Morgunblaðið - 11.05.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 7
FRÉTTIR
Bréfaskipti
Morgunblaðsins
og R-listans
KOSNINGASTJÓRI R-listans við borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík hefur óskað eftir því við Morgunblaðið, að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóraefni listans svari fyrirspurnum á
síðum blaðsins með sama hætti og Árni Sigfússon, borgar-
stjóri, gerir og mun gera fram
Morgunblaðið hefur synjað
þeirri ósk og eru rök blaðsins
þau, að borgarstjóri svari spurn-
ingum lesenda um framkvæmdir
borgarinnar og þjónustu við
borgarbúa á yfirstandandi kjör-
tímabili, þar sem hann er ábyrg-
ur fyrir þeim en Ingibjörg Sólrún
hefur ekki borið ábyrgð á gerðum
borgarinnar sl. fjögur ár og þess
vegna ekki ástæða til að spyija
hana sérstaklega um þau efni.
Hér fer á eftir bréf Einars
Arnar Stefánssonar, kosninga-
stjóra R-listans, til ritstjórnar
Morgunblaðsins, svo og svar rit-
stjóra blaðsins til kosningastjóra
R-listans:
Bréf R-listans
Bréf R-listans er svohljóðandi:
Reykjavík, 5. maí 1994
Sem kunnugt er verða aðeins
tveir listar í kjöri við borgar-
stjórnarkosningar í Reykjavík 28.
maí nk.
I fyrsta sinn í kosningum til
borgarstjórnar Reykjavíkur
stendur val kjósenda milli tveggja
borgarstjóraefna; annars vegar
Árna Sigfússonar fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og hins vegar
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
fyrir Reykjavíkurlistann.
Það er sannarlega lofsvert
framtak, að Morgunblaðið hefur
boðið borgarstjóraefni Sjálfstæð-
isflokksins að svara á síðum sín-
um fyrirspurnum kjósenda um
borgarmál og er víst, að margir
verða til að notfæra sér þá þjón-
ustu.
í trausti þess, að Morgunblað-
ið vilji ekki mismuna framboðun-
um tveimur eða borgarstjóraefn-
um þeirra er þess hér með farið
á leit að Morgunblaðið veiti Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur einn-
ig tækifæri til þess að svara fyrir-
spurnum Reykvíkinga á síðum
blaðsins.
Með vísan til fyrri samtala
okkar um ofangreint leyfi ég mér
að óska eftir svari við erindi
þessu eigi síðar en á mánudags-
morgun, 8. mai nk.
að kosningum.
Bréf Morgunblaðsins til
R-listans
Bréf ritstjóra Morgunblaðsins
til R-listans er svohljóðandi:
Reykjavík, 10. maí 1994
Hr. Einar Örn Stefánsson
Kosningastjóri Reykjavíkur-
listans
Laugavegi 31, Reykjavík
Vegna bréfs þíns frá 5. maí
sl. vilja ritstjórar Morgunblaðsins
taka fram eftirfarandi:
Morgunblaðið hefur ekki boðið
„borgarstjóraefni Sjálfstæðis-
flokksins að svara á síðum sínum
fyrirspurnum kjósenda um borg-
armál", eins og þú kemst að orði
í bréfi þínu.
Morgunblaðið hefur boðið les-
endum sínum að spyija borgar-
stjórann í Reykjavík um einstaka
þætti borgarmála, sem þeir
kunna að hafa áhuga á, og hann
hefur orðið við þeirri ósk blaðsins
að svara þeim spurningum. Þess-
um fyrirspurnum og svörum er
fyrst og fremst ætlað að vera
vettvangur upplýsinga um fram-
kvæmdir borgarinnar og þjón-
ustu við borgarbúa.
Borgarstjórinn í Reykjavík er
ábyrgur fyrir gerðum borgarinn-
ar á yfirstandandi kjörtímabili
og skiptir engu í þeim efnum,
þótt borgarstjóraskipti hafi orðið
á því tímabili.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
hefur ekki borið ábyrgð á fram-
kvæmdum í borginni sl. fjögur
ár og því ekki ástæða til að spyija
hana sérstaklega um þau efni.
En Morgunblaðið er opið fyrir
skoðanaskiptum og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir á jafn greiðan
aðgang að síðum blaðsins með
sín sjónarmið og aðrir frambjóð-
endur og hefur hún fært sér það
í nyt eins og lesendum Morgun-
blaðsins er kunnugt.
Með kveðju,
Matthías Johannessen
ritstjóri
Styrmir Gunnarsson
ritstjóri
NOATUN
Lambakj öts veisla
/ \T/ / •
íNoatum
ÁSriT Ueri 1/1sncllt Hrjggfc.
GLJ 598r 559.
589r
579."
pr.kg.
699.ps
a ftQ *** ^yddle§n
• hryggir
1699r
Frampartar,
súpukjöt
389.
1/2 skrokkar
385.^
- grillsagað
Tilbúið á grillið
Kindalundir
Þurrkryddaðar 998rs
Kindafille
998.
Þurrkryddaðar Kinda
gríllsneiðar innralærí
998j
kótilettur
Bestu kaupin 799r
pr.kg.
Ríkisspítalar bæta Fæðingarheimilið
Tíu milljónum
verður varið
til lagfæringa
ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita 10
milljónir króna til lagfæringa á
fæðingaraðstöðu á Fæðingarheimili
Reykjavíkur. Davíð Á. Gunnarsson,
forstjóri ríkisspítalanna, segir að
með fjárveitingunni verði hægt að
gera fyrsta flokks aðstöðu til fæð-
inga á heimilinu.
Hann sagði að enn væri verið
að skoða livort hagkvæmara yrði
að opna heimilið í vor eða haust.
Ef kapp yrði lagt á að opna heimil-
ið sem fyrst væri hætta á að fram-
kvæmdir trufluðu starfsemina.
Jafnframt hefði komið fram sú
spurning hvort rétt væri að hefja
starfsemina svo stuttu fyrir sum-
arfrí. Engu að síður lagði hann
áherslu á að framkvæmdir vegna
breytinga hæfust fljótlega og stefnt
væri að því að heimilið yrði opnað
í síðasta lagi 1. september. Áætlun
stjórnar geri ráð fyrir allt að 18
rúmum fyrir sængurkonur á heimil-
inu. Önnur starfsemi verði annars
staðar í húsinu og hefur starfsemi
glasafijóvgunardeildar verið nefnd
í því sambandi.
Opið á morgun
Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 116 - S. 23456,
Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3, Kóp. - S.42062, Þverholti 6, Mos. - S 666656,
JL-húsinu vestur í bæ - S. 28511, Kleifarseli 18 - S. 670900