Morgunblaðið - 30.03.1994, Page 24

Morgunblaðið - 30.03.1994, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 STORSIGUR HÆGRIAFLANNA I ÞINGKOSNINGUNUM A ITALIU Efast um getu sigurveg- aranna til að mynda stjóm Occhetto kennt um ósigur vinstriafla og forystuferli hans hugsanlega lokið Róm. Reuter. Sig’urfréttirnar ÍTÖLSKU dagblöðin gerðu að sjálfsögðu vel við stórsigur Ber- lusconis og hægriflokkanna í sér- stakri kosningaútgáfu. Eitt blað- anna, La Voce, birti eins og sjá má mynd af Berlusconi með höf- uð heista andstæðingsins, Achille Occhettos, í hendinni. FJÖLMIÐLAKÓNGURINN Silvio Berlusconi og kosningabandalag hans, Frelsisbandalagið, vann hreinan meirihluta í fulltrúadeild ítalska þingsins í kosningunum á sunnudag og mánudag og vantar fáa menn upp á meirihluta í öldungadeildinni. Nýfasistum, sem stóðu að Frelsis- bandalaginu ásamt flokki Berlusconis, Áfram Italia, og Norðursam- bandinu, vegnaði vel en ósigurinn var að sama skapi sár fyrir höfuð- andstæðing bandalagsins, Framfarabandalagið, samfylkingu vinstri- manna undir forystu Achille Occhettos. „Hægrimenn sigruðu en þeir munu reynast ófærir um að mynda saman ríkisstjórn," sagði Occhetto í gær og ýmislegt bendir til, að hann geti reynst sannspár. Grunnt hefur verið á því góða milli þeirra Berlusconis og Umbertos Bossis, leiðtoga Norðursambandsins, þrátt fyrir samstöðuna í kosningunum og í gær blossaði ágreiningur þeirra upp að nýju. Sigur Berlusconis, sem hóf bein stjórnmálaafskipti fyrir rúmum tveimur mánuðum, er einstæður í ítalskri og jafnvel evrópskri stjórn- málasögu en sjálfur komst hann á þing fyrir kjördæmi í Róm þar sem hann sigraði frambjóðanda vinstri- manna, Luigi Spaventa, fráfarandi fjárlagaráðherra. Það var löngun ít- alskra kjósenda til að segja skilið við spillta stjómmálafortíð, sem tryggði Berlusconi og Frelsisbanda- laginu sigurinn en örlagadísirnar léku hins vegar umbótamanninn Mario Segni heldur grátt. Hann átti manna mestan þátt í að bijóta upp gainla flokkakerfið og koma á ein- menningskjördæmakerfi að hluta en í kosningunum beið hann ósigur fyr- ir frambjóðanda nýfasista í bænum Sassara á Sardiníu. Hann kemst þó á þing sem uppbótarmaður eða í gegnum gamla hlutfallskosninga- kerfið, sem hann vildi feigt. Stjórnarmyndun komin undir Bossi I gær beindist athyglin að hugs- anlegri stjórnarmyndun flokkanna, sem stóðu að Frelsisbandalaginu, en Bossi lýsti strax yfir, að Berlusconi, eigandi fjórða stærsta einkafyr- irtækis á Italíu, gæti ekki orðið for- sætisráðherra. „Hann hefur allt of mikilla hagsmuna að gæta, það yrði um að ræða hagsmunaárekstur dag- lega,“ sagði Bossi, sem kvaðst einn- ig efast um, að hann gæti staðið að Occhetto Bossi stjórn með nýfasistum. Bossi og Gianfranco Fini, leiðtogi nýfasista, eru engir vinir enda baráttumál flokkanna gjörólík. Norðursamband- ið vill sambandsríkjafyrirkomulag að svissneskri fyrirmynd en nýfasist- ar vilja sterka miðstjórn. .Sumir spáðu því í gær, að fljótlega yrði efnt til nýrra kosninga á Ítalíu en aðrir voru bjartsýnir á, að Berlusc- oni, Bossi og Fini næðu saman. Sögðust þeir vissir um, að Bossi léti freistast frammi fyrir ráðherrastóln- um og þeim völdum, sem honum fyigja. Spilaði upp í hendur Berlusconi Stjórnmálaskýrendur á Ítalíu eru sammála um, að sigur Berlusconis sé einstæður en hann kom inn í pólitíkina fyrir rúmum tveimur mán- uðum í því skyni að bægja burt því sem hann kallaði „hættu á valda- töku“ vinstrimanna. Á þeim tíma bentu skoðanakann- anir til að kosningabandalag vinstri- /Á Havintolkrlusconi / «ÍÍéWnxi iminvmm Vittoria larmvaCamero Reuter ÚRSLIT KOSNINGANNA Skipting þingsæta í efri og neðri deild þingsins NEÐRIDEILDIN (630sæti) Frelsisbandalagið (hægri) 366 Framfarabandalagið (vinstri) 213 (talskur sáttmáli (miðfl.) 46 Aðrir 5 EFRIDEILDIN (315sæti) Frelsisbandalagið 155 Framfarabandalagið 122 ítalsjcur sáttmóli 31 Aðrir 7 REUTER aflanna, Framfarabandalagið, myndi vinna afgerandi sigur. Komm- únistar eða lýðræðislegir vinstri- menn, eins og þeir heita nú, eygðu loksins von um að komast til valda og forsætisráðherra þeirra hefði orð- ið Achille Occhetto. Hann tapaði og óvíst er, að hann fái annað tækifæri sem forystumaður vinstriaflanna. Er ástæðan meðal annars sú, að sumir kenna honum um að hafa greitt götu hægrimanna með allt of róttækri vinstristefnu og með því að taka undir með Berlusconi um að stríðið stæði á milli vinstri og hægri. Talið er, að hugsanlegur eft- irmaður Occhettos verði aðstoðar- maður hans, Massimo D’Alema, fyrrverandi ritstjóri L’Unita. Auðjöfur og fjölmiðlakóngur sneri á andstæðingana Glæsilegur sigur Berlusconis í höfn SILVIO Berlusconi hefur verið nefndur „Ross Perot Ítalíu“. Bandaríkjamaðurinn og ítalinn eru báðir milljarðamæringar sem byrjuðu með tvær hendur tómar. Þeir boða einfalda stefnu; dyggð vinnusemi, hörku í fjármálum og frjálst einkaframtak. Báðir hristu þeir upp í flokkakerfinu í heimalandi sínu og eru vinir, eiga báðir sumarhús á Bermuda-eyjum. Er kemur að árangri þeirra í stjórnmálum skilur á milli; Ross Perot hlaut ekki kosningu en Berlusconi stendur uppi sem sigurvegari ít- ölsku þingkosninganna. Árangurinn er ótrúlegur, á aðeins rúm- um þremur mánuðum hefur fjölmiðlajöfurinn náð að sópa til sín fylgi, ekki síst fyrir tilstilli fjölmiðla sinna, og fátt. virðist nú geta komið í veg fyrir að Berlusconi verði næsti forsætisráð- herra Ítalíu. Árangur Berlusconis er merki- legur m.a. fyrir þá sök að hann hefur mætt fyrirlitningu andstæð- inga sinna, þrátt fyrir gott gengi klámstjarna og fótboltahetja í stjórnmálum. Berlusconi hefur ver- ið kallaður „Sua Emittence", sem hljómar eins og „hans hágöfgi“ en þýðir í raun og veru „yðar Ijósvík- ingur“. Silvio Berlusconi er 57_ ára og sonur gjaldkera í banka. I bama- skóla vann hann sér inn aura með því að gera heimaverkefni skóla- systkinanna. Hann seldi ryksugur og starfaði sem söngvari á skemmtiferðaskipum jafnhliða mennta- og háskólanámi. Berlusconi lauk laganámi árið 1961 og haslaði sér völl í bygging- ariðnaðinum. Hann sló lán fyrir öllum framkvæmdum, sem fólust aðallega í byggingu úthverfa Mílanóborgar. A áttunda áratugn- um hratt hann af stað nokkrum svæðissjónvarpsstöðvum, sem urðu grundvöllur þriggja stórra sjón- varpsstöðva á landsvísu. Um 45% ítalskra sjónvarpsáhorfenda horfa á stöðvar Berlusconis. Þá á hann fyrirtæki í bóka-, blaða- og tíma- ritaútgáfu, auglýsingastofur og stórmarkaði. Fjölmiðlaveldi hans er nú það stærsta í Evrópu. Lágvaxinn og þunnhærður Berlusconi er ekki mikið fyrir augað, lágvaxinn og hárið hefur þynnst verulega. Honum hefur þó engu að síður, með dyggri aðstoð sérfræðinga sem hafa af því at- vinnu að búa til ímynd manna, tekist að skapa sér sérstaka ímynd. Lögð hefur verið áhersla á það hvernig hann komst í álnir af eig- Reuter Glaðbeittur sigurveg’ari LEIKRÆNIR tilburðir, tilfinningasemi og heiðarleiki Silvios Berlusc- onis höfðuðu til ítölsku þjóðarsálarinnar. in rammleik og þess gætt að hann stigi engin feilspor í kosningabar- áttunni. Berlusconi býr í glæsihýsi skammt fyrir utan Mílanó og byij- ar daginn á sundspretti í innanhús- laug sinni, sem er umkringd ótal sjónvarpsskjám. Árið 1986 keypti hann knattspyrnuliðið AC Milan og vann ötullega að því að gera það að stórliði sem er nánast ósigr- andi. Kemur Berlusconi gjarnan á leiki liðsins í blárri og hvítri þyrlu og gengur fyrir trylltum áhang-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.