Morgunblaðið - 12.05.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ1994 49
Silungapollur
Sandskeið
UPPSTIGNINGARDAG 12.
maí verður farinn fjórði áfangi
lýðveldisgöngu ferðafélagsins.
Þriðja áfanga lauk með kvöld-
göngu eftir bökkum Suðurár að
Silungapolli, en nú verður haldið
þaðan upp á Sandskeið.
Við höldum yfir Hólmshraun
III, en Hraunsnef heitir þar sem
hraunið nær lengst í norður en
norðan Suðurlandsvegar eru mest
áberandi húsin á Gunnarshólma,
býli sem Gunnar Sigurðsson,
kaupmaður í versluninni Von,
stofnaði um árið 1930. Þar fyrir
norðaustan er eyðibýlið Elliðakot
við brún Mosfellsheiðar. Þaðan
liggur gamla þjóðleiðin Dyravegur
yfir að Nesjavöllum í Grafningi,
en við förum fyrst um sinn gamia
þjóðleið um Lækjarbotna undir
Selfjalli.
I Lækjarbotnum standa nokkur
hús, m.a. sumarbústaðir, veglegur
skátaskáli og hús starfsmanna-
félags íslandsbanka, en austar er
barnaheimilið Kópas-
el í dalnum Dýrðard-
al.
í klettagili Botna-
lækjar sem íennur
um Lækjarbotna er
hellisskúti er sumar
heimildir tengja
sakamáli tveggja
ógæfusamra ein-
staklinga er lögðust
út á þessum slóðum
á síðari hluta 18. ald-
ar. Fyrir norðan
Lækjarbotna heita
Lækir og þar eru litlir gervigígar
rétt við veginn er nefnast Trölla-
börn eða Tröllarassar.
Nafnið Selfjall er dregið af
Örfiriseyjarseli er var við Lækjar-
botna, en lagt af fyrir um 200
árum. Fyrir austan Lækina hækk-
ar landið, á vinstri hönd norðan
Suðurlandsvegar er
gamli áningarstaður-
inn Lögberg, en
sunnan hans er Tún-
hóliinn með grafreit
bóndans á Lögbergi.
Um Fossvallaklifið
hjá Lögbergi var Suð-
urlandsvegurinn
lagður ofan á gömlu
reiðgöturnar sem
markast höfðu í ald-
anna rás. Haldið er
inn á Fossvellina um
Lakheiði og Mosa að
Vatnaásnum. Vatnaásinn skiptir
Fóellu- eða Fóvelluvötnum í Efri-
og Neðri-Vötn. Vatnsmagn á
þessum slóðum er mismunandi
bæði eftir árstíðum og árum. Því
var trúað áður fyrr að veðurfar
komandi sumars mætti ráða af
vatnsmagni Fóelluvatna á vorin.
Ef mikið vatn var í þeim t.d. um
Jónsmessuna var það talið vita á
gott sumar (sjá nánar árbók FÍ
1985 bls. 1939). í Vatnaásnum
eru rústir gamals sæluhúss er
reist var nokkru fyrir 1840. Það
veitt mörgum ferðamanninum
skjói í nær heila öld. Hér fyrir
austan er svo lokatakmark þessa
áfanga, Sandskeið, en í þeim
næsta verður haldið að Drauga-
tjörn þar sem eru rústir elsta
sæluhússins á þessum slóðum.
Móbergsklettarnir Arnarþúfur
eða Arnarnýpur eru sunnan við
svifflugvöllinn á Sandskeiði, en
hægra megin við okkur eftir að
Selfjalli sleppti höfum við haft
Sandfell sem er nokkuð rismeira
fjall og enn hærra rís Vífilsfell í
suðaustri. í gönguna á fimrntu-
daginn er brottför frá BSI, austan
megin, og Mörkinni 6 kl. 13.
-
Félag starfsfólks
í veitingahúsum
Pizzusendl-
ar verði á
launaskrá
SKORAÐ hefur verið á eigendur
pizzafyrirtækja með heimsending-
arþjónustu að færa alla skráða verk-
taka sem starfa við heimsendingu á
pizzum á launaskrá frá 1. maí.
Er áskorunin frá formanni Félags
starfsfólks í veitingahúsum, Sigurði
Guðmundssyni, og Guðbirni Jónssyni
umsjónarmanni um launamál. Segir
að nokkuð mikil brögð hafi verið að
því að fyrirtæki sem starfa við sölu
og heimsendingu á pizzum hafi skráð
starfsfólk sitt sem verktaka. Þess
hafi hins vegar ekki verið gætt að
fylgja settum reglum um álagspró-
sentu ofan á launalið eða að uppfylla
skilyrði um tilskilin leyfi. Sagt er að
störf þessi séu í eðli sínu störf launa-
fólks.
Án leyfa til að reka
atvinnubifreið
Bent er á að verktakastarfsemi
við heimsendingar á pizzum sé háð
tilskildum leyfum til að reka atvinnu-
bifreið og samkvæmt upplýsingum
frá ijármálaráðuneytinu getur
starfsmaður ekki selt þjónustu sína
sem aðili í vöruflutningum án þess
að uppfylla skilyrði laga um leigubif-
reiðar. Sé verktakastarfsemi við
heimsendingar á pizzum eins og hún
hefur verið framkvæmd því óheimil.
Er skorað á fyrirtækin að færa alla
skráða verktaka á launaskrá frá og
með 1. maí svo ekki þurfi að koma
til árekstra vegna brota á starfsregl-
um, eins og segir í orðsendingunni.
12.5. 1994 Nr .. 383
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0021 1919
4507 4500 0022 0316
4543 3700 0009 7116
4543 3700 0008 7588
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Algreiðslutólk vinsamlegast takið ofangreind
kwl úr umferö og sendið VISA istandi
sundurklippt.
VEHDUUN kr. 5000,-
lyrir að klótesta kort og visa á vágest.
I 'tt. mUJHWflg
Álfabakka 16-109 Reykjavík
Sfmi 91-671700
'
Linda Pétursdóttir leggur sig alla fram hvort sem þaö er fyrir framan myndavélar
Ijósmyndaranna eöa í keppni við happdrættisvélar Gullnámunnar. Hún setur að sjálfsögöu
stefnuna á Silfurpottinn eöa Gullpottinn og þó svo
hljóti ekki alltaf sigur, þá veit hún aö málefniö er gott.
í Gullnámunni reynir á heppni hvers og eins.
Stundum vinnur þú - stundum vinna allir, því í hvert
sinn sem spilað er nýtur Háskóli íslands góös af.
V)S/ZC'eSJ VQOA