Morgunblaðið - 30.03.1994, Page 40
40
félk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
E VROPU SÖNG V AKEPPNIN
Telur íslenska lag-
ið sigurstranglegt
Eg tel að ísland eigi mjög góða
möguleika í Evrópusöngva-
keppninni að þessu sinni og satt
best að segja finnst mér líklegt
að lagið sigri,“ sagði Frank
McNamara í samtali við Morgun-
blaðið. Frank er íri og hingað
kominn til að útsetja lag Friðriks
Karlssonar, Nætur, en það verður
framlag íslands til Evrópusöngva-
keppninnar í Dyflinni á írlandi
þann 30. apríl. Morgunblaðið náði
tali af honum í Stúdíó Sýrlandi
um liðna helgi, þegar verið var
að leggja lokahönd á hljóðritun
lagsins.
Frank er enginn nýgræðingur í
heimi Evrópusöngvakeppninnar,
því hann útsetti sigurlag íra árið
1992 og endurtók leikinn í fyrra.
Um aðdraganda þess að hann er
hingað kominn sagðist hann hafa
hitt Jakob Magnússon menningar-
fulltrúa þegar keppnin var haldin
í Málmey í Svíþjóð fyrir tveimur
árum og endumýjað kynnin við
hann á Irlandi í fyrra. „Við rædd-
um þann möguleika að ég útsetti
lagið fyrir ísland í ár og það varð
úr, eftir að ég hafði heyrt lagið,
Ég þekkti lítið til Friðriks og
Siggu, sem syngur lagið, en vissi
þó hver þau voru, enda voru þau
bæði í Malmö fyrir tveimur árum.“
Enginn rígur milli íra og
íslendinga
Frank var inntur eftir því hvort
hann fengi ekki óblíðar móttökur
heima á Irlandi, þegar hann út-
setti nú lag fyrir aðra þjóð en sína
eigin. „Ég held að landar mínir
hafi engar áhyggjur af því, enda
er enginn rígur á milli þessara
þjóða,“ svarar hann. „írska lagið
er mjög einfalt í sniðum í ár og
krefst ekki mikilla útsetninga, svo
þar er ég ekki að snúa baki við
löndum mínum. Það hefur hins
vegar vakið athygli í fjöimiðlum á
írlandi að ég starfa nú með ís-
lenska hópnum, en í útvarpsþætti
í írska útvarpinu í síðustu viku var
mér óskað gæfu og gengis og það
fylgdi með að vonandi hreppti ís-
lenska lagið 2. sætið! írar ætla sér
því að vinna enn á ný,(_gn ég er
ákveðinn I því sama fyrir íslands
hönd.“
Frank segir að lag Friðriks hafi
tekið nokkrum breytingum í út-
setningu. „Lagið er núna meira
Friðrik Karlsson lagahöfundur, Frank McNamara útsetjari og Sigríð-
ur Beinteinsdóttir söngkona luku við hljóðritun á Iaginu Nætur V
Stúdíó Sýrlandi um helgina.
lifandi en áður, ekki eins og stúdíó-
útgáfa. Það er hins vegar töluverð-
ur vandi að útsetja lag, sem má
ekki vera meira en 3 mínútur, því
það setur manni miklar skorður.
Ég set mig aftur á móti ekki í
neinar sérstakar Eurovision-steil-
ingar við útsetninguna, ég hefði
alltaf útsett lagið á þennan hátt.“
Samvinna við Siggu
Frank er ekkert að skafa utan
af hlutunum þegar kemur að áliti
hans á íslenska laginu og flytjand-
anum, Sigríði Beinteinsdóttur.
„Lagið á alla möguleika á sigri
og Sigga er frábær söngkona. Eg
hika ekki við að fullyrða að fáar
söngkonur í heimi eru jafn góðar
og ég ætla að gera mitt til að
heimurinn fái að kynnast rödd
hennar. Við eigum örugglega eftir
að starfa meira saman að tónlist
og ég hef þegar lagt drög að slíkri
samvinnu þégar Siggá kemur til
trlands." í' t’í'f: :r
Lassie veitir „eiginhandarárit-
un“.
GOÐHUNDAR
*
Attunda
kynslóð
af Lassie
Góðkur.ningi yngstu kynslóðar-
innai, góðhundurinn Lassie,
heiðraði gesti veitingahússins
„Planet Hollywood" fyrir skömmu
með nærveru sinni. Setti hann, eða
öllu heldur hún, spormark sitt í
blauta steypu á gólfi veitingahúss-
ins, sem er í eigu nokkurra valin-
kunnra stórleikara og má nefna
Bruce Willis og Sly Stallone.
Lassie var þarna komin í tilefni
af því að 50 ár eru liðin síðan hún
sló í gegn í kvikmyndinni „Lassie
come Home“. Allar götur síðan
hafa verið sýndir rúmlega 600
þættir um þessa stjörnu í sjón-
varpi. Það þarf vart að taka fram
að Lassie sem hér um ræðir var
ekki á stjái fyrir 50 árum. Núver-
andi Lassie er áttunda kynslóðin
síðan fyrsti Lassie, sem raunar hét
Pal, kom fram í fyrrgreindri kvik-
mynd um Lassie.
Olivia Newton-John og Matt Lattanzi.
Þátttakendur í Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur 1994 ásamt framkvæmdastjóra keppninnar Esther
Finnbogad. og veitingamönnunum þeim Úlfari Finnbjörnssyni og Agnari Jóhannssyni.
FEGURÐ
FeRiirðardísum boðið í mat
Stúlkumar 14 sem taka þátt
Fep-urðarsamkeDDni Revkia
Fegurðarsamkeppni Reykja-
víkur 1994, hafa verið að undirbúa
sig fyrir keppnina. Stúlkunum var
boðið til kvöldverðar á veitinga-
húsinu Jónatan Livingstone mávi,
við Tryggvagötu eitt kvöldið. Þeir
Úlfar Finnbjömsson og Agnar
Jóhannsson veitingamenn tóku vel
á móti hópnum og voru stúlkurnar
síðan allar kvaddar með rauðri rós
frá Stefánsblómum. Eftir heim-
sóknina á Mávinn hélt hópurinn í
Casablanca.
Þátttakendur í Fegurðarsam-
keppni Reykjavíkur koma víðs
vegar að af höfuðborgarsvæðinu.
Næstu daga mun hópurinn verða
við stífar æfingar fram að úrslita-
kvöldinu sem haldið verður á Hót-
el íslandi annan í páskum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Úlfar Finnbjörnsson veitingamaður afhendir stúlkunum rauða rós
með kveðju frá Stefánsblómum.
SLÚÐUR
Matt þarf
meira rými
Astralska söngkonan kunna
Olivia Newton-John og
eiginmaður hennar Matt Lattanzi
era alls ekki í þann mund að skilja
eins og ráða hefur mátt af frá-
sögnum ýmissa blaða beggja
vegna Atlantsála. Þvert á móti
segir Olivia, sem gerði garðinn
hvað frægastan í kvikmyndinni
„Grease“, að nú fyrst viti þau
Matti hversu mjög þau elski hvort
annað og nú sé loksins hægt að
lifa lífínu þar sem hún hefur kné-
sett krabbameinið sem hrjáði hana
síðustu árin.
Varðandi meintan skilnað sagði
Olivia, að umtalið hefði leikið dótt-
ur þeirra hjóna grátt og það hefði
oft komið fyrir að hún hefði kom-
ið grátandi heim úr skólanum eft-
ir að skólafélagarnir hefðu strítt
henni vegna þessa. Dóttirin, sem
heitir Chloe, er átta ára gömul.
Þá telur Olivia að það kunni að
hafa villt um fyrir fréttamönnum,
að Matt hefur reist veglegt hús á
landareign þeirra hjóna í Nýju
Suður Wales í Ástralíu. Blöðin
hafa sagt að hann ætli að flytja
þangað, en það er rangt. Matt
þarf einfaldlega meira pláss.
„Þannig er mál með vexti, að ég
er meira gefín fyrir kyrrð og ró
en Matt sem vill gjaman halda
vinum sínum gleðskap. Ég vil síst
af öllu fara að þrengja að honum
í þeim efnum og því er það góð
lausn hjá honum að halda veislurn-
ar sínar í nýja húsinu. Þá getur
hann skemmt sér eins lengi fram
eftir nóttu og hann kærir sig um,
en á meðan getum við Chloe sofíð
vært.“