Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAINIDIÐ
MIÐVIKUDAGUR11. MAÍ 1994 11
Grunnskólanemar á Suðurnesjum
semja slagorð gegn fíkniefnum
Tvær stúlkur
hlutskarpastar
Keflavík - „Þetta kom nú eigin-
lega af sjálfu sér og við vorum
ekki lengi að festa hugmyndina á
blað,“ sögðu þær Katrín Björk
Helgadóttir og Guðbjörg Halldóra
Sigtryggsdóttir, nemendur í 10.
bekk grunnskóla Sandgerðis, eftir
að þeim hafði verið afhent viður-
kenning fyrir að verða hlutskarp-
astar í samkeppni allra 10. bekk-
inga á Suðurnesjum um forvarnar-
orð gegn fíkniefnum. Slagorð Katr-.
ínar er „Bölið burt“ og slagorð
Guðbjargar „Segjum nei við dópi“.
Öllum 10. bekkingum á Suðurnesj-
um, sem eru um 250, verða gefnir
bolir með slagorðunum.
Að samkeppninni stóðu fíkni-
efnadeild lögreglunnar og Kiwanis-
hreyfingin á Suðurnesjum. Stefán
Thordersen í fíkniefnadeild lögregl-
unnar sagði að ákveðið hefði verið
að leita til Kiwanismanna með
þessa hugmynd
og að efna til
samkeppni þar
sem að þeir teidu
að varnarorð með
þessum hætti
kæmust betur til
skila en að halda
langa fyrirlestra
og dreifa papp-
írspésum. Ætlun-
in væri að gera
þetta að árvissum
viðburði á Suður-
nesjum og að
nýtt slagorð
fylgdi hveijum
árgangi.
Björn H, Guð-
björnsson, full-
trúi Kiwanismanna, afhenti þeim
Katrínu Björgu og Guðbjörgu Hall-
dóru viðurkenningar og þakkaði
hann jafnframt skólastjórum og
kennurum á Suðurnesjum fyrir
hversu jákvæðir þeir hefðu verið
og sinnt þessu verkefni vel.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
ÞÆR Katrín Björk Helgadóttir sem er til
vinstri og Guðbjörg Halldóra Sigtryggsdóttir
ásamtKiwanismönnumoglögreglu.
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
FRÁ aðalfundi hagsmunafélags æðarbænda.
Dræm dunsala og
töluverðar birgðir
Miðhúsum - Aðalfundur í hags-
munafélagi æðarbænda í Reyk-
hólahreppi og Dalasýslu var hald-
inn á Reykhólum 5. maí. Á fundin-
um kom fram að sala á æðardúni
væri heldur dræm og birgðir
myndu verða nokkrar til í landinu
íþróttahús
í Ólafs-
firði vígt
Ólafsfirði - NÝTT íþróttahús
verður formlega vígt í Olafs-
firði á morgun, uppstigningar-
dag. Vígsluathöfn hefst kl. 14
með ávarpi forseta bæjarstjórn-
ar og síðan er andakt séra
Svavars A. Jónssonar. Skólarn-
ir sjá um íþróttasýningu og
keppt verður í innanhússknatt-
spyrnu. Húsið verður opnað til
sýningar kl. 16 og boðið verður
upp á kaffiveitingar en um
kvöldið kl. 20 keppa heima-
menn í Leiftri við Þór Akureyri
í körfubolta.
en sala er að glæðast sé miðað
við_ fyrri ár.
íslendingar eru með 3/4 heims-
framleiðslunnar og vart mun
finnast betra efni í sængur og
kodda en dúnn. Kanadamenn
framleiða nokkuð af dúni sem þeir
selja á sama markaði og Islending-
ar, Grænlendingar og Norðmenn.
Japanar vilja fá dúninn þveginn
en ennþá hafa íslendingar ekki
geta orðið við þeirri ósk nema í
litlum mæli.
Árni Snæbjörnsson var gestur
fundarins og fræddi hann menn
um hvernig hægt væri að auka
við varp með ýmsum aðgerðum
og einnig sagði hann frá því að
verð á kópaskinnum væri nú um
2.000 kr. Hins vegar hefur hring-
ormanefnd gengið hart fram í því
að útrýma sel en engin skýrsla
hefur verið gefin út um fækkun
hringorma í fiski.
Steinólfur Lárusson, Fagradal í
Saurbæ, baðst undan endurkosn-
ingu en hann hefur verið í stjórn
félagsins frá upphafi og var kosinn
í hans stað Sigurður Þórólfsson,
bóndi í Fagradal í Saurbæ. Aðrir
í stjórn er Eysteinn Gíslason, Skál-
eyjum, og Eiríkur Snæþjörnsson,
Stað.
Morgunblaðið/Karl Steinar Óskarsson
NEMENDUR 10. bekkja á Bíldudal, Tálknafirði, Patreksfirði og Barðaströnd heimsóttu Framhalds-
skóla Vestfjarða og kynntu sér námið þar.
Patreksfirði - „ÞAÐ skiptir ekki
máli hvort þú hefur litla greind
eða mikla þú færð samt pláss hjá
okkur“ eru einkunnarorð Fram-
haldsskóla Vestfjarða, Patreks-
firði, en skólinn hefur nú verið
starfræktur í einn vetur og er
óhætt að segja að vel hafi verið
farið af stað.
Á haustönn hófu tuttugu nem-
endur almennt bóknám í skólan-
um, í einum bekk, og voru sann-
kallaðir brautryðjendur því ekki
hefur verið framhaldsdeild á Pat-
reksfirði áður. Nemendur komu
flestir frá Patreksfiriði en tveir
skiptinemar voru í skólanum auk
þess sem einn nemandi kom frá
Bíldudal á vorönn, sá nemandi
Greind
er engin
fyrirstaða
ók á milli daglega þegar fært var.
Erna M. Sveinbjarnardóttir,
skólastjóri Grunnskóla Patreks-
fjarðar og deildarstjóri Fram-
haldsskóla Vestfjarða, Patreks-
firði, boðaði á sinn fund alla nem-
endur 10. bekkja á Bíldudal,
Tálknafirði, Patreksfirði og
Barðaströnd fyrir skömmu og
lýsti fyrir þeim kostum þeim er
fylgja því að stunda framhalds-
nám í sinni heimabyggð. Erna
sagði í athugun væri að koma á
akstri daglega milli Tálknafjarð-
ar og Patreksfjarðar og eins að
möguleiki væri fyrir aðra nem-
endur á svæðinu að fá heimagist-
ing^u fimm daga vikunnar á Pat-
reksfirði.
Veitingar voru bornar fram að
fundi loknum og var ekki annað
að sjá og heyra en að krökkunum
hafi fundist nokkuð til þess koma
að eiga nú loks möguleika á að
stunda framhaldsnám i heima-
högum.
BESIU BkmUPBi!
mrmmnc'M
Fiat Uno Arctic býðst sem fyrr á miklu lægra verði en
sambærilegir bílar frá Y-Evrópu og Asíulöndum.
Verð frá kr.
779.000
(UNO 45 3D)
á götuna - ryðvarinn og skráður.
X*að borgar sig að gera verðsamanburð við aðra bíla. Yið tökum gamla
bílinn uppí og lánum allt að 75% kaupverðs til 36 mánaða.
Komið oi>
reynsluakið
.fitrpavBÍlsGils íiuklon innrJm; _
BDBB
ÍTALSKIR BÍLAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík ■ sími (91)677620
- fyrir norðlægar slóðir