Morgunblaðið - 21.05.1994, Side 1

Morgunblaðið - 21.05.1994, Side 1
72 SIÐUR LESBOK/C 113. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. MAÍ1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Jacqueline syrgð TVEIR aðdáendur krjúpa við innganginn að húsi Jacqueline Kennedy Onassis við Central Park í New York, en hún lést þar aðfaranótt föstudags eftir fjögurra mánaða baráttu við krabbamein. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að heimili Jackie, eins og hún var jafnan kölluð, til að votta hinni látnu virðingu sína. Utför hennar fer fram í kyrrþey. ■ Drottning/27 Kósakkar sagðir tilbúnir til að berjast gegn Ukraínuher Krímarþing ögr- ar Ukraínustiórn Simferopol. Reuter. ÞINGIÐ á Krím kynti undir deilunum við Úkraínustjórn í gær þegar það sam- þykkti að vekja upp stjórnarskrána frá 1992 og segja sig að nokkru úr lögum við stjórnina í Kænugarði. Er þar meðal annars kveðið á um krímverskt ríkisfang og sérstakan her. Starfandi forsætisráð- herra kvaðst í gær hlynntur því, að Leo- níd Kravtsjúk, forseti landsins, kæmi á beinni forsetastjórn á Krím. Rússar, sem eru mikill meirihluti íbúa á Krim, samþykktu í þjóðaratkvæða- greiðslu í mars að efla tengslin við Moskvu og á þingi í gær var samþykkt að endurvekja stjornarskrána frá 1992 með 69 atkvæðum gegn aðeins tveimur. Urðu aðeins fáir til að vara við því og sögðust óttast, að verið væri að efna til sama ástands á Krím og í Nagorno-Kara- bakh. Aðrir ræðumenn sögðu, að farið væri með Rússa í Úkraínu sem þræla og þing- maðurinn Alexander Krúglov sagði, að 8.000 rússneskir kósakkar væru reiðu- búnir að ráðast inn á Krím, reyndi Úkra- ínuher að taka völdin. Aðeins kommúnist- arnir tveir, sem sitja á þingi, voru á móti því að taka aftur upp stjórnarskrána frá 1992 og fulltrúar tatara sátu hjá. Þing Úkraínu nam stjórnarskrána úr gildi síðar um daginn. Jefím Zvyagílskíj, starfandi forsætis- ráðherra Úkraínu, sagði í gær, að hann væri hlynntur beinni forsetastjórn á Krím og Mykola Míkhaltsjenko, helsti ráðgjafi Kravtsjúks, sagði, að nú hefði Krímarþing gengið of langt. Hann kvaðst þó ekki búast við blóðsúthellingum. Þingið á Krím iagði stjórnarskrána frá 1992 á hilluna eftir að Úkraínustjórn hét því miklu sjálfræði i eigin málum en þjóð- erniskennd Rússanna hefur aukist eftir því sem efnahag ríkisins hefur hnignað. Á Krím er mikið um eftirlaunaþega, sem búa við afar bág kjör. Kravtsjúk ræddi í fyrradag í síma við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, um ástandið á Krím og þeir voru sammála um, að hernaðaríhlutun kæmi ekki til greina. Úkraínustjórn hefur ekki vænt Moskvustjórnina um bein afskipti. Hún segir hins vegar, að ýmis önnur öfl í Rússlandi rói undir með rússneska meiri- hlutanum á Krím. Færeyjar Jafnaðar- mönnum spáð tapi Þórshöfn. Morgunblaðið. SAMKVÆMT nýjustu skoðana- könnunum tapar Jafnaðarflokkur- inn, stærsti flokkur færeysku land- stjómarinnar, miklu fylgi í kosning- unum í júlí. Lögþingið samþykkti á fimmtu- dagskvöld að boðað skyldi til kosn- inga sem fyrst og þær verða að öllum líkindum 5. júlí. Samkvæmt könnunum er líkleg- ast að Sambandsflokkurinn, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, verði sigurvegari kosninganna. Flokkur- inn fær 14 þingmenn af 32, en Jafnaðarflokkurinn, sem var með 10 þingsæti, fær 4-5 þingmenn, ef marka má kannanirnar. Efnahagskreppan í Færeyjum er helsta ástæða fylgistaps Jafnaðar- flokksins, sem hefur veitt land- stjórninni forystu síðustu ár. Reuter Solzhenítsyn snýr heim Moskvu. Rcutcr. ALEXANDER Solzhenítsyn, mesta núlifandi skáld Rússa, ætlar að snúa aftur til föðurlandsins síð- ar í þessum mánuði, 20 árum eftir að KGB, sovéska leyniþjónustan, handtók hann, svipti ríkisborgara- rétti og sendi í útlegð á Vesturlönd- um. Aðdáendur hans í Rússlandi munu fagna komu þessa manns, sem lýsti í ritum sínum kúgun Stal- íntímans, en það er ekki víst, að þessi persónugervingur rúss- neskrar dulhyggju og ástar til Móður Rússlands verði jafn ánægður með það, sem við blasir í hinu nýja Rússlandi. Sumir óttast, að heim- koma Solzhenítsyns, sem lýsti einu sinni vestrænni popptónlist sem „forar- hlandi, sem seitlað hefði undir járntjaldið", verði martröð líkust fyrir hann. Hið nýja Rússland Merce- des Benza og betlara er ekki það, sem hann hefur látið sig dreyma um. Of- beldi, skipulögð glæpa- samtök og klám eru nú helsta fréttaefnið og nýleg könnun í Pét- ursborg sýndi, að marga drengi dreymir um að verða glæpamenn og stúlkurnar að selja sig fyrir dollara. „Það skyggir helst á heimkomuna hvað við líð- um fyrir ástandið í land- inu,“ sagði Natalja Ðmítrí- evna, eiginkona Solzhenit- syns, en þegar leitað var álits Rússa á ákvörðun skáldsins sögðu níu af Solzhenítsyn hverjum tíu að hann væri btjálaður að koma heim. Solzhenítsyn, sem er 75 ára, bjó í Bandaríkjunum í útlegðinni og flutti þar margan reiðilesturinn um vestræna úrkynjun. Hert eftir- lit á Gaza Palestínskar og ísraelskar örygg- issveitir hefja sameiginlegt ör- yggiseftirlit á Gaza-svæðinu í dag eftir að heittrúaðir múslimar drápu tvo ísraelska hermenn í Israel, nálægt landamærunum að Gaza, í gærmorgun. Þúsundir palestínskra lögreglumanna höfðu tekið við löggæslunni á Gaza og í Jeríkóborg á Vestur- bakkanum, samkvæmt friðarsam- komulagi ísraela og Palestínu- manna frá 4. þessa mánaðar. Myndin er af palestínskum lög- reglumanni og múslimum á bæn við mosku í Jeríkó. Ofbeldið tíðast hjá Finmim Helsinki. Reuter. FINNAR eru miklu ofbeldis- hneigðari en aðrar þjóðir í Vest- ur-Evrópu, samkvæmt könnun finnska afbrotafræðingsins Jussis Pajuoja. Pajuoja sagði að Finnar væru tvisvar til fimm sinnum líklegri tii að grípa til ofbeldis en þjóð- irnar í Evrópusambandinu. Af- brotafræðingurinn sagði að mið- að við hvetja þúsund íbúa hefði 3,1 maður orðið fyrir árásum í Finnlandi árið 1'992. Næsthæst er þetta hlutfali á Ítalíu, 2,2, og lægst á írlandi, 0,6. 80% ofbeldisseggjanna í Finnlandi voru undir áhrifum áfengis. Kennsla í háttvísi Oxford. Thc Daily Tclcgraph. ERLENDUM enskunemum í Oxford í Englandi verður gert að læra listina að bíða í röðum vegna tíðra deilna sem komið hafa upp þegar nemar troða sér fram fyrir borgarbúa í biðröð- um. Um 6.000 enskunemar koma tii borgarinnar á viku hverri á sumrin og íbúarnir hafa fengið sig fullsadda á því að útlending- ar troði sér fram fyrir þá í bið- röðum við strætisvagna, versl- anir og kvikmyndahús. Nefnd á vegum málaskólanna í Oxford hefur af þessum sökum sent bréf til allra enskukennar- anna og mælst til þess að út- lendu nemunum verði kennd grundvallaratriðin í breskri háttvísi, einkum listin að bíða í röðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.