Morgunblaðið - 11.05.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
A
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 17
Þjónusta við aldraóa
S• Góö heimaþjónusta
Góð heimaþjónusta er mikilvægur þáttur í
aðstoð við aldraða. Á undanförnum árum
hafa sjálfstæðismenn lagt áherslu á upp-
byggingu þjónustumiðstöðva í hverfum
sem ætlað er að veita öldruðum íbúum
nauðsynlega þjónustu á heimili þeirra. Auk
þess býðst í þjónustumiðstöðvunum að-
staða'til félags- og fræðslustarfs og ýmis
konar aðhlynning. Með markvissara sam-
starfi heimilishjálpar og heimahjúkrunar og
eflingu heimaþjónustu verður unnt að auð-
velda öldruðum að vera heima sem lengst.
Til að það verði gert er mikilvægt að um-
sjón þjónustunnar sé öll á hendi borgar-
innar í stað þess að ríkið sinni heimahjúkr-
un og borgin heimilishjálp, eins og nú er.
^ Hentugt húsnæði
Auk góðrar heimaþjónustu er mikilvægt að
aldraðir búi í húsnæði sem hæfir þörfum
þeirra. Sjálfstæðismenn vilja leita fleiri leiða
en nýbygginga fyrir aldraða til að svara
z.
og aukin samvmna
æskulýdsfélaga
þeim. Því verður tekin upp aðstoð við
nauðsynlegar breytingar og viðhald á hús-
næði aldraðra, sem miðar sérstaklega að því
að þeir geti búið lengur heima. Þá munu
viðhaldsverkefni af þessu tagi skapa mun
fleiri störf en nýbyggingar og því er hér
einnig um atvinnuskapandi verkefni að
ræða. Nú þegar er fyrir hendi á vegum
borgarinnar sérstök fjárveiting sem ætlað er
að bæta aðgengi fyrir fatlaða. Á sama hátt
vilja sjálfstæðismenn gera öldruðum mögu-
legt að sækja eftir stuðningi vegna endur-
bóta á húsnæði sínu. Leitað verður sam-
starfs við samtök aldraðra í borginni um
þetta verkefni.
> Hjúkrunarheimili í
/, Suóur-Mjódd og viö
Borgarspítala
Auk hjúkrunarheimilis í Suður-Mjódd sem
nú er unnið að vilja sjálfstæðismenn hefja
undirbúning að nýju hjúkrunarheimili í
grennd við Borgarspítala. Þannig verður
mætt þeirri þörf sem er á hjúkrunarrrými
fyrir aldraða. Ennfremur munu sjálfstæðis-
menn styðja við félagasamtök sem vilja
sinna slíkum verkefnum.
Forvarnir eru
skynsamlegasta fjár-
festingin
Jf. ^, % Effing íþrótta
mannvirkja og félagsaðstöðu íþróttafélaga.
Áfram verður unnið ötullega að uppbygg-
ingu almennings- og keppnisíþrótta í
Reykjavík.
Sífellt fleiri Reykvíkingar eru að uppgötva
að útivera og hvers konar íþróttir yfir
vetrartímann lýsa upp skammdegið. Sjálf-
stæðismenn vilja efla möguleika Reykvík-
inga til að stunda íþróttir og útiveru yfir
veturinn. Áfram þarf að byggja og auka
þjónustu við skíðafólk á skíðasvæðum í
kringum borgina. Þá vilja sjálfstæðismenn
athuga hvaða vetraríþróttir á að efla. Á það
bæði við um þær íþróttir sem nú eru
stundaðar og nýjar íþróttagreinar, sem ekki
eru iðkaðar hér en gætu notið vinsælda ef
þeim er sköpuð aðstaða.
Að undanförnu hefur verið lögð
áhersla á aukið samstarf borgarinn-
ar, íþróttafélaga, æskulýðsfélaga og
foreldra til að skipuleggja fjölbreytt-
ara og markvissara æskulýðsstarf í
hverfum borgarinnar. Sjálfstæðis-
menn vinna nú að því að efla þetta
samstarf enn frekar.
9.
iHPr
Unniö gegn
fíkniefnum
íþrótta- og heilsubótarstarf í borginni er
mikilvægur þáttur í forvörnum sem skilar
sér margfalt til baka. íþróttir koma að
gagni hjá öllum aldurshópum ekki síst
meðal barna og unglinga. Þær eru einnig
áhugaverður vaxtarbroddur í landkynningu
og ferðaþjónustu. Sjálfstæðismenn hafa
lagt áherslu á öfluga uppbyggingu'íþrótta-
Mikilvægt forvarnarstarf hefur verið
unnið á vegum borgarinnar m.a. fræðsla
fyrir foreldra grunnskólabarna, auk fræðslu
í félagsmiðstöðvum. Með ákvörðun sjálf-
stæðismanna er forvarnarverkefnið „Til-
veran” (Lions Quest), sem kostað er af
Reykjavíkurborg, orðið hluti af námi allra
12 og 13 ára unglinga í grunnskólum borg-
arinnar. Með frekara samstarfi við frjáls
félagasamtök er nú unnið að samhæfðu
átaki gegn fíkniefnanotkun.
Unglingamióstöö
Mikilvægur liður í forvörnum er að virkja
unglingana sjálfa til ábyrgðar eins og „Hitt
húsið” er gott dæmi um. Með samstarfi
lögreglu, menntamálaráðuneytis, æskulýðs-
samtaka og Reykjavíkurborgar ætla sjálf-
stæðismenn að koma á upplýsingamiðstöð
þar sem veittar verða upplýsingar um nám,
vinnu, íþróttir, æskulýðsstarf og algengar
hættur sem á vegi unglinga verða. Sérstakt
verkefni slíkrar miðstöðvar verði að skapa
heilnæmt umhverfi fýrir unglinga í mið-
bænum.
Bætt þjónusta
lögreglunnar viö íbúa
Reynslan hefur sýnt að „grenndarlög-
gæsla”, þ.e. aukin þjónusta og samstarf lög-
reglunnar við íbúa í hverfum, fækkar af-
brotum verulega. Slíkt fýrirkomulag kallar
á náið samstarf borgarstofnana, íbúa og
lögreglu. Til að bæta þjónustu lögreglunn-
ar við íbúa í hverfum munu sjálfstæðis-
menn óska eftir viðræðum við ríkið um
þátttöku Reykjavíkurborgar í afbrotavörn-
um og löggæslu, sem nú er undir stjórn
ríkisins.
771 Reykjavíkur ;
Grunnskólinn,
heilsugæslan,
málefni fatlaöra
og aldraöra
Aukin nálægð á milli þeirra sem
veita og nýta þjónustu er mikilvæg
til að fmna hagkvæmar lausnir og
auka gæði í þjónustu. Sjálfstæðis-
menn vilja færa grunnskólann,
heilsugæsluna, málefni aldraðra og
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Viðræðum
við ríkið um breytta verkaskiptingu verði
hraðað í þeim tilgangi að þessi breyting
.geti átt sér stað sem fýrst.
Bætt umferó og aukió
öryggi
Co
Forvarnir og umferöin
Með tilkomu umferðaröryggisvarða við
grunnskóla borgarinnar og fækkun ferða
nemenda milli heimilis og skóla hefur
öryggi í umferðinni verið aukið. Þá hefur
skipulega verið unnið að skráningu göngu-
leiða barna og unglinga til og frá skóla.
Sjálfstæðismenn vilja halda áfram á þessari
braut og beita sér fýrir samstarfi þeirra
aðila er sinna umferðaröryggi og slysavörn-
um.
Reykjavík -
* * gróöurvín áríó 2000
Reykjavíkurborg er stærsti skógræktandi á
landinu og verulegur árangur hefur náðst í
skógræktarstarfi. Á síðustu árum hefur
verið gróðursett í a.m.k. 300 hektara á ári
og með áframhaldandi átaki sem sjálf-
stæðismenn stefna að verður svæðið um-
hverfis Reykjavík sannkölluð gróðurvin
árið 2000. Þá mun áhugi ungra Reykvík-
inga á skógrækt verða efldur með því að
bjóða þeim aukna fræðslu og sérstaka reiti
til skógræktar.
Ný íbúöarhverfi og
atvinnuhverfi
Sjálfstæðismenn munu tryggja að áfram
verði nægjanlegt framboð af lóðum fýrir
íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Byggð verða
ný íbúðarhverfi meðal annars í Borgarholti
og við Korpúlfsstaði í hinu fagra umhverfi
sem þar er.
Mislæg gatnamót
• og greióari umferð
Sjálfstæðismenn leggja áherslu á að
sem fýrst verði gerð mislæg gatna-
mót til að greiða fýrir umferð, draga
úr slysahættu og eignatjóni. Brýnast
er að það sé gert við Miklubraut og
Kringlumýrarbraut og ennfremur
við Vesturlandsveg og Höfðabakka.
Einnig þarf að ráðast í breikkun
Vestuflandsvegar milli Höfðabakka
og Skeiðarvogs m.a. til að bæta úr
samgönguleiðum til og frá Grafar-
vogi.
*CZ Göngu- og hjólreióa-
stígar, brýr og undirgöng
Sjálfstæðismenn ætla að ljúka við gerð
göngu- og hjólreiðastígs innan tveggja ára,
sem liggur frá Seltjarnarnesi meðfram
ströndinni, fýrir enda flugbrautar, inn í
Fossvogsdal, upp Elliðaárdal og inn í Heið-
mörk. Byggð verður göngu- og hjólreiða-
brú yfir Kringlumýrarbraut á næsta ári.
Auk þess verður unnið að tengingu borgar-
hverfa með gerð göngu- og hjólreiðastíga.
Sjálfstæðismenn munu láta vinna sérstaka
áætlun um framkvæmdir við göngubrýr og
undirgöng til að auka öryggi gangandi veg-
farenda. Þar má nefna tengingar yfir
Skógarsel í Suður-Mjódd, yfir Breiðholts-
braut í Mjódd, yfir Miklubraut neðan
Rauðagerðis og yfir Bústaðaveg frá íbúða-
hverfi við Sléttuveg.
Hreinna, betra
og skemmtilegra
umhverfi
Nauthólsvík : baó- og
- ’* sundstaöur eftir 2 ár
Reykjavíkurborg hefur gert mikið átak í
hreinsun strandlengjunnar, en fram-
kvæmdir við fráveitukerfið eru stærsta um-
hverfisátak sem gert hefur verið hér á landi.
Vegna þessa átaks verður unnt að nýta
Nauthólsvík að nýju sem bað- og sundstað
Reykvíkinga eftir 2 ár.
' ■
gs»»y
Uppbygging gamla
miöbæjarins
Verulegt átak hefur verið unnið á undan-
förnum árum við endurnýjun og uppbygg-
ingu gamla miðbæjarins. Umhverfi gömlu
hafnarinnar hefur gjörbreyst, lagðar hafa
verið hitalagnir í götur, sérkenni Grjóta-
þorpsins hafa verið dregin fram á skemmti-
legan hátt og Ingólfstorg hefur verið byggt
þar sem góð aðstaða er til útivistar, sam-
komuhalds og menningarviðburða. Sjálf-
stæðismenn vilja að áfram verði haldið með
endurnýjun og uppbyggingu gamla mið-
bæjarins, m.a. að lokið verði við endur-
nýjun Laugavegarins og fjölbreytt aðstaða
sköpuð í Hafnarhúsinu.
Aöstaöa fyrír fjölskyld-
una í Laugardai,
Qskjuhlíö, EUióasurdal
og Heiömörk
Fjölskyldugarðurinn í Laugardal var opn-
aður síðastliðið sumar við miklar vinsældir
borgarbúa. Markmið starfseminnar er að
skapa fjölskyldufólki fjölbreytta útivistar-,
leikja- og fræðsluaðstöðu og jafnframt að
stuðla að auknum skilningi og áhuga
borgarbúa á umhverfismálum og náttúru-
vernd. Auk fjölskyldugarðs býður Laugar-
dalurinn nú upp á fjölbreytta íþrótta-
aðstöðu jafnt sumar sem vetur,
Laugardalslaug, skautasvell, húsdýragarð og
grasagarð sem allir borgarbúar geta notið.
Byggt verður yfir skautasvellið og komið
verður fýrir íþróttaæfingasvæði fýrir börn.
Sjálfstæðismenn leggja áherslu á betri að-
stöðu fýrir fjölskylduna víðar og ætla m.a.
að bæta slfka aðstöðu í öskjuhlíð, Elliða-
árdal og Heiðmörk um leið og varðveita
ber hina óspilltu náttúru og sérkenni
þessara svæða.