Morgunblaðið - 11.05.1994, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
sé ekki langt undan. Guð geymi þig,
kæri vinur.
Elsku Jóhanna, dætur, foreldrar,
systkini og aðrir aðstandendur, ég
og Bogga vottum ykkur okkar
dýpstu samúð og megi Guð gefa
ykkur styrk.
Kristinn Skúlason.
Það er löng leið frá íslandi til
himnaríkis segir í Gullna hliðinu eft-
ir Davíð Stefánsson. Vinur okkar
hann ívar er lagður af stað í þessa
löngu ferð, ferð sem við öll förum
fyrr eða síðar.
Við, vinir hans ívars, settumst
niður og hugðumst setja eitthvað á
biað til að minnast hans. Hvernig
byijum við? Hvað segjum við? Það
er svo margt. Munið þið t.d. þegar
... og áður en við vitum sitjum við
og skellihlæjum að prakkarastrikum
og strákapörum sem einkenndu
vinahópinn.
ívar var fullur lífsgleði og hafði
einstakt lag á fólki. Hann gat komið
öllum til að gráta af hlátri. Traust
bros, hlátur, hlýja ásamt stórlega
ýktum gamansögum voru hans ein-
kenni. Eins og sjómaður reiðir sig á
björgunarbát á neyðarstundu gátum
við vinir hans reitt okkur á hann,
hann var alltaf til þegar við þörfnuð-
umst hans. Við vinimir eignuðumst
|var snemma á lífsleiðinni. Eins og
ívar var vanur að segja: „Við erum
búnir að vera vinir síðan við vorum
að kasta gijóti hver í annan.“ Við
vorum eins og heimaalningar heima
hjá Arnóri og Betsy foreldurm ívars
en óhætt er að segja að við höfum
átt tvenna foreldra sem voru boðnir
og búnir að gera allt fyrir ungana
sína.
ívar var brautryðjandi okkar í
mörgu, t.d. varð hann fyrstur af
okkur til að eignast bíl, fyrstur til
að eignast bam, fyrstur til að eign-
ast íbúð, fyrstur til að gifta sig og
nú fyrstur til að kveðja þetta verald-
lega líf.
Söknuður og eftirsjá okkar er
mikil, mörg tár hafa runnið niður
vanga okkar og margar spurningar
hafa vaknað í hugum okkar. En,
kæri Guð. Af hveiju ívar? Þessari
spumingu verður líklega aldrei svar-
að, en ætli þá hafi ekki vantað gleði-
gjafa þarna upp. Gleðigjafa eins og
Ivar, sem fýllt hafði hjörtu_ okkar
vinanna og nú er tími fyrir ívar að
gleðja aðra en okkur.
Stundimar með ívari vom margar
en samt of fáar, tárin em mörg en
samt of fá, við vinimir eram margir
en samt einum of fáir. Minningin
um ívar mun lifa í hugum okkar
allra. Við þökkum fyrir samfýlgdina
og kynnin, elsku drengurinn okkar.
Við sendum Jóhönnu og börnun-
um, Silju, Katrínu, Evu Karen og
öllum þeim sem stóðu ívari nærri
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum að Guð varðveiti ykkur í
sorg ykkar.
Þó að kali heitur kver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsénda-Rósa)
Orri, Geimý, Rúnar, Kol-
brún, Davið, Hulda, Sigur-
bjöm, Kristinn og Vilborg.
Þegar mér barst sú harmafregn
að ívar vinur minn hefði látist af
slysfömm 30. apríl sl. varð mér
hugsað: Þeir sem guðirnir elska
deyja ungir.
Eg átti því láni að fagna að fá
að kynnast þessum góða dreng og
þeim sem að honum standa fyrir all
mörgum árum og alltaf var sama
glaðværðin og röggsemin í návist
hans. Hann sást ekki alltaf fyrir ef
hann gat gert öðrum greiða og þjón-
ustulipurð hans var einstök. Ungri
fjölskyldu hans er mikill harmur að
fráfalli hans. Ég og fjölskylda mín
vottum konu hans og börnum, for-
eldram og systkinum dýpstu samúð.
Minningin um góðan dreng mun
lifa.
Lárus Ragnarsson.
Okkur setti hljóð er við fréttum
að vinir okkar, Arnór og Betsy,
_hefðu misst son sinn ívar af slysför-
um. Þetta var eins og endurtekning
frá því fyrir hálfu öðru ári, þegar
okkur barst sú fregn að tvítugur
frændi okkar hefði farist í flugslysi.
Það eru varla til orð er lýsa þeirri
tilfínningu sem kemur yfir mann
þegar fréttir sem þessar era fyrir
mann bomar.
Maður er oft að velta fyrir sér
hver sé tilgangur þessa lífs. Var það
tilviljun að ívar var staddur uppi við
Skjaldbreið þegar útlendingur sem
hafði orðið viðskila við stóran hóp
manna biður um aðstoð þeirra sem
fyrir voru og að ívar skyldi verða
sá sem fer með honum á sleðanum?
Hver veit. Kannski var röðin komin
að þeim þó manni fínnist það til-
gangslítið og harðneskjulegt að ívar,
þessi ungi hæfileikamikli og vel gerði
piltur, giftur ungri og fallegri konu
og faðir þriggja ungra dætra, sé
hrifsaður úr faðmi ástvina sinna sem
bundu svo miklar vonir við bjarta
framtíð með honum.
Við hjónin urðum þeirrar ánægju
aðnjótandi að fá að kynnast þeim
sómahjónum Arnóri og Betsy, og
bömum þeirra, ívari, tvíburabróður
hans Páli og Ágústi. Þá voru þeir
bara þrír, bræðurnir. Síðar kom sól-
argeislinn þeirra allra, Elísabet. Það
var alltaf glatt á hjalla þegar Ítalíu-
hópurinn hittist í hinum árlegu sum-
arferðum, sérstaklega fyrstu árin
þegar börnin voru ennþá ung. Ivar
og Palli voru uppáhald okkar að öll-
um öðram ólöstuðum og glaðlyndi
þeirra og prakkaraháttur heillaði
okkur. Lengi vel var gert grín að
okkur hjónum fyrir að þekkja þá
ekki í sundur. En við höfðum lúmsk-
an grun um að þeim hafi ekkert
leiðst það enda notfærðu þeir sér
það ef stríðnispúkinn kom upp í
þeim. Þegar talað var um Ivar var
Páll oftast nefndur líka því þeir
bræður vora mjög samrýndir. Það
hefur verið erfítt fyrir Pál, meira en
nokkurn getur grunað, að sitja hjá
bróður sínum og bíða eftir að leggja
hann í hendur almættinu.
Elsku vinir, við vottum ykkur öll-
um okkar dýpstu samúð og ekki síst
Jóhönnu og dætranum ungu. Við
biðjum Guð að blessa ykkur öll.
Sigríður og Lárus.
Þú, faðir lífs og ljóssins á jörðu,
lifandi máttur kærleikans.
Þú mannslíf beitir mild’ og hörðu
miðað við þarfir sérhvers manns.
Þú, veist hvað okkur er fyrir bestu,
okkur í skóla reynslunnar léstu.
(Ingþór Sigurbjömsson)
Söknuður fyrir hjarta, sársaukinn
allt að því óbærilegur. Vinur okkar
ívar er dáinn. Hversu sárt er að trúa
því að við öll sem ívar þekktum eig-
um ekki aftur eftir að hitta hann í
lifanda lífi. ívar var mörgum kostum
búinn, alltaf léttur í lund og vildi
allt fyrir alla gera, enda vinahópur-
inn stór. Það era margir sem syrgja
ívar í dag, því hann var sannur vin-
ur vina sinna.
ívar var stoltur af dætrum sínum
þremur, enda börnin falleg og öllum
þeim kostum búin, sem faðir getur
verið stoltur af. Á heimili ívars og
Jóhönnu Steinsdóttur ríkti mikill
kærleikur og það stóð alltaf opið
öllum þeirra vinum. Þær eru margar
minningarnar um ánægjulegar
stundir á heimili þeirra.
Elsku Jóhanna, ykkar missir er
mikill, okkar orð eru svo fátækleg
gagnvart sorg ykkar. Það er huggun
harmi gegn að þið eigið góða að,
sem munu hugsa vel um ykkur í
framtíðinni. Það skarð sem ívar skil-
ur eftir verður aldrei fyllt, en minn-
ingarnar eru margar og munu þær
ætíð lifa í hjörtum okkar um ókomna
tíð.
Þú gafst oss fagran geisla á veginn
gleðjandi hvem sem þar af naut.
En lífsins tíma lína var dregin,
lög, sem enginn máttur braut.
Hver bára lífsins lýtur því vaidi,
lögmál oss hulið skilningsins tjaldi.
(I.S.)
Við biðjum algóðan guð að hugga
og styrkja Jóhönnu, Katrínu, Evu
Karen og Silju í þeirra miklu sorg,
einnig foreldra, systkini og alla aðra
aðstandendur.
Við sendum ykkur okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Guð blessi
ykkur öll.
Sigrún Edda Lövdal
og fjölskulda,
Hrafnhildur Arnardóttir
og fjölskylda.
Mig langar í nokkrum orðum að
kveðja vin minn ívar Arnórsson sem
lést á sviplegan hátt laugardaginn
30. apríl sl.
Ég kynntist ívari og konu hans
Jóhönnu á Spáni 1987, en þau hjón-
in voru þar í brúðkaupsferð. Með
þeim var Páll tvíburabróðir ívars og
nokkrir vinir. Fljótlega í ferðinni
tókst mikill vinskapur milli okkar
sem hefur haldist æ síðan og vorum
við megnið af ferðinni saman.
Ég minnist þess oft hve erfítt ég
átti í fyrstu með að þekkja ívar og
Pál í sundur. Ég skildi ekkert í því
hvernig Jóhanna gat vitað hvor
væri hver er þeir voru hálfir á kafi
í sjónum, en hún synti alltaf til síns
heitt elskaða.
ívar var mjög mannblendinn og
léttur í lund. Hann átti mjög auð-
velt með að kynnast fólki. Ekki man
ég eftir því samkvæmi eða boði sem
ívar var í að eitthvað yrði vandræða-
legt eða fátt um spjall. Hann kom
ætíð af stað skemmtilegum samræð-
um þar sem slegið var á létta strengi.
Ég hitti ívar síðast helgina fyrir
páska, en þá kom ég í heimsókn til
þeirra hjóna í stuttri ferð minni til
Reykjavíkur. ívar hafði verið að
skemmta sér með vinum kvöldið
áður og þrátt fyrir slappleika lét
hann það ekki á sig fá, rauk í að
vaska upp og hella uppá. Hann
spurði mig hvernig ég hefði það
hvort ekki væri allt í lagi með mig
og tilvonandi barn mitt. Hvort ég
væri ekki hraust og liði vel. Þetta
kom mér ekki á óvart því þetta var
ívar, eins og honum einum var lag-
ið. Alltaf hefur mér fundist hann
vera umhyggjusamur og það skipti
hann svo miklu máli að öllum liði
vel og hefðu það gott.
Er ívar kvaddi mig sagði hann:
„Við sjáumst Hugrún og farðu vel
með þig.“ Ekki datt mér í hug að
ég myndi ekki hitta ívar aftur og
aldrei hefur hvarflað annað að mér
en að ívar yrði hress gamall maður
með sína léttu lund og hefði ég svo
gjarnan viljað vera nálægt honum í
ellinni og hlusta á spaugilegar sögur.
Ég sendi Jóhönnu og dætram
þeirra mínar innilegustu samúðar-
kveðjur, einnig foreldram og systk-
inum. Ég vildi svo gjarnan vera hjá
ykkur á þessari sorgarstundu. Þið
eigið hug minn allan.
Ykkar vinkona.
Hugrún Rúnarsdóttir.
Aldrei mæst í síðasta sinni
sannir Jesú vinir fá.
Hrellda sál, það haf í minni
harmakveðju stundum á.
Þótt vér sjáumst oftar eigi
undir sól er skín oss hér
á þeim mikla dýrðardegi
Drottins aftur fínnumst vér.
Þótt vér hljótum hér að kveðja
hjartans vini kærstu þrátt,
indæl von sú oss má gleðja
aftur heilsum vér þeim brátt.
Hrellda sál það haf í minni
harmakveðju stundum á:
Aldrei mæst í síðsta sinni
sannir Jesú vinir fá.
(Þýð. Helgi Hálfdánarson)
Þegar svipleg tíðindi þerast okkur
er oft fyrsta hugsunin: Ég trúi þessu
ekki. Þannig varð okkur innanbijósts
þegar við fréttum að hann ívar, fé-
lagi okkar í Junior Chamber Kópa-
vogi, væri látinn. ívar var einstak-
lega lífsglaður maður sem gott var
að vera samvistum við og það er
erfítt að kveðja slíkan félaga. Hans
hlutverki hér á jörðu er lokið en
honum hlýtur að vera ætlað annað
og meira hlutverk þar sem við öll
að lokum endum.
Við sendum eiginkonu hans og
dætram ásamt foreldrum og systk-
inum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Megi góður guð vera ykkur
styrkur í sorg ykkar.
Félagar í Junior Chamber Kópa-
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 35
litinn...
DU PONT bílalakk notað af
fagmönnum um land allt.
úr
glasfiber
Með
öllum
búnaði
1/erð
6 metrakr. 24.450.■
7metrakr.26.670.-
8 metra kr. 28.820.-
TRANAVOC11
SÍMI 682850
FAX 682856
Granlandtday w í llorr$na hútinu
fprðaktjnnin?ar - náttúrufar - $a?a - vriði o? ævintýraferðir
Grænlensk-íslenska félagið Kalak mun, ásamt fyrirtækjum í ferða-
þjónustu, standa fyrir Grænlandskynningu í Norræna húsinu á
uppstigningardag, 12. maí 1994.
Boðið verður upp á fjölbreytt dagskrá í sal en í anddyri munu
ferðaþjónustuaðilar kynna ferðir og ferðamöguleika á Grænlandi
og dreifa bæklingum.
Ferðagetraun, þar sem í boði verða ferðavinningar til Grænlands,
Sýning verður á selskinnspelsum og minjagripum frá Grænlandi.
f gangi verða myndasýningar með nýlegum myndum ffá Grænlandi.
Dagskrá:
Kl. 13.00 Húsið opnað.
Kl. 14.00 Grænlenskur kór syngur nokkur lög.
Kl. 14.30 Guðmundur Ólafsson, fomleifaffæðingur: Forn bær í frera -
sagt frá nýjum fomleifarannsóknum í Vestribyggð á Grænlandi.
Kl. 15.00 Ingvi Þorsteinsson, náttúrufræðingur:
Ferðast um Suður-Grænland - frásögn í máli og myndum.
Kl. 15.30 Bjami Olesen, leiðsögumaður: Veiðiferðir á Suður-Grænlandi
- sagt ífá sportveiðiferðum, stangveiði og skotveiði.
Kl. 16.00 Ólafur Öm Haraldsson, landffæðingur: Skíðaleiðangur
yfir Grænlandsjökul - ffásögn í máli og myndum.
Kl. 16.30 Ingimundur Stefánsson, kvikmyndagerðarmaður:
Fjallaleiðangur í Stáningsölpum - stærsti þjóðgarður í heimi.
Kl. 17.00 Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisffæðingur:
Ammassalik-svæðið - forvitnilegar ferðaslóðir.
Kl. 17.30 BenteEndresenffáGreenlandTourism: Kynningá Ferðamála-
ráði Grænlands og þróun í uppbyggingu ferðamála á Grænlandi.
flllir velkomnir - Kaffitgrian opin - Ókpypii aðyanyur
Stjórn Grænlensk-íslenska félagsins Kalak.
TILKYNNING
Hljómsveit Guðjóns Matthíassonar getur
tekið að sér að leika á dansleikjum.
Hljómsveitin er þannig skipuð: Guðjón
Matthíasson, harmónika og söngur,
Jón Möller, píanó, Erlingur Einarsson,
trommur og Björn Erlingsson, bassa.
Sími 23629.