Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 31

Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 31 ' ) I I ) ) > I ) > I I i I : 9 Gyðríður Pálsdóttir, móðursystir okkar, er látin í hárri elli á Hrafn- istu í Reykjavík. Við kynntumst henni ungar að aldri, vel að okkur fannst, í gegnum bréfin hennar sem komu reglulega til móður okkar að Hallormsstað með ítarlegar fréttir frá æskuslóð- unum í . Landbrotinu. Þessi bréf sögðu okkur mikið um manneskjuna Gyðríði. Skriftin var formfögur og stíllinn fágaður. Þau lýstu skil- merkilega atburðum líðandi stundar 1 byggðarlaginu, tíðarfari, heilsufari fólks og félagslífi í sveitinni og voru því mikils virði móður okkar sem þá hafði sest að fjarri heimahögum. Við munum ekki eftir símtölum milli þeirra systra, en þessi löngu og efnismiklu bréf, sem bárust reglulega, lýsa vel nánu sambandi þeirra og gagnkvæmri umhyggju, en þær voru þá orðnar húsfreyjur á stórheimilum hvor í sínum fjórð- ungnum. Eftir að við fluttumst til Reykja- víkur að austan með móður okkar kom Gyðríður oft í heimsókn og þar hittum við hana fyrst. Hún var þá í íslenska búningnum eins ogjafnan þegar hún fór af bæ. Á þessum ferð- um sínum suður var hún oft á kven- félagasambandsþingum eða að vinna að framgangi kapellubygg- ingarinnar á Kirkjubæjarklaustri. Henni var það mikið hjartans mál að kapellan risi af grunni og átti hún raunar einna drýgstan þátt í að sú gullfallega bygging varð að veruleika. Við vorum sannfærðar um að hún myndi hafa erindi sem erfiði í því máii sem öðrum. Slíkur var trúarstyrkur hennar og eldmóð- ur. Þær eðliseigindir mótuðu raunar frá fyrstu tíð öll störf hennar. Út- geislun og sannfæringarkraftur hennar létu engan ósnortinn og verður hún því ógleymanleg öllum þeim sem áttu því láni að fagna að kynnast henni. Það var hins vegar ekki fyrr en á síðustu árum hennar í Seglbúðum að við systur höfðum tök á að heim- sækja hana og sjá með eigin augum hið rómaða Seglbúðaheimili og garðinn hennar sem svo mikið orð fór af. Gyðríður lýsti fyrir okkur hvernig þessi unaðsreitur hafði orð- ið til, þar sem hvert tré og runni áttu sér sína sögu. Hún trúði því staðfastlega að þrátt fyrir ótrygg ræktunarskilyrði væri hægt með alúð og þolinmæði að ala upp marg- víslegar tegundir í byggðarlaginu, og er garðurinn í Seglbúðum fagur og órækur vitnisburður þess. Aðrir munu vafalaust verða til þess að lýsa innihaldsríku lífi frænku okkar og giftusamlegu starfi að félags- og mannúðarmálum í héraði og í samtökum sunnlenskra kvenna, en við viljum með þessum fáu orðum koma á framfæri þökkum fyrir einstæðan hlýhug og um- hyggju í garð okkar systkinanna allt frá bemskuárunum. Blessuð sé minning Gyðríðar Pálsdóttur. Elísabet og Margrét Guttormsdætur. Svo er sagt að Jón biskup Ög- mundsson, sem kallaður var hinn helgi, hafi mælt er rætt var um fóstra hans, ísleif Skálholtsbiskup: „Hans skal ég ávallt geta, er ég heyri góðs manns getið.“ Svipað hefur mér oft farið er ég hef heyrt um Gyðríði frá Seglbúðum, sem nú er kvödd. Alllangt er síðan ég leit hana síðast, enda hefur hún átt við mikil veikindi að stríða hin síðustu ár, en í bernsku- og æsku- minningum mínum er hún óijúfan- legur hluti af tilverunni. Raunar tengdist hún mér á tvennan hátt áður en minni mitt nær fótfestu. Með henni og Helga Jónssyni manni hennar og foreldrum mínum á Efri- Steinsmýri var góð vinátta og oft viku þau Seglbúðahjón dýrmætum greiða að ijölskyldunni stóru á Stein- smýri, eins og reyndar fleiri góðir grannar. Þegar ég fæddist, sextánda barnið í fjölskyldunni, gekkst hún fyrir því að ég færi í fóstur til bróð- ur síns og mágkonu að Efri-Vík í Landbroti. Þar eignaðist ég aðra foreldra, sem ég hefi ávallt kallað pabba og mömmu. Og þau Seglbúða- hjón gerðu meira en úytvega mér fóstrið. þegar ég var hálfs annars sólarhrings gamall komu þau að Steinsmýri og þar var sveinsstaulinn vafinn inn í gæruskinn. Helgi reiddi mig siðan á hnakknefinu milli sveit- anna, nokkurra klukkustunda reið í norðan byl yfir óbrúuð vatnsföllin og Gyðríður fylgdi með. „Þá bað ég oft til Guðs, sérstaklega í Jónskvísl- inni,“ sagði hún við mig síðar. Og hún bað oftar til Guðs. Hún var einhver trúaðasta manneskja sem ég hefi kynnst. Trú hennar var sönn og einlæg. Hún var ekkert varamál, sem gripið var til á hátíðar- stundu, hún var henni allt, styrkur MINNINGAR og skjól ef á móti blés, og alla vel- gengni þakkaði hún Guði sínum. Lífsviðhorf hennar var líka við- horf sannkristinnar manneskju. Ég vitnaði hér að framan í orð Jóns biskups. Ég hitti Gyðríði vitanlega oft í uppvexti mínum, bæði heima hjá mér, í Seglbúðum og við fjöl- mörg tækifæri í sveitinni. Ég tók þá þegar eftir því og það hefur síðar orðið mjög sterkt í minningu minni, hvernig hún brást við ef á einhvern var hallað í umræðu. Hún var ákaflega trúuð, eins og ég hefi getið um, hún var mikil bind- indiskona og hún hafði ákveðnar skoðanir á þjóðmálum. Oft bárust þeir vitaskuld í tal, sem ekki voru henni samstíga í þessum efnum - jafnvel ekki neinu þeirra. Væru þeir á einhvem hátt átaldir sagði Gyðríð- ur ávallt hið sama: Já - en ... og svo taldi hún upp málsbætur fyrir þá sem um var rætt. Hún gat aldrei látið halla á neinn, þótt hún væri honum ósammála, hún var að bæta um - það var öllum gott gefið. Það er minningin um þessi viðbrögð hennar, hið ótakmarkaða umburðar- lyndi, sem hefur alltaf fylgt mér, og það er kannski fyrst og fremst hún sem veldur því að ég minnist orða Hólabiskupsins, er ég heyri nafn hennar. Gyðríður var mikil ræktunarkona. Hún vildi hlúa að öllu sem veikburða var, hvort sem voru menn eða mál- leysingjar og ekki síður jurtir. Hún ræktaði mikinn og fagran garð við heimili sitt, sem var einsdæmi í sveit- unum milli sanda á þeim árum - og er jafnvel enn. Ég minnist þess hve glöð og stolt hún var yfir garðinum sínum, ekki síst á efri árum, og hve blíðlega hún talaði við rósirnar sínar í garðhúsinu, enda guldu þær um- hyggjuna á þann hátt sem hún kaus. Ég veit að aðrir muni rekja lífs- hlaup Gyðríðar nú að leiðarlokum. Þessum orðum er fyrst og fremst ætlað að vera lítill þakklætisvottur fyrir allt það sem hún og hennar fólk gerði fyrir mig og mína í bemsku og æsku. Þau verða þó aldr- ei nema lítil afborgun af þeirri stóru skuld, sem ég get aldrei goldið. Magnús Bjarnfreðsson. Fleiri minningargreinar um Gyðríði Pálsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja, lögð í jörð með himnaföður vilja, leyst frá lífi nauða, ijúf og björt í dauða lézt þú eftir litla rúmið auða. (M. Joch.) Blessuð sé minning Stefaníu Guðjónsdóttur. Björk, Otto og Júlía, Ingibjörg, Sveinbjörn og Berglind Björk. Það var á föstudaginn 13. maí, er ég var nýkomin í vinnuna að sím- inn hringdi. Ég svaraði hress og kát og var þá Inga systir mín að hringja. Hún hefur ekki hringt tii mín í vinn- una fyrr, hennar orð voru:„ Guðrún mín, hún Stebba er dáin“. Ég gat ekkert sagt, nema „ég tala við þig seinna", ég bara skalf öll og hljóp út af skrifstofunni. Það er erfitt að lýsa þeim tilfinn- ingum sem hellast yfir fólk við svona frétt, þegar einhver sem manni þyk- ir mikið vænt um hefur látist. Stebba, eins og hún var oftast kölluð, var frumburðurinn í sinni föðurætt, feður okkar voru bræður. Á eftir henni kom ég einu og hálfu ári síðar. Ekki var fjárhagurinn hjá okkar fjölskyldum mikill svo fyrstu árin bjuggum við sex saman í kjall- ara hjá ömmu og afa á Vesturbraut 3 í Keflavík. Feður okkar voru þá að koma sér upp eigin húsnæði á Smáratúni 1 og 4 svo eftir að flutt var þangað vorum við áfram hlið við hlið. Það er svo margs að minn- ast frá okkar bernskuárum og minn- ingarnar streyma fram í huga minn. Þegar ég man fyrst eftir mér vorum við öll á Vesturbrautinni. Ég ætla ekki að telja upp ártöl, mig langar aðeins til að minnast hennar Stebbu í fáeinum orðum. Stebbu „stórf- rænku" kallaði ég hana. Hún var eldri en ég og líka stærri. Mikla virð- ingu bar ég alltaf fyrir henni, hún var alltaf svo góð og hlý í garð allra. Skýr er minningin um tryggð þíná og styrk. Ég ætla bara að stikla hér á stóru og draga aðeins fram sumar þær minningar sem koma fram í huga minn þegar ég sest hér niður og skrifa þessar línur. Ég man okk- ar bernskuár, marga þá leiki sem við krakkarnir á Smáratúni og Há- túni lékum saman. Þegar þú þurftir að sofa í gifsinu út af bakinu þínu og hvað ég vorkenndi þér oft, hvað þú og Auður systir þín voruð dugleg- ar í sundinu - Sunddrottningar Keflavíkur - ég reyndi líka fyrir mér í sundinu en náði aldrei líkum árangri og þið systurnar. Ég minnist líka margs frá ungl- ingsárum okkar, þegar við áttum báðar kærasta og seinna þegar þú eignaðist soninn, Guðjón Felxisson, Gaua, eins og hann var alltaf kallað- ur. Guð blessi minningu hans. Hann hafði brosið hans pabba síns og not- aði það óspart í gegnum öll sín veik- indi. Þegar ég var að læra og vinna á Landspítalanum kom hann ansi oft á Barnaspítalann. Óla og Gaui voru honum og Stebbu ávallt ómet- anleg stoð. Leiðir okkar beggja lágu út í heim. Lengst af vorum við í henni stóru Ameríku. Þegar Stebba frænka var lögð á Landspítalann fyrir nokkrum dögum síðan dreymdi mig „Gauana“ tvo vera að taka á móti henni, með út- breidda arma og bros á vör og mik- il birga allt í kring. Mannssálin hverfur aldrei og ein- hvern tíma aftur eigum við eftir að hittast á ný. Ég bið Guð að geyma Stebbu frænku. Ég bið Guð að gefa allri fjölskyldu þinni styrk. Elsku Walt, Heiður, Óla mín, systurnar og fjölskyldur, Guð varðveiti ykkur í sorg ykkar. Ég færi ykkur öllum innilegustu samúð- arkveðjur frá foreldrum mínum sem viidu gjarnan vera hjá ykkur á þess- ari sorgarstund. Guð blessi ykkur öll. Aldrei mæst í síðasta sinn sannir Jesús vinir fá. Hrellda sá, það haf í minni harmakveðju stundum á. Þótt vér sjáumst oftar eigi undir sól er skín oss hér á þeim mikla dýrðardegi Drottins aftur fínnumst vér. Þótt vér hljótum hér að kveðja hjartans vini kærstu þrátt, indæl von sú oss má gleðja aftur heilsum vér þeim brátt. Hrellda sál það haf í minni harmakveðju stundum á: Aldrei mæst í síðsta sinni sannir Jesú vinur fá. (Þýð. Helgi Hálfdánarson.) Hvíl í friði elsku frænka. Ég minnist þín með virðingu. Guðrún Pétursdóttir. Það er tómlegt hér nú þegar þú ert farin. Þó ég fínni fyrir návist þinni og hlátur þinn ómi enn í huga mér, þá er tómleiki í hjarta mínu. En ég veit Stebba min að nú ertu hamingjusöm, hamingjusöm í Nangijala. (Ólöf Thoroddsen.) Þín Ólöf. HEIMIR EIRÍKSSON + Heimir Eiríks- son fæddist á Húsavík 13. janúar 1973. Hann lést af slysförum 15. maí síðastliðinn. For- eldrar hans eru Sigrún Harðar- dóttir og Eiríkur Marteinsson og ólst Heimir upp hjá þeim á Húsa- vík ásamt systkin- um sínum, Guð- rúnu og Herði. Utför Heimis fer fram frá Húsavík- urkirkju í dag. Guð gefí mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. NÚNA þegar náttúran skartar sínu fegursta og gróður og líf að lifna og kvikna berast mér þær sorgar- fréttir að Heimir frændi minn hafi dáið af slysförum aðfaranótt sunnu- dagsins 15. maí. Það er svo erfítt að trúa þessu og minningarnar koma ein af ann- arri upp í hugann. Þú í bílskúrnum í Baldursbrekk- unni, búinn að hálffylla hann af fuglum og dýrum sem þurftu umönnunar við, vængbrotnir fuglar eða fótbrotnir sem þurfti að hlúa að. Það var ekki alltaf pláss fyrir heimilisbílinn í þeim bílskúr. Eða þú að koma úr fuglatalningu utan úr Bakka og sagðir mér að meðal annarra fugla hefðir þú séð flórgoða og í staðinn fyrir að gera grín að frænku þinni sem aldrei hafði séð flórgoða fórstu og sóttir fuglabók, eina af mörgum sem þú áttir inni í herbergi og sýndir mér myndir og sagði mér frá honum. Núna á seinni árum, þú og Höddi bróðir þinn að fara á sjó, í svart- fugl eða upp í fjöll í ijúpur og ekki varstu gamall þegar þú varst farinn að fara á sjó á trillunni með pabba þínum. Það kom því engum á óvart þeg- ar þú valdir Stýrimannaskólann og núna voru bara nokkrir dagar í útskrift og búið að ráðgera útskrift- arveislu sem ekki verður af. Elsku Heimir, ég veit að afi Höddi hefur tekið á móti þér á landamærunum þar sem engra skil- ríkja er krafíst og allir eru jafnir fyrir augliti Guðs almáttugs, og eins veit ég að þú stendur í brúnni og tekur á móti okkur þegar okkar jarðvist lýkur. Þangað til, Heimir minn, vertu sæll. Elsku Sirra og fjölskylda, Eiki, Guðrún og Höddi. Guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Emma. Sá sem eftir lifir deyr jieim sem deyr en hinn dáni lifír í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnamir honum yfir. (Hannes Pétursson) Með örfáum orðum langar mig að minnast Heimis Eiríkssonar, frænda míns. Heimir ólst upp á Húsavík við ást og umhyggju for- eldra sinna og var mikið náttúru- barn frá fyrstu tíð. Vorið var hans tími. Þá færðist líf í náttúru landsins, fuglarnir, varpið, þetta var hans tími, hans líf og yndi. Oft og iðulega sat hann með ýmsar fuglabækur sem hann kunni spjaldanna milli og fræddist um þessa vini sína. Það var líka fátt sem Heimir vissi ekki um fugla, enda kom það fæstum á óvart, þegar farið var að fá hann til að vera við fuglatalningar og bera kennsl á aðkomufugla. Veiðimennska var honum líka mikið áhugamál og var þá Hörður bróðir hans oft í för með honum. Það var ekki sjaldan sem þeir bræður lögðu af stað í veiði, á öllum tímum sólar- hrings. Ýmist voru þá meðferðis net eða byss- ur. Sjaldnast komu þeir heim tómhentir, enda voru hér á ferð ungir menn sem hafa alist upp við lögmál náttúr- unnar og báru virðingu fyrir henni, þekktu hana og vissu þar sín takmörk. Ekki kom það mörg- um á óvart þegar Heimir valdi sjó- mennskuna sem sitt ævistarf. Þar hefur faðir hans án efa haft sín áhrif, en ófáum dögum hafa þeir feðgar eytt saman á sjónum ásamt Herði og Jóni Óla. Guðrún og Heimir voru alla tíð náin og eftir að Guðrún stofnaði sitt eigið heimili með Jóni Óla stóð það honum ætíð opið og þangað leitaði hann oft. Hörður og Heimir voru ekki einungis bræður heldur sér Hörður nú á eftir besta vini sín- um. Leiðir foreldra Heimis skildu er Heimir var unglingur. Síðar eign- aðist Heimir stjúpföður, Ása, sem ætíð reyndist honum sem hinn besti faðir. Auk þess eignaðist Heimir þá stjúpbróður, Halldór, og þrátt fyrir hve ólíkir þeir voru sér Hall- dór nú á eftir einum af sínum bestu vinum. Auk þess skilur Heimir nú eftir sig litlu systur sína, Ásrúnu. Heimir var rétt að ljúka sínum síðari vetri við Stýrimannaskólann á Dalvík. Við honum blasti björt framtíð við hlið ástvina, móður, sem ætíð reyndist honum vel, stjúpa, föður, systkina og við hlið okkar allra hinna, þar sem hann átti sinn stað í hjarta okkar. Á okkar yngri árum, ólumst við Heimir nánast upp saman, enda mjög mikill samgangur í fjölskyld- unni. Ég leitaði mikið á heimili Sirru frænku sem stóð mér ætíð opið. Þaðan á ég margar ljúfar minning- ar og oftar en ekki á Heimir sinn hluta í þeim. Leiðir okkar hafa að mestu legið í sitt hvora áttina síðustu árin. Því eru mér minningar mínar um Heimi mjög dýrmætar, nú þegar of seint er að endurnýja og styrkja vináttu- böndin. Ég talaði við Heimi kvöldið áður en hann dó. Þá var hann svo glaður og ánægður, skólinn að verða bú- inn, vorið komið. Hann sagði mér hvað hann hlakkaði til útskriftar- innar, hvað þeir skólafélagarnir ætluðu að gera eftir útskrift, allt það sem hann ætlaði að gera í sum- ar. En raunin varð önnur, nú er Heimir frændi farinn á æðri stað. En minningin um góðan dreng mun lifa um ókomna tíð, 5 hugum okk- ar, sem vorum honum samferða þennan alltof stutta spöl á lífsleið- inni. Er sárasta sorg okkar mætir og söknuður huga vor grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hiýjum. (Hallgrimur I. Hallgrimsson) Elsku Sirra, Ási, Eiki, Björk, Marteinn, Guðrún, Óli, Eiríkur Fannar, Höddi, Jóna, Dóri, Ásrún, amma og langamma. Sorg ykkar er mikil. Fátækleg orð eru engin huggun á stund sem þessari. Það er von mín að styrkur ykkar og ást geti með tímanum sefað þá sorg sem nú ristir svo djúpt og þið getið litið til baka með gleði í huga, gleði yfir að hafa átt þennan stutta tíma með Heimi, sem ykkur var gefinn. Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Spámaðurinn. Heiðrún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.