Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 25 „Síðfasistar“ fagna sigri Njóta einkum fylgis á Suður-Ítalíu Róm. Reuter. AÐDÁENDUR Benitos Mussolinis sáluga, fyrrverandi einræðisherra á Italiu, fögnuðu sætum sigri í gær, 50 árum eftir að valdatíma fasista lauk. „Betra er seint en aldrei," sagði kona nokkur í Róm og veifaði fána flokksins, Þjóðarbandalagsins. Nýfasistar áttu mikinn þátt í sigri Frelsisbandalagsins, kosningabandalags Áfram Italía, flokks Silvios Berlusconis, Norðursambandsins og Þjóðarflokksins, en fylgi við nýfas- ista er mest í suðurhluta landsins. Þar minnast menn enn öryggisins og reglunnar, sem ríkti á dögum Mussolinis, þá gengu lestirnar eftir áætlun og mafíunni var haldið í skefjum. „Duce, duce“ (heiðurstitill Musso- linis) og „Gætið ykkar, fasistar á ferð“ hrópuðu stuðningsmenn Þjóð- arbandalagsins, sem fögnuðu sigri á Piazza del Popolo í Róm og heilsuðu að fasistasið með uppréttum hand- legg. Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóð- arbandalagsins, þótti líka mjög landsföðurlegur þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína: „Ég bið ykkur að sýna stillingu og vera verðugir liðsmenn þess mikla afls, sem unnið hefur kosningarnar," sagði Fini, sem ætlar sér mikinn hlut í ítölskum stjórnmálum. I kosningabaráttunni lýsti hann yfir, að hann væri maður- inn, sem beðið hefði verið eftir og fyrrverandi kjósendur Kristilega demókrataflokksins flykktu sér um hann. Fini gerir sem minnst úr fortíð- inni, talar til dæmis ekki um nýfas- ista, heldur „síðfasista" og segir kynþáttalög Mussolinis hafa verið mistök. „Ég kaus fasista og Berlusconi. Ég vona, að þeir komi Italíu á réttan kjöl,“ sagði gömul kona á Amalfi- ströndinni en á Suður-Ítalíu minnast menn ennþá með söknuði öryggisins á valdatíma fasista og Mussolinis. Þá var mafían ekki tekin neinum vettlingatökum og þá voru lestirnar á áætlun en það er hámark reglu- festu og stjórnsemi að dómi Itala. Eyðimerkurgöngunni lokið Alessandra Mussolini, sonardóttir Benitos Mussolinis, stefndi í stórsig- ur í kjördæmi í Napólí með um 50% atkvæða og samkvæmt spám átti Þjóðarbandalagið mikinn þátt í sigri 197 frambjóðenda Frelsisbandalags- Reuter Fini sigurviss GIANFRANCO Fini, leiðtogi ný- fasista, fagnar á mánudag er fyrstu spár gáfu til kynna sigur Frelsisbandalagsins. Hann leggur áherslu á að ekki sé nú hægt að mynda hægristjórn án þátttöku nýfasista. ins til fulltrúadeildarinnar _en það fékk alls 366 menn kjörna. Á lands- vísu var Þjóðarbandalaginu spáð 13,3% og yrði þá í þriðja sæti á eft- ir flokki Berlusconis, Áfram Ítalía, og flokki fyrrverandi kommúnista, Lýðræðisbandalagi vinstrimanna. Eyðimerkurgöngu nýfasista virðist því lokið í bili að minnsta kosti eins og Fini áréttaði í gær: „Það er alveg sama hvernig þingsætin skiptast því að eitt er alveg víst. Það verður ekki skipuð nein hægristjórn í landinu án okkar stuðnings." endum AC Milan að áhorfenda- stúkunum. Með hreinan skjöld Það sem vekur einna mesta at- hygli varðandi umsvif Berlusconis er sú staðreynd að hann hefur ekki tengst þeim hundruðum hneyksla í viðskipta- og stjórn- málalífi, sem upp komu í herferð saksóknara um allt land, sem nefnd hefur verið „Hreinar hend- ur“. Hins vegar hafa nánir sam- starfsmenn hans flækst í hneyksl- ismál, m.a. bróðirinn Paolo, sem er stjórnarformaður Edilnord, byggingarfyrirtækis innan Finin- vest, stærsta eignarhaldsfyrirtæk- is Berlusconis. Þá hafa stjórnarmenn í AC Milan verið sakaðir um að greiða hærri upphæð fyrir fótboltamann- inn Gianluigi Lentini en gefið var upp í bókhaldi félagsins og Ber- lusconi hefur sjálfur verið sakaður um náin tengsl við Bettino Craxi, fyrrverandi leiðtoga Sósíalista- flokksins, sem varð að segja af sér vegna hneykslismála en Craxi er guðfaðir eins af fimm börnum Berlusconis. Réttarhöld yfir Craxi hófust í gær. í síðasta mánuði voru nokkrir samstarfsmanna Berlusconis færð- ir til yfirheyrslu, sakaðir um að svindla í bókhaldi en hann lýsti aðgerðina „skammariegt pólitiískt herbragð". Hins vegar hefur Ber- lusconi sjálfur aldrei verið sakaður um að greiða mútur eða annað það sem löngum hefur þótt loða við auglýsinga- og byggingariðnaðinn á Italíu. Að því er virðist var hreinn skjöldur Berlusconis var sterkasta útspil hans í kosningabaráttunni og nýtti hann sér það óspart. Hann kvaðst vera fylgjandi því að styrkja viðskiptalífið, að leggja aukna áherslu á lög og reglu, boðaði skattalækkanir, sérstaklega til handa hinum tekjuhærri. Hann lof- aði að útvega eina milljón nýrra starfa með því að lækka verulega launatengd gjöld þeirra atvinnu- rekenda sem fjölguðu störfum. Hann boðaði minni umsvif hins opinbera og að einstaklingar yrðu hvattir til að hressa upp á menn- ingarverðmæti landsins. Gagnrýnendur hans hafa bent á að Berlusconi hafi ekki boðað nein- ar lausnir á mesta vanda þjóð- arbúsins, en þjóðarskuldir eru nú 115% af vergri þjóðarframleiðslu. Þá saka þeir hann um að múta hinum ríku með skattalækkunum. En kjósendur fylktu sér um Ber- lusconi, húsmæður og ellilífeyris- þegar, kaupsýslumenn og fyrrver- andi kjósendur kristilegra demó- krata. Leikrænir tilburðirnir, til- finningasemin og heiðarleikinn höfðuðu til ítölsku þjóðarsálarinn- ar. „Ég hef alltaf staðið uppi sem sigurvegari,“ sagði Berlusconi. „Eg mun einnig gera Italíu að sig- urvegara.“ Heimildir: Newsweek og Reuter. Aflýsa friðarráð- stefnu FRIÐARRÁÐSTEFNA, sem boðað hafði verið til í Suður- Afríku vegna aukinna ofbeldis- verka , fór út um þúfur í gær þegar Goodwill Zwelithini, kon- ungur Zúlúmanna sagði þá þurfa tíma til að grafa þá sem létust í skothríð liðsmanna Af- ríska þjóðarráðsins á mánudag. Lögregla segir hina látnu að minnsta kosti 51 og 173 særða. S-Kóreumenn vongóðir um lausn KIM Young- sam, forseti Suður-Kóreu, sagðist í gær vera vongóður um að samn- ingaviðræður gætu leyst deilurnar um kjarnorkuá- ætlun Norður-Kóreumanna. Kim sagði að Bandaríkjamenn, Japanir og Rússar myndu vinna að því að finna lausn á deilu N-Kóreumanna og Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, en talið er N-Kórea vinni að smíði kjarnorkusprengju. Samið um „Óp“ Munchs HÓPUR norskra fjárfesta hefur að undanförnu átt í leynilegum samningaviðræðum um lausn- argjald fyrir „Óp“ Edvards Munch, sem stolið var úr Ríkis- listasafninu í febrúar. í Dag- bladet sagði að hópurinn ætti í viðræðum við fulltrúa þjóf- anna, sem krefðust rúmlega 50 milljóna kr. fyrir verkið. Það er í annað sinn sem slíkar viðræð- ur fara fram, í fyrra skiptið gátu fulltrúar meintra þjófa ekki sannað að þeir hefðu verk- ið undir höndum. Akærður fyr- ir morð á skólastúlku BRESKUR atvinnuleysingi var í gær ákærður fyrir að hafa myrt skólastúlku og hafa gert tilraun til að myrða tvær skóla- systur hennar. Atvikið átti sér stað í skóla í Middlesborough á Englandi á mánudag. Ruddist grímuklæddur maðurinn inn í stærðfræðitíma, skipaði kenn- aranum að fara út úr kennslu- stofunni og stakk tólf ára gamla stúlku til bana, auk þess sem hann særði tvær stúlkur. Maðurinn réðst að stúlkunum að því er virtist vegna þess að þær hljóðuðu af hræðslu. Hann var yfirbugaður á staðnum. Pólverjar sækja um ESB-aðild ANDRZEJ Olechowski, utan- ríkisráðherra Póllands, sagði í gær að Pólverjar myndu sækja um fulla aðild að Evrópusam- bandinu, ESB, í byijun apríl. Sagði Olechowski að . ríkis- stjórnin og Iæch Walesa, for- seti landsins, hefðu samþykkt aðildarumsókn á ríkisstjórnar- fundi. Stjórnin fnun kynna þinginu umsóknina 7. apríl og sækja um aðild í kjölfarið, en Pólveijar vilja fylgja Ungveij- um, sem hyggjast sækja um 1. apríl. Reuter Kafbáturinn Loch Ness KAFBÁTUR, sem gefið hefur verið heitið Loch Ness, á jómfrúrsiglingu sinni á samnefndu skosku stöðuvatni í gær. Báturinn mun sigla með ferða- menn frá Drumnadrochit-skrímslasýningunni og kanna djúp vatnsins í vona um að fólk komi auga á Loch Ness-skrímslið fræga. Fyrir skömmu viðurkenndi maður nokkur á dánarbeð sínum að hafa falsað fræga ljós- mynd sem sögð var af Nessie, eins og skrímslið fræga hefur verið nefnt. Ólíklegt er talið að játningin dugi til þess að almenningur hætti að trúa á tilvist skepnunnar. Auk þess er ljóst að játningin er tilræði við ferða- þjónustuna á þessum slóðum, Nessie hefur um langt skeið verið drottning allra skrímsla, raunverulegra sem ímyndaðra og dregið að tugþúsundir ferðafólks. Japanskir námsmenn myrtir í Los Angeles Ottast að ferða- mönnum fækki Chicago. Reuter. ÓTTAST er að morð á tveimur 19 ára japönskum háskólastúdentum í Los Angeles í Bandaríkjunum um helgina kunni að fæla frá ferða- menn og þar með skaða bandaríska ferðaþjónustu sem veltir 340 millj- örðum dollara á ári. Þá er það talið munu auka á vandann að ráðist var á breskan ferðamann á einu fremsta hóteli New York-borgar á laugar- dag. „Eg get ekki ímyndað mér annað en þetta skaði okkur,“ sagði John Marks, forstjóri Ferða- og ráðstefnu- skrifstofu San Francisco, en árlega sækja um 400.000 Japanir San Francisco-svæðið heim. Hann sagði að dregið hefði úr heimsóknum jap- anskra ferðamanna til vesturstrand- arinnar á síðustu árum. „Japanir skilja ekkert í þjóðfélagi þar sem ofbeldi er daglegt brauð. Sú mynd sem japanskir fjölmiðlar draga upp hjálpar okkur ekki. Ferðaskrifstofur spyija spurninga og líklega verður mönnum ráðlagt enn um sinn að vera á varðbergi," bætti Marks við. TEKJUR AF FERÐAMÖNNUM Fækkun á Flórída Scott Dring, ferðamálafulltrúi á Kissimmee-St Cloud svæðinu á Flórída, sem er í nágrenni Disney- garðsins, sagðist óttast áhrif ofbeld- isaðgerða gegn erlendum ferða- mönnum. Mesta hættan væri að fólk sem ekki hefði áður komið til Flórída léti það eiga sig að ferðast þangað. Ferðamönnum frá Þýskalandi hefur fækkað í Flórída vegna ofbeldisað- gerða gegn útlendingum á síðustu tveimur árum. Verulega dró úr ferðum Japana til Bandaríkjanna í kjölfar morðs á 16 ára japönskum skiptinema í Baton Rouge í Louisiana-ríki í október 1992. Alþjóðleg ráðstefna í borginni 1991 hafði leitt til þess að fjöldi jap- anskra ferðamanna til New Orleans- svæðisins tvöfaldaðist árið 1992 en eftir morðið á skiptinemanum fækk- 1993áætla« 1994 spá Japanska utanríkisráðuneytið nett varað terðamenn á leið til Bandaríkja- nna að vera á varðbergi vegna morða á tveimur japönskum námsmönnum í Los Angeles um helgina. HEUTE aði þeim jafn hratt til fyrra horfs. Karl Lion, ferðamálastjóri New Orle- ans og nágrennis, sagði að erlendar ferðaskrifstofur væru farnar að biðja um opinber kort þar sem inn á væri merkt hvar óhætt væri að ferðast, svonefnd „öragg“ svæði. SamningTir Noregs og Bandaríkjanna Fækkað um fjórar þotubirgðastöðvar FIMM birgðastöðvar vegna móttöku á bandarískum þotum verða starf- ræktar áfram í Noregi. Þessi niðurstaða var kynnt á mánudagskvöld eftir fund Williams Perry, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, og Jorgens Kosmo, hins norska starfsbróður hans. Níu slíkar stöðvar er nú að finna í Noregi og verður fjórum því lok- að. I stöðvum þessum er að finna m.a. eldsneyti og skotfæri fyrir bandarískar orrustuþotur sem sendar yrðu til Noregs á óvissu- eða hættutímum. Upphaflega lögðu Bandaríkjamenn til að stöðvum þessum, sem í daglegu táli eru nefndar COB-stöðvar, yrði fækkað úr níu í tvær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.