Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 21
LISTIR
Hin milda
erótík'
MYNDLIST
Gallcrí Einn cinn
MÁLVERK
Elín Magnúsdóttir
7. - 22. maí
Sýningarskrá og aðgangur ókeypis.
ÞVÍ hefur stundum verið haldið
fram, að með tilkomu sýninga
SÚM-hópsins á síðari hluta sjöunda
áratugarins hafi ferskur léttleiki
borist inn í íslenskt listalíf; mynd-
listin hafi orðið skemmtileg, og
gestum hafí loks verið óhætt að
brosa og jafnvel hlæja á sýningum.
Alvaran hefur löngu yfirtekið ís-
lenska myndlist á ný, og það er
undantekning ef listamenn taka
fyrir léttari hliðar mannlífsins, og
leitast við að gera sýningar sínar
skemmtilegar fyrir þá sem þær
sækja; þetta hafa sumir bent á sem
helsta gallann við íslenska my ndlist
nú um stundir.
Elín Magnúsdóttir er ein þessara
undantekninga. í myndlistinni hef-
ur hún að mestu helgað sig léttleika
tilverunnar og erótíkinni, og yfir-
skriftir sýninga hennar (sem hafa
verið nær reglulegar undanfarið,
tvær á ári) bera það glögglega með
sér. Að þessu sinni sýnir Elín „sófa
og svefnherbergismyndir", en fyrri
sýningar hefur hún m.a. tileinkað
tónlist og erótískum straumum milli
okkar mannanna.
Hér getur að líta um fjörutíu
myndir, flestar smáar, sem tengjast
mildri erótík mannlífsins. Elín vinn-
ur mest með vatnsliti, og lausbeisl-
uð tækni hennar hentar viðfangs-
efninu einkar vel. Stílfærðar, sam-
ofnar persónur og tilvísanir í belg-
víð strengjahljóðfæri eru nánast
orðin einkennismerki listakonunn-
ar, en litaval og myndbygging er
einnig mikilvæg í mörgum verk-
Elín Magnúsdóttir: Kanntu brauð að baka?
anna. Segja má að Elín velji sér
litasvið fyrir hverja mynd, og fylgi
því síðan eftir; þannig eru dumb-
rauðir litatónar ráðandi í stærstu
myndunum, t.d. „Kona með fortíð"
(nr. 6), ferskur blámi í öðrum, t.d.
„Við skjótum rótum“ (nr. 11), en
fjölskrúðugra litaval í enn öðrum,
eins og „Eg vil mála þig betur“
(nr. 14).
Elín hefur verið að fást við svip-
uð myndefni á fyrri sýningum,
þannig að fljótlega verður hætt við
endurtekningum; hér hefur hún
hins vegar víkkað það út með því
að taka einnig fyrir í léttum dúr
ýmsa fleiri þætti, líkt ög ævintýri
(„Öskubuska", nr. 1), fantasíur
(„Draumórar dvelja lengi við“, nr.
21) og Ödispusarduldina frægu
(„Kristilegt uppeldi hjá mömmu",
nr. 27). Allt undir-
strikar þetta þá
léttúð, sem lista-
konan telur hina
réttu nálgun fyrir
viðfangsefni af
þessu tagi.
Það er vel staðið
að sýningunni í
Gallerí einn einn.
Smekkleg
innrömmun verk-
anna hæfir við-
fangsefninu, og
íjörleg tónlist frá
þriðja áratugnum
fellur vel að þeim
anda sem sýningin
leitar eftir; örlítið
brotthvarf frá al-
vöru hversdagsins
inn í erótík sófa og
svefnherbergis-
mynda getur aðeins
gert mönnum gott,
og er rétt að hvetja
sem flesta til að líta
við.
Eiríkur
Þorláksson
Áhugaleikfélögin þinga
Aðalfundur Bandalags
íslenskra leik-
félaga á Húsavík
ÞING bandalags ís-
lenskra leikfélaga
verður sett á Húsavík
á morgun, fimmtu-
daginn 12. maí. Sam-
tökin eru nú á 44.
aldursári og eiga aðild
að þeim um 80 áhuga-
leikhús og leikdeildir
ungmennafélaga um
allt land. Formaður
bandaiagsins er Krist-
ján Hjartarson, Tjörn
í Svarfaðardal, en Vil-
borg Valgarðsdóttir,
Reykjavík, er fram-
kvæmdastjóri.
Meginviðfangsefni
þingsins á Húsavík er
eins og endranær
aðalfundur hreyfing-
arinnar, en auk venju-
legra aðalfundarstarfa munu þing-
fulltrúar fást við sitt af hveiju,
segir í fréttatilkynningu. Má þar
nefna undirbúning og skipulag
umfangsmikillar leiklistarhátíðar,
sem bandalagið efnir til í Mos-
fellsbæ 25.-28. ágúst. Ennfremur
mótar þingið starfsáætlun stjómar
til eins árs og menningarstefna
bandalagsins verður lesin og rædd.
Fjölmargt er á döfinni hjá
áhugaleikurum á komandi vikum
og mánuðum. Nú er að störfum
dómnefnd sem velja á „áhugaverð-
ustu áhugaleiksýningu ársins“. Sú
sýning sem hreppir
hnossið verður færð
upp á fjölum Þjóðleik-
hússins snemma í júní
nk. Undir lok júní held-
ur Skagaleikflokkur-
inn utan til að taka
þátt í norrænni-balt-
neskri leiklistarhátíð í
Tonder á Jótlandi, en
sýning þeirra Alltaf
má fá annað skip eftir
Kristján Kristjánsson
var valin til að vera
fulltrúi íslands á hátíð-
inni. Eins og áður sagði
er íslensk leiklistarhá-
tíð fyrirhuguð síðari
hluta ágúst, og af-
gangurinn af sumrinu
nota margir áhugaleik-
arar til að sækja hvers
kyns námskeið.
Aðalfundi lýkur á laugardag og
heldur bæjarstjórn Húsavíkur
þingfulltrúum boð um kvöldið. Á
sunnudag hefst málþing undir yf-
irskriftinni: Áhugaleiklist í alvöra.
Verður þar skeggrætt um hlutverk
og markmið leikstarfs áhuga-
manna. Frummælendur verða Kol-
brún Halldórsdóttir leikstjóri,
Kristrún Jónsdóttir, Leikfélagi
Fljótsdalshéraðs og Guðrún Halla
Jónsdóttir, Leikfélagi Selfoss. Að
því loknu verður þingi Bandalags
íslenskra leikfélaga formlega slit-
ið.
Kristján H(jartar-
son formaður
Bandalags ís-
lenskra leikfélaga.
Kreditkort og greiðslusamningar,
sendum í póstkröfu.
SSST terslunin
Armúla
— m m m
JV\A
Á FRÁBÆRU VERÐI
Hjólln eru afhent samsett og stlllt á fullkomnu relðhjólaverkstæðl.
Ársábyrgð og frí upphersla eftir mánuð. Varahlutlr og vlðgerðlr, vandlð vallð og versllð í sérverslun.
EUROSTAR, vönduð v-þýsk stúlknahjól.
Frá 5 ára, 18" kr. 14.255, stgr. 13.542.
Frá 6 ára, 20" kr. 18.400, stgr. 17.480.
Frá 8 ára, 24" kr. 19.200, stgr. 18.240.
DIAMOND SAHARA, 24" 18 gíra
fjallahjól. SHIMANO SIS, traust og góð
hjól með átaksbremsum, álgjörðum,
standara, brúsa og gtrhlíf. Frábært verð
kr. 21.900, stgr. 20.805.
DIAMOND ROCKY, 20" vönduð fjallahjól
mðe SHIMANO SIS, gírum,
átaksbremsum, álgjörðum, standara,
brúsa og gírhlíf. 6 glra kr. 18.900, stgr.
17.955, 12 gíra kr. 22.900, stgr. 21.755.
BRONCO TRACK, 26“ 18 gfra fjallahjól.
SHIMANO SIS, vönduð og góð hjól á
mjög góðu verði. Átaksbremsur,
álgjarðir, standari, brúsi og glrhlíf.
Verð aðeins kr. 22.500, stgr. 21.375.
DIAMOND NEVADA, 24“ 18 glra vel
útbúið fjallahjól með SHIMANO DUAL
SIS glrum, traust og góð hjól með
átaksbremsum, álgjörðum, standara,
brúsa og gírhllf. Verð kr. 23.900, stgr.
22.705.
DIAMOND X-1000, 26" 18 glra fjallahjól.
SHIMANO SIS, vönduð og góð hjól á
frábæru verði. Átaksbremsur, álgjarðir,
standari, brúsi og gírhlíf. Verð aðiens kr.
21.000, stgr. 19.950.
VIVI barnahjól með hjálpardekkjum.
Þessi léttu og meðfærilegu barnahjól hafa
reynst frábærlega hér á landi.
Frá 3 ára 12’/2, kr. 9.600, stgr. 9.120.
Frá 4 ára 14", kr. 10.400, stgr. 9.880.
Frá 5 ára 16", kr. 10.900, stgr. 10.355.
BRONDO ROCKET, 26“ 21 glra
SHIMANO ALTVIO gtrar með
GRIP-SHIFT STR 300i glrhandföngum.
Átksbremsur, álgjarðir, álsveifar, standari,
brúsi, glrhllf og gróf torfærudekk. Verð
31.500, stgr. 29.925.
HIGHLANDER, dömu og herra fjallahjól
frá V-Þýskalandi, með brettum,
bögglabera, Ijósum og standara.
20" án glra kr. 20.900, stgr. 19.855.
20" 3 gíra kr. 24.900, stgr. 23.655.
24" 3 gíra kr. 25.700, stgr. 24.415.
26" 3 gíra kr. 26.800, stgr. 25.460.
EUROSTAR, vönduð 26" og 28" v-þýsk
dömuhjól með brettum, bögglabera,
Ijósum, standara og bjöllu.
Án glra, verð frá kr. 19.500, stgr. 18.525.
3 gíra, verð frá kr. 23.900, stgr. 22.705.
DIAMOND EXPLOSIVE, 26" 21 gíra
glæsilegt fjallahjól með SHIMANO
ALTUS C10 gírum. Átaksbremsur,
álgjarðir, standari, brúsi og glrhlíf,
frábært tilboðsverð kr. 29.400, stgr.
27.930, verð áður kr. 37.680.
VIVI fjallahjól með hjálpardekkjum, fyrirstelpu
og stráka.
Frá 3 ára 1272, verð frá kr. 11.400, stgr. 10.830.
Frá4ára 14", verðfrákr. 11.900, stgr. 11.305.
Frá 5 ára 16", verð frá kr. 12.300, stgr. 11.685.
ITALTRIKE þrihjól, vönduð og
endingargóð þrfhjól. Margar gerðir og
litir, verð frá kr. 4.700, stgr. 4.465.
DIAMOND ADVENTURE, 26" 21 glra glæsilegt
fjallahjól með SHIMANO ALTUS C10 gimm,
átaksbremsur, álgjarðir, standari, brúsi og
glrhlif, frábært tilboðsverð kr. 29.400, stgr.
27.930, verðáðurkr. 37.680.
DIAMOND NEVADA, 26" 18 glra
fjallahjól. SHIMANO SIS, traust og góð
hjól með átaksbremsum, álgjörðum,
standara, brúsa og girhllf. Gott verð kr.
23.900, stgr. 22.705.
FULL BUfi AF HJOLUM