Morgunblaðið - 11.05.1994, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARIMAR 28. MAÍ
Homafjörður hínn nýi
Í KOMANDI sveit-
arstjómarkosningum
munu kjósendur á
Hornafirði velja sér
fulltrúa í nýju samein-
uðu sveitarfélagi, með
tæglega 2.200 íbúa.
Á síðustu tveim
kjörtímabilum hafa
sjálfstæðismenn og
framboð óháðra á
Höfn, Krían, verið í
meirihlutasamstarfi á
Höfn en í hinum sveit-
arfélögunum voru
óhlutbundnar kosning-
ar. Þessar aðstæður
munu setja mark sitt á
umræðuna í kosninga-
baráttunni nú og snúast eðlilega
að miklum hluta um störf meirihlut-
ans á Höfn.
í þessum skrifum ætla ég að
gera hafnarmál sérstaklega að
umræðuefni.
Hafnarmál
Því verður ekki á móti mælt að
mikill árangur hefur náðst í að
bæta innsiglinguna og Homarfjarð-
arhöfn. Sömuleiðis hefur öll þjón-
usta við sjófarendur
sem leið eiga um
Hornafjörð verið aukin
og bætt. Máli mínu til
stuðnings vil ég nefna
sem dæmi:
- Víðtækar rannsóknir
á öllum aðstæðum við
Hornafjörð, sem eru
bæði erfiðar og sí-
breytilegar.
- Sjóvamargarður á
Suðurfjömm og í ár
heíjast framkvæmdir
við garð á Austurijör-
utanga.
- Nýr og glæsilegur
lóðsbátur, Björn lóðs,
var byggður og jafn-
framt hannaður sem dráttar- og
björgunarskip.. Tilkoma þessa
skips var mikið hagsmunamál
fyrir starfsmenn hafnarinnar og
ekki síður til að auka öryggi sjó-
farenda almennt um Hornaijörð.
- Veðurathugunarstöð hefur verið
sett upp á Suðurfjörum og upp-
lýsingakerfi þar sem sjófarendur
geta fengið vitneskju um sjó- og
veðurlag í Osnum. Unnið er enn-
frekar að því að gera þessa þjón-
ustu betri og aðgengilegri.
- Allt land sem tilheyrir hafnar-
svæðinu hefur verið keypt svo
sem Mikley, Lambhellir og Aust-
ur- og Suðuríjörutangar. Þetta
gefur möguleika á að endurskoða
allar hugmyndir um uppbyggingu
hafnarmannvirkja og nýtingu á
öllu hafnarsvæðinu.
- Með útsjónarsemi og dugnaði
hefur innsiglingin og höfnin verið
dýpkuð þannig að stærri skip
komast um svæðið en áður til
dæmis fleiri loðnuskip sem er
mikið hagsmunamál. Sömuleiðis
eykur þetta öryggi allra sjófar-
enda. Mörkuð hefur verið sú
stefna að öll innsiglingin verði
yfir sjö metra djúp og unnið er
samkvæmt því.
- Smábátahöfnin hefur verið
stækkuð.
- Ný 18 metra tölvuvigt var tekin
í notkun á kjörtímabilinu.
Fleira mætti tína til og ég full-
yrði að þessi mikli árangur hefði
aldrei náðst, nema vegna tilkomu
mikillar vinnu margra aðila sem
tókst að virkja og vekja áhuga hjá.
Jafnframt var samstarf heima-
manna, þingmanna, ráðherra og
Mikill árangur hefur
náðst í að bæta innsigl-
inguna og Hornafjarð-
arhöfn, segir Albert
Eymundsson og telur
það árangur af vinnu
margra aðila.
ráðuneyta og starfsmanna Hafnar-
málastofnunar í þessum málum með
miklum ágætum. Á næstunni þarf
að ljúka við líkanatilraunir hjá
Hafnarmálastofnun og í framhaldi
af því byggingu sjóvamargarðs á
Austurfjörum. Eftir þetta stórátak
við innsiglinguna þarf að huga bet-
ur að uppbyggingu og endurbótum
á aðstöðunni innan hafnarinnar.
Alþjóðleg ráðstefna
í framhaldi af þessum mikla
áhuga á Homafirði og vegna þeirr-
ar athygli og kynningar á aðstæð-
um hér hefur verið skipulögð alþjóð-
leg ráðstefna í júní á Höfn um
Albert
Eymundsson
meðal annars hafnir við sandstrend-
ur o.fl. Þar verða fyrirlesarar og
fræðimenn víða úr heiminum og
bera saman bækur sínar. Þessa
ráðstefnu ætti áhugafólk um þessi
málefni ekki að láta framhjá sér
fara. Sambærileg ráðstefna var
haldin á Höfn 1990 og var undan-
fari mikilla rannsókna sem vitnað
er til hér að framan.
Vönduð vinnubrögð
Ég tek þennan málaflokk hér
sérstaklega fyrir vegna þess að fyr-
ir síðustu kosningar var bæjar-
stjórnarmeirihlutinn á Höfn gagn-
rýndur fyrir slæleg vinnubrögð í
þessum efnum. Meirihlutinn lét
samt ekki slá sig út af laginu í hita
kosninganna og árangurinn sýnir
og sannar að vönduð og fagleg
vinnubrögð hafa skilað meiri og
betri árangri en nokkur átti von á.
Það er ekki á neinn hallað þó ég
nefni hér sérstaklega bæjarstjóra,
sem jafnframt er hafnarstjóri, hafn-
arnefnd og starfsmenn hafnarinnar
þegar þakka skal þennan árangur.
Freistandi væri að taka aðra
málaflokka fyrir en það yrði of langt
mál í einni blaðagrein og læt ég
fólki eftir að dæma verk okkar í
þessum efnum.
Höfundur er forseti hæjurstjórnar
á Höfn ogí 1. sæti á lista
sjálfstæðismanna í sameinuðu
sveitarfélagi, Hornafirði.
Ingu Jónu-málið
Tíu staðreyndir
um leyndina
KJÓSENDUR í
Reykjavík vita nú að
sjálfstæðismenn ætla
ekki fyrir nokkum
mun að birta vinnu-
skjöl Ingu Jónu Þórð-
ardóttur sem hún vann
fyrir borgarstjóra.
Vinna Ingu Jónu, sem
er nú frambjóðandi í
fjórða sæti á lista sjálf-
stæðismanna, kostaði
borgarbúa 2,4 millj-
ónir. Ástæðan fyrir
Jeyndinni er bara ein:
Greinargerðir Ingu
Jónu eru pólitískt
sprengiefni. Það sann-
ar samhengið sem nú
er komið á daginn. Eftirfarandi
staðreyndir í Ingu Jónu-málinu er
ljósar:
1. Staðreynd: Inga Jóna Þórðar-
dóttir er skilvirk og vinnur sína
vinnu hvað sem segja má um póli-
tík hennar. Málið snýst ekki um
hvort Inga Jóna hafi unnið vel eða
illa — heidur hvað hún, sem nú er
komin í framboð, lagði til sem ráð-
gjafi í vinnu hjá borg-
arbúum öllum.
2. Staðreynd:
Greinargerðir þær sem
Inga Jóna vann fyrir
borgarstjóra eru til. í
viðtali við vikublaðið
Eintak segir Inga Jóna
að það sé „borgarstjóra
að meta“ hvort hann
leggur greinargerðirn-'
ar fram.
3. Staðreynd:
Markús Örn Antonsson
neitar að birta greinar-
gerðir Ingu Jónu. Hann
segir þó í Morgun-
blaðsgrein að hún hafi
reglulega lagt fram
„minnisblöð og greinargerðir" sem
hann hafi í sinni vörslu.
4. Staðreynd: Inga Jóna var ráð-
in til Markúsar Arnar sem ráðgjafi
borgarstjóra í upphafi árs 1992.
Einmitt um þær mundir, 16. janú-
ar, lýsti Markús Öm yfir í viðtali
við Morgunblaðið: „Stórfelld einka-
væðing á döfinni hjá Reykjavíkur-
borg.“
Sigrún
Magnúsdóttir
5. Staðreynd: Meðal þess sem
borgarstjóri hafði í hyggju að einka-
væða voru: SVR, Hitaveitan og
Rafveitan, Pípugerðin og Malbikun-
arstöðin. I sjónvarpsviðtali tók hann
í sama streng.
6. Staðreynd: Þetta ár, 1992, er
Inga Jóna að störfum fyrir Markús
Öm sem sérlegur ráðgjafí.
7. Staðreynd: í árslok, þegar
Inga Jóna hefur skilað „minnisblöð-
um og greinargerðum" reglulega
til Markúsar Amar heldur Sjálf-
stæðisflokkurinn borgarmálaráð-
stefnu. Þar er samþykkt: „... að
Staðreyndin um Ingu
Jónu-málið sýnir sam-
hengi, að mati Sigrún-
ar Magnúsdóttur, sem
gerir skýrsluna að póli-
tísku sprengiefni.
einkavæðing borgarfyrirtækja í
samkeppni hafí forgang en einnig
er hægt að einkavæða ýmsan þjón-
usturekstur borgarinnar sem ekki
er í beinni samkeppni við einkaaðila
á markaðnum".
8. Staðreynd: Nýjasti borgar-
stjóri Reykvíkinga, Árni Sigfússon,
var borgarfulltrúi á þessum tíma
og tók þátt í samþykkt borgarmála-
ráðs sem enn stendur óhögguð.
9. Staðreynd: Árni Sigfússon
neitar að leggja fram greinargerðir
Ingu Jónu, en leggur þess í stað
fram minnispunkta frá Markúsi
Emi um hvað Inga Jóna hafi sagt.
Þar kemur ekki í eitt einasta skipti
fram orðið einkavæðing.
10. Staðreynd: Inga Jóna Þórð-
ardóttir var sérstaklega kölluð af
forystu Sjálfstæðisflokksins til að
taka þátt í prófkjöri flokksins þegar
Katrín Fjeldsted gafst upp á and-
stöðu flokksins í borginni við mjúku
málin. Hún fékk sína upphefð áður
en Markús Örn sá að staðan var
vonlaus. Árni Sigfússon var þá kall-
aður til að fela flokkinn bak við
nýja glansmynd.
Samhengið í leyndinni
Þessar staðreyndir skýra sam-
hengið í leyndinni sem hvílir yfir
stefnumálum sem Inga Jóna Þórð-
ardóttir var ráðin til að vinna fyrir
einkavæðingarsinnann Markús
Öm. Þau minnisblöð og greinar-
gerðir urðu grunnurinn að sam-
þykkt Sjálfstæðisflokksins í borgar-
málaráði um víðtæka einkavæðingu
— jafnvel fyrirtækja sem ekki em
í samkeppni. Síðan er íiðið eitt og
hálft ár. Á þeim tíma hefur fylgi
Sjálfstæðisflokksins í borginni
hrunið. Samhengið er ljóst. Stað-
reyndirnar í Ingu Jónu-málinu tala
sínu máli. Þær era pólitískt sprengi-
efni sem munu rústa síðasta vígi
hins fallna meirihluta. Ef þær birt-
ast.
Höfundur er borgarfulltrúi og
skipar 1. sæti R-listans.
Leiðrétt-
ing á nafna-
brengli
„í MORGUNBLAÐINU í gær er
fyrirspum til Reykjavíkurlistans
frá Ástvaldi Magnúsi undir heitinu
„Hver er maðurinn?" Hann vísar
þar til auglýsingar til stuðnings
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóraefnis Reykjavíkurlist-
ans, þar sem því gullna tækifæri,
sem gefst til að breyta um stjórnar-
hætti í borginni í vor, er fagnað.
Okkur stuðningsmönnum
Reykjavíkurlistans berast hundruð
óska frá Reykvíkingum um að fá
að rita nafn sitt undir slíkajfirlýs-
ingu. Ein þeirra var frá Ástvaldi
Guðmundssyni, Mýrarseli 9 í
Reykjavík. Þann 23. apríl sl. vildi
svo illa til að föðurnafn hans mis-
ritaðist í stuðningsyfirlýsingunni.
Mikil vinna er lögð í að hafa öll
nöfn rétt í þessum auglýsingum,
en hér er því miður um mannleg
mistök að ræða og era þeir nafnar
báðir beðnir velvirðingar á þeim
mistökum. Nafn Ástvalds Guð-
mundssonar verður birt í næstu
stuðningsyfirlýsingu. “
Hildur Kjartansdóttir,
stuðningsmaður
Reykjavíkurlistans.
JónLArnason
stórmeistari
Jóhann Hjartarson
stórmeistari
Helgi Olafsson
stórmeistari
Margeir Pétursson
stórmeistari
Karl Þorsteins
alþjóðlegur skákmeistari