Morgunblaðið - 30.03.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi og
léttur hádegisverður í safnaðarat-
hvarfinu, Suðurgötu 11, að stund-
inni lokinni.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA: Hjálp-
ræðisherinn er með samkomu í
kirkjunni páskadag kl. 17. Fjöl-
mennur hópur frá Reykjavík og
Akureyri flytur söng, tónlist og
ræðu.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN: í fvrra-
dag kom Arni Friðriksson úr leið-
angri. I gær komu til löndunar
Freyja, Súlnafell EA, og Klakk-
ur. Múlafoss og Heiðrún komu og
fóru samdægurs. Þá fór Akureyin.
í dag kemur Arnarfell og danska
herskipið Triton.
HAFNARFJARÐARHÖFN: í
fyrrakvöld fór súrálsskipið Vanri
frá Straumsvík til útlanda. Þá kom
Svanur og fór aftur í gær og Hof-
sjökull fór á strönd. Ánso Mölga-
ard kom til löndunar.
Jón Gunnar Árnason 1931-1989.
arskrá brá listamaðurinn upp
mynd af því sem hann taldi sig
hafa gert best næstu tuttugu árin
á undan, 1964-83. Mörg þeirra
verka hafa ratað á sýninguna í
Listasafninu, en þó ekki öll; sum
eru staðbundin, önnur tímabundin
í eðli sínu. Þvi er ljóst að hér hef-
ur tekist vonum framar að bregða
upp skýrri mynd af listsköpun
Jóns Gunnars með svipuðum
áherslum og hann hefði sjálfur
valið, og reynt að greina hana
með tilvísun til samtímalistar og
þeirra hugmynda um alheiminn,
sem listamaðurinn skildi eftir sig.
Einn er þó sá þattur í lífsstarfí
Jóns Gunnars Árnasonar sem
- kemur aðeins að litlu leyti fram
hér en ekki má gleymast, en það
er þáttur hans í listuppeldi næstu
kynslóðar íslenskra myndhöggv-
ara. Ásamt Ragnari Kjartanssyni
átti Jón Gunnar öðrum fremur
þátt í að brúa bil frumheijanna í
j. íslenskri höggmyndalist og þeirra,
i sem nú eru starfandi á þeim vett-
vangi. Hann kenndi um árabil í
höggmyndadeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands, og stóð
ásamt Ragnari í að koma af stað
fyrstu höggmyndasýningunni á
Skólavörðuholti 1967; sú sýning
og aðrar sem fylgdu í kjölfarið
boðuðu nýja tíma í höggmyndalist
hér á landi, og þeir tímar standa
enn. - Það var því mikið áfall fyr-
ir íslenska myndlistasögu þegar
þessir „brúarsmiðir“ féllu frá,
langt fyrir aldur fram, Ragnar
Kjartansson í október 1988 og Jón
Gunnar Árnason 21. apríl 1989.
Yfirlitssýningin í Listasafni ís-
þands á verkum Jóns Gunnars
Árnasonar, „Hugarorka og Sól-
stafir“, stendur til 8. maí, og hana
má enginn listunnandi hér á landi
láta fram hjá sér fara.
Listasjóður Gísla Sigurbjörnssonar
Arni Kristjáns-
son hlýtur styrk
ÁRNI Kristjánsson, tónlistarmaður og þýðandi, hlaut 250.000 kr.
styrk úr Listasjóði Gísia Sigurbjörnssonar, fyrrum forstjóra elliheim-
ilins Grundar, á laugardag. Gísli, sem er nýlátinn, stofnaði sjóðinn
fyrir um 10 árum til að styrkja aldraða listamenn. Stjórn sjóðsins
skipa þau Gunnar Kvaran, sellóleikari, Elín Sigurvinsdóttir, söng-
kona, Gísli Magnússon, píanóleikari, og Gunnar Eyjólfsson, formaður.
Gísli Magnússon sagði að nokkr-
um sinnum hefði verið úthlutað úr
sjóðnum. Hins vegar hefði verið tek-
ið nokkurt hlé áður en veitt hafi
verið úr honum að 'nýju. „Árni er
sem píanóleikari og tónlistarmaður
einn af stórbrotnustu listmönnum
okkar og hefur unnið mikið starf við
gíanóleik og kennslu í gegnum árin.
Á síðustu árum hefur hann hins
vegar unnið við skriftir, þýtt bækur,
t.d. ævisögu Bachs og bréf Mozarts,
og nú er hann að vinna að bók um
Beethoven. Styrkurinn á að hjálpa
honum í þessu starfi,“ sagði Gísli
m.a. þegar rætt var við hann.
Vildi vera incognito
Sjálfur sagði Árni að sér þætti
styrkurinn mikill heiður og hann
væri afar þakklátur fyrir hann. „Ég
hef áður notið velvilja Gísla Sigur-
björnssonar eftir að elli kerling fór
að vitja mín. Hann var mesta val-
menni og lagði gömlu fólki lið.
Styrkti fólk til starfa og athafna.
Vildi endilega hjálpa þeim sem voru
enn vinnufærir að sinna sínum hugð-
arefnum. Ég hef gert það, þýtt tón-
listarmannabréf og þess háttar. En
ég er ekki sá fyrsti sem nýtur styrks
úr sjóði Gísla. Um Gísla vildi ég Iíka
segja að hann vildi aldrei koma per-
sónulega fram. Heldur vera incogn-
ito og gera öðrum gott,“ sagði hann.
Árni var kennari og skólastjóri
við Tónlistarskóla Reykjavíkur um
árabil. Eftir það gegndi hann starfi
tónlistarstjóra í Ríkisútvarpinu í um
15 ár ásamt kennslu. Éiginkona
hans er Anna Steingrímsdóttir.
ÍO páskaliljur kr. 695,-
5"7páskaliljur,blandaðir
páskavendir
kr.
Páskaliljur í pottum
195,-
Opið um páskana:
Skírdag 9-21 Páskadag lokað
Föstudag lokað Annan I páskum 9-21
Laugardag 9-21
Morgunblaðið/Kristinn
VIÐ afhendingu viðurkenningarinnar. Efri röð (f.v.): Gunnar Kvaran
sellóleikari, Guðrún dóttir Gísla Sigurbjörnssonar, Gunnar Eyjólfsson
formaður sjóðsstjórnar, og Gísli Magnússon píanóleikari. Fremri
röð: Helga Björnsdóttir ekkja Gísla, Árni Kristjánsson tónlistarmað-
ur og þýðandi, og Anna Steingrímsdóttir eiginkona hans.
HELGA Björnsdóttir, Árni Kristjánsson og Anna Steingrímsdóttir á
Hótel Borg. Þar var styrkurinn afhentur á laugardag.
Úrvals páskaliljur úr eigin rœktun