Morgunblaðið - 21.05.1994, Side 16

Morgunblaðið - 21.05.1994, Side 16
16 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Páll Hjálmarsson kjötmeistari 1994 frá Kjötiðnaðarstöð KEA Akureyri tekur við viðurkenningu frá Halidóri Biöndal landbún- aðarráðherra. Kjötmeistari 1994 Gullverðlaun fyrir vínarpylsur UM síðustu helgi var haldin fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna í annað skipti og 43 einstaklingar frá 17 fyrirtækjum sem tóku þátt í henni og sendu inn 130 vörur í keppnina. Keppnin sjálf fór fram í Digra- nesskóla á sýningunni Matur ’94 um síðustu helgi. Páll Hjálmarsson frá Kjötiðnað- arstöð KEA á Akureyri varð stiga- hæstur með 282 stig af 300 mögu- legum og hlaut titilinn Kjötmeistari 1994. Hann fékk gullverðlaun fyrir vínarpylsur, Pedersen-salami, úr- beinað hangilæri, reyktan lax og bronsverðlaun fyrir sviðasultu. í dómnefnd voru fimm kjötiðnað- armeistarar og einn matvælafræð- ingur. Yfirdómarinn var frá Dan- mörku, tveir frá Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna, einn frá Iðnskól- anum í Reykjavík, einn frá RALA og matvælafræðingur frá Samtök- um iðnaðarins. Af 130 vörum fengu 75 verðlaun, 18 fengu gull, 26 silf- ur og 31 brons. í flokki hrárra og soðinna kjöt- vara var keppnin hörð og meistari varð Hrönn Káradóttir frá Kjötiðju KÞ Húsavík fyrir úrbeinaðan hangi- frampart. Páll Hjálmarsson kjötmeistari ársins hlaut þau einu gullverðlaun sem veitt voru fyrir soðnar matar- og áleggspylsur. Hann hlaut verð- launin fyrir vínarpylsur. Fyrir framleiðslu á hrápylsum hlaut Jónas F. Hjartarson frá Meist- aranum verðlaun fyrir Salamipylsu. Jónas F. Hjartarson varð einnig meistari í framleiðslu á kæfum og patéum. Hann hlaut titilinn fyrir hreindýrapaté. Sérstakur flokkur er fyrir blóð- pylsur og kjötsultur. í þeim flokki fengu þtjár vörur gull en meistara- titilinn hlaut Ævar Austfjörð hjá Kjötiðnaðarstöð KEA á Akureyri fyrir blóðmör. Síðasti flokkur er fyrir sérvörur og nýjungar. Þar hlutu þrjár vörur guilverðlaun en flokkstitillinn fór til Arnars Sverrissonar hjá Síld og Fiski fyrir hráskinku. Katla veitti verðlaun fyrir athygl- isverðustu nýjungina og hreppti þau Kristján R. Arnarsson frá Kjötiðju KÞ Húsavík fyrir svartfuglapaté með rósahlaupi. REYKJAVIKUR LISTINN Ertu að fara úr bænum? Reykjavíkurlistinn hvetur alla stuöningsmenn sína sem verba ab heiman á kjördag til ab kjósa ábur en þeir fara. Utankjörfundarkosning fer fram í Ármúlaskólanum alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 (lokab hvítasunnudag). Skrifstofa Reykjavíkurlistans ab Laugavegi 31 veitir allar naubsynlegar upplýsingar varbandi utankjörfundarkosninguna og kjörskrá. m Komib vib hjá okkur eba hafib samband í síma 15200 og 15241. (Bréfsími 15246). Laugavegi 31 - Sími 15200- Bréfasími 16881 NEYTEIMDUR Verðkönnun vikunnar ls, ís með dýfu eða ís með dýfu og hrískúlum R I S A í S . I tlí B A R N CO < S T Ó R í s ís með ' með dýfu og hrís- ís _ með dýfu T.. oq hrís- dýfu kúlum ayru kúlum 50,- 60,- 90,- 80,- 95,- 130,- 50,- 60,- 90,- 120,- 135,- 170,- 55,- 60,- 80,- 80,- 95,- 105,- 60,- 70,- 80,- 100,- 120,- 130,- 60,- 70,- 90,- 90,- i O o T” 130,- 60,- 75,- 90,- 90,- 110,- 130,- 60,- 75,- 100,- 90,- 110,- 140,- 70,- 80,- 100,- 100,- 110,- 130,- 80,- 90,- 110,- 110,- 120,- 140,- 80,- - - 110,- - - 90,- 100,- - 130,- 145,- - 90,- 100,- - 100,- 110,- - 100,- 110,- - 130,- 145,- - 110,- 125,- 125,- 140,- 170,- 170,- 120,- 130,- 140,- 160,- 185,- 210,- 130,- 150,- 170,- 160,- 180,- i O o C\J 130,- 145,- 165,- 170,- 190,- 210- 130,- 150,- - 170,- 190,- - 130,- 150,- - 150,- 170,- - 135,- 160,- 180,- 160,- 190,- 210,- 145,- 160,- 175,- 175,- ro o o 225,- 150,- 170,- 190,- 170,- 190,- 210,- 160,- 185,- - 195,- 225,- _ I íshöllin Melhaga 2, Reykjavík ísbúðin Kringlunni, Reykjavík ísbúðin Álfheimum 2, Reykjavík ísbúð Vesturbæjar Hagamel, Reykjavík* ísbúðin Síðumúla 35, Reykjavík Skalli v. Reykjavíkun/eg, Hafnarfirði Skalli Laugalæk 6, Reykjavík Bræðraborg, Hamraborg, Kópavogi Dairy Queen Hjarðarhaga 47, Reykjavík Shell-skálinn Egilsstöðum Ó.K. v. Ólafsbraut, Ólafsvik Nesti Ártúnshöfða, Reykjavík Bjamabúð v. Brautarskóla Biskupstungum Söluskáli Olís Selfossi ísbúðin Kaupvangsstræti 3, Akureyri Hyrnan v. Brúartorg, Borgarnesi Fossnesti v. Austurvag, Selfossi Griilskálinn v.Ólafsbraut, Ólafsvík v. Aðalgötu, Stykkishólmi Ferstikluskáli Hvalfirði Kaffiterían Perlunni Reykjavík Hamraborg v. Hafnarstræti, Isafirði Eden Hveragerði * í ísbúð Vesturbæjar í Reykjavík kostar sléttfullt ísform fyrir yngstu börnin kr. 10-20,- . með dýfu ís 52® og hrís- kúlum 110,- 130,- 160,- 150,- 170,- 210,- 120,- 145,- 170,- 130,- 150,- 170,- 200,- Verðstríð í Reykjavík Ó.K. við sömu götu. Af sölustöðum utan Reykjavíkur, býður Shell- skálinn á Egilsstöðum ódýrasta ísinn, en þar er ekki hægt að fá súkkulaðidýfu. Sölustaðir voru valdir af handa- hófi og að gefnu tilefni skal tekið fram að hvorki er tekið tillit til þess hversu stór ís er á hverjum stað, hversu þéttur hann er, hvern- ig þjónusta er á sölustöðum eða aðstaða þar. ís er mun ódýrari í Reykjavík en annars staðar á landinu sam- kvæmt verðkönnun sem Brynja Tomer gerði á nokkrum sölustöðum á landinu IS í brauðformi er almennt um helmingi ódýrari í Reykjavík en á landsbyggðinni. Ishöllin á Melhaga í Reykjavík reyndist selja ódýrasta ísinn af sölustöðum í þessari könnun. Dýr- asti ísinn á höfuðborgarsvæðinu er samkvæmt könnuninni seldur á kaffiteríunni í Perlunni, þar sem stór ís í brauðformi með súkku- laðidýfu kostar 200 kr. í íshöll- inni, þar sem hann er ódýrastur, kostar hann hins vegar 95 kr. Söluaðilar í Reykjavík neituðu því ekki að verðstríð ríkti milli þeirra, en ekki kváðust þeir sem spurðir voru reiðubúnir til að lækka verðið enn frekar. Augljós verðmunur er á ís milli tveggja söluaðila á Selfossi og í Ólafsvík. Verð í söluskála Olís er til dæmis lægra en í Fossnesti sem er í sömu götu. Þá er bamaís í Grillskálanum í Ólafsvík jafn dýr og stór ís í Treysta sér ekki til að keppa um verð Nokkrir íssalar utan Reykjavíkur sögðust ekki sjá sér fært að keppa við ísverð á höf- uðborgarsv æðinu, „enda er það ósiðlega lágt og á örugglega eft- ir að koma einhverjum þessara manna í kolI,“ sagði einn viðmæland- inn. Sumir sögðu að lágt ísverð í Reykjavík gerði að verkum að erfitt og leiðinlegt væri að af- greiða Reykvíkinga, því þeir kvörtuðu gjarnan undan háu verði og teldu að verið væri að okra á þeim. ísbúðin í Álfheimum vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum, því þá var ís seldur þar á tals- vert lægra en tíðkast hafði. Nú er sú ísbúð ekki lengur sú ódýr- asta, heldur hefur íshöllin á Mel- haga skotist fram fyrir. Barnaís í Kringlunni er á sama verði og í íshöllinni, en stærri ísar eru mun dýrari í Kringlunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.