Morgunblaðið - 11.05.1994, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Tillögur frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningar 28. maí 1994 um
markmió og leióir Reykjavíkurborgar
í fjölskyldumálum
Sjálfstæðismenn leggja höfuðáherslu á málefni fjölskyldunnar í víðum skilningi, hvort sem
fjölskyldan er fámenn eða fjölmenn.
öryggi er það sem fjölskyldunni er mikilvægast. Grunnur fjárhagslegs öryggis hvílir á
atvinnunni og í því sambandi hafa sjálfstæðismenn lagt fram 10 lykla í atvinnumálum.
Hið félagslega öryggi er ekki síður mikilvægt. Sjálfstæðismenn munu halda áfram þeirri
miklu uppbyggingu sem Reykjavíkurborg hefur staðið að, hvort sem það er hin sjálfsagða
þjónusta á vegum borgarinnar, líkt og í skóla- og dagvistarmálum eða efling þeirrar að-
stöðu sem auðveldar fjölskyldunni að njóta frítíma síns saman, gerir hann öruggari, fjöl-
breytilegri og skemmtilegri.
Forvarnir sem miða að betri aðstöðu til umönnunar barna, menntunar, fækkunar slysa og
betri heilsu borgarbúa eru skynsamleg fjárfesting og síður en svo útgjaldaauki þegar til
lengri tíma er litið. Forvarnir þýða meðal annars að fleiri einstaklingar eru virkir á vinnu-
markaði, afla sér tekna og styrkja samfélagið.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynna því 20 lykla að betra mannlífi í borginni. Uppbygging
undanfarinna ára gerir okkur kleift að leggja fram hagkvæmar og vandaðar lausnir sem
kalla eftir víðtæku samstarfi borgarbúa, félaga og fyrirtækja. Einnig er augljóst að efla þarf
samstarfsvettvang ríkis og borgar til að sem mestur árangur náist.
Tuttugu lyklar að öruggara og skemmtilegra
umhverfi fjölskyldunnar
Þjónusta viö börn
1 Biölistum á
*' leikskóla útrýmt
Vegna öflugrar uppbyggingar leikskóla
borgarinnar undanfarin ár er nú hægt að
útrýma biðlistum fyrir börn á aldrinum 2-
5 ára á næstu 2 árum. Það munu sjálf-
stæðismenn gera með frekari uppbyggingu
Ieikskóla á vegum borgarinnar og samstarfi
við einstaklinga og fyrirtæki um uppbygg-
ingu og rekstur leikskóla og annarrar dag-
vistarþjónustu. Heilsdagsrýmum verður
fjölgað og fjölbreytni aukin í þjónustu við
börn á leikskólaaldri, þannig að mismun-
andi þörfum fjölskyldunnar sé mætt.
Mikilvægt er að komið sé til móts við
þarfir fjölskyldunnar fyrir fleiri samveru-
stundir með sveigjanlegum vinnutíma.
Borgarfyrirtæki geri starfsfólki sínu ldeift
að velja þennan möguleika í auknum mæli
og sýni þannig gott fordæmi. Það verði
mikilvægur liður í nýrri starfsmannastefnu
borgarinnar sem mótuð hefur verið að
undanförnu.
;P Barnadeild á Borg-
\ * arspítala og stuöningur
viö barnaspítala
Um áraraðir hefur eitt af brýnustu hags-
munamálum fjölskyldunnar verið bætt
aðstaða fyrir börn þegar sjúkdóma eða slys
ber að höndum. Sjálfstæðismenn munu
styðja uppbyggingu barnadeildar við helsta
bráðaspítala landsins, Borgarspítala. Einnig
er mikilvægt að fljótt rísi barnaspítali við
Landsspítala sem verði miðstöð þjónustu
við sjúk börn. Ljóst er að með stuðningi
Reykjavíkurborgar er hægt að flýta upp-
byggingu þessarar brýnu aðstöðu um fjölda
ára. Því vilja sjálfstæðismenn styðja átak
Barnaspítalasjóðs Hringsins með alls eitt
hundrað milljón króna framlagi borgar-
innar til þessa verkefnis á næstu tveimur
árum, að því tilskyldu að ríkið sé samþykkt
uppbyggingu barnaspítala.
Aukinn
stuöningur viö
barnafjölskyldur
Það er staðreynd að börnin eru dýrmætasta
eign hverrar þjóðar og barnmargar fjöl-
skyldur eru að verða eitt af sérkennum ís-
lendinga. Fjölmenni í yngstu aldurshópum
skapar þjóðinni aukið öryggi til framtíðar.
Sjálfstæðismenn telja afar mikilvægt að
barnafjölskyldur njóti velvildar og virðing-
ar. Aukinn stuðningur við barnafjölskyld-
ur, lenging fæðingarorlofs og 100% nýting
persónuafsláttar maka, eru forgangsverk-
efni í viðræðum sem framundan eru á milli
Reykjavíkur og ríkisins um skattamál fjöl-
skyldunnar. Stuðla þarf m.a. að lengingu
fæðingarorlofs sem miðar að því að feður
geti einnig verið heima hjá ungbörnum.
Betri grunnskóli
einsetinn
heilsdagsskóli
Sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu
á menntunar- og öiyggisþátt
grunnskólanna langt umfram lög-
boðnar skyldur. Með tilkomu
heilsdagsskóla, öflugri tölvuvæð-
ingu, gæðaþróunarverkefnum og
forvarnarverkefnum hefur Reykja-
vík forystu í skólamálum þjóðar-
innar. Með uppbyggingu undan-
farinna ára er nú fyrirséð að markmiði um
betri skóla, einsetinn heilsdagsskóla, verði
náð á næstu 3-4 árum. Það þýðir að börn
njóti vandaðrar kennslu frá morgni a.m.k.
fram til kl. 14.00, en í framhaldi af því
býðst lengd viðvera með margvíslegri þjón-
ustu til kl. 17.15. Reykjavíkurborg mun
tryggja húsnæði vegna einsetningar og
hefúr þegar leitað samstarfs við ríkið um
samningamál kennara. Sjálfstæðismenn
telja mikilvægt að í þeim samningum verði
tryggt að foreldrar og börn verði ekki fyrir-
röskun vegna starfsdaga kennara.