Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 29
LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS
Árni Sigfússon borgarstjóri
svarar spurningum lesenda
Árni Sigfússon
borgarstóri í
Reykjavík og efsti
maður á framboðs-
lista sjálfstæðis-
fólks í borgar-
stjórnarkosningum,
sem fram fara 28.
maí næstkomandi,
svarar spurningum
í Morgunblaðinu
um borgarmál í til-
efni kosninganna.
Lesendur Morgun-
blaðsins geta hringt
til ritstjórnar blaðs-
insísíma 691100 á
milli kl. 11 og 12 árdegis, frá
mánudegi til föstudags, og lagt
spurningar fyrir
borgarsijóra sem
blaðið kemur á
framfæri við hann.
Svörin birtast síðan
í þættinum Spurt
og svarað um borg-
armál. Einnig má
senda spurningar í
bréfi til blaðsins.
Utan á bréf skal
rita: Spurt og svar-
að um borgarmál,
ritsljórn Morgun-
blaðsins, pósthólf
3040,103 Reykja-
vík. Nauðsynlegt er
að nafn og heimilisfang spyrj-
anda komi fram.
Ríkisstofnun
Þorsteinn Jónsson, Hátúni 6,
105 Reykjavík, spyr:
Ég er með fullnaðarkvittun fyr-
ir greiðslu á opinberum gjöldum
undirritaða af fyrrverandi yfír-
borgarfógeta Reykjavíkur sem
hann nú vill ekki kannast við né
Gjaldheimtan. Ég vil fá úr því
skorið frá borgarstjóra hvað kvitt-
unin þýðir.
Svar:
Fyrirspurnin er ekki svo greini-
leg að ég treysti mér til að svara
henni, en ég bendi á að borgarfóg-
etaembættið, sem nú er búið að
leggja niður, var ríkisstofnun.
Körfubolti í
Skerjafirði
Árni Sigurðsson, Skildinganesi
12, 101 Reykjavík, spyr:
1. Hefur Reykjavíkurborg
áform um að koma upp aðstöðu
fyrir körfuboltaiðkun í Skerjafirði
þar sem unglingar í Skerjafírði í
dag þurfa að fara upp á Melavöll
til að kasta bolta í körfu?
2. Hvenær á að Ijúka fram-
kvæmd við göngustíg framhjá
Skeljungi og út fyrir flugbraut til
að tengja saman göngustíg um
Ægisíðu upp í Öskjuhlíð?
Svör:
1. Á vegum íþrótta- og tóm-
stundaráðs verður sett upp karfa
á leikvelli við Skildinganes.
2. í sumar verður unnið fyrir
20 millj. kr. við gerð þessa stígs
og lokið við áfangann frá
Nauthólsvík, út fyrir fiugbrautina
að Skeljungssvæðinu. Þar með
verður komin tenging fyrir gang-
andi og hjólandi milli Ægisíðu-
svæðisins og Nauthólsvíkur; hluti
hennar að vísu í bráðabirgða-
ástandi. Þessi gönguleið verður
svo bætt á næstu árum.
Auglýsinga-
skilti
Kristín Guðmundsdóttir, Berg-
staðastræti 67, 101 Reykjavík,
spyr:
1. Hvenær og hvernig á að
ganga frá Njarðargötu, þ.e. veg-
spottanum sem liggur yfir Vatns-
mýrina milli Hringbrautar og
Þorragötu í LitlaSkeijafírði?
2. Getur borgarstjóri beitt sér
fyrir því að Ijóaskiltið á Borgar-
leikhúsinu verði tekið niður ásamt
öðrum skiltum sem óprýða borg-
ina?
Svör:
1. Samkvæmt skipulagi á að
koma þarna tveggja akreina gata,
malbikuð að sjálfsögðu. Ekki hef-
ur verið ákveðið hvenær þessi
gata verður lögð, en vegna vænt-
anlegra breytinga á Hringbraut
frá Landspítala, vestur fyrir
Njarðargötu eru annmarkar á því
að ganga frá henni í endanlegri
útfærsiu.
2. Skiltið á Borgarleikhúsinu
var samþykkt í byggingarnefnd
12. júlí 1993, en þar er einungis
auglýst sú starfsemi sem fram fer
í leikhúsinu. Arkitektar hússins
samþykktu staðsetningu skiltis-
ins. Skilyrði fyrir leyfinu var að
auglýsingaskilti á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Lista-
brautar yrði fjarlægt og hefur það
nú verið gert. Varðandi önnur
skilti þarf að taka á hvetju máli
fyrir sig. Borgaryfirvöld hafa haft
áhyggjur af miklum skiltafjölda í
borginni og reynt að hafa áhrif á
að þetta færi ekki út í öfgar og
yrði til óprýði. Leyfi bygginga-
nefndar þarf fyrir auglýsingaskilt-
um og er synjað um leýfi þegar
ástæða þykir til. Þá er þess kraf-
ist að skilti sem sett eru upp í
óleyfi séu tekin niður en viður-
kenna verður að ekki er alltaf
auðvelt að fylgjast með því og
stundum erfítt að fá menn til að
hlýða fljótt og vel fyrirmælum um
að fjarlægja skilti.
Bólstaðar-
hlíð
Eva Karlsdóttir, Lönguhlíð 13,
105 Reykjavík, spyr:
Stendur til að minnka umferð-
arþunga um Bólstaðarhlíð fyrir
neðan Stakkahlíð þar sem mörg
börn eru að leik á þessu svæði:
Svar:
Ósk um aðgerðir í þessum
málum hefur nýlega borist frá
íbúa við Bólstaðarhlíð og er hún
til meðferðar hjá umferðarnefnd
og umferðardeild borgarverk-
fræðings.
Frágangnr á
bílskúrslóð
Guðmundur Arnason og Halla
Aðalsteinsdóttir, Brekkugerði 34,
108 Rvík, spyija:
Við hjónin ásamt börnum okkar
fíuttum í Brekkugerði 34 árið
1962. Síðan höfum við árangurs-
Iaust beðið eftir því að svæðið hér
fyrir austan okkur, sem takmark-
ast af Skálagerði, Smáíbúðahverfí
og Brekkugerði 32 og 34, yrði
snyrt með svipuðum hætti og t.d.
Fossvogurinn, sem byggðist mun
seinna. Hvenær megum við búast
við framkvæmdum?
Svar:
Rúmlega helmingur svæðisins
er bílskúrslóð sem tilheyrir blokk-
unum við Skálagerði skv. skipu-
lagi sem samþykkt var S árinu
1986. Beðið hefur verið með að
ganga frá hinum hlutanum vegna
rasks sem óhjákvæmilega fylgir
byggingaframkvæmdum. Það er
tímabært að fá ákvörðun um það
hvort og þá í hve miklum mæli
íbúar við Skálagerði ætla að nýta
þennan bílskúrsrétt. Mun borgar-
skipulagi verða falið að hafa sam-
band við viðkomandi húsfélög og
fá þessa hluti á hreint.
MESSUR UM HVÍTASUNNUNA
ÁSKIRKJA: Hvítasunnudagur: Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 14. Erla Gígja
Garðarsdóttir syngur einsöng. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Hvítasunnudag-
ur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 ár-
degis. Annar í hvítasunnu: Fjöl-
skylduhátíð Bústaðasóknar kl. 13.30
á félagssvæði Víkings við Stjörnu-
gróf. Fjölbreytt dagskrá í tali og tón-
um. Ræðumaður Þorgrímur Þráins-
son rithöfundur. Allir velkomnir.
Hátíð fyrir alla fjölskylduna.
DÓMKIRKJAN: Hvítasunnudagur:
Hátíðarmessa kl. 11. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson. Ferming og
altarisganga. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Annar í hvítasunnu: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. María Ágústsdótt-
ir. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
VIÐEYJARKIRKJA: Annar í hvíta-
sunnu: Hátíðarmessa kl. 14 vegna
220 ára afmælis Viðeyjarkirkju. Sr.
Þórir Stephensen staðarhaldari
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Dómkirkjuprestunum sr. Hjalta
Guðmundssyni og sr. Maríu Ág-
ústsdóttur. Dómkórinn syngur við
undirleik Marteins H. Friðrikssonar.
Eftir messu er boðið til kaffidrykkju
á lofti Viðeyjarstofu. Bátsferð úr
Sundahöfn kl. 13.30.
GRENSÁSKIRKJA: Hvítasunnudag-
ur: Hátíðarmessa kl. 11. Prestur sr.
Halldór S. Gröndal. Sigurður
Björnsson óperusöngvari syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur: Hátíðarmessa kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Organisti
Hörður Áskelsson. Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur. Hátíðar-
messa kl. 14. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Annar í hvítasunnu: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Hvítasunnudag-
ur: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hvítasunnudag-
ur: Hátíðarmessa kl. 11. Sungið úr
Hátíðarsöngvum sr. Bjarna Þor-
steinssonar. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir. Annar í hvítasunnu:
Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson.
Tónleikar kl. 20.30. Flytjendur
gospelkór undir stjórn Veru
Gulazsiovu og Kór Háteigskirkju
undir stjórn Pavels Manasek. Guð-
jón Gunnarsson leikur á trompet.
Organisti Pavel Manasek. Aðgang-
ur ókeypis.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Hvítasunnudagur:
Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Krist-
insson. Organisti Jón Stefánsson.
Kór Langholtskirkju (hópur IV og
V) syngur.
LAUGARNESKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur: Hátíðarmessa kl. 11. Laufey
Geirlaugsdóttir syngur einsöng.
Hildigunnur Halldórsdóttir spilar á
fiðlu. Organisti Ronald Turner.
Prestur sr. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Hvítasunnudagur: Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 11. Fermdur
verður Arnar Hrafn Gylfason,
Rauðalæk 13, Rvík. Orgel- og kór-
stjórn Reynir Jónasson. Guðmund-
ur Óskar Ólafsson. Annar í hvíta-
sunnu: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Organisti Hákon
Leifsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Hvítasunnudag-
ur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.
Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur sem
stólvers k'órverk eftir Heinrich
Schutz. Á annan dag hvítasunnu
verður í Árbæjarkirkju sýning á
málverkum eftir listmálarana Jó-
hannes Geir og Ragnar Breiðfjörð
kl. 14-18. Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur: Hátíðarmessa með altaris-
göngu kl. 11. Annar í hvítasunnu:
Samkoma Ungs fólks með hlutverk
kl. 20.30. Organisti Daníel Jónas-
son. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Annar hvítasunnudagur:
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
11. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti Lenka Máté-
ová. Kaffi eftir guðsþjónustuna.
Prestarnir.
GRÁFARVOGSKIRKJA: Hvíta-
Guðspjall dagsins:
(Jóh. 14.) Hver sem
elskar mig.
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Einsöngur Haukur Páll Har-
aldsson óperusöngvari við Óperuna
í Munchen. Ferming: Elín Birgitta
Þorsteinsdóttir, búsett í Danmörku,
Hvassaleiti 62, Reykjavík. Organisti
Sigurbjörg Helgadóttir. Sr. Vigfús
Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Hvítasunnudagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Kór
Hjallakirkju syngur. Organisti Oddný
J. Þorsteinsdóttir. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur
ásamt skólakór Kársness. Ólafur
Flosason leikur á óbó. Organisti Örn
Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Hvítasunnudagur:
Guðsþjónusta í Seljahlíð kl. 11.
Prestur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Guðsþjónusta í Seljakirkju kl. 14.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Kór
Fjölbrautaskólans í Breiðholti syng-
ur undir stjórn Ernu Guðmundsdótt-
ur. Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Violeta Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl. 20.
Aðra rúmhelga daga messur kl. 8
og kl. 18.
SIK, KFUM og KFUK, KSH: Almenn
samkoma annan hvítasunnudag kl.
20 í Kristniboðssalnum. Klara Liefrá
Noregi prédikar. Engin samkoma
hvítasunnudag.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Hvítasunnudagur: Hátíðarsamkoma
kl. 14. Ræðumaður VörðurTrausta-
son. Minnum á sjónvarpsútsend-
ingu frá áður upptekinni samkomu
á RÚV kl. 17. Annar í hvítasunnu:
Útvarpsguðsþjónusta send út frá
Fíladelfíukirkjunni kl. 11. Ræðumað-
ur Snorri Óskarsson. Brauðsbrotn-
ing strax að lokinni útsendingu.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hvíta-
sunnudagur: Kl. 16 útisamkoma á
Lækjartorgi ef veður leyfir. Kl. 17
hermannasamkoma. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma. Hermannavígsla.
Major Anne Gurine og Daníel Ósk-
arsson stjórna og tala á samkomum
dagsins.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjón-
usta hvítasunnudag kl. 11. Sigríður
Elliðadóttir syngur einsöng. Kirkju-
kórinn syngur undir stjórn Veru
Guláziová organista. Þórsteinn
Ragnarsson.
MOSFELLSPRESTAKALL: Há-
tíðarmessa í Lágafellskirkju kl. 14.
Eldri borgarar aðstoða. Kirkjukaffi
í skrúðhússalnum eftir messu. Jón
Þorsteinsson.
GARÐA- og BESSASTAÐASÓKN-
IR: Hátíðarguðsþjónusta í Garða-
kirkju kl. 11. Álftaneskórinn og kór
Garðakirkju syngja saman. Organ-
isti Ferenc Utassy. Bragi Friðriks-
son.
FRÍKIRKJAN, HAFNARFIRÐI:
Hvítasunnudagur: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. (Ath. breyttan
messutíma.) Sr. Einar Eyjólfsson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Hrafnistu kl. 13. Guðsþjónusta í
Víðistaðakirkju kl. 14. Kór Víðistaða-
kirkju syngur. Organisti Úlrik Óla-
son. Ólafur Jóhannsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Hátíð-
armessa kl. 14. Organisti Helgi
Bragason. Kór Hafnarfjarðarkirkju
syngur. Báðir prestarnir þjóna.
Guðsþjónusta á Sólvangi kl. 15.30
hvítasunnudag. Gunnþór Ingason
og Þórhildur Ólafs.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl.
10 hvítasunnudag. Messa í Víðihlíð
kl. 11.15. Kór Grindavíkurkirkju
syngur. Organisti Siguróli Geirsson.
Sóknarprestur.
KIRKJUVOGSKIRKJA, Höfnum:
Messa kl. 14 hvítasunnudag. Kó&-
Grindavíkurkirkju syngur. Organisti
Siguróli Geirsson. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Hátíð-
arguðsþjónusta hvítasunnudag kl.
11. Baldur Rafn Sigurðson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur Ólafur Odd-
ur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju
syngur. Organisti Einar Örn Einars-
son. Prestarnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Ester Ól-
afsdóttir. Hjörtur Magni Jóhanns- <
son.
HVALSNESKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Börn borin til skírn-
ar. Organisti Ester Ólafsdóttir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
SJÚKRAHÚS Suðurnesja: Helgi-
stund kl. 13. Kór Útskálakirkju syng-
ur. Hjörtur Magni Jóhannsson.
GARÐVANGUR, dvalarheimili aldr-
aðra, Garði: Helgistund kl. 15.30.
Kór Hvalsneskirkju syngur. Hjörtur
Magni Jóhannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa
hvítasunnudag kl. 11. Frambjóðend-
um til bæjarstjórnarkosninga sérT
staklega boðið til messunnar. Tóm-
as Guðmundsson.
KOTSTRANDARKIRKJA: Ferming-
armessa hvítasunnudag kl. 13.30.
Tómas Guðmundsson.
KAPELLA HNLFÍ, Hveragerði:
Messa annan hvítasunnudag kl. 11.
Tómas Guðmundsson.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur. Messa kl. 14. Ferming.
Sr. Úlfar Guðmundsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Hátíðarmessa
hvítasunnudag kl. 11. Sóknarprest-
ur.
STRANDARKIRKJA, Selvogi: Hátíð-
armessa hvítasunnudag kl. 14. Rúta
fer frá Grunnskóla Þorlákshafnar kl.
13.15 og til baka að messu lokinni.
Sóknarprestur.
HJALLAKIRKJA, Ölfusi: Messa
annan hvítasunnudag kl. 14. Rúta
fer frá Grunnskóla Þorlákshafnar kl.
13.30 og til baka að messu lokinni.
Sóknarprestur.
HRAUNGERÐISPRESTAKALL:
Fermingarmessa í Villingaholts-
kirkju hvítasunnudag kl. 14. Ferm-
ingarmessa í Hraungerðiskirkju
annan í hvítasunnu kl. 13.30. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL: Há-
tíðarmessa kl. 14 í Stóra-Núpskirkju
í Gnúpverjahreppi. Hátíðarmessa í
Ólafsvallakirkju á Skeiðum annan í
hvítasunnu kl. 14. Guðsþjónusta á
dvalarheimilinu Blesastöðum eftir
messurnar. Axel Árnason.
STÓRÓLFSHVOLSSÓKN: Hátíðar-
guðsþjónusta í Stórólfshvolskirkju
hvítasunnudag kl. 11. Sóknarprest-
ur.
ODDASÓKN: Helgistund á Hjúkrun-
ar- og dvalarheimilinu Lundi hvíta-
sunnudag kl. 13. Hátíðarguðsþjón-
usta í Oddakirkju hvítasunnudag kl.
14. Sóknarprestur.
KELDNASÓKN: Hátíðarguðsþjón-
usta í Keldnakirkju annan í hvíta-
sunnu kl. 24. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Hvítasunnudag: Fermingarguðs-
þjónustur kl. 11 og kl. 14. Stutt
helgistund á sýningunni Vor í Eyjum
’94 kl. 17.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Messa^
kl. 11. Minnst verður stofndags
kirkjunnar með lofgjörð, fyrirbæn
og altarisgöngu. Kristján Björnsson.
LEIRÁRKIRKJA: Guðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11. Jón Einars-
son.
HALLGRIMSKIRKJA í Saurbæ:
Guðsþjónusta hvítasunnudag kl. 14.
Jón Einarsson.
INNRA-HÓLMSKIRKJA: Guðsþjón-
usta annan hvítasunnudag kl. 14.
Jón Einarsson.
AKRANESKIRKJA: Hvítasunnudag-
ur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Annar hvítasunnudagur hátíðar-
guðsþjónusta á dvalarheimilinu
Höfða kl. 12.45. Hátíðarguðsþjón-
usta í Sjúkrahúsi Akraness kl. 14.
Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarmessa verður
í Borgarneskirkju kl. 11. Messa í
Borgarkirkju kl. 14. Annar hvíta-
sunnudagur: Guðsþjónusta í Álftárt-
ungukirkju kl. 14. Guðsþjónusta í
dvalarheimili aldraðra kl. 16.30.
Sóknarprestur.