Morgunblaðið - 11.05.1994, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BYGGÐIIM VIÐ VITATORG
Stærsta félags- og þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara í Reykjavík opnuð
Áhersla lögð á
fjölbreytt starf
og öryggi íbúa
Morgunblaðið/Sverrir
EDDA Hjaltested, forstöðumaður félags- og þjónustmiðstöðvar-
innar Vitatorgs, hefur í mörg horn að líta þessar vikurnar.
NOKKRIR íbúar og starfsmenn taka lagið í matsal hússins.
REYKVÍKINGUM á aldrinum 67
ára og eldri hefur fjölgað ört á
undanfömum árum og voru sam-
kvæmt þjóðskrá 1. desember sl.
11.835, þar af 7.054 konur og
4.781 karl. Er þetta 11,6% af íbú-
um borgarinnar. Um 46,6% aldr-
aðra á Islandi býr nú í höfuðborg-
inni.
Þar sem Vitatorg var áður, á
svæði sem afmarkast af Hverfis-
götu og Skúlagötu, hafa nú risið
15 hús með 94 íbúðum, bfla-
geymslu og félags- og þjón-
ustumiðstöðinni Vitatorgi sem vígð
var 19. apríl síðastliðinn. Vitatorg
er áfast húsum í þyrpingunni og
er rýminu skipt í bílageymslu, íbúð-
ir, félags- og þjónustumiðstöð og
sameign, alls um 16.900 fermetr-
ar. Þar af er félags- og þjónustum-
iðstöðin um 2.200 fermetrar. Hún
á að þjóna íbúum hússins og ná-
grennis og gegna jafnframt hlut-
verki aðalstöðvar fyrir heimaþjón-
ustu í hverfinu. Miðstöðin heyrir
undir öldrunarþjónustudeild Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar.
Félags- og þjónustumiðstöðin
Vitatorg stendur við Lindargötu
59 og er, eins og önnur hús í
kjamanum þar, teiknuð eftir til-
lögu Vinnustofa arkitekta hf. en
Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd-
sen hf. /annaðist verkfræðihönnun.
Húsin fimmtán þiggja nöfn frá
bæjum sem stóðu á þessu svæði
fyrir um hundrað árum. Heita þau
Helgastaðir, Frostastaðir, Hraun-
prýði, Kaupangur, Sjávarborg,
Tumhúsið, Steinsstaðir, Vindheim-
ar, Miðhús, Móakot, Byggðarendi,
Breiðagerði, Lindarbær, Tóftir og
Efri-Tóftir. Félags- og þjónustmið-
stöðin Vitatorg er sú sjötta sinnar
tegundar í Reykjavík en hin sjö-
unda er í byggingu í Suður-Mjódd.
Til leigu og kaups
í húsunum á Vitatorgi em leigu-
íbúðir, félagslegar kaupleiguíbúðir
og almennar kaupleiguíbúðir.
Leiga á íbúð er um 28 þúsund
krónur á mánuði með öllum gjöld-
um en algengasta kaupverð tæpar
7 milljónir, sem er nærri kostnað-
arverði. Undirbúningur verksins
hófst árið 1987 og framkvæmdir
1990 og lauk verkinu um miðjan
apríl. Kostnaður nemur nú 1.490
milljónum- króna. í ræðu borgar-
stjóra við opnun kom fram að verk-
efnið sé eitt hið stærsta sem
Reykjavíkurborg hefur ráðist í.
I miðstöðinni verður boðið upp
á heitan mat í hádegi alla virka
daga og hádegisverð um helgar
þegar þjónustuþörfm er betur skil-
greind og eldhúsið verður tekið að
fullu í notkun. Einnig verður matur
sendur heim til íbúa í vesturbænum
og er gert ráð fyrir að matreiða
315 máltíðir á dag þegar starfsem-
in kemst að fullu í gagnið. íbúum
býðst aðstoð við böðun, fótsnyrting
og hársnyrting ásamt almennu fé-
lags- og tómstundastarfi með nám-
skeiðum, kennslu og klúbbastarf-
semi, svo eitthvað sé nefnt. Einnig
er boðið upp á handmennt; hann-
yrðir, leðurvinnu, smíðar, bókband
og leirkeralist. Hjúkrunarfræðing-
ur frá heilsugæslustöð á samastað
í húsinu til að sinna íbúum þess.
Loks er gert ráð fyrir að rekin
verði dagdeild fyrir um 15 til 20
alzheimer-sjúklinga, sem tekin
verður í notkun í haust. Deildin
verður aðskilin frá öðrum rekstri
hússins, en íbúar fyrir utan deild-
ina eru allir fullfærir um að bjarga
sér sjálfir. Nú er búið að ráða í
15 stöðugildi en þau verða 40-50
talsins þegar starfsemin kemst á
fullan skrið, þar af 8-10 stöðugildi
á dagdeild. Forstöðumaður er Edda
Hjaltested, hjúkrunarfræðingur,
og ber hún höfuðábyrgð á öllum
rekstri og þjónustu miðstöðvarinn-
ar.
„í þessu hverfi borgarinnar búa
um 1.050 manns á aldrinum 67
ára og eldri og getur þetta fólk
komið hingað og verið hér allan
daginn. En fólk í öðrum hverfum
borgarinnar er einnig velkomið á
opnunartíma. Eldri borgarar eru
mjög þakklátt fólk og yndislegt
að vinna með þeim vegna jákvæðn-
innar og þess hversu mjög þeir
meta það sem fyrir þá er gert,“
segir Edda. „Markmiðið með starf-
seminni er að sinna þeim sem
komnir eru til ára sinna, tryggja
að þeir hafi eitthvað fyrir stafni
og sitji ekki eingöngu heima, held-
ur fái andlega örvun og félagsskap
þannig að ævikvöldið verði sem
ánægjulegast. í gegnum árin hefur
maður séð fólk í fullri vinnu láta
af störfum án þess að hafa eitt-
hvað til að brúa bilið sem myndast
og það hrörnar hratt andlega og
líkamlega af þeim sökum. Fyrir
andlega heilbrigt fólk er erfítt að
þurfa að yfirgefa vinnustað sinn
sama dag og það fyllir sjötugt og
því er starfsemi eins og hér fer
fram ákaflega mikilvæg."
Þórdís Asgeirsdóttir, deildar-
stjóri í félagsstarfi, tekur í sama
streng og segir að þegar hún kom
til starfa í byijun mars hafi til-
hlökkun íbúanna verið orðin mikil.
„Við þurftum að klofa yfir stein-
steypu, efni og verkfæri en fundum
alltaf að fólkið fylgdist af áhuga
með framkvæmdunum. Einhver
kom til mín og kvaðst varla geta
sofið fyrir opnunina, spenningur-
inn væri svo mikill," segir Þórdís.
Frá bænastund til sundferðar
Hefðbundinn dagur felur í sér
ýmsa valkosti, enda fer starfsemin
fram á mörgum stöðum í húsinu.
Þannig geta íbúar byijað daginn
með bænastund og upplestri úr
bókum, sem Edda segir að sé vin-
sælt, eða sest niður með Morgun-
blaðið og kaffi eða unnið í smiðju
hússins. Einnig er stunduð leikfimi
og danskennsla. Eftir hádegisverð-
arhlé er t.d. boðið upp á hand-
mennt, svo sem skrautmálun á
gler og leðurvinnu, gönguferðir,
heimsókn á sundstað eða söfn, fé-
Hér mun
gott félagslíf
blómstra
SIGRÍÐUR Guðmundsdóttir flutti
á Lindargötu 59 í byijun desember
og kveðst hafa verið mjög ánægð
til þessa. Viðbrigðin hafí verið
nokkur en öll til bóta.
„Það er aldrei úr of mörgu að
velja en það er ágætt ef valið er
fjölbreytt, því þá getur maður gert
til skiptis það sem hugurinn gim-
ist. Maður verður aldrei leiður því
aðrir kostir bjóðast. Mér finnst sú
þjónusta að hafa vakt hér allan
sólarhringinn, alla daga vikunnar,
alveg frábær og hún veitir ríka
öryggistilfinningu. íbúðimar eru
vemdaðar og þó að ég hafí ekki
verið neitt sérstaklega óörugg þar
sem ég bjó áður er ekki hægt að
líkja því saman að að búa í húsi
eins og þessu héma og íbúð úti í
bæ.“
Aðspurð um hvemig henni líki
að vera flutt upp á níundu hæð í
fjölbýlishúsi segir Sigríður að
henni líki það afskaplega vel og
hafi hún raunar óskað eftir íbúð í
þessari hæð til að njóta útsýnisins
til fulls. „Ég sé Esjuna, Skarðs-
heiðina, Akranes og Snæfellsjökul
í góðu veðri og yfír dijúgan hluta
af Reykjavík," segir hún. Sigríður
segir að hún hafi ekki notfært sér
alla þá þjónustu sem boðið er upp
á, því svo stutt er síðan starfsemin
hófst, en hún komi til að nýta sér
hana eftir því sem þörf krefur.
Eins og í einbýlishúsi
„Það er ekki meira en svo að
fólk sé búið að átta sig á hvað er
á boðstólum í félags- og þjónustu-
miðstöðinni og það er annað mál
að mér leið líka ljómandi vel áður
en hún hóf starfsemi og mér hefur
ekki leiðst einn einasta
dag. Mér hefur fundist
eins og ég væri í ein-
býlishúsi og hef engar
aðfinnslur enda flest
óaðfinnanlegt. Áður en
miðstöðin kom til sög-
unnar hélt fólk sig þó
kannski meira inni en
það gerir nú, en eftir
að hún komst í gagnið
held ég að enginn muni
einangra sig enda opn-
unin verið mikið til-
hlökkunarefni flestra
ef ekki alla,“ segir Sig-
ríður. „Á hveijum degi
hafa verið stigin ný framfaraskref,
sem er ánægjulegt að sjá, og ekki
hægt að lofa það nóg að vera í
húsnæði af þessum toga. Öllu er
vel fyrir komið og möguleikamir
margir, salimir eru t.d. svo stórir
að fólk getur komið hingað hvað-
anæva að til að blanda geði og
skemmta sér. Það er alveg hreint
stórkostlegt fyrir okkur að fá eina
stóra félagsmiðstöð í borginni sem
gæti þjónað sem höfuðstöð hinna
stöðvanna, enda stærsta og nú-
tímalegasta miðstöð sinnar teg-
undar í borginni og hér á án efa
eftir að blómstra gott félagslíf,"
segir Sigríður.
Eins og á þriggja
stjörnu hóteli
Kristinn Guðmundsson
lega, en einnig haft
augastað á starfsem-
inni í smiðju hússins.
„Mér líkar alveg
prýðilega hérna og
hefði í raun og veru
ekki trúað að þetta
væri svona fínt,“ segir
Kristinn.
„Ég hef ekki verið
gripinn þeirri tilfinn-
ingu að hér sé stofn-
anabragur eða að um
öldrunarheimili sé að
ræða, það er ekki til,
og spila aðbúnaðurinn
og viðtökurnar þar
stórt hlutverk. Hér er
hrein og falleg vinna á
öllu og húsakynnin
glæsileg án þess að
nokkurs staðar sé
KRISTINN Guðmundsson starfaði
í 51 ár hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur en hefur nú látið af störfum
og fékk úthlutað íbúð á Lindar-
götu 66 um miðjan janúar sl.
Hann sækir félags- og þjónustum-
iðstöðina yfirleitt heim daglega,
hefur stundað dansinn óspart og
meðal annars verið í danstímum
hjá Sigvalda sem kennir þar reglu-
óhóf. íbúarnir og gest-
ir eru ólíkir eins og við er að bú-
ast. Einn og einn er svartsýnn en
þá sem hættir til að einangra sig
höfum við unnið með því að tala
við þá af gæsku og kurteisi, dansa
og drífa þá með í hópinn.
Fólk fer að halda sér til
Fólk upplífgast og fer að halda
sér til og hafa gaman af þessu