Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 43
FRÉTTIR
KENNSLUKONURNAR í Hamarsskóla voru allar klæddar í þjóðbúningum. F.v. Rannveig Haf-
berg, Valgerður Bjarnadóttir, Valgerður Guðjónsdóttir, Erna Jónsdóttir, Guðrún Hrund Sigurðar-
dóttir, Þóra Ólafsdóttir, Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri, Hulda Ólafsdóttir, Katrín Magnúsdótt-
ir, Hulda Karen Róbertsdóttir, Erna Jóhannesdóttir og Bergþóra Þórhallsdóttir.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
KRAKKAR á skóladeginum í Hamarsskóla unnu kappsamlega
við að teikna og mála íslenska fánann.
Lýðveld-
ishátíð
nemenda
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Nemendur Hamarsskóla í Eyjum
héldu árlegan skóladag fyrir
skömmu þar sem vinna vetrarins
var sýnd. Auk þess að sýna vinn-
una var afrakstur þemaviku skól-
ans sýndur en þemað var 50 ára
afmæli íslenska lýðveldisins.
Nemendur og kennarar höfðu
lagt mikla vinnu í að gera 50 ára
afmæli lýðveldisins góð skil.
Unnið var í hópum að undirbún-
ingnum og var nemendum fjórða
til tíunda bekkjar aldursblandað
í vinnuhópa. Hóparnir skiptu á
milli sín sérstökum verkefnum
og voru meðal annars tekin fyrir
verkefni sem fjöiluðu um alþingi
og stjórnarskrána, forseta,
fræga Islendinga, lífsstíl og lífs-
kjör í hálfa öld, þjóðbúninga og
siðan var horft til framtíðar með
Vestmannaeyjar í huga.
Leiklistarhópur flutti leikritið
Á eigin fótum eftir Sigþór Magn-
ússon og Þorstein Guðmundsson,
en það fjallar um þjóðhátíðar-
daginn 1944 og er sérstaklega
skrifað fyrir skóla. Leikritið var
ágætlega flutt þjá nemeudum en
þau sáu auk þess um alla um-
gjörð sýningarinnar og gerðu
sjálf leikmynd. Rifjuð voru upp
nöfn frægra íslenskra söngvara
með því að nemendur fóru í gervi
þeirra og tóku lagið. Hljómsveit
skipuð nemendum úr skólanum
rifjaði upp nokkur lög frá ýmsum
timum og sýnd voru föt og dans-
ar frá ýmsum mismunandi tíma-
bilum síðustu áratuga. Þá var
flutt leikritið Gilitrutt.
I tengslum við skóladaginn er
árvisst að nemendur skólans
hreinsa skólalóðina. Þá fer 10.
bekkur og sáir melfræi og núna
gróðursettu 5. bekkingar tré í
gróðurreitnum í Helgafelli en
styrkur til þess verkefnis fékkst
úr Yrkjusjóði.
Á skóladaginn var kaffisala í
skólanum í umsjá nemenda 6.
bekkjar og foreldra þeirra en
ágóði af kaffisölunni rennur í
ferðasjóð fyrir næsta vetur.
Að sögn Halldóru Magnúsdótt-
ur er reiknað með að um 1000
Eyjamenn hafi heimsótt skólann
á skóladaginn og voru allir n\jög
ánægðir með dagskrána sem
nemendur buðu uppá.
Morgunblaðið/Silli
KÁRI Arnór Kárason og eiginkona hans, Kristjana Skúladóttir,
voru leyst út með gjöfum.
Hátíðarsamkoma á Húsavík
F ormaður Verkalýðs-
félagsins kvaddur
Húsavík. Morgunblaðið
Hátíðarsamkomu Verkalýðsfélags
Húsavíkur setti Kári Arnór Kára-
son í síðasta sinn því hann er nú
að láta af störfum sem formaður
verkalýðsfélagsins.
Kári hefur tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Norð-
urlands og flutti til Akureyrar.
Hátíðarræðu dagsins flutti Svan-
hildur Kaaber og með hljóðfæra-
slætti og söng skemmtu Signý
Sæmundsdóttir við undirleik Þóru
Fríðu Sæmundsdóttur, Lára Sóley
Jóhannsdóttir lék á fiðlu, sönghóp-
urinn Harpa söng undir stjórn Nat-
alíu Chow, Lúðrasveit Húsavíkur
lék og nemendur tónlistarskólans
sungu og léku á hljóðfæri.
Að lokinni dagskrá buðu stéttar-
félögin í Suður-Þingeyjarsýslu
samkomugestum til kaffidrykkju á
Hótel Húsavík.
Grænlands-
dagurí
Norræna
húsinu
GRÆNLENSK-íslenska félagið
Kalak mun ásamt fyrirtækjum
í ferðaþjónustu standa fyrir
Grænlandskynningu í Norræna
húsinu á uppstigningardag 12.
maí. Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá í sal en í and-
dyri munu ferðaþjónustuaðilar
kynna ferðir og ferðamöguleika
á Grænlandi.
Ferðagetraun verður þar sem
í boði eru ferðavinningar til
Grænlands. Sýning verður á
selskinnspelsum og minjagrip-
um frá Grænalandi og í gangi
verða myndasýningar með ný-
legum myndum frá Grænlandi.
Húsið opnar kl. 13 en kl. 14
syngur grænlenskur kór nokkur
lög. Erindi flytja síðan með hálf-
tíma millibili frá kl. 14.30 Guð-
mundur Ólafsson, fornleifa-
fræðingur, Ingvi Þorsteinsson,
náttúrufræðingur, Bjarni Oles-
en, leiðsögumaður, Ölafur Örn
Haraldsson, landfræðingur,
Ingimundur Stefánsson, kvik-
myndagerðarmaður, Ari Trausti
Guðmundsson, jarðeðlisfræð-
ingur og Bente Endresen frá
Greenland Tourism.
Aðgangur er ókeypis.