Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C/D 105. TBL. 82. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS BBCað færa út kvíamar Lundúnum. The Daily Telegraph. BRESKA ríkisútvarpið, BBC, og breska fjölmiðlasamsteypan Pearson, eigandi Financial Times, Thames TV og Penguin Books, ætla að hafa samvinnu um tugi sjónvarpsstöðva sem senda eiga út um gervihnött víða um heim. Ætlunin er að bjóða upp á rásir fyrir fréttir, heimildar- myndir, skemmtiefni og barna- efni. Fréttarásirnar eiga að ná til Evrópu, Ameríku og Asíu. Pearson ver 30 milljónum punda, 3,2 milljörðum króna, í fyrsta verkefnið, tvær evr- ópskar gervihnattarásir. Út- sendingarnar hefjast í haust og önnur rásanna, frétta- og upplýsingarás, verður fjár- mögnuð með auglýsingum. Hin verður með skemmtiefni og lokuð öðrum en áskrifend- um. Veiðar „sjó- ræningja“ stöðvaðar Ottawa. Reuter. STJÓRN Kanada kvaðst í gær ætla að stöðva „sjóræningjaveiðar" erlendra skipa utan 200 mílna lög- sögunnar. Brian Tobin, sjávarútvegsráð- herra Kanada, kynnti í gær stjórn- arfrumvarp sem kveður á um að stöðva megi erlenda togara sem staðnir eru að ólöglegum veiðum utan fiskveiðilögsögu Kanada- manna, gera afla þeirra upptækan og sekta þá um allt að milljón dala. Mandela tekur við embætti forseta í Suður-Afríku Boðin velkomin í samfélag þjóða Pretoríu. Reuter, The Daily Telegraph. SUÐUR-Afríka var boðin velkomin í samfélag þjóðanna í gær þegr Nelson Mandela sór embættiseið sem fyfsti þeldökki for- seti landsins. „í dag endurheimtir Suður-Afríka stöðu sína í fjölskyldu þjóðanna,“ sagði Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem var viðstaddur athöfn- ina ásamt fulltrúum 145 ríkja, þeirra á meðal konungum, forset- um og forsætisráðherrum. Mandela sver eiðinn Reuter Gífurlega öflug öryggisgæsla var í grennd við stjórnarráðið í Pretoríu þar sem óttast var að hægriöfgamenn kynnu að reyna að ráða nýja forsetann af dögum. Andrúmsloftið var þó afslappað og gleði ríkti í fjölmennri veislu sem efnt var til fyrir framan stjórnar- ráðið. „Suður-Afríka er ekki lengur skelmirinn í samfélagi þjóðanna," sagði Mandela, sem var í fangelsi í 27 af 75 árum ævi sinnar vegna baráttunnar gegn kynþáttaaðskiln- aði. „Leiðin til frelsis var grýtt en hörmungum þjóðarinnar er lokið. Það er tími til kominn að græða sárin, að brúa þá hyldýpisgjá sem sundraði okkur. Það er undir okkur öllum komið hvernig til tekst.“ Mandela fór lofsamlegum orðum um F.W. de Klerk, fyrrverandi for- seta, sem ákvað að afnema aðskiln- aðarstefnu stjórnar hvíta minni- hlutans. Mandela sagði de Klerk merkan umbótamann og „einn af bestu sonum Suður-Afríku“. Á meðal viðstaddra voru Filippus Bretaprins, sá fyrsti úr bresku kon- ungsfjölskyldunni sem heimsækir Suður-Afríkumenn frá 1947, og Fídel Kastró, leiðogi Kúbu, sem háði stríð gegn Suður-Afríku í Angóla í 12 ár. Kastró sór þá að láta hermenn sína ráðast alla leið- ina til Höfðaborgar. Á meðal gesta sem Mandela bauð til athafnarinnar var James Gregory, fangavörður í Robben Is- land-fangelsinu sem blökkumanna- leiðtoganum var haldið í árum sam- an. NELSON Mandela, sver embættiseið forseta Suður-Afríku í Pret- H Hvetur til sátta /17 oríu í gær. Hann er fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir embættinu. H Úr fangelsi /29 Marilyn Monroe ásamt lyfseðlum frá 1961 sem verða seldir á uppboði. Marilyn Monroe Sanna bréf tilraun til sjálfsvígs? Los Angeles. Reuter. UPPBOÐSHALDARAR í Los Angeles segjast hafa undir höndum bréf sem sanni að kvik- myndastjarnan Marilyn Monroe hafi reynt sjálfsvíg skömmu áður en hún fannst látin af of stórum lyfjaskammti. Ýmsar getgátur eru uppi um dauða hennar, telja sumir að hún hafi verið myrt en flestir hallast þó að því að hún hafí svipt sig lífi. Áð sögn uppboðshaldaranna lýsir Monroe sjálfsvígstilraun fyrir geðlækni sínum í bréfinu. Þeir vildu hins vegar ekki gefa nánari upplýsingar um innihald bréfanna og sýndu blaðamönn- um þau ekki. Segja uppboðshaldararnir innihaldið svo viðkvæmt, að sá sem kaupi bréfin verði að ákveða hvort birta eigi þau opinberlega. Bréf leikkonunnar eru úr dánarbúi Ynez Melson, sem sá um fjármál Monroe. Berlusconi mynd- ar nýja hægristjóm Rómaborg. Reuter. ÍTALSKI fjölmiðlajöfurinn Silvio Berlusconi tilkynnti í gær að hann hefði myndað nýja samsteypustjórn, sex vikum eftir að bandalag hægriflokkanna vann sigur í þingkosningum. Flokkur Berlusconis, Forza Ital- /a, myndar stjómina með Norður- sambandinu, sem vill að Ítalía verði sambandsríki, og Þjóðarbandalag- inu. Fimm af ráðherrunum 25 verða úr Þjóðarbandalaginu og tveir þeirra eru úr hreyfingu nýfasista, helstu fylkingunni í bandalaginu. Stjórnin tekur við völdum í dag. Á meðal þeirra sem Berlusconi tilnefndi í stjórnina eru Antonio Martino, helsti sérfræðingur Forza Italia i efnahagsmálum, sem verður utanríkisráðherra. Lamberto Dini, fyrrverandi seðlabanka- stjóri, var til- nefndur í emb- ætti skattamála- ráðherra. Flestir þeirra sem verða í stjórninni hafa ekki gegnt ráð- herraembættum áður og þeirra á meðal eru tveir af helstu samstarfsmönnum Ber- lusconis í stórfyrirtæki hans, Finin- vest. Berlusconi sagði að stjórnin myndi leggja megináherslu á að rétta efnahag landsins við. Áður hafði Oscar Luigi Scalfaro skrifað Berlusconi bréf þar sem hann setti það skilyrði fyrir myndun nýrrar stjórnar að í henni yrðu ekki ráðherrar sem gætu skaðað ítalska ríkið heima fyrir og erlendis. Þar er tekið fram að ráðherrarnir megi ekki „framfylgja stefnu sem gangi í berhögg við meginreglur frelsis og lög landsins, svo og við stjórnar- skrárákvæðið um að Italía sé eitt og óaðskiljanlegt ríki“. Berlusconi svaraði bréfinu og kvaðst fallast á skilyrðin. Reuter Fórnarlamb stríðsins Stúlka af Tutsi-ættflokknum bíður eftir mat í flóttamanna- búðum í Tanzaníu. Hátt í 300.000 manns hafa flúið þangað frá Rúanda vegna óaldarinnar þar. Vargöld í Rúanda 850.000 áflótta HARÐIR bardagar geisuðu í Kig- ali, höfuðborg Rúanda, í gær og sækir uppreisnarlið Tutsi-manna að stöðvum stjórnarhersins við flug- völlinn í borginni. Talið er, að a.m.k. 200.000 manns, aðallega óbreyttir borgarar, hafí verið drepnir í borgarastyijöld- inni í Mið-Áfríkuríkinu og um 850.000 manns hafa flúið yfir til nágrannaríkjanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú skorað á aðildarríkin að leggja fram nærri 60 milljónir dollara til að unnt sé að útvega fóikinu mat og húsa- skjól. Stjórn Bandarikjanna ákvað í gær að senda 15 flutningavélar með matvæli til bágstaddra íbúa Rúanda. Silvio Berlusconi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.