eru nokkur dæmi í viðbót um ónákvæmni og fljótfærni. Þar segir: „ísland er eina landið í hinum vestræna heimi sem ekki hefur sumartíma sem felst í því að klukkan er færð áfram um eina klukkustund undir lok mars og svo er hún færð til baka um eina klukkustund á haustin.“ Ekki veit ég hvað þingmaðurinn á við þegar hann talar um hinn vestræna heim, en Bandaríkin og Kanada eru þar greinilega ekki á blaði. í báðum þessum löndum eru fylki eða héruð sem fylgja fastri klukku árið um kring, en á þeim svæðum þar sem reglur eru um sumartíma, er klukkunni flýtt í byijun apríl. í grein sinni leggur Vilhjálmur áherslu á það, að aðrar þjóðir í hinum vestræna heimi hafi tekið upp þann hátt að flýta klukkunni á sumrin. Er á honum að skilja, að þetta hljóti að vera röksemd fyrir því að við gerum hið sama. Svo er þó ekki, því að aðstæður hér á landi eru ekki þær sömu og í þeim löndum sem vitnað er til. Eins og ég benti á í Morgunblað- inu 9. mars, var „sumartíminn" upphaflega neyðarráðstöfun sem gripið var til tímabundið á styijald- artímum til að spara eldsneyti. Þegar við íslendingar tókum upp fasta klukku árið 1968, voru flest- ar þjóðir hættar að flýta klukk- unni á sumrin, en vegna olíukrepp- unnar á áttunda áratugnum sner- Þorsteinn Sæmundsson „Yið íslendingar búum þegar við fljóta klukku allt árið. Ef við vildum fara að dæmi meiri- hluta þeirra þjóða sem Vilhjálmur vitnar til, ættum við ekki að flýta klukkunni á sumrin frá því sem nú er, heldur seinka henni á vet- urna. ist þróunin við. Ástæðan fyrir því að aðrar þjóðir taka á sig öll þau óþægindi sem fylgja hringlinu með klukkuna er fyrst og fremst sú, að þær eru að spara eldsneyti - áður voru það kolin sem mestu máli skiptu, en núna olían. Á ís- landi er þessi ástæða ekki fyrir hendi. Þegar Vilhjálmur hvetur til þess að við förum að dæmi annarra þjóða, yfirsést honum líka í öðru atriði. Við íslendingar búum þegar við fljóta klukku allt árið. Ef við vildum fara að dæmi meirihluta þeirra þjóða sem Vilhjálmur vitnar til, ættum við ekki að flýta klukk- unni á sumrin frá því sem nú er, heldur seinka henni á veturna. Með öðrum orðum, við ættum þá að hverfa aftur til þess fyrirkomu- lags sem gilti hér á landi fyrir 1968. Varla er það þetta sem Vil- hjálmur ætlast til, því að við mynd- um þá fjarlægjast Evrópulönd í tíma yfir vetrarmánuðina. Að lokum gerir Vilhjálmur því skóna, að gagnrýni mín á tillögum hans um sumartíma stafi af því að ég óttist meiri fyrirhöfn við að semja og prófarkalesa töflur í al- manakinu. Ef þingmaðurinn hefði gefið sér tóm til að lesa betur greinina sem hann er að and- mæla, hefði honum skilist, að töfl- ur í almanökum verða að fylgja föstum tíma árið um kring. Með öðrum orðum, reglur um sérstaka stillingu klukkunnar á sumrin hafa engin áhrif á slíkar töflur. Ekki myndi þurfa að breyta stafkrók þótt tillögur Vilhjálms næðu fram að ganga. Hins vegar þyrftu les- endur að muna að bæta klukku- stund við tímana í töflunum á sumrin ef klukkunni væri flýtt, eins og þeir þurftu að gera meðan reglur um sérstakan sumartíma voru í gildi (1917-1918 og 1939- 1968). Þetta verða lesendur al- manaka í nágrannalöndum okkar að sætta sig við. Þótt ekki sé allt upp talið sem aðfinnsluvert er í þessu máli, skal látið staðar numið að sinni. Von- andi heyra vinnubrögð eins og þau, sem hér hefur verið lýst, til undantekninga á hinu háa Alþingi. Höfundur er stjörnufræðingvr og ritsljóri Almanaks Háskóla íslands. Til betri tannheilsu í framtíðinni eftir Jón Ásgeir Eyjólfsson I M P E X Sterkt • auðvelt • fljótlegt Telja má að einn helsti áfangi í heilbrigðismálum á þessari öld sé sú stórfellda breyting sem orðið hefur á tannheilsu í nútíma þjóðfé- lagi. Það er ekki svo ýkja langt síð- an öll börn lifðu við tannpínu, flest- ir einstaklingar um þrítugt voru með flestar tennur skemmdar og margir voru tannlausir. í dag eru heilir hópar barna lausir við tann- sjúkdóma, sumir fullorðnir yfir þrí- tugt eru án tannskemmda og fyll- ingalausir og fólk reiknar með að tennur þess endist því ævilangt. Jafnvel það að tengja tannlækn- ingar við sársauka og tíðar viðgerð- ir er liðin tíð. Þannig er tanngæsla að taka á sig mynd forvarnaþjón- ustu. Takmarkið er að viðhalda tannheilsu og útliti sem skiptir miklu máli í nútíma þjóðfélagi. GÆSLU DAGURINN 0#®C Eðli breytinga Hillukerfi sem allir geta sett saman ' 1 - ■ • 1 ©DEXION SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNI31 • SÍMI 62 72 22 Þrátt fyrir þessar breytingar er þörf á viðgerðum, lagfæringum og endurbótum. Eðli tannlækninga er smám saman að taka á sig aðra mynd. Viðgerðarþátturinn víkur hjá ungum einstaklingum og forvarnir verða ríkjandi. Áhugi og skilningur foreldra og uppalenda er meiri í dag enda eru þeir betur uppfræddir. Eftir því sem viskan og vísindin hafa eflst hefur árangurinn orðið meiri og sérgreinar hafa myndast. Tækni hefur fleygt fram bæði í tækjabúnaði og efnum. Kröfur til bættrar tannheilsu eru hluti af bættu heilbrigði og betra lífi. „í dag eru heilir hópar barna lausir við tann- sjúkdóma, sumir full- orðnir yf ir þrítugt eru án tannskemmda og fyllingalausir og fólk reiknar með að tennur þess endist því ævi- langt.“ Forvarnir Ljóst er að forvarnir hafa skilað miklum árangri. — Flúor í ýmsum myndum svo sem í tannkremi, í töfluformi og í skolvökvum. — Skorufyllur eða plasthúðun bitflata. — Framþróun í tækjakosti og bætt fyllingarefni. — Bætt menntun og fjölgun tannlækna. — Síðast en ekki síst viðhorf al- mennings til aukinnar hreinsunar. Allt eru þetta atriði sem hafa gert okkur kleift að ná árangri. Ekki má þó sofna á verðinum Tölur utan úr heimi sýna að tann- skemmdir eru á hægri uppleið eftir i I i I WHO ogFDI Alþjóða heilbrigðisstofnunin I I i I I I b i » i i » i margra ára niðurtalningu. Mörgu er kennt um en víst er að neyslu- venjur í nútíma þjóðfélagi eru að breytast. Óreglulegir matmáls- tímar, aukið hlutfall skyndibita í máltíðum og stöðug aukning sykur- neyslu í einu eða öðru formi bæta ekki tannheilsuna. > » (WHO) og alheims félagasamtök tannækna (F'DI) hafa tekið höndum saman og kosið að velja árið 1994 „Ár bættrar tannheilsu“ með áherlsu á 7. apríl sem alþjóðlegan tanngæsludag. Til þess að árangur náist þarf samstöðu allra hlutaðein- andi, þ.e. almennings, tannlækna og heilbrigðisyfírvalda. Ekki bara í dag heldur til allrar framtíðar. . I I Höfundur er formaður Tannlæknafélags íslands. t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.