Morgunblaðið - 11.05.1994, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Nelson Mandela hvetur til
sátta og umburðarlyndis
NELSON Mandela sór í gær-
morgun embættiseið sem fyrsti
þeldökki forseti Suður-Afríku
við hátíðlega athöfn við aðsetur
forsetans í Pretoríu. Við athöfn-
ina hvatti Mandela til sátta og
umburðarlyndis og bað almenna
borgara að styðja stjórnvöld í
því að byggja nýja framtíð.
Eftir embættistökuna ávarpaði
Mandela tugþúsundir manna fyrir
framan aðsetur forsetans. Stóð
hann á bak við skothelt gler með
varaforsetana Thabo Mbeki og F.
W. de Klerk, fyrrum forseta hvítu
minnihlutastjórnarinnar, sér við
hlið. „Við höfum grafið ágreining
okkar og kappkostum að græða
sár fortíðarinnar. Það verðið þið,
þjóðin öll, að hjálpa okkur við,“
sagði Mandela.
Mandela hvatti leiðtoga ríkja
heims að gleyma ekki Suður-Afr-
íku nú þegar völdin væru í höndum
meirihluta blökkumanna. Hann
bað þegna sína jafnframt um að
styðja nýju stjórnina við að búa
þjóðinni nýja framtíð. „Látum alla
njóta réttlætis og sannmælis, leyf-
um hveijum og einum að njóta
hæfileika sinna. Stuðlum að því
að allir njóti friðar, hafi atvinnu
og í sig og á,“ sagði forsetinn.
Við embættistökuna drógu tveir
sjóliðar, annar svartur og hinn
hvítur, nýjan þjóðfána Suður-Afr-
íku að húni við aðsetur forsetans.
Fjöldi erlendra þjóðhöfðingja og
annarra gesta var viðstaddur at-
höfnina.
Þjóðhátíðarstemning ríkti um
allt land og var búist við fagnað-
arlátum með gleði og söng fram
á nótt.
Hamingjuóskir
Reuter
NELSON Mandela faðmar dóttur sína Zenami eftir embættistökuna í Pretoríu í gær. F.W. de Klerk
fráfarandi forseti minnihlutastjórnar hvítra horfir á.
Kastró Kúbuleiðtogi var við-
staddur embættistöku Mand-
ela og mundaði myndavélar.
FJÖLDI útlendra fyrirmenna var viðstaddur embættistöku Nel-
sons Mandela. Á myndinni haldast Yasser Arafat leiðtogi PLO
og Kenneth Kaunda Zambíuforseti í hendur.
Finnland og Svíþjóð undirrita samning við NATO um Friðarsamstarf
Friðarsamstarf-
ið eftirsóknar-
vert fyrir Svía
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SVIÞJÓÐ og Finnland hafa nú
undirritað samning um aðild sína
að Friðarsamstarfi NATO. Þar með
eru aðildarlöndin að samstarfinu
orðin sautján. Þó erlendis sé aðild
Svía túlkuð sem endalok hlutleysis-
stefnunnar er ekki á slíkt minnst
heima fyrir. Við undirritunina
sagði Margaretha af Ugglas utan-
ríkisráðherra Svía að hugmynd um
friðarsveitir gerði friðarsamstarfið
sérlega eftirsóknarvert fyrir Svía.
Síðan efnt var til Friðarsam-
starfsins í janúar hafa Svíar rætt
þátttöku. Samþykkt sænska þings-
ins gekk átakalítið fyrir sig. Þó
hún marki þáttaskil í utanríkis-
stefnu Svía eftir stríð hefur hún
ekki verið túlkuð sem fráhvarf frá
hlutleysisstefnunni heima fyrir,
heldur viðbrögð við breyttum að-
stæðum. Vegna þess hve Friðar-
samstarfið er ómarkað telja Svíar
að þeir geti tekið þátt í friðar-
starfi innan þess, án þess það
stangist á við hlutleysi þeirra.
Ekki sé ætlunin að taka þátt í
varnarsamstarfi við NATO. Er-
lendis hefur undirritunin þó al-
mennt verið túlkuð sem fráhvarf
frá hlutleysisstefnunni í raun.
Hluti af Friðarsamstarfinu getur
verið þátttaka í sameiginlegum
æfingum friðarsveitanna. Þær
HEIKKI Haavisto utanríkisráðherra Finnlands (t.h.) og sænskur
starfsbróðir hans, Margaretha af Ugglas (t.v.), undirrita ásamt
Sergio Balanzio aðstoðarframkvæmastjóra Atlatnshafsbanda-
lagsins (NATO) samning um Friðarsamstarf við NATO.
næstu verða í Hollandi síðar á ár-
inu. Enn er ekki ljóst hvaða lönd
taka þátt, en sænski utanríkisráð
herrann lét í ljós ósk um að þátt-
töku Svía. Aðildin að Friðarsam-
starfinu felur ekki í sér að NATO
sé skyldugt að bregðast við, ef
hernaðarhætta steðjar að Svíþjóð,
aðeins að bandalagið hugi að hætt-
unni.
Þungavopn
múslíma á
griðasvæði
BOSNÍUMENN hafa flutt her-
sveitir og þungavopn inn á
griðasvæði Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) fyrir sunnan Sarajevo. Að
sögn friðargæslusveita SÞ hefur
þeim borist kvörtun Bosníu-
Serba vegna málsins. Talið er
líklegt að tilfærsla þungavopna
múslima og Bosníu-Serba í
norðurhluta Bosníu, við
Sarajevó og Brcko, eigi að beina
athyglinni frá átökum annars
staðar í landinu.
A
Astarbréf á
uppboði
ÁÐUR óbirt ástarbréf rúss-
neska tónskáldsins Dmítríj Sjos-
takovítsj,
verða seld á
uppboði hjá
Sotheby’s í
Lundúnum á
næstunni. Um
er að ræða 21
ástarbréf tón-
skáldsins, sem
þá var um
þrítugt, tii tví-
tugrar stúlku, Elenu Konstant-
ínovskaju. Bréfin eru frá árun-
um 1934-1936.
Fjöldamorð-
ingi lífiátinn
JOHN Wayne
Gacy, sem
hefur verið
dæmdur fyrir
flest morð í
sögu Banda-
ríkjanna, var
líflátinn í
fyrrinótt.
Gacy, sem
dæmdur var
til dauða fyrir að myrða 33
drengi og unga menn, var
sprautaður með banvænum
lyija- og eiturskammti og lést
að átján mínútum liðnum.
Þrátefli í
Jemen
Hernaðarsérfræðingar telja að
átökin í Jemen muni dragast á
langinn og að hvorki norðan-
né sunnanmenn muni ná yfir-
höndinni í bardögum, og á þann
hátt bundið endi á þá. Suður-
og Norður-Jemenar hafa skipst
á að lýsa yfir sigri.
SS-foringi
handtekinn
ARGENTÍNSKA lögreglán hef-
ur handtekið Erich Priebke,
fyrrum SS-foringja, sem eftir-
lýstur var vegna aðildar hans
að dauða 335 ítala, sem teknir
voru af lífi í heimsstyijöldinni
síðari. Priebke, sem er 81 árs,
hefur búið í Andesijöllum í 46
ár en það var sjónvarpsstöðin
ABC sem hafði upp á honum.
Gacy
Sjostakovítsj
Lokað á
morgun, uppstígningardag
HAGKAUP