Morgunblaðið - 11.05.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 19
JÓHANNES Nordal og Jón Sigurðsson fletta Málsefni — af-
mælisriti Jóhannesar, 500 blaðsíðna bók sem kemur út í dag.
Jóhannes Nordal sjötugur
Málsefni - afmælisrit
hans kemur út 1 dag
í TILEFNI þess, að í dag er sjötug-
ur dr. Jóhannes Nordal fyrrum
seðlabankastjóri, hafa vinir hans
og samstarfsmenn heiðrað hann
með útgáfu veglegs afmælisrits,
sem er safn greina og ritgerða eft-
ir Jóhannes. Ritnefndina skipa Jón
Sigurðsson, Ágúst Einarsson, Gylfi
Þ. Gíslason, Matthías Johannessen,
Sverrir Hermannsson og Þorvaldur
Gylfason
Sl. sunnudag efndi ritnefndin til
samsætis í bankaráðssal Lands-
banka íslands og þar afhenti Jón
Sigurðsson bankastjóri Jóhannesi
fyrsta eintak ritsins, sem hlotið
hefur heitið Málsefni.
Þar voru samankomnir sam-
starfsmenn Jóhannesar m.a. úr
Seðlabanka íslands, Landsbanka og
Landsvirkjun, auk fjölskyldu.
í ávarpi sínu til Jóhannesar sagði
Jón Sigurðsson meðal annars:
„Þetta er góð bók og hefur að
geyma bæði fjölbreytt og fögur
málsefni. Hvort sem Jóhannes fjall-
ar um efnahag og orkumál eða fólk
og fagrar listir vandar hann jafnt
til máls sem efnis ... hún varpar
einnig birtu á mikilvæga þætti í
þróun íslensks samfélags á síðari
helmingi þessarar aldar ... Á þessu
ári eru liðin þijátíu ár frá því ég
kynntist Jóhannesi fyrst. Hann var
þá stjórnarmaður í Efnahagsstofn-
un, þar sem ég byrjaði að vinna sem
hagfræðingur nýkominn frá próf-
borði í ársbyijun 1964. Á árunum
þar á eftir kynntumst við nánar í
starfi, einkum við undirbúning
efnahagsaðgerða og gengisákvarð-
ana. Ekki síst á síðustu árum sjö-
unda áratugarins og fyrstu árum
þess áttunda, sem voru afar við-
burðarík á þessu sviði. Þetta var
lærdómsríkur tími, og mikill ávinn-
ingur af því að kynnast rökvísi,
vandvirkni og vinnusemi Jóhannes-
ar í starfi hans sem formanns
bankastjórnar Seðlabankans. Mér
er það mikill heiður og ánægja að
fá að afhenda Jóhannesi fyrsta ein-
takið af afmælisritinu fyrir hönd
ritnefndarinnar. Bókin er hugsuð
sem þakklætisvottur frá vinum og
samverkamönnum. Henni fylgja
þakkir fyrir mikið framlag til ís-
lensks samfélags á einstaklega far-
sælli starfsævi og heillaóskir til
Jóhannesar og fjölskyldu hans á
þessum tímamótum."
Umsjónarmenn með útgáfu
Málsefnis voru þeir Sigurður Snæv-
arr og Þorsteinn Hilmarsson, sem
ásamt Jóhannesi völdu og bjuggu
efnið til prentunar. Ágústa Johnson
og Ólafur Pálmason tóku saman
ritaskrá. Hið íslenska bókmenntafé-
lag gefur bókina út.
Málsefni er 500 blaðsíður og
unnin í Prentsmiðju Odda hf. Bókin
kemur út í dag, 11. maí. Jóhannes
Nordal dvelst erlendis um þessar
mundir.
Morgunblaðið/Silli
SÖNGFÉLAGIÐ Sálubót.í kórnum eru rúmlega fjörutíu manns.
Sungid upp til sveita
Húsavík - SÖNGFÉLAGIÐ Sálu-
bót hélt sína fyrstu tónleika í Stóru-
Tjarnarskóla nýlega, en sönghópur-
inn er allur af því svæði sem sækir
Stóru-Tjarnarskóla. Stjórnandi
kórsins er Svanbjörg Sverrisdóttir
tónlistarkennari. Einsöngvarar
Dagný Pétursdóttir, Hildur
Tryggvadóttir og Kristín Hreins-
dóttir. Undirleikarar sr. Magnús
Gamalíel Gunnarsson, Dagný Pét-
ursdóttir, Inga Hauksdóttir og
Manfred Linke.
I kómum eru rúmlega 40 manns
og var húsfyllir í íþróttasal skólans.
Boðið var upp á veitingar og spjall-
að, hlustað á kórsöng, einsöng og
hljóðfæraslátt til miðnættis.
Access 2.0 námskeið
94048
rTTmTrrr
Tölvu- og verkfræðibjónustan
Tölvuskólí Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Fyrirtæki styrkja listflutning með peningum
FULLTRÚI gefenda, Karl Eiríksson frá Bræðrunum Ormsson
hf. og Valgarður Egilsson, formaður Listahátíðar, en hann veitti
gjöfinni viðtöku fyri hönd Listahátíðar.
Gefa 2
milljónir
til óperu
ÞÝSKU fyrirtækin AEG, Beck’s,
Lift Material og Robert Bosch
ásamt Bræðrunum Ormsson hf.
hafa ákveðið að styrkja sérstaka
uppfærslu Listahátíðar í Reykja-
vík á óperunni Niflungahringnum
eftir Richard Wagner með rúm-
lega 50 þúsund mörkum eða
tveimur milljónum íslenskra
króna.
I fréttatilkynningu segir: „Saga
samskipta Islendinga og Þjóð-
veija er löng og má a.m.k. rekja
til viðskipta Hansakaupmanna og
Islendinga á 14. öld. Þýska þjóðin
hefur lengi sýnt íslenskri sögu,
menningu og landinu mikinn
áhuga eins og sést t.d. á því hvert
Richard Wagner sækir efnivið í
óperu sína. Auk þess má nefna
að Þjóðveijar eru fjölmennasti
hópur ferðamanna ár hvert hér á
landi. Þýsku fyrirtækin, sem hafa
ákveðið að kosta að hluta til upp-
setningu Niflungahringsins, hafa
átt viðskipti við Islendinga í ára-
tugi og hafa mikinn áhuga á því
að styrkja þann menningarvið-
burð, sem uppsetning óperunnar
er í tilefni af 50 ára afmæli ís-
lenska lýðveldisins.
Við afhendingu styrksins, sem
fram fór mánudaginn 9. maí sl. í
æfingarsal Þjóðleikhússins á
Lindargötu 7 (húsi Jóns Þor-
steinssonar) var gert stutt hlé á
æfingum, sem standa í allt að 12
klst. á dag. Fulltrúi gefenda, Karl
Eiríksson frá Bræðrunum Orms-
son hf., sem er umboðsaðili þýsku
fyrirtækjanna hér á landi, gerði
grein fyrir gjöfinni og tilgangi
hennar, en Valgarður Egilsson,
formaður Listahátíðar, veitt
henni viðtöku fyrir hönd Listahá-
tiðar. Auk þess var fjöldi annarra
aðstandenda sýningarinnar, leik-
syóri, leikarar og söngvarar við-
staddir afhendingu gjafarinnar.
Nokkrar ástæður fyrir því að
ungt fólk kýs D-listann
Sumarvinna
Sjálfstæðismenn leggja metnað sinn í að námsmenn fái atvinnu á sumrin. Á síðastliðnu sumri
störfuðu 5.000 ungir Reykvíkingar hjá borginni. Sjálfstæðismenn munu sjá til þess að námsmenn
hafi atvinnu í sumar.
Vinna í framtíðinni
Framtíðarvonir ungs fólks ráðast af þeim tækifærum sem eru fyrir hendi þegar það stofnar heimili
og kemur undir sig fótunum. Til að leggja grunn að miklum fjölda betur launaðra starfa á næstu
árum hafa sjálfstæðismenn kynnt 10 lykla að nýjum tímum til að treysta undirstöður atvinnulífsins.
Hugmyndir sjálfstæðismanna eru raunhæfar enda hafa þeir reynslu af atvinnulífinu og rekstri
fyrirtækja.
Öflugt íþróttalíf
Borgarbúar þekkja þá miklu uppbyggingu íþróttamannvirkja sem studd hefur verið af
sjálfstæðismönnum í borgarstjórn á undanförnum árum. Áfram verður kröftuglega staðið að
uppbyggingu íþróttahúsa og leiksvæða. Þjónusta við skíðafólk verður aukin og byggt verður yfir
skautasvellið í Laugardal.
Hreinna umhverfi
Vegna hreinsunar strandlengjunnar sem sjálfstæðismenn hafa beitt sér fyrir verður unnt að nýta
Nauthólsvík að nýju sem útivistar- og sundstað Reykvíkinga.
Skemmtilegra mannlíf í miðbænum
Sjálfstæðismenn hafa stuðlað að frjálsari afgreiðslutíma verslana og veitingastaða. Þessir frjálsari
viðskiptahættir hafa leitt af sér byltingu í viðskipta- og menningarlífi. Kaffihúsamenning í
miðbænum hefurtil dæmis aldrei verið líflegri.
Trú á einstaklinginn
Ungt fólk vill vera sjálfstætt. í þjóðfélaginu verða að rúmast ólik lífsviðhorf og ólíkir lifnaðarhættir.
Trú á einstaklingsframtakið einkennir lífsskoðanir sjálfstæðismanna, sem jafnframt hafna ofurtrú á
ríkisvaldið.
hD
TTTTTTÍTIITTii
TTTTTTTTT