Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 17 Nýjung Efni dregur úr hættu á hálku slysum í böðum ALÞJÓÐA verslunarfélagið hf. hefur byijað að flytja inn nýtt bandarískt efni á gólfflísar, keramik og marm- ara til að draga úr slysahættu. Efn- ið hefur þann eiginleika að yfirborð gólfa og flísa verður stamt í bleytu án þess að breyting verði á áferð. Fyrirtækið tekur 3ja ára ábyrgð á gólfí sem meðhöndlað hefur verið einu sinni að því tilskildu að notuð séu sérstök hreingerningarefni. Magnús Jónatansson, frkvstj. sagði að mörg slys í heimahúsum yrðu þegar fólk hrasaði í sturtubotn- um og böðum. Einnig mætti nota efnið á sundstöðum, íþróttahúsum, fískvinnslustöðum, hótelum og veit- ingahúsum þar sem fólk rynni oft á hálum gólflísum. Tekist hafa samn- ingar við Félag eldri borgara til 3ja ára um að bjóða 7.300 félagsmönn- um þessa þjónustu. Hafa um eitt hundrað baðherbergi hérlendis verið meðhöndluð með hinu nýja efni. Fyrirtækið hefur fengið heimild frá bandaríska framleiðandanum til að markaðssetja efnið í allri Evrópu og hefur þegar verið gengið frá samningum um dreifingu þess í Sví- þjóð og Noregi. Hann gat þess að sænska fyrirtækið hefði sent skeyti til páfans í Róm eftir að fréttir bár- ust af því að hann hefði fótbrotnað er hann hrasaði í baðkeri. Páfa stæði nú til boða að láta bera efnið á bað- ker og gólf í sínum híbýlum til að draga úr slysahættu. Fyrirtækið hefur auglýst eftir dreifíngaraðilum hér til að annast sölu efnisins og mun halda námskeið til að kenna hvemig eigi að standa að sölu og meðferð efnanna. Fyrirtæki, sem leitar uppi ódýrustu tilboðin Kaupmannahöfn. Morgunblaðið TVÆR stúlkur í Árósum hafa komið auga á hvaða möguleik- ar liggja í verðþjónustu og stofnað Verðsveitina, „Prispa- truljen". Gegn vægu gjaldi taka þær að sér að leita uppi lægsta verð á ákveðinni vöru eða þjónustu. Hver meðal Dani getur hæg- lega orðið andvaka, ef hann hefur nýlega keypt sér sjónvarp með kostakjörum og kemst svo að því að nágranninn hefur keypt alveg eins sjónvarp, en á lægra verði. Og honum er líka vorkunn. Jafnvel þó maður sjái af tíma í að leita uppi góð tilboð, er seint fullleitað. Hugmynd stúlknanna fædd- ist yfir kaffibolla í Árósum og þær létu ekki sitja við orðin tóm, heldur hrintu Verðsveit- inni í framkvæmd. Fyrirtækið starfar þannig að viðskiptavin- ur hringir og gefur nákvæm- lega upp hvaða vöru eða þjón- ustu hann er á höttunum eftir og hvaða verð hann hefur fund- ið. Fyrirtækið leitar svo með því að hringja í búðir og fyrir- tæki. Ef tekst að finna lægra verð en það sem viðskiptavin- urinn hafði fundið tekur fyrir- tækið 30% af sparnaðinum fyr- ir sinn snúð. Eina skilyrðið er að varan eða þjónustan verður að kosta meira en sem sám- svarar 5 þúsund ísl. kr. Það segir sig því sjálft að það svar- ar ekki kostnaði að leita að lægsta verði á tannbursta eða tyggigúmmíi í lausa- sölu. Velgengni fyrir- tækisins byggir að nokkru á viðbrögð- um seljenda en í upphafi kviðu stúlkurnar að þau yrðu dræm. Sú hefur ekki orðið raunin nema síður sé. Ýmis fyrirtæki senda þeim reglulega verðlista svo þær geti fylgst með. Og viðskipta- vinir hafa ekki látið á sér standa, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Það liggur í augum uppi að þjónustan kemur sér vel fyrir þá sem eru að leita að dýrari hlutum, því það getur verið tímafrekt að leita að ódýrasta tilboðinu og nánast ómögulegt, ef viðkomandi þekkir markaðinn ekki því bet- ur. Svo er bara að sjá hvort þessi snjalla hugmynd breiðist út. Finna lægsta verð á vöru eða þjónustu MATAK- X VlNKUJÍBUR AB ELKERIN 'treiðsla Matar-, og vínklúbbur AB' sameinast Heimsmynd MATAR- og vínklúbbur Almenna bókafélagsins er að taka nokkrum breytingum þessa dagana. Hefur verið ákveðið að hætta útgáfu mat- reiðslubókanna sem hafa komið út reglulega í ár og mun matar- og vínumfjöllunin nú færast yfir á síð- ur tímaritsins Heimsmyndar. Matar- og vínklúbburinn hefur verið starfræktur í eitt ár og tólf matreiðslubækur hafa verið gefnar út á þeim tíma. Jafnframt hefur fylgt bókunum fylgiritið Sælkerinn en þar hafa verið fréttir til klúbb- félaga, allskyns sértilboð í verslun- um og á veitingastöðum, kynningar á sælkeraferðum erlendis, nám- skeið, uppskriftir og svo framvegis. Sigurður Hall hefur ritstýrt Sæl- keranum og aðlagað uppskriftimar í bókunum að íslenskum aðstæðum. Sælkerinn verður nú aftasti hluti Heimsmyndar, nokkurskonar mat- arblað með Heimsmynd. Þar sem Sælkerinn verður hluti af Heims- mynd verða allir þeir sem voru áskrifendur að Heimsmynd eða matar- og vínklúbbi AB sjálfkrafa félagar í matar- og vínklúbbnum með þeim fríðindum sem fylgja og fá að sjálfsögðu Heimsmynd líka. í Sælkeranum verða uppskriftir frá Sigurði Hall matreiðsiumeist- ara, frá Matreiðslumeistaranum á Stöð 2 auk þess sem byijendaþáttur verður í blaðinu og töluverð áhersla lögð á grillmat. Fimm einstaklingar verða í hveiju blaði fengnir til að smakka á hinum ýmsu tegundum af vínum og í byijun eru það Einar Thorodd- sen, Hörður Siguijónsson á Naust- inu, Sigurður Hall, Sigríður Péturs- dóttir og Hafsteinn Egilsson á Naustinu sem bragða á veigum. Áfram verður veitingahús mán- aðarins kynnt og í fyrsta tölublað- inu verður niðurstaðan kynnt á gæðakönnun sem klúbbfélagar hafa gert á veitingahúsum síðast- liðið ár. Veitingahús ársins verður kynnt og ennfremur níu önnur veit- ingahús sem komu best útúr könn- uninni. Haldið verður áfram með ýmis tilboð sem tengjast veitingahúsum, verslunum, ferðum og námskeiða- haldi. Sigurður mun ritstýra Sæl- keranum áfram og hefur ráðið sér aðstoöarmann Sigríði Pétursdóttur en ritstjóri Heimsmyndar er Vilborg Einarsdóttir. Garðúðunarmenn þurfa að sýna leyfi NÝJAR reglur um úðun garða gera ráð fyrir að enginn hafi heimild til að stunda garðaúðun í atvinnuskyni nema með leyfí frá Hollustuvernd ríkisins. Þeir sem fá leyfi skulu bera á sér skírteinin og framvísa þeim þegar menn óska þess. Þessar reglur gengu í gildi 4.maí sl. Sigurbjörg Gísladótt- ir hjá eiturefnasviði Hollustuverndar ríkis- ins sagði að hér væri á ferð endur- skoðun á 10 ára gömlum reglum. Á árum áður hefðu sterkari og hættulegri efni verið notuð. Síðan hefðu komið ný efni til sögunnar og í sjálfu sér gæti garðeigandi keypt sér úðunarefni og úðað garð sinn sjálfur ef hann hefði nokkra þekkingu á tijám og gróðri. Það hefði viljað brenna við að menn hefðu gefið sig í að úða garða gegn greiðslu án þess að hafa til þess kunnáttu og nýju reglurnar ættu því að koma sér vel fyrir neytendur. Sjálfsagt væri að ítreka að menn sem seldu þessa þjónustu sýndu leyfi því til staðfestingar að þeir hefðu kunn- áttu til að gera þetta á réttan hátt. Uta nk j örstaðaskrifstof a Sjálfstæðisflokksins Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð. Símar: 880900, 880901,880902 og 880915. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í Reykjavík, Ármúlaskóla, alla daga kl. 10-12,14-18 og 20-22. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosningum. Aðstoð við kjörskrárkærur. Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins! Vinsamlega látið okkur vita um alla kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, 28. maí n.k. áfram Opnunarhátíð Kolaportsins í Tollhúsinu i dagl Heimsækið stórkostlegra Kolaport í nýju umhverfi. Fjöldi nýrra seljenda og óvæntar söluvörur á sannkölluðu Kolaportsverði. Á laugardag mun borgarstjóri opna markaðstorgið formlega kl 10. Lúðrablásarar og barnakór auk dansara og tónlistarmanna frá Kramhúsinu verða með stórskemmtilegar uppákomur. Lokað á Hvítasunnudag en opið á mánudag, annan í Hvítasunnu, og þá verður sannkölluð fjölskylduhátíð, uppákomur listamanna og smágjafir fyrir börnin. Opið laugardag kl 10-4 og mánudag kl. 11-5. KOIAPORTK) MARKAÐSTORG Reykjavík ennþá betra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.