Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 Þýskuþraut í framhaldsskólunum MR-ingar urðu hlutskarpastir VERÐLAUN í þýskuþraut voru afhent í Goethe-stofnun í Reykja- vík fyrir skömmu. Stefán Jónsson og Gunnlaugur Briem, nemend- ur í Menntaskólanum í Reykjavík, urðu hlutskarpastir í þýsku- þrautinni og fá þeir ferðalag til Þýskalands og fjögurra vikna dvöl þar með fjölbreyttri dagskrá í verðlaun. Tíu efstu nemendur fengu sérstök bókaverðlaun en allir þátttakendur fengu viður- kenningarskjal og litla handbók um Þýskaland. Um langt árabil hafa þýsk yfir- völd veitt tveimur nemendum í ís- lenskum framhaldsskólum styrk til að dvelja um fjögurra vikna skeið í Þýskalandi að sumarlagi. Fyrir um tveimur árum var ákveðið í Félagi þýskukennara að efna til samkeppni í framhaldsskólum um þessa styrki. Samkeppnin hefur hlotið nafnið þýskuþraut og var hún haldin í annað sinn 11. febr- úar sl. Stofnaður var vinnuhópur á vegum Félags þýskukennara-sem hefur séð um undirbúning og fram- kvæmd í góðri samvinnu við stjóm félagsins, skólastjórnendur og kennara. Vinnuhópnum bárast 85 úrlausnir frá 17 skólum. í 3. til 10. sæti voru tveir nemendur frá Verzlunarskóla íslands, einn nem- andi frá Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi, einn nemandi frá Menntaskólanum að Laugarvatni og fjórir nemendur frá Mennta- skólanum í Reykjavík. Verðlaunin afhent Morgunblaðið/Kristinn HLUTSKÖRPUSTU þátttakendurnir taka við verðlaunum sínum fyrir þýskuþraut. Frá vinstri eru: Stefán Jónsson og Gunnlaugur Briem, báðir nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík, Steinar Matt- híasson, þýskukennari og formaður nefndar um þýskuþraut, og dr. Alexander Olbrich, sendiráðunautur Sambandslýðveldisins Þýska- lands. Morgunblaðið/Kristinn Leiðréttingakerfi kynnt FÓLK úr sjávarútvegi, flugsamgöngum og á vegum björgunarsveita mætti á kunningarfund samgöngu- ráðuneytisins á leiðréttingarkerfi fyrir GPS-staðsetningakerfið. Leiðrétt GPS-staðsetningar- kerfi í notkun fyrir áramót Smábátaeigendur óttast mikinn kostnað við tækjakaup ÞEGAR uppsetningu leiðréttingarbúnaðar fyrir GPS-staðsetn- ingarkerfisins verður lokið fæst með því mun meiri nákvæmni við staðsetningu hér við land en með Loran-C kerfinu sem hingað til hefur verið notað. Þetta kom fram á fundi sem samgönguráðuneyt- ið hélt fyrir sköminu til að kynna leiðréttingarkerfið. Ragnhildur Hjaltadóttir, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, sagði að GPS kerfið myndi geta uppfyllt allar þær kröfur sem Loran-C hefði gert hingað til þegar leiðréttingarkerfið væri komið í notkun í lok þessa árs. Guðfinnur Johnsen, Landssambandi íslenskra útgerðar- manna, segir að helstu vandkvæðin við nýja kerfið sé að allir viðm- iðunarpunktar sjómanna gildi ekki lengur og því þurfi að vinna þá upp á nýtt í GPS kerfinu. Bergur Garðarsson frá Grundarfirði segir að nýja kerfinu fylgi talsverð útgjöld fyrir smábátaeigendur og Örn Pálsson, framkvæmdasljóri Félags smábátaeigenda, segir að félagið hefði viljað fá meiri aðlögunartima áður en kerfinu yrði skellt á. Rekstri Loran-C stöðvarinnar á Gufuskálum verður hætt um næstu áramót og í stað þess verður tekið upp DGPS-staðsetningarkerfið, eða leiðrétt GPS kerfi. Kerfið hefur verið í þróun hjá varnarmálaráðu- neyti Bandaríkjamanna síðast liðin 20 ár og Var fyrst og fremst ætlað til hernaðarnota. Það byggir á notk- un 21 gervitungls og þriggja vara- tungla á braut um jörðu. Arið 1993 var svo opnað fyrir almenna notkun en byggð inn í kerfið skekkja sem samsvaraði 100 metrum, sem er ekki nógu nákvæmt fyrir fiskveið- ar. Hefur ísland, sem eitt NATO- ríkja, tryggðan aðgang að kerfínu til ársins 2016. Er hægt að nota kerfið til ákvörðunar staðsetningar á sjó, í lofti og á landi. Endurkomuskekkja innan við 15 metrar Kerfisfræðistofa Háskóla íslands hefur undanfarið verið að hanna leiðréttingarkerfí og nú er endur- komuskekkja innan við 15 metrar, að sögn Sæmundar E. Þorsteins- sonar, verkfræðings hjá Kerfís- fræðistofu. Elsta verslun á landinu Stendur höllum fæti eftir framkvæmdir við Ingólfstorg HERMANN Jónsson úrsmiður í Veltusundi 3 ætlar að láta sumarið skera úr um hvort hann haldi áfram rekstri við Ingólf- storg. Vegna umfangsmikilla framkvæmda við torgið hefur gangandi umferð minnkað og viðskipti dregist saman. Úrsmíða- verslun hefur verið í sama húsi í Veltusund 3 í 103 ár og telst verslunin því sú elsta á íslandi. Hermann sagðist vera kominn í hálfgerð fjárhagsvandræði vegna framkvæmdanna og af- leiðinga þeirra. „Fólk komst hreinlega ekki héma að frá því í maí framundir jóla í fyrra. Svæðið var eiginlega allt lokað í 8 til 9 mánuði. Ekki er liðinn langur tími frá því framkvæmd- unum lauk og oft er lítið að gera á þessum tíma. Samt finnst mér eiginleg ekki farið að vera nóg að gera ennþá. Maður vonar bara að viðskiptin glæðist með sumrinu. Eitthvað verði léttara yfir þessu,“ sagði Hermann. Hann sagðist vona að ferðamenn legðu leið sína um torgið með hækkandi sól og myndi hann reyna að höfða sérstaklega til þeirra með hvers kyns minjagrip- um. Lífsspursmál að fá umferð framhjá Tuttugu og tvö ár eru frá því Hermann tók við versluninni. En hún er orðin sú elsta í land- inu. Hefur verið hérna í sama húsi í 103 ár. Hún er orðin svo rótgróin að leiðinlegt væri að leggja hana niður,“ sagði Her- mann en í versluninni fara m.a. fram viðgerðir á úrum og klukk- um. Mikið segir Hermann líka að sé um að gamlar klukkur séu gerðar upp. Hann sagðist ekki hafa höfðað mál vegna framkvæmdanna enda héldi hann að lítið þýddi að leggja út í slíkt. „Ég vissi að Garðar í Herragarðinum var með lögfræðing í þessu. Ég veit ekki til að neitt hafi komið út úr því,“ sagði Hermann og lét þess getið að miklu skipti að umferð héldi áfram framhjá búðinni. „Umferð hefur verið leyfð hérna fram hjá, þ.e. Veltusundið til hægri og vinstri. Hérna megin er þá ekið að Björnsbakaríi og yfír í Aðal- stræti. Ég álít alveg lífsnauðsyn- legt að þessari leið verði ekki lokað.“ í Veltusundi í 22 ár HERMANN Jónsson hefur rekið verslun og viðgerðaverkstæði í Veltusundi í 22 ár. Vitastofnun íslands hóf uppsetn- ingu leiðréttingakerfisins árið 1992 og nú hafa slík tæki verið sett upp á fjórum stöðum. í Reykjanesvita, Skarðsfjöruvita, Skagatáarvita og á Raufarhöfn. Síðar í ár verða sett upp tæki í radíóvitunum á Djúpa- vogi og Bjargtöngum og verður þá uppsetningu kerfísins lokið. Áætlað er að kerfíð fullbúið geti þjónað allri efnahagslögsögu landsins. Guðjón Scheving Tryggvason hjá Vitastofnun, segir að áætlaður kostnaður við uppbyggingu kerfís- ins sé um 50 milljónir króna. Svip- aður búnaður verður sendur upp í öðrum löndum og hann samhæfður. Mikill munur er á staðsetningum í Loran-C og GPS kerfunum og verða Loran punktasöfn því ónot- hæf eftir 1994. Guðfinnur Johnsen segir að það séu fyrst og fremst netabátar sem hafí lagt eftir Loran punktum, það þurfi því að færa þá yfír í GPS-kerfíð og það kosti vinnu. Smábátaeigendur vilja lengri aðlögunartíma Til að geta nýtt sér DGSP-stað- setningarkerfíð þurfa menn að kaupa sér GPS tæki og sérstök móttökutæki fyrir leiðréttingar- sendingarnar. Er kostnaður allt frá 120.000 fyrir þæði tækin og segir Bergur Garðarsson að smábátaeig-. endur hafí ekki slíkt fjármagn á milli handanna með tilliti til skerts kvóta síðustu ára. Örn Pálsson segir að Félag smá- bátaeigenda hefði viljað hafa aðlög- unartímann lengri, út árið 1995 hefði verið hæfílégt. Hann segir einnig að fjárhagsforsendur smá- bátaeigenda hafí breyst verulega á síðustu árum og félagið sjái ekkert óeðlilegt við að óska jafnvel eftir stuðningi frá hinu opinbera til kaupa á nýjum tækjakosti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.