Morgunblaðið - 30.03.1994, Side 52

Morgunblaðið - 30.03.1994, Side 52
tfguitMjiptq t 1 V/SA L RAFRÆNT ÞJÓNUSTUKORT MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Þróunarnefnd um aðstoð við Palestínu Tíu milljón- ir til stofn- unar verk- fræðistofu a Gaza Njarðvíkingar komnir í úrslit NJARÐVÍKINGAR sigruðu íslandsmeistarana úr Kefla- vík, 91:98, í þriðja og síðasta leik liðanna í undanúrslitum um íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn var hraður og spennandi og uppselt var í íþróttahúsið í Keflavík. Njarð- víkingar mæta Grindvíkingum eða Skagamönnum í úrslitum, en þeir mætast í Grindavík í kvöld. Hér má sjá Rondey Robinson og Val Ingimundar- son, þjálfara Njarðvíkur, fagna að leikslokum, en þeir léku báðir mjög vel í gær- kvöldi. Sjá bls. 51. Morgunblaðið/Þorkell NEFND sem stofnuð var á vegum ríkisstjórnarinnar um aðstoð við Palestínu í ,— kjölfar sjálfstjórnar Palest- ínumanna á Gaza-svæðinu hefur ákveðið að veita allt að 10 milljónum króna til þess verkefnis að koma á stofn verkfræðistofu á Gaza- svæðinu í eigu þriggja ís- lenskra verkfræðistofa og Palestínumanna. Nefndin auglýsti á sínum tíma eftir hugmyndum að verkefnum _ í Palestínu. og sögn Þrastar Ólafssonar formanns nefnd- arinnar bárust 12 ábending- ar sem nú er verið að fara yfir með viðkomandi aðilum, en aðeins hefur verið tekin ákvörðun um fjárveitingu í þessu eina tilfelli. íslensku verkfræðistofumar sem um ræðir eru Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Verkfræði- stofa Stefáns Ólafssonar og Fjar- hitun. Að sögn Viðars Ólafssonar forstjóra Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen er í augsýn samkomu- lag við Palestínumenn um stofnun r—- verkfræðistofu á Gaza-svæðinu, sem síðan ætlar að taka þátt í samkeppni um verkefni á sviði uppbyggingar á sjálfstjórnarsvæð- inu, en þau verða á vegum bæjar- félaga og alþjóðastofnana. Á páskadag heldur Viðar ásamt Kristjáni Sigurbjarnasyni verk- fræðingi hjá VST til Gaza-svæðis- ins til að vinna að stofnun verk- fræðistofunnar. Hæstiréttur dæmir ríkinu í vil í prófmáli gegn Félagi vatnsvirkja 900 milljóna greiðslur til hluthafa SV skattskyldar HÆSTIRÉTTUR kvað upp dóm í gær í máli íslenska ríkisins gegn Félagi vatnsvirkja, rikinu i vil. Fyrsta krafa ríkisvaldsins var tekin til greina, og Félagi vatnsvirkja gert að greiða rúmlega 68 þúsund krónur í tekjuskatt með dráttarvöxtum frá 1. desember 1991, og úrskurður rikisskattanefndar frá því í janúar 1992 felldur úr gildi. Um prófmál var að ræða og sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið, að dómurinn hefði í för með sér að hluthafar í Sam- einuðum verktökum, sem Félag vatnsvirkja á 7% hlutafjár i, þurfi að greiða tekjuskatt af 900 milljónurn króna sem þeir greiddu sér í jan- úar 1992 eftir að hafa hækkað hlutafé um sömu upphæð með útgáfu jöfnunarhlutabréfa og lækkað síðan jafnharðan. Greiðslurnar voru skatt- lagðar frá upphafi og nemur álagningin á fjórðu hundruð milljón króna. Friðrik sagði, að dómur Hæsta- réttar væri sigur fyrir ríkisvaldið, e.t.v. ekki fullnaðarsigur, en „sigur að lang stærstu leyti. Hann staðfest- ir að við höfðum rétt fyrir okkur frá upphafi," segir Friðrik. Forsaga málsins er sú, að hluthaf- ar SV hækkuðu hlutafé fyrirtækisins um 105 milljónir króna með útgáfu jöfnunarhlutabréfa árið 1990, lækk- uðu síðan hlutafé samstundis um 95 milljónir og afhentu hluthöfum þá upphæð sem skattfijálsa greiðslu. Ríkisskattstjóri hafði heimilað út- gáfu upp að 103 milljónum króna og krafðist þess að hluthafar greiddu skatt af 2 milljónum króna. Úrskurð- ur ríkisskattanefndar í janúar 1992 hnekkti álagningu ríkisskattstjóra. Á grundvelli úrskurðarins var hlutafé í SV hækkað að nýju með útgáfu jöfnunarhlutabréfa og lækkað jafn- harðan, og 900 milljónir króna greiddar út til hluthafa, skattfijálst samkvæmt úrskurði nefndarinnar. Til að hnekkja úrskurði ríkisskatta- nefndar höfðaði ríkið mál. Dómur féll Félagi vatnsvirkja í vil í héraðs- dómi og áfrýjaði ríkisvaldið með þeim árangri sem dómur Hæstarétt- ar leiðir í ljós. Útgáfajöfnunarhluta- bréfa ógild Hæstiréttur taldi annan kröfulið ríkisins ekki samrýmanlegan fyrsta kröfulið og vísaði honum frá. í öðrum kröfulið var krafist viðurkenningar á að 103 milljónirnar hafi allar verið skattskyldar, eða 7% af þeirri upp- hæð í samræmi við hlut félags Vatnsvirkja, og til vara að þær 95 milljónir sem greiddar voru út til hluthafa hafí verið skattskyldar. Ein af málsástæðum ríkisins var sú, að ekki hafí verið lagalegur grundvöllur fyrir útgáfu jöfnunarhlutabréfa, þar sem hvorki hlutafjáraukningin né hlutafjárlækkunin var tilkynnt ti! hlutafélagaskrár og hlutabréfin aldr- ei gefín út. Hæstiréttur féllst á þetta sjónarmið og segir í dóminum, að „samkvæmt skýrum ákvæðum hlutafélagalaga var því ákvörðun aðalfundar Sameinaðra verktaka hf. um útgáfu skattfijálsra jöfnun- arhlutabréfa ógild svo og ákvörðun um lækkun hlutafjárins." Einnig segir í dómi Hæstaréttar, að heimild Sameinaðra verktaka til endurmats stofnfjár í íslenskum aðalverktökum, miðað við lög frá 1978, hafí verið fallin úr gildi árið 1990 þegar SV lét endurmeta eignir, og ekki hafí verið heimild til að endurmeta stofnfé SV í Islenskum aðalverktökum. Viðræður um möguleika til að taka yfir leitar- og björgunarsveit varnarliðsins Tilboð með nokkrum kost- um væntanlegl á næstunni BANDARÍSK stjórnvöld hafa reifað við íslensk stjórnvöld hugmyndir um hvaða möguleikar eru fyrir hendi á því að Islendingar taki yfir björgunar- og leitarþjónustu þyrlusveitarinnar á Keflavíkurflugvelli og er þess vænst að formlegt tilboð þar að lútandi berist næstu daga. Þetta staðfesti Gunnar Pálsson, skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins og formaður starfshóps ríkisstjórnarinnar til að kanna möguleika á að íslendingar taki yfir hlutverk þyrlubjörgunar- sveitar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Auk utanríkisráðuneytisins eiga fulltrúar forsætis-, dóms- mála- og fjármálaráðuneytisins sæti í starfshópnum. Gunnar sagði að það tilboð sem væri væntanlegt væri sveigjanlegt og fæli í sér nokkra kosti. Um væri áð ræða möguleika á kaupum, leigu eða jafnvel kaupleigu á notuðum eldri eða nýrri þyrlum eftir atvikum og þær upplýsingar sem við hefðum fengið um verð bentu til þess að þau væru hagkvæm og gætu orðið grundvöllur frekari samningavið- ræðna. Þessir kostir fælu einnig í sér þjálfun áhafna þyrlanna og varahluti til reksturs þeirra. Gunn- ar tók fram að ríkisstjórnin hefði enn ekki tekið ákvörðun um hvort gengið yrði til formlegra samninga- viðræðna. Fyrsta skrefið Aðspurður sagði Gunnar að þetta væri hluti af athugunum og undir- búningi að hugsanlegri yfirtöku ís- lendinga á hlutverki leitar- og björg- unarsveitarinnar á Keflavíkurflug- velli, en núverandi varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, William Perry, hefði rætt þann möguleika á fundi hérlendis með Jóni Baldvini Hannib- alssyni, utanríkisráðherra, í byrjun janúar. Þá hefði komið fram að Bandaríkjamenn teldu æskilegt að íslendingar könnuðu í samráði við Bandaríkjamenn möguleika á að yfír- taka þyrlubjörgunarsveit vamarliðs- ins og þetta væri fyrsta skrefið í athugun á þeim möguleika. Forsend- an fyrir því að samningar gætu tek- ist væri að þær þyrlur sem yrðu stað- settar hér yrðu að geta sinnt nauð- synlegum verkefnum við þær að- stæður sem hér ríktu. Aðspurður sagði Gunnar að það væri ekki hlutverk starfshópsins að meta það hvort þetta gæti komið í stað kaupa á þyrlu fyrir Landhelgis- gæsluna. Það væri hlutverk stjórn- málamannanna að taka ákvörðun um það. F ramkvæmdastj óri Þörungaverksmiðju 41 sækir umstarfið FJÖRUTÍU og einn sótti um stöðu framkvæmdastjóra Þör- ungaverksmiðjunnar á Reyk- hólum að sögn Jóns Birgis Jónssonar verkfræðings sem sæti á i sljórn verksmiðjunnar fyrir hönd Byggðastofnunar. Núverandi framkvæmdastjóri lætur af störfum 1. maí. Jón Birgir vildi ekki skýra frá því hveijir umsækjendurnir væru en sagði ljóst að valið stæði milli margra góðra manna, eins og komist var að orði. Páll Ág- úst Ásgeirsson framkvæmda- stjóri lætur af störfum 1. maí næstkomandi og sagði Jón Birg- ir að ekki væri ljóst hvernær nýi framkvæmdastjórinn hæfi störf, réðist það af því hvenær sá sem yrði fyrir valinu hefði tök á því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.