Morgunblaðið - 11.05.1994, Síða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Grissom til Keflavíkur
Davíð Grissom, sem lék með
úrvalsdeildariiði KR-inga í
vetur, hefur ákveðið flytja sig um
set og leika með Keflvikingum í
úrvalsdeildinni næsta vetur. Frá
þessu var endanlega gengið í gær-
kvöldi.
Grissom var einn stigahæsti og
besti leikmaður KR-inga sl. vetur
og er því mikill missir fyrir Vestur-
bæjarliðið, sem Axel Nikulásson
þjálfar. Grissom lék áður með UBK
og Val. Hann er stór og sterkur
leikmaður, góð skytta og á sjálfsagt
eftir að styrkja leikmannahóp bik-
armeistaranna verulega. Keflvík-
ingar eiga einnig möguleika á að
fá til sín erlendan leikmann því
Grissom er orðinn íslenskur ríkis-
borgari.
HANDKNATTLEIKUR / ÞJALFARAR
Viggó með
Stjömuna og
Eyjólfur ÍR
Eyjólfur
Viggó Sig-
urðsson var
í gær ráðinn
þjálfari 1. deild-
arliðs Stjöm-
unnar í
Garðabæ. Hann
tekur við af
Gunnari Einars-
'syni, sem
stjórnaði liðinu
síðustu tvö leik-
tímabiL Eyjólf-
ur Bragason
tekur við IR-lið-
inu af Brynjari Kvaran.
Viggó, sem hefur áður þjálfað
Hauka og FH auk unglingalandsliðs-
ins, sagði að Stjaman væri það lið
sem hann hafi haft mestan áhuga á
að þjálfa. „Það er ákveðin hvatning
fyrir mig að fara aftur að þjálfa eft-
ir tveggja ára hvíld. Ég kem vonandi
ferskur í slaginn. Það er mikið sem
býr í Stjörnuliðinu," sagði Viggó.
Ljóst er að Hafsteinn Bragason,
hornamaður Stjömunnar, verður
ekki með liðinu næsta vetur því hann
er á leið til náms í Bandaríkjunum.
Verið er að vinna í því að ganga frá
leikmanna samningum við aðra leik-
menn liðsins. Viggó bjóst ekki við
að miklar breytingar yrðu á leik-
mannahópnum frá því í vetur.
Eýjólur Bragason sagði að það
legðist vel í sig að taka við ÍR-lið-
inu. „Þetta er ákveðin ögmn fyrir
mig. Liðið hefur nú verið tvö ár í
Viggó
fyrstu deild og
spuming hvort
það nái að festa
sig í sessi. Við
■þurfum að
breikka leik-
mannahópinn
fyrir næsta vet-
ur og emm að
vinna í því þessa
dagana,“ sagði
Eyjólfur.
Hann sagði
að allir leik-
mennirnir sem léku með liðinu sl.
vetur yrðu áfram nema Branislav
Dimitrivitch. Auk þess hafa ÍR-ingar
fengið til liðs við sig Guðfinn Krist-
mannsson frá IBV og Daða Hafþórs-
son úr Fram, sem var kjörinn efnileg-
asti leikmaður 2. deildar sl. keppnis-
tímabil.
Guðmundur Karlsson, sem þjálfaðl
ÍH og kom liðinu upp í 1. deild í
vetur, hefur verið orðaður sem næsti
þjálfari FH-inga, en ekki var búið
að ganga frá því í gærkvöldi.
Hin fyrstu deildar félögin em búin
að ganga frá sínum þjálfaramálum
að mestu: Þorbjöm Jensson verður
áfram með Val, Gunnar Gunnarsson
áfram með Víking, Guðmundur Guð-
mundsson með Aftureldingu og Ólaf-
ur Lárasson með KR. Talið er næsta
víst að Alfreð Gíslason verði áfram
með KA og Jóhann Ingi Gunnarsson
með Hauka. Enn er allt á huldu hver
þjálfar HK og ÍH og eins Selfoss.
Gelfl
upp-
Opna Landsbankamótið verður haldið á
stigningardag, 12. maí að Húsatóftum.
Leiknar verða 18 holur með/án forgjafar.
Góð verðlaun.
Skráning hefst miðvikudaginn 11. maí kl. 17
í síma 92-68720.
Golfklúbbur Grindavíkur
21
GOLFARAR!
Við bjóðum kylfinga velkomna til leiks í sumar
á nýjum golfvelli áð Kiðjabergi í Grímsnesi.
Félögum og fyrirtækjum er bent á góða aðstöðu
til mótahalds m.a. rúmgóðan golfskála með
veitingasölu, tjaldstæði og hreinlætisaðstöðu.
Upplýsingar gefur
Örn Isebarn, sími 31104.
Davíð Grissom til liðs við bikarmeistara IBK.
Eigandi Phoenix keypti
oggaf 300 miða
Frá Aslaugu
Jónsdóttur
í Phoenix
Sætanýting á NBA-leikjum í vetur
var 90.5% og var um aðsóknar-
met að ræða, en athygli vakti s.l.
sunnudag að ekki var
uppselt á leik Hous-
ton og Phoenix í ann-
arri umferð úrslita-
keppninnar og í gær
vom um 3.000 miðar óseldir á annan
leik liðanna, sem verður í nótt. Því
ákvað eigandi Phoenix að kaupa 300
miða, sem íbúar Phoenix gátu unnið
og verður flogið sérstaklega með þá
heppnu í flugvél, sem Phoenix leigir
vegna leiksins.
Iþróttahöllin, sem Houston leikur
í, tekur rúmlega 16.000 manns í
sæti, en rúmlega 2.000 miðar vom
óseldir á leikinn s.l. sunnudag og
þykir það furðu sæta þar sem um
KNATTSPYRNA
úrslitakeppni er að ræða. Leikmenn
Houston kvörtuðu yfir þessari lélegu
mætingu og voru harðorðir í garð
stuðningsmanna liðsins. Þá heyrðust
einnig óánægjuraddir með að stuðn-
ingsmenn á leiknum hefðu ekki sýnt
stuðninginn í verki, en Phoenix sigr-
aði með fjögurra stiga mun í æsi-
spennandi leik. Þá þykir þetta enn
undarlegra þar sem tvær af skærustu
stjörnum deildarinnar, Charles Bar-
kley og Hakeem Olajuwon, áttust
við, en sá síðar nefndi var útnefndur
besti varnarleikmaður ársins í fyrra-
dag.
Þess má geta að nánast vonlaust
er að fá miða á úrslitaleiki annarra
liða og íþróttahöll Phoenix Suns, sem
tekur rúmlega 19.000 manns í sæti,
er troðfull á hveijum leik.
Skagamenn lögðu Keflvíkinga
Islands- og bikarmeistarar Akraness tryggðu sér sigur í Litiu-bikarkeppn-
inni með því að leggja Keflvíkinga að velli, 1:0, í Keflavík í gærkvöldi.
Um 600 áhorfendur sáu leikinn, sem var fjörugur. Skagamenn skoruðu mark
sitt undir lok fyrri hálfleiksins, en þá tók Alexander Högnason aukaspyrnu
— knötturinn hafnaði í einum varnarmanni Keflvíkinga, breytti stefnu og
hafnaði í netinu. í lokleiksins fékk Ragnar Margeirsson, sem kom inná sem
varamaður, tvö gullin tækifæri til að jafna, en brást bogalistin.
MANNVIRKI
Yfirbyggður knattspyrnuvöllurfyrir 155 milljónir
Skoðum þetta tilboð
- segirÁrni Sigfússon borgarstjóri
Sænska fyrirtækið Electrolux
hefur gert Reykjavíkurborg
tilboð um að reisa yfirbyggðan
knattspyrnuvöll fyrir um 155 millj-
ónir króna. Einnig kemur til greina
að leigja mannvirkið í 10 ár fyrir
um 240 milljónir og er málið í at-
hugun hjá borginni að sögn Árna
Sigfússonar borgarstjóra.
Tilboðið gerir ráð fyrir 80 x 112,5
m stórum velli og hefur gervigra-
svöllurinn í Laugardal verið hafður
til hliðsjónar. í kaupverðinu er gert
ráð fyrir flutningi efnis, uppsetn-
ingu yfirbyggingar með loftræst-
ingu og virðisaukaskatti. Sé um
leigu að ræða tekur sænska fyrir-
tækið ábyrgð á viðhaldi, en kaup-
andi greiðir tryggingar.
Ámi sagði að með tilboðinu vakn-
aði hugmynd um yfirbyggingu, sem
sjálfsagt væri að kanna frekar án
skuldbindinga. „Við viljum fara
okkur hægt og skoða málið vel með
jákvæðum hætti án þess að hafna
því, en ég er reyndar hlynntari ís-
lenskum byggingum og íslenskri
hönnun."
KNATTSPYRNA
Slóvaki til
Breiðabliks
Breiðablik fær í dag til sín
23 ára gamlan framlínu-
mann frá Slóvakíu til reynslu í
vikutíma. Hann heitir Raspilav
Lazorik og kemur frá FC Kosiee
sem er frá samnefndri borg. Ef
Breiðabliksmönnum lýst vel á
leikmanninn mun hann leika
með liðinu í 1. deild í sumar.
URSLIT
Knattspyrna
Æfingalandsleikur
Aþena:
Grikkland - Kamerún...............0:3
- David Embe (26.), Stefan Tataw (47.),
Paul Loga (70.). 8.000.
■Þáðar þjóðirnar taka þátt í HM í sumar.
Grikkir léku mestan hluta leiksins með tíu
leikmenn, þar sem fyrirliði þeirra Tasos
Mitropoulos var rekinn af leikvelli fyrir að
gefa Rigobert Song olnbogaskot á 37 mín.
Alketas Panagoulias, þjálfari Grikklands,
sagði að leikurinn hafi verið góð æfing fyr-
ir leik þeirra gegn Nígeríu í HM.
„Nígeríumenn eru jafnvel fljótari en Kamer-
únmenn."
Frakkland
Undanúrslit í bikarkeppninni:
Lens - Montpellier................0:2
- C. Sanchez (68.), Bruno Carotti (80.)
Auxerre - Nantes..................1:0
Frank Verlaat (47.).
■Auxerre leikur í fyrsta skipti úrslitaleik
! bikarkeppninni síðan 1979.
Sviss
Oliver Neuville skoraði þrennu fyrir Ser-
vette gegn Young Boys, 4:1, og þar með
tryggði Servetta sér meistaratitilinn í Sviss
í_sextánda skipti.
Íshokkí
NHL-deildin
Undanúrslitakeppni Austurdeildar:
New Jersey - Boston...............2:0
■Eftir framl. New Jersey er 3-2 yfir.
NY Rangers - Washington...........4:3
■Rangers vann 4-1.
Hjólreiðar
Frakkinn Laurent Jalabert varð sigurvegari
á sextándu keppnisleiðinni á Spánarmótinu,
en hjólað var 148 km leið frá Santander
til Covadonga í gær. Fyrst er það tími Jala-
bert og síðan hvað hinir komu mörgum
mín. eftir honum í mark:
1. Laurent Jalabert, Frakklandi....3:42.20
2. Roberto Torres, Spáni......... 9
3. Arunas Cepele, Litháen.......... 1.05
Staðan eftir sextán umferðir:
1. Rominger................72:55.24
2. Zarrabeitia................ 5.02
3. Pedro Delgado, Spáni.... 6.55
4. Alex Zuelle, Sviss......... 7.30
5. Rincon..................... 8.15
6. Luc Leblanc, Frakklandi. 9.47
7. Vicente Aparicio, Spáni. 10.49
8. Luis Perez, Spáni......... 11.21
9. Femando Escartin, Spáni. 13.19
10. Paolo Lanfranchi, Italíu. 13.45
GOLF
Grafarholt opnað
Grafarholtsvöllur verður opnaður á morgun
með g;olfmóti og verður keppt um Arneson-
skjöldinn. Leiknar verða 18 holur með og
án forgjafar, en ræst út frá kl. 09. Skrán-
ing á skrifstofu GR.
■Vormót Hafnarfjarðar verður á laugar-
og sunnudag á Keilisvellinum í Hafnarfirði.
Keppnisfyrirkomulag er 36 holu höggleikur
með og án forgjafar í karla og kvenna-
flokki. Ræst verður út frá kl. 8.
FELAGSLIF
Afmæliskaffi Vals
Afmælisdagur Knattspyrnufélags-
ins Vals er í dag, 11. maí. í tilefni
dagsins er opið hús milli kl. 17 og 19
í nýja félagsheimilinu að Hlíðarenda,
þar sem boðið verður upp á kaffiveit-
ingar.
Ráðstefna ÍSÍ um
kvennaknaftspyrnu
Umbótanefnd ÍSÍ gengst fyrir ráð-
stefnu um kvennaknattspyrnu á ís-
landi í félagsheimili Víkings, Víkinni,
laugardaginn 14. maí. Ráðstefna hefst
kl. 13 og lýkur um kl. 15.30. Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, Brynja
Guðjónsdóttir og Bryndís Valsdóttir
flyta framsöguerindi, en að þeim lokn-
um verða pallborðsumræður. Ráð-
stefnan er öllum opin án endurgjalds.