Morgunblaðið - 30.03.1994, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
Minning
Matthildur Krístjáns-
dóttir Petersen
Fædd 27. júní 1902
Dáin 21. mars 1994
Látin er í hárri elli í Reykjavík
Matthildur Kristjánsdóttir Petersen,
ekkja Ludvigs Petersens matreiðslu-
meistara og kaupmanns. Útför
hennar verður gerð í dag frá Nes-
kirkju.
Matthildur var móðursystir mín,
félagi okkar hjóna og vinur og hin
mesta hjálparhella, eins og hún var
svo mörgum öðrum. Matthildur og
maður hennar, sem nú er löngu lát-
inn, voru stoð okkar og stytta á
fyrstu hjúskaparárum okkar í
Reykjavík. Fyrir það stöndum við í
ómældri þakkarskuld við þau bæði
og raunar einnig við þessa öðlings-
konu fyrir margt annað.
Matta frænka, eins og hún var
jafnan nefnd af ættingjum sínum,
hét fullu nafni Matthildur Guðrún.
Hún fæddist á Litlalóni undir Jökli
27. júní 1902 og var því komin hátt
á 92. aldursár er hún lést. Litlalón
er nú löngu komið í eyði, en þar
bjuggu afí minn og amma um hríð,
hjónin Kristján Jónsson, síðar sjó-
maður á Hellissandi, og Sigurveig
Björnsdóttir frá Gerðubergi í Eyja-
hreppi, síðast saumakona í Reykja-
vík.
Þau Kristján og Sigurveig eign-
uðust fímm börn, og er nú aðeins
hið yngsta þeirra á lífi, Anton Krist-
jánsson, skjalaþýðandi í Reykjavík.
Önnur systkin Matthildar voru: Elsa
(móðir mín), hjúkrunarkona og hús-
freyja, síðast í Reykjavík; Aðalheiður
Bruun, húsfreyja í Reykjavík og
Kópavogi, og Oskar, bifvélavirki í
fifteykjavík.
Þegar Kristján, afí minn, féll frá
1919, var Matta unglingur innan við
tvítugt, en fáum árum síðar var hún
farin að vinna fyrir sér í Reykjavík.
Hún vann um skeið á Hótel Islandi,
en varð svo símastúlka á miðstöð
bæjarsímans 1925, var skipuð í
starfíð eftir hæfnispróf og hélt því
til 1932 er sjálfvirka stöðin var tek-
in í notkun.
Matta giftist 1928 dönskum heið-
ursmanni sem þá var yfirmatreiðslu-
maður á Hótel Islandi. Flestir þekktu
hann undir nafninu Ludvig Petersen,
en hann hafði mörg skímarnöfn og
henti sjálfur gaman að. Eitt þeirra
var Idon, og því nafni var hann jafn-
an nefndur meðal nánustu vina og
venslafólks.
Matta og Idon bjuggu lengstum
á Víðimel 45 í Reykjavík og reistu
það hús. Idon var mikils virtur í sinni
grein, sá oft um matreiðslu í opinber-
um veislum og var prófdómari í
Matreiðsluskóla Islands. Þau njónin
ráku um nokkurra ára skeið smur-
brauðsstofu í Reykjavík, en 1948
stofnsetti Idon Hofsvallabúðina,
kjötverslun við Hofsvallagötu, sem
hann rak ásamt dönskum félaga sín-
um.
Foreldrar mínir voru búsettir úti
á landi þar sem faðir minn var hér-
aðslæknir en alltaf var skipst á heim-
sóknum. Mikið tilhlökkunarefni var
það jafnan ef von var á Möttu
frænku og Idon í sumarleyfísdvöl í
Búðardal og síðar til Dalvíkur og
Akureyrar. Mér telpukorninu fannst
fylgja þeim andblær menningarinnar
frá heimsborginni Reykjavík. Síðar
þegar ég hleypti heimdraganum og
fór til náms til Reykjavíkur átti ég
alltaf víst skjól og hvers konar stuðn-
ing á Víðimelnum. Þegar við hjónin
lentum í húsnæðishraki skömmu eft-
ir að við settum saman bú fengum
við inni á neðri hæðinnni hjá þeim,
og þá sinnti Matta frænka oft elsta
syni okkar, og þau hjón bæði, af
þeirri alúð og tillitssemi sem þeim
báðum var einkar lagin.
Um 1960 varð Idon að hætta
rekstri Hofsvallabúðarinnar vegna
heilsubrests og tók þá að sér umsjón-
arstörf í Neskirkju. Hann lést 26.
nóvember 1960.
Þau hjónin voru meðal stofnenda
Neskirkjusafnaðar, og unnu bæði
að kirkjubyggingunni og málefnum
safnaðarins af einlægum áhuga og
skiluðu þar miklu starfí. Matta var
til dæmis árum saman ritari í stjórn
Kvenfélags Nessóknar.
Þeim Möttu og Idon varð ekki
barna auðið en að þeim hændust
bæði börn og fullorðnir. Er langa
sögu að segja af öllum þeim sem
Matthildur Petersen studdi í lífsbar-
áttunni, einnig, og ekki síður, þegar
hún var orðin ekkja. Sú saga verður
ekki rakin hér, en hún er að mörgu
leyti bæði rauna- og hetjusaga.
Eftir lát Idons bjó Matta áfram á
Víðimel 45, fyrstu árin ásamt móður
sinni aldraðri sem hafði þar einnig
litla íbúð fyrir sig. Sigurveig andað-
ist 1967.
Til þess að sjá sér farborða hóf
Matta aftur störf hjá símanum 1963,
fyrst í viðlögum við upplýsingar í
03, en gegndi síðan fullu starfí þar
frá 1967 til ársloka 1972 er hún lét
af störfum fyrir aldurs sakir. At-
hygli vakti að henni veittist furðu-
létt að taka aftur upp fyrri störf
þótt tímarnir væru breyttir.
Matta frænka bjó lengst af við
góða heilsu uns hún varð fyrir því
áfalli fyrir nokkrum árum að missa
annan fótinn. Þá raun stóð hún af
sér af miklum hetjuskap og náði
þeim bata að geta áfram búið í íbúð
sinni en þaðan gat hún helst ekki
hugsað sér að fara. Þetta reyndist
henni unnt vegna þeirrar hjálpar og
aðhlynningar sem vinkona hennar
og aðstoðarkona, Sigríður Kristjáns-
dóttir, veitti henni, og skulu henni
hér færðar bestu þakkir fyrir alla
þá umönnun og umhyggjusemi sem
hún sýndi móðursystur minni.
Lengi verður mér minnisstætt það
spjall sem við áttum síðast saman
og bar þess engin merki að ég ætti
þar orðastað við konu sem komin
var á tíræðisaldur. Andlegt fjör
hennar var óbugað, minnið var gott,
hún hélt góðri sjón og las töluvert,
fylgdist vel með öllu sem gerðist í
þjóðmálum og stjórnmálum og hafði
brennandi áhuga á trúmálum og
heimspekilegum efnum.
Maðurinn minn, sem hafði sér-
stakt dálæti á Möttu frænku, hefur
lýst henni svo:
„Matthildur Petersen var þannig
gerð að hún brást alltaf á jákvæðan
hátt við öllu mótlæti. Þess vegna
má vera að mörgum hafí sést yfír
það hversu erfíða glímu hún varð
oft að heyja ein og óstudd. En hún
tamdi sig til þess vísvitandi, lagði
sig fram um að þroska sjálfa sig.
Það var hennar lífsstefna. Fyrir vik-
ið var eins og Matta væri ávallt
veitandi í samskiptum við aðra. Þótt
hún yrði aldrei auðug að fé, var hún
ávallt rík í einhveijum góðum skiln-
ingi.
Hún fór aldrei fram með kröfur
á hendur öðrum; þær gerði hún til
sjálfrar sín. Hún var aldrei ágeng
eða ónotaleg, en þó hreinlynd og
hreinskiptin og tilgerðarlaus með
öllu. Hún var gáfuð kona í bestu
merkingu, gamansöm og skemmti-
leg og leiftraði af henni fram á hinsta
dag.“
Þegar við hjónin komum til henn-
ar bæði saman í síðasta sinn, var
hún á sjúkrastofu í Hátúni að búa
sig undir læknisaðgerð sem hún vissi
að ekki var áhættulaus. Hún var
hress í bragði að vanda og hafði
verið að stytta sér stundir við að
hripa eitthvað á blað. Það reyndist
vera þessi vísa sem hún var að enda
við að setja saman:
Aldrei kvíði eykur þrek,
engan vanda tefur.
Vonin blíða bömin sek
bjðrtum örmum vefur.
íjarskalega var þetta líkt henni.
Hún var hagmælt eins og móðir
hennar og fleiri konur úr þeirri ætt,
en kunnust þeirra var Ólöf Sigurðar-
dóttir skáldkona frá Hlöðum.
Að skilnaði hlýt ég að þakka
frænku minni allt það góða sem ég
og mínir hafa notið frá hennar hendi
fyrr og síðar og bið Guð að blessa
minningu hennar.
Guðrún Stefánsdóttir.
Ijdidnkkjur
(ilæsileg kaíii-
lilaölx)rö íiillegir
síilir og m)ög
góö þjónusta.
Upplýsingar
ísíma22322
FLUCLEIDIR
HéTeuomeiiiK
Móðursystir mín, Matthildur Pet-
ersen, andaðist um vorjafndægur,
þegar dagur og nótt eru jafnlöng,
en myrkrið heldur áfram að hörfa
fyrir ljósinu. Hún hafði gengist und-
ir aðgerð, sem við héldum að væri
áhættulítil en bárum þó kvíðboga
fyrir. Henni leið vel fyrstu tvo dag-
ana en dó skyndilega á þriðja degi.
Matta frænka var á 92. aldursári
og því mátti búast við hveiju sem
var, en ættingjar og vinir eru oftast
óviðbúnir. Matta frænka mín var
búin að vera ekkja í rúm 33 ár, en
maður hennar var Ludvig Idon Pet-
ersen matreiðslumeistari, sem lést
haustið 1960.
Ef draga ætti fram sérkenni Matt-
hildar þá nefni ég fyrst andlegan
styrk hennar, sem var einstakur.
Hún hafði ákveðnar skoðanir á flest-
um málum. Má þar nefna stjórnmál
og trúmál. Hún fylgdist alla tíð vel
með fréttum og öllu því sem gerðist
í kringum hana. Hún var víðsýn og
réttlát og hollráð sínum vinum og
ættingjum, enda leituðu þeir mikið
til hennar ef eitthvað bjátaði á.
Eina skiptið sem ég sá þessa
sterku frænku mína bogna, var fyr-
ir sex árum þegar læknar úrskurð-
uðu að taka þyrfti af henni fótinn.
Þá kom tímabundinn vafí um lífsvilj-
ann. En aðgerðin tókst vel og Matta
náði furðufljótt sinni andlegu reisn
sem alltaf einkenndi hana.
Þegar leitað er í sjóð minninganna
koma fram myndir frá Búðardal
þegar Matta og Idon komu í heim-
sókn, en faðir minn var þar héraðs-
læknir og móðir mín, systir Möttu,
hjúkrunarkona og ég stelpugopi. Ég
minnist einnig heimsókna til Dalvík-
ur og Akureyrar, en þá var alltaf
hátíð í bæ og smá-ferðalög þegar
Matta og Idon komu í heimsókn.
Þegar ég kom suður til náms í
Háskólanum borðaði ég hjá Möttu,
og þegar ég gifti mig ári síðar flutt-
um við Karl Ómar í kjallarann hjá
Möttu og Idon. Þegar elsti sonurinn,
Stefán, fæddist gætti frænka hans
oft, og þeim þótti báðum einkar
vænt um hann. Varla leið sá sunnu-
dagur að okkur væri ekki boðið að
veisluborði sem kokkurinn hafði
töfrað fram. Tuttugu árum eftir að
við yfirgáfum Víðimelinn og fórum
til Kaupmannahafnar, kvæntist
Stefán, sonur okkar, og flutti í kjall-
arann hjá Möttu, og sama gerði
dóttirin þegar hún fór að heiman
nokkrum árum síðar. Það má því
segja að Matta hafí verið mér sem
önnur móðir, og ég fæ seint þakkað
umhyggju hennar og hjálpsemi við
íjölskyldu mína.
Eins og áður segir var Matthildur
trúuð kona og var viss um að hitta
Idon sinn þegar þessu jarðlífi lyki.
Hún hefur nú haldið af stað eftir
nýjum vegum móti hækkandi sól þar
sem hún mun finna hið eilífa ljós.
Að Ieiðarlokum þökkum við Karl
Ómar móðursystur minni fyrir ást-
úðlega samfylgd, hjálpsemi og öll
hollráðin sem hún hefur veitt okkur
og fjölskyldu okkar. Blessuð sé
minning Matthildar Petersen.
Ólöf Stefánsdóttir.
Elsku Matta.
Það er hálfskrítið að þú sért ekki
lengur á Víðimelnum og að við eig-
um aldrei aftur eftir að sitja saman
í eldhúsinu og ræða þessa grátbros-
legu tilveru okkar. Svei mér þá, mér
fínnst einsog það sé varla neitt það
atvik eða aðstæður sem þú hefur
ekki getað séð eitthvað jákvætt við
eða broslegt. Meira að segja þegar
ég heimsótti þig á spítalann tveimur
dögum áður en þú kvaddir og þú
varst nýkomin úr aðgerðinni, þá
hlóstu við og sagðir að þetta hefði
verið hálfgerð naflaskoðun og lækn-
irinn hefði sagt að þú hefðir þennan
líka ágætis nafla. Eg var að hugsa
um það þar sem þú sast þarna í
rúminu að ég hefði aldrei litið á þig
sem gamla konu en samt varstu
orðin sjötug þegar ég fæddist.
Þegar ég var lítil þá hoppaðirðu
á einum fæti fyrir mig í stofunni
og varst alltaf tilbúin að hverfa inn
í ævintýraheiminn með okkur krökk-
unum. Þú hefur einhvernveginn allt-
af skilið það sem hefur verið að bijót-
ast um í kollinum á manni, sama
hvort það var fimm ára stelpa sem
sat á kollinum hjá þér eða tvítug
stelpa.
Eg þakka þér fyrir, Matta, að
hafa átt þig sem vin, mér finnst ég
hafa lært svo margt af þér um mann-
lífið og hversu miklu máli það skipt-
ir að vera heiðarlegur gagnvart sjálf-
um sér og öðrum. Stundum hef ég
hugsað að allir ættu að kynnast
henni Möttu minni, þá yrði kannski
minni barlómur og fólk gæti lært
að sjá það broslega við sjálft sig.
Núna ertu farin en í huga mér eru
allar þær stundir sem við höfum átt
saman sem skilja eftir sig trú á lífið
og tilveruna.
Þín vinkona,
Asta.
Þegar við fluttum nýgift í litlu
kjallaraíbúðina á Víðimel hófust
tveggja áratuga kynni mín af Möttu
frænku, eins og við kölluðum hana.
Matta var ósérhlífnasta mannvera,
sem ég hef kynnst. Þegar hún seldi
okkur litlu kjallaraíbúðina til þess
að hjálpa ættingjum, tók hún leigj-
andann inn til sín og flutti sjálf inn
í stofu.
Það var notalegt að búa í kjallar-
anum og vita af Möttu á efstu hæð.
Ég átti ekki því láni að fagna að
kynnast dönskum eiginmanni Möttu,
því hún var löngu orðin ekkja, þegar
hér var komið sögu. Þeim hafði ekki
orðið barna auðið, en betri uppa-
landa og sálfræðing en Möttu hef
ég varla kynnst. Snemma byijaði
sonur okkar að skríða upp til Möttu.
í kjallaranum horfði stolt, óreynd
móðir á soninn tæma allar eld-
hússkúffurnar. Þegar upp til Möttu
kom voru uppeldisreglur í algleym-
ingi. „Nei, ekki þessa!“, var sagt
ákveðinni röddu, þar til reynt var
við þá neðstu. „Ja-há!“ var þá sagt,
„þessa máttu opna!“, en það var
sleifaskúffan. Börn lærðu ung að
bera virðingu fyrir Möttu. Aldrei
varð maður var við annað en að líf-
ið væri eins og dans og rósum fyrir
Möttu. Hún var sjálfri sér nóg, las
mikið og hlustaði á útvarp. Stundum
sat hún og skrifaði hugleiðingar,
smásögur og málaði. Þetta sjálf-
stæði hjálpaði Möttu mikið í allri
einverunni, ekki síst eftir að hún
missti vinkonurnar á Víðimel á elli-
heimili og hún gat lítið ferðast eftir
að hafa misst annan fótinn.
Minningarnar hrannast upp og
ógjörningur að minnast alls, sem
annars virðist svo mikilvægt. Ekki
verður þó hjá því komist að minnast
Lundúnaferðar Möttu. Þegar við
lentum í vandræðum gerði hún sér
lítið fyrir eins og svo oft áður og
skellti sér í fyrstu utanlandsferðina,
þá 78 ára gömul. Oft varð mér hugs-
að til þess að aldrei auðnaðist henni
að heimsækja tengdafólk sitt í Dan-
mörku, þrátt fyrir að hafa haldið
uppi við það bréfaskriftum á dönsku.
Matta dvaldi hjá okkur í 6 mánuði
í London og passaði drengina okkar.
Hún gerði ýmislegt, sem aldrei var
farið fram á. Hún kom eins og sólar-
geisli inn á heimilið okkar, sat tímun-
um saman og spilaði á spil við
þriggja ára soninn. Hann lærði meira
á þessum tíma en margur lærir heilt
ár í barnaskóla. Af spilunum lærði
hann formin, litina, tölustafina og
fleira. Það var notalegt að koma
þreyttur heim og finna ilminn úr
eldhúsinu. Oftast var um stórveislu
að ræða, sem ekki kostaði mikið.
Allt var nýtt, engu hent. Aldamóta-
kynslóðin!
Matta virtist þrátt fyrir allt sem
á hana var lagt hafa gaman af þess-
um tíma í London. Þegar hún var
spurð um þessa fyrstu utanlands-
+
Móðir okkar, tengdamóðir, fósturmóðir og amma,
ÚRSÚLA ÞORKELSDÓTTIR
frá Laxárnesi,
lést mánudaginn 28. mars sl.
Jarðarförin fer fram frá Lágafellskirkju laugardaginn 2. apríl
kl. 13.30.
Ólafur Ingvarsson, Artha Eymundsdóttir,
Auður H. Ingvarsdóttir,
Þrúður Ingvarsdóttir, Hreinn Eyjólfsson,
Halldór Kjartansson, Kristín Valdimarsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir minn, stjúpfaðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL EMIL BJÖRNSSON,
áður Sólvöllum,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, 28. mars.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5. apríl
kl. 13.30.
Ingimar Snorri Karlsson, Ólöf Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Sigríður Árnadóttir, Júlíus Fossdal,
Sigrún Árnadóttir, Sverrir Jónatansson,
Regfna Árnadóttir, Svavar Sigursteinsson,
Halldóra Árnadóttir, Snorri Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Lokað
Lokað í dag frá kl. 10-12 vegna jarðarfarar
GUÐMUNDAR TORFASONAR.
ý'* Ellingsen.