Morgunblaðið - 12.05.1994, Page 39

Morgunblaðið - 12.05.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994 39 ' MINNINGAR KRISTÍN SIG URÐARDÓTTIR Kristín Sigurð- ardóttir, Sörla- skjóli 17, Reykja- vík, var fædd í Reykjavík 12. apríl I 1907. Hún lést í I Reykjavík 4. maí 1994. Foreldrar Kristínar voru Sig- urður Þorsteinsson verslunarmaður og Amalía Sigurðar- dóttir húsmóðir. Hún var elst þriggja systkina, hin voru Sverrir lyfjafræðingur og Þuríður Ragna húsmóðir, bæði | látin. Kristín giftist Þorgrími Kristinssyni bifreiðastjóra 12. nóvember 1938. Hann lést fyrir þrem árum. Þau eignuðust tvö börn, Sigurð barnalækni og Amaliu Rögnu hjúkrunarfræð- ing. Sigurður er kvæntur Þor- björgu Skarphéðinsdóttur og eiga þau þrjú börn, Þorgerði Elínu, Kristínu og Arna Grím. Amalía Ragna er gift Halldóri Tjörva Einarssyni kennara og | eiga þau fimm börn, Kolbrúnu, Hrafnhildi, Heiðu Björk, Þor- grím Tjörva og Elías Tjörva. útför Kristínar verður gerð frá Neskirkju föstudaginn 13. maí. Á ÆVISKEIÐI sínu átti Kristín tengdamóðir mín að fagna góðri heilsu þar til á síðastliðnu ári að J alvarleg veikindi urðu til þess að s hún var lögð á sjúkrahús. Þaðan : átti hún ekki afturkvæmt á heimili I sitt. Kristín var Reykvíkingur í húð og hár, fædd í Bankastræti en heim- ili foreldra hennar var lengst af við Laufásveginn. Hún átti til góðra að telja, langafi hennar var Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóðólfs en sem kunnugt er var hann einn þeirra sem börðust hart fyrir sjálf- I stæði lands og þjóðar. Hún gekk í Miðbæjarbarnaskól- I ann, Kvennaskólann í Reykjavík og * síðar í hússtjórnarskóla í Dan- mörku. Á æskuárunum tók hún átt í kristilegu starfi KFUK og það var mikill ljómi í huga hennar þegar þetta æviskeið bar á góma. Valur var íþróttafélagið hennar á þessum árum og henni þótti vænt um þann félagsskap. En það sem hæst bar í námi og þroskaferli hennar á æskuárum var dvölin í Danmörku. Móðir hennar var hálf- dönsk og þannig lágu rætur Kristínar með vissum hætti í Dan- mörku. Hún talaði dönsku og las ávallt mikið á því máli. Hún var góðtemplari og reyndist trú hugsjónum þeirra alla tið og var heiðursfélagi í þeim fé- lagsskap. Tengdamóðir mín sýndi afkomendum sín- um mikið kærleiksþel og gladdist yfir þroska þeirra og árangri í námi og starfí. Hún var mikil hannyrða- kona og henni var ljúft að miðla því til afkomenda sinna. Samfylgd okkar Kristínar hefur staðið í 27 ár og átti ég í henni traustan og góðan vin. A'hátíðar- stundum báru tengdaforeldrar mín- ir birtu og yl á heimili okkar. Mér eru minnisstæðar heimsóknir þeirra þegar við dvöldumst með börnin okkar erlendis. Þá þótti Kristínu gaman að riíja upp dönskuna sína í samræðum við verslunar- og þjón- ustufólk. Nú þegar samfylgdinni er lokið og Kristínar og Þorgríms er ekki lengur von ríkir söknuður og mikil eftirsjá í fjölskyldu minni. Um árabil starfaði Kristín í versl- un Haraldar Árnasonar við Austur- stræti. Reykvíkingar á miðjum aldri og eldri muna vel þessa verslun, hún hafði á sér alþjóðlegan blæ og húsbóndinn gerði miklar kröfur til starfsmanna sinna. Kristínu var ljúft að hugsa til þessara ára í Haraldarbúð. í starfí á þeim stað nutu sín vel prúðmennska hennar og gáfur. Það'segir sína sögu um hvern mann Kristín hafði að geyma að kaupmaðurinn í Haraldarbúð mat hana mikils. Eftir að Kristín hætti verslunarstörfum sinnti hún heimili sínu að þeirra tíðar hætti en í mörg ár vann hún jafnframt við fiskvinnslu. Hún studdi mann sinn og börn til allra góðra verka. Þegar hún nú er fallin frá er líf hennar allt þakkarefni. Ung að árum gekk hún í flokk þar sem hún og jafnöldrur hennar sungu Guði lof. Veri hún þeim góða Guði falin. Þorbjörg Skarphéðinsdóttir. i ] I I 5 I I i I i 6rænland<dayur í norrgna hutinu Ferðalojnnínfar - náttúrufar - <a?a - veiði o? ævintýraferðir Grænlensk-íslenska félagið Kalak mun, ásamt fyrirtækjum í ferða- þjónustu, standa fyrir Grænlandskynningu í Norræna húsinu á uppstigningardag, 12. mai 1994. Boðið verður upp á fjölbreytt dagskrá í sal en í anddyri munu ferðaþjónustuaðilar kynna ferðir og ferðamöguleika á Grænlandi og dreifa bæklingum. Ferðagetraun, þar sem í boði verða ferðavinningar til Grænlands, Sýning verður á selskinnspelsum og minjagripum frá Grænlandi. f gangi verða myndasýningar með nýlegum myndum frá Grænlandi. Dagskrá: Kl. 13.00 Húsiðopnað. Kl. 14.00 Grænlenskur kór syngur nokkur lög. Kl. 14.30 Guðmundur Ólafsson, fomleifafræðingur: Forn bær í frera - sagt frá nýjum fomleifarannsóknum í Vestribyggð á Grænlandi. Kl. 15.00 Ingvi Þorsteinsson, náttúmfræðingur: Ferðast um Suður-Grænland - frásögn í máli og myndum. Kl. 15.30 Bjami Olesen, leiðsögumaður: Veiðiferðir á Suður-Grænlandi - sagt frá sportveiðiferðum, stangveiði og skotveiði. Kl. 16.00 Ólafur Öm Haraldsson, landfræðingur: Skíðaleiðangur yfir Grænlandsjökul - frásögn í máli og myndum. Kl. 16.30 Ingimundur Stefánsson, kvikmyndagerðarmaður: Fjallaleiðangur í Stáningsölpum - stærsti þjóðgarður f heimi. Kl. 17.00 Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur: Ammassalik-svæðið - forvitnilegar ferðaslóðir. Kl. 17.30 Bente Endresen frá Greenland Tourism: Kynning á Ferðamála- ráði Grænlands og þróun í uppbyggingu ferðamála á Grænlandi. flllir velkomnir - Kaffiterian opin - Ókeypit aðyanyur Stjórn Grænlensk-íslenska félagsins Kalak. Weetabix $ MORGNA Háir sem lágir, mjóir sem breiðir, ungir sem aldnir þurfa Weetabix til að halda athygli sinni og starfsgleði í erli dagsins. ÞÚ KEMST LANGT Á EINNI KÖKU. ( EINNIG A SUNNUDÖGUM > ÖRKIN1012-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.