Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ1994 25
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Hjólreiðar og
öryggi
EÐLILEGT er að
með vorkomunni sé
fjallað nokkuð um hjó-
leiðar og ýmislegt sem
að þeim lýtur en þá
taka margir fram hjól-
in úr geymslunni.
Reiðhjól hefur
marga kosti sem far-
artæki. Það er ódýrt
í rekstri, hjólreiðar eru
góð heilsurækt og þar
að auki mengar það
ekki. En hjólreiðum
fylgir ákveðin hætta.
Gera þarf greinarmun
á hvort hjólið er notað
sem leiktæki, íþrótta-
tæki eða fyrst og
fremst sem samgöngutæki. Vegna
mismunandi notkunar er oft hætt
við að hjólreiðamaðurinn blandi
saman markmiðum og fari því síð-
ur nægilega vel eftir reglum í
umferð.
Búnaður reiðhjóla
Við-val á reiðhjóli vill oft bera
við að keypt séu hjól langt frá
Fjölskyldu-
dagurí
Garðinum
DAGUR fjölskyldunnar verður hald-
inn hátíðlegur í Garði, sunnudaginn
15. maí nk. Þessi dagur er haldinn
hátíðlegur í tilefni af Ári fjölskyld-
unnar 1994. Fjölskyldumessa verður
kl. 11 í Útskálakirkju sem sr. Hjört-
ur Magni Jóhannsson sér um. Vorhá-
tíð Gerðaskóla hefst kl. 15 með
íþróttum og leikjum. Flugdreka-
keppni verður og hlutavelta. Kaffí
og vöfflur verða til sölu á vægu verði.
Guðmundur
Þorsteinsson
♦ ♦ ♦
■ LIKNARFELA GIÐ Konan
heldur sinn árlega aðalfund miðviku-
daginn 18. maí, kl. 18 í Lækjar-
brekku (uppi). Líknarfélagið rekur
áfangaheimilið Dyngjuna en það er
heimili fyrir stúlkur/konur sem lokið
hafa áfengis- og vímuefnameðferð
en þurfa á áframhaldandi stuðningi
að halda.
■ GRIKKLANDS VINAFÉLA G-
IÐ Hellas boðar til umræðufundar
í Kornhlöðunni við Bankastræti
fímmtudaginn 12. maí kl. 20.30 und-
ir yfírskriftinni Grikkland og grann-
ríkin. Málshefjendur verða þeir
Kristján Árnason, formaður félags-
ins og Dagur Þorleifsson, sagn-
fræðingur og blaðamaður, og munu
þeir leitast við að gera grein fyrir
stöðu Grikklands gagnvart grann-
ríkjum sínum fyrr og nú, einkum þó
með tilliti til hins uggvænlega
ástands á Balkanskaga um þessar
mundir og umdeildrar afstöðu
Grikkja í þeim efnum. Fundurinn er
öllum opinn.
■ KVIKMYNDAKLÚBBUR
Akraness hefur hafíð starfsemi sína
og verður fyrsta sýning á vegum
klúbbsins í kvöld, miðvikudaginn 11.
maí, kl. 9. Sýnd verður ítaiska
spennumyndin Flótti sakleysingj-
ans. I myndinni segir frá ungum
dreng sem verður vitni að því þegar
fjölskylda hans er myrt. Á flóttanum
undan morðingjunum kemst hann
að ýmsu um ijölskyldu sína. Mark-
mið Kvikmyndaklúbbs Akraness
(KVIKA) er að fá metnaðarfullar og
listrænar kvikmyndir til sýningar.
Hægt er að kaupa klúbbskírteini á
100 kr. í miðasölu Bíóhallarinnar á
miðvikudagskvöldið sem og á öðrum
sýningum. Gegn framvísun skírteinis
fæst aðgöngumiðinn á sérstöku
klúbbverði. Skilyrði er að félagar
klúbbsins séu fæddir 1978 eða fyrr
og séu því á 16. ári.
hæfi hverju sinni. Fyr-
ir 10-13 ára böm eru
3ja til 5 gíra reiðhjól
mjög heppileg til al-
mennra nota. Þau
þurfa að vera með
góðum hemlum og af
réttri stærð.
í lok janúar sl. kom
út ný reglugerð um
búnað reiðhjóla sem
ætluð em til almennra
nota í umferð. Meðal
nýmæla er lögð
áhersla á að hjólið sjá-
ist sem best og skal
það nú búið rauðu þrí-
hliða glitmerki að aft-
an og hvítu að framan.
Glitmerki skal einnig vera í teinum
hjólsins. Þrátt fýrir þessi glitmerki
er skylt að nota ljós, bæði að aft-
an og framan, þegar hjólað er í
myrkri eða skertu skyggni.
Þegar nýtt hjól er keypt gildir
sú regla frá og með 1. janúar
1995 að reiðhjól skuli hafa a.m.k.
tvo sjálfstæða hemla. Þá skulu
reiðhjól búin keðjuhlíf til að draga
út þeirri hættu að fatnaður festist
í drifbúnaði reiðhjólsins. Meðal
nýmæla hérlendis er að ef reiðhjól
er ætlað til þess að reiða barn sem
farþega skal hjólið búið viður-
kenndum stól og með hlíf fyrir
fætur farþegans.
Hjálmanotkun
Á sl. tveimur árum hefur Um-
ferðarráð lagt sérstaka áherslu á
notkun hjálma við hjólreiðar. Með
notkun hjálms má draga úr líkum
á alvarlegum höfuðáverkum um
allt að 80%. Höfuðáverkar eru
mjög algengir meðal barna og
geta valdið mjög alvarlegum
meiðslum og jafnvel örkumli.
Verð á hjálmum hefur verið
nokkuð stöðugt síðustu þijú árin
og er hægt að fá þokkalegan hjálm
fyrir u.þ.b. 2.500 til 3.500 kr. Með
Umferðarráð hefur lagt
áherslu á notkun hjálma
við hjólreiðar segir Guð-
mundur Þorsteinsson,
sem staðhæfir að reið-
hjólið hafa marga kosti
sem farartæki.
sameiginlegu átaki foreldra, for-
eldrafélaga, skóla, ýmissa klúbba
og fyrirtækja má ná góðum
árangri í almennri notkun hjálma.
Til þess að efla enn frekár hjálma-
notkun ættu fullorðnir einnig að
nota þessi ágætu öryggistæki sem
hjálmar eru. Sama gildir í hesta-
mennsku, vetraríþróttum o.fl. Til
að stuðla að viðvarandi notkun
hjálma þarf fræðsla uni gildi þeirra
og rétta notkun að vera fyrir
hendi. Sölumenn, hjólaverslanir,
Umferðarráð, lögregla, Slysa-
varnafélag íslands o.fl. geta veitt
aðstoð í því efni.
Aðstoð foreldra
Það er mikilvægt að foreldrar
fari út með börnin og séu með
þeim þegar þau hjóla og kenni
þeim jafnframt umferðarreglurn-
ar. Þegar þau eru nógu gömul til
að hjóla í umferðinni, við 9-10 ára
aldur, er mikilvægt að hvetja þau
til þess að virða umferðarreglur
og líta á reiðhjólið sem farartæki,
en ekki eingöngu sem leikfang.
Samgöngutæki
Reiðhjólið hefur ekki vegið
þungt hér á landi sem samgöngu-
tæki. Það hefur oft gleymst í
skipulagningu samgangna að taka
tillit til þess. Merkingar á stofn-
stígum þurfa að vera fyrir hendi
og taka þarf upp ákveðnari stefnu
við frágang í gatnakerfi er varðar
aðstöðu hjólreiðafólks, ferðamenn
meðtaldir.
Með auknu úrvali aukabúnaðar
við hjólreiðar og sérstaks fatnaðar
má sjá fyrir aukna notun reiðhjóls-
ins og því skylt að taka tillit til
þess við ákvarðanatöku í skipulagi
umferðaraðstöðu hjólreiðafólks.
Höfundur er námsstjóri
umferðarfræðslu.
Atriði sem skylt er að hafa á hjólinu.
Hemlar, lás, bjalla, framljós/afturljós, þríhliða glitmerki - rautt að aftan,
hvítt að framan - teinaglit, glitaugu á fótstigum og keðjuhlíf.
Önnur atriði sem þurfa að vera í lagi.
Hjólið hentar ökumanni, hæð stýris, hæð hnakks, loft í dekkjum, fram-
hjól og afturhjól.
SUMARAÆTLUN M/S HERJOLFS
Gildir frá 6. maí til 4. sept. 1994.
Frá
Vestmannaeyjum
Alla daga 08.15
Föstudaga
og sunnudaga 15.30
Auk þess á
fimmtudögum
í júní og júlí 15.30
Frá
Þorlákshöfn
12.00
19.00
19.00
ATH.: Allar seinni ferðir eru kl. 19.00 frá Þorlákshöfn.
Ferðir skipsins falla niður 22. maí (hvítasunnudag)
og 5. júní (sjómannadag).
A öðrum í hvítasunnu verða tvær ferðir eins og á
sunnudögum.
Þá getur áætlunin breyst dagana 29. júií til 1. ágúst
vegna Þjóðhátíðar Vestmannaeyja.
Herjólfur hf.
Sími 98-12800, myndsendir 98-12991
Vestmannaeyjum.
Félagsvist í Glæsibæ
á uppstigningardag kl. 15. Húsið opnar kl. 14:30.
Reykjavíkurlistinn verður með félagsvist í
Danshúsinu í Glæsibæ, fimmtudaginn 12. maí kl. 15:00.
Glæsilegir vinningar:
Ferðir með Flugleiðum til London og fleiri góðir vinningar
Sigrún Magnúsdóttir efsti maður Reykjavíkurlistans flytur stutt ávarp.
Frambjóðendur Reykjavíkurlistans verða á staðnum.
Allir velkomnir, kaffiveitingar, aðgangur ókeypis.
REYKj&YIKUR
LISTINN