Morgunblaðið - 30.03.1994, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
_____________Brids_________________
Umsjón Amór G. Ragnarsson
Vetrar-Mitchell BSÍ —
Silfurstigamót
Föstudaginn 25. mars var spilað
eins kvölds tölvureiknaður tvímenn-
ingur með þátttöku 32 para. Spilaðar
voru 15 umferðir með 2 spilum á milli
para. Meðalskor var 420 og bestum
árangri náðu:
NS:
Steindór Ingimundars. - Maria Asmundsd. 531
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 486
Rúnar Einarsson - Haraldur Gunnlaugsson 478
AV:
Cecil Haraldsson - Haraldur Þórðarson 519
Magnús Sverrisson - Guðlaugur Sveinsson 473
Torfi Axelsson - Geirlaug Magnúsdóttir 473
Vetrar-Mitchell BSI er spilaður öll
föstudagskvöld og byijar stundvíslega
kl. 19. Athygli er vakin á því að nk.
föstudag verður engin breyting þar á.
Silfurstigamót
Bridssamband íslands ráðgerir að
standa fyrir opnu tvímenningsmóti
annan páskadag. Spilað verður um
silfurstig og peningaverðlaun verða í
boði. Þátttaka er öllum opin meðan
húsrúm leyfir.
Skráning fer fram á skrifstofu
Bridssambands Íslands, í síma
619360. Allar nánari upplýsingar
veittar á sama stað (Elín).
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Miðvikudaginn 23. mars var spiluð
5. umferð af 9 í Aðalsveitakeppni fé-
lagsins og er það verslunin Sundið sem
heldur enn forystunni. En staðan er
þessi:
Verslunin Sundið 115
Sumarliði Lárusson 90
Sparisjóður Keflavíkur 88
Grétar Sigurbjömsson 78
Sigurður Davíðsson 72
Karl G. Karlsson 70
Einar Júlíusson 65
Gunnar Guðbjörnsson 63
Gunnar Siguijónsson 52
Bílanes 34
Frá Bridsdeild Sjálfsbjargar
Reykjavík
Mánudaginn 21. mars sl. lauk aðal-
sveitakeppni deildarinnar, þátttaka
var mjög góð því 12 sveitir tóku þátt
í kepninni.
í fyrstu þrem sætum urðu eftirtald-
ar sveitir:
Sveit Jóns Egilssonar með 242
Aðrir í sveitinni: Halldór Þorvalds-
son, Sveinn R. Þorvaldsson, Hjálmar
S. Pálsson.
Sveit Rúnars Haukssonar með 227
Aðrir í sveitinni: Guðjón Jónsson,
Kristinn Karlsson, Sævar Hauksson.
Sveit Karls Karlssonar með 223
Aðrir í sveitinni: Sigurður Stein-
grímsson, Páll Vermundsson, Þorvald-
ur Axelsson.
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Gunnars Guðbjörnssonar sigr-
aði í KASKÓ keppninni sem spiluð var
sl. laugardag en þar spiluðu saman
fjórar efstu sveitirnar í aðalsveita-
keppni vetrarins sem nýlokið er.
Sveit Gunnars spilaði gegn sveit
Garðars Garðarssonar í undanúrslitum
og sveit Karls G. Karlssonar spilaði
gegn sveit Jóhannesar Sigurðssonar
sem unnið hafði sveitakeppnina með
nokkrum yfirburðum. Sveitir Gunnars
og Karls unnu sína leiki og spiluðu
til úrslita. Gunnar Guðbjörnsson og
félagar hans unnu þann leik næsta
örugglega og sveit Garðars Garðars-
sonar vann sveit Jóhannesar í keppn-
inni un þriðja sætið.
Sigurvegararnir fengu stór páska-
egg í verðlaun sem KASKÓ gaf til
keppninnar.
Sl. mánudag var spilaður eins
kvölds 16 para tvímenningur en aðal-
tvímenningur félagsins hefst 11. apríl
og er stefnt að því að spila ijögur
kvöld. Mjög góð þátttaka var í þess-
ari keppni í fyrra en spilað er bæði
með og án forgjafar. Spilað verður í
Hótel Kristínu og takmarkast þátttaka
við 28-30 pör.
RAÐAUGi YSINGAR
ATVINNA ÍBOÐI :
Meðferðarheimilið
Sogni
Hjúkrunarfræðingar/geðhjúkrunarfræðingar
óskast til sumarafleysinga og í fastar stöður.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 98-34853.
Fallegur veitingastaður
í miðborginni í fullum rekstri til sölu.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. apríl nk., merkt:
„Veitingastaður - 12880“.
Aðalfundur
Aðalfundur Þjóðræknisfélags íslendinga
verður haldinn í Geysishúsi, Aðalstræti 2,
í dag kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Nýsköpunarsjóður
námsmanna
Nýsköpunarsjóður námsmanna auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum til að ráða
háskólanemendur til vinnu í sumar að ný-
sköpunarverkefnum á vegum stofnana eða
fyrirtækja.
Umsóknum skal skila fyrir 18. apríl nk. til
skrifstofu Stúdentaráðs, stúdentaheimilinu
við Hringbraut 101, Rvík, á eyðublöðum sem
bar fást. Allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Stúdentaráði í síma 621080.
f Stjórnin.
BÚSETI
Húsnæðissamvinnufélag, Mosfellsbæ
Félagslegar íbúðir til úthlutunar:
Tvær 2ja herbergja, lausar strax.
Ein 4ra herbergja, apríl/maí.
Ein 3ja herbergja, apríl.
Almennar íbúðir til úthlutunar:
Tvær 2ja herbergja, apríl/maí.
Ein 3ja herberjga, maí.
Númeraröð gildir við úthlutun.
Nánari uppl. á skrifstofu Búseta þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 17.00-19.00. Sími 666870.
Ath.: Lokað fimmtudaginn 31/3 (skírdag).
Umsóknir berist fyrir 8. apríl.
Enskunám í Bournemouth
Sumarnámskeið fyrir alla aldursflokka
14 ára og eldri.
Gott verð - góð þjónusta -
úrvalskennsla - mikil reynsla.
Upplýsingar hjá Sölva Eysteinssyni,
sími 14029.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hafnarbraut 25,
Hólmavík, miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 14.00, á eftirtöldum
eignum:
1. Aðalbraut 16, Drangsnesi, þinglýst eign Haralds V. Ingólfssonar,
eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs.
2. Bæ 1, Kaldrananeshreppi, þinglýst eign Ingólfs Andréssonar, eftir
kröfum innheimtumanns ríkissjóðs og Byggingarsjóðs ríkisins.
3. Hafnarbraut 13, Hólmavík, talin eign Þorvalds Garðars Helgasonar,
eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs.
4. (búðarhús í landi Hrófár 1, Hólmavíkurhreppi, þinglýst eign Sigurðar
G. Sveinssonar, eftir kröfum Hólmavíkurhrepps og innheimtu-
manns ríkissjóðs.
5. Borgabraut 9, Hólmavík, þinglýst eign Kristins Skúlasonar, eftir
kröfu Byggingarsjóðs ríkisins.
6. Miðtúni 7, Hólmavík, þinglýst eign Guðbjörns M. Sigurvinssonar
og Þórunnar Einarsdóttur, eftir kröfum Byggingarsjóðs ríkisins
og Húsasmiðjunnar hf.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
25. mars 1994.
Ríkarður Másson.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1, Sel-
fossi, miðvikudaginn 6. apríl 1994 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 29, Selfossi, þingl. eig. Árni Sigursteinsson, gerðarbeið-
endur eru innheimtumaður ríkissjóðs og Suðurgarður hf.
Jörðin Friðheimar í Biskupstungnahr., þingl. eig. Fögnuður hf., gerðar-
beiðendur eru Stofnlánadeild landbúnaðarins og Sparisjóður vél-
stjóra.
Gauksrimi 20, Selfossi, þingl. eig. Elva Gunnlaugsdóttir, gerðarbeið-
andi er Sjóvá-Almennar hf.
Háengi 2, 2. hæð B, Selfossi, þingl. eig. Hafþór Bragason og Alda
Guðný Sævarsdóttir, gerðarbeiðendur eru Sjóvá-Almennar hf. og
Vátryggingafélag íslands hf.
Kambahraun 23, Hveragerði, þingl. eig. Margrét Ásgeirsdóttir, gerð-
arbeiðendur eru Búnaöarbanki (slands og Vífilfell hf.
Reykjamörk 16, Hveragerði, þingl. eig. Jóhanna Þorgrímsdóttir, gerð-
arbeiðendur eru Lífeyrissjóður verslunarmanna og Byggingarsjóður
ríkisins.
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Engjavegi 12, Selfossi, þingl. eig. Soffía Ólafsdóttir, gerðarbeiðend-
ur eru Landsbanki íslands, Búnaðarbanki (slands, Atvinnuþróunar-
sjóður Suðurlands og Lífeyrissjóður sjómanna, föstudagínn 8. apríl
1994, kl. 11.00.
Brattahlíð 5, Hveragerði, þingl. eig. Sigurbjörg Oddsdóttir, gerðar-
beiðendur eru innheimtumaður ríkissjóðs, Byggingarsjóður ríkisins,
Ingvar Helgason hf. og Lífeyrissjóður sjómanna, föstudaginn 8. apríl
1994, kl. 13.30.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
29. mars 1994.
SmO auglýsingor
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
I.O.O.F. 7 = 175330872 = MA.
Snæfellsnes
Gisting fyrir hópa og einstakl-
inga. Páskatilboð.
Ferðir á Snæfellsjökul. Sundlaug.
Einnig svefnpokapláss og eldun-
araðstaða.
Gistihúsið Langaholt
á sunnanv. Snæfellsnesi,
s. 93-56789 og 93-56719.
SAMBANO ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Kristniboðssamkoma í kvöld
kl. 20.30 í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður verður Margrét
Hróbjartsdóttir, kristniboði.
Samkoman er öllum opin.
Kaffi eftir samkomuna.
f'aÁ -
Breski miðillinn
tC&:' Marion Dampier
A Jeans heldur
skyggnilýsinga-
fundi fimmtudag-
inn 31. mars og
þriðjudaginn 5.
apríl í Ármúla 40,
2. hæð. Húsið opnað kl. 19.30
og fundurinn hef3t kl. 20.30
bæði kvöldin. Túlkur. Einkatíma-
pantanir í síma 15705.
YJ
^ VEGURINN
v Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Páskamót Vegarins er öllum
opið. Aðgangur er ókeypis og
öll kennsla túlkuð yfir á íslensku.
Dagskrá:
Skírdagur:
Kl. 10-12 og 13-15: Kennsla
með Bill Price. Kennt verður efn-
ið „Making my life count“
Kl. 20: Samkoma. Prédikari
verður Bill Price.
Föstudagurinn langi:
Kl. 10-12 og 13-15: Kennsla
með Ingemar og Majsan Myren.
Kl. 20: Samkoma. Ingemar og
Majsan prédika.
Laugardagurinn 2. aprii:
Kl. 10-12: Kennsla með Ingemar
og Majsan Myren.
Kl. 20: Samkoma. Eiður H. Ein-
arsson prédikar.
Annar í páskum
Sameiginleg samkoma með
hvítasunnumönnum í Filadelfíu
kl. 20 þar sem Bill Price mun
prédika.
Allir velkomnir.
Munið biblíulestur sr. Halldórs
S. Gröndal miðvikudag kl. 18.00.
Þeir eru öllum opnir.
„Þegar þér leitið mín af öllu
hjarta, vil ég láta yður finna mig, “
- segir Drottinn.
Breski miðillinn Glennis Carry
kemur til starfa hjá félaginu 5.
apríl. Auk þess að vera frábær
miðill er hann meðal færustu
læknamiöla Bretlands og mun
verða með námskeið í heilun,
sem munu verða auglýst siðar,
en bókanir í einkatíma og heilun
eru hafnar I síma 92-14121.
UTIVIST
Hállveigarstig l • simi 614330
Dagsferð á skírdag 31. mars
Kl. 10.30 Selvogur-Þorlákshöfn.
Gengið verður frá Nesi í Selvogi
og áfram austur undir Þorláks-
höfn. Skemmtileg strandganga
um 15 km löng. Með í för verður
Konráð Bjarnason, fræðimaður.
Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Verð kr. 1.700/1.900.
Dagsferð á föstudaginn
langa 1. apríl kl. 10.30
Söguferð í Reykholt. Farið á
söguslóðir Snorra Sturlusonar.
Eiríkur Guðmundsson, sagn-
fræðingur, verður með og segir
frá. Ef veður leyfir verður farin
sjóleiðin upp á Ákranes og það-
an með rútu í Borgarfjörðinn.
Mæting er samt við BSÍ, bensín-
sölu. Verð kr. 2.000/2.200.
Miðar seldir við rútu.
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Dagsferðir um
bænadaga og páska:
1) 31. mars (skfrdagur) kl.
13.00: Festarfjall - Hraunsvík.
Ekið til Grindavíkur um Þórkötlu-
staðahverfi í Hraunsvík og síðan
gengið á Festarfjall.
Verð kr. 1.100.
2) 31. mars (skírdagur) kl.
13.00: Skíðaganga á Bláfjalla-
svæðinu. Verð kr. 1.100.
3) 1. apríl (föstudaginn langa)
kl. 13.00: Hvalsnes - Stafnes -
Básendar. Ekiö um Miðnesheiði
að Hvalsnesi og kirkjan skoðuð.
Áfram er haldið að Stafnesi, en
þar var ein fjölmennasta verstöð
á Suðurnesjum á 17. og 18. öld.
Litlu sunnar eru Básendar, forn
miðstöð einokunarverslunarinn-
ar dönsku til 9. janúar 1799, er
Básendar eyddust í mikilli flóð-
bylgju. Verð kr. 1.600.
4) 2. aprfi (laugardagur):
Páskaganga fjölskyldunnar.
Gengið frá Víðidal niður Elliðaár-
dalinn. Brottför frá Mörkinni 6
- kl. 13.00.
5) 4. aprfl (annar f páskum) kl.
13.00: Hellisheiði - Innstidalur,
skfðaganga. Verð kr. 1.100.
6) 4. apríl (annar í páskum) kl.
13.00: Staðarborg - Kálfatjörn.
Ekið gengt Staðarborg (gömul
fjárborg) á Strandarheiði og
gengið að henni og síöan að
kirkjustaðnum Kálfatjörn á Keil-
isnesi. Verð kr. 1.100.
Brottförfrá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin og Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.