Morgunblaðið - 21.05.1994, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRMR
FOLK
■ PÉTUR Guðmundsson, kúlu-
varpari og Andrés bróðir hans, sem
bætti sig verulega í fyrrakvöld, fóru
í gær til Portúgals til æfinga ásamt
Helga Þór Helgasyni, þjálfara.
Þeir bræður keppa svo í Hollandi
4. júní og Pétur í Róm 8. júní og
Dublin 11. og 12. júní.
■ JOCELYN Angloma, franski
landsliðsvarnarmaðurinn hjá Mars-
eille hefur gert þriggja ára samning
við Tórínó á Itaiíu.
■ RUI Barros, sem leikið hefur
með Marseille í vetur, er á heim-
leið og hefur gert fjögurra ára
samning við Porto. Þessi portúg-
alski landsliðsmaður, sem er 28
ára, fór frá félaginu fyrir sex árum
og hefur síðan leikið með Juvent-
us, Mónakó og Marseille.
■ BASILE Boli, miðvörður
franska landsliðsins og Marseille,
fer að öllum líkindum einnig frá
félaginu og verður líklega hjá Lazio
á Ítalíu næsta vetur.
■ BRYAN Rohson, nýráðinn leik-
maður og framkvæmdastjóri hjá
Middlesbrough, er að reyna að fá
Viv Anderson, fyrrum félaga sinn
hjá Man. Utd., sem aðstoðarmann.
Anderson er nú „stjóri" Barnsley.
■ DUNCAN Ferguson, fram-
hetji Rangers, hefur áfrýjað 12
leikja banni sem hann var úrskurð-
aður í af skoska knattspyrnusam-
bandinu fyrir að skaila mótherja í
leik. Það, að hann skuli áfrýja, ger-
ir það að verkum að hann getur
leikið í bikarúrslitunum gegn
Dundee United í dag.
■ JOHANN Olav Koss, skauta-
hlauparinn norski sem vann til
þrennra gullverðlauna og setti jafn
mörg heimsmet á Ólympíuleikunum
í LiIIehammer, er hættur keppni
til að geta einbeitt sér að lækna-
námi.
■ REDONDO, landsliðsmaður frá
Argentínu, hefur gengið til liðs við
Real Madrid, sem borgaði Tene-
rife 355 millj. ísl. kr. fyrir hann.
Redondo er miðvallarspilari.
■ MICHAEL Laudrup, danski
landsliðsmaðurinn hjá Barcelona,
er sagður búinn að semja við erkifj-
endurna í Real Madrid um að leika
• með liðinu næsta vetur.
■ JUPP Heynckes, fýrrum þjálf-
ari Bayern Miinchen, Borussia
Mönchengladbach og Atletico
Bilbao, hefur verið ráðinn þjálfari
Eintracht Frankfurt.
■ HEYNCKES, sem stjórnaði
Bayern til meistarasigurs tvisvar,
er 49 ára. Hann skrifaði undir
tveggja ára samning. „Hér verða
breytingar sjöunda júlí. Ég vil fá
meistaratitil og er kominn hingað
til að ná honum,“ sagði Heynckes.
■ STEVE Hodge, fyrrum leik-
maður Nottingham Forest, Tott-
enham og Leeds, æfir nú með
Sporting frá Lissabon í Portúgal
og reiknað er með að hann gerist
jafnvel leikmaður með félaginu fyr-
ir næsta keppnistímabil.
■ CLAUDIO Caniggia, lands-
liðsmaður Argentínu, sem er ný-
kominn úr þrettán mánaða banni
vegna kókaínsneyslu, meiddist á
fæti í leik með Roma á dögunum.
Hann lék ekki með Argentínu gegn
Chile í vikunni og óvíst er hvort
að hann geti leikið í HM.
■ CHRIS Woods, fyrrum lands-
liðsmarkvörður Englands, er kom-
inn á sölulista hjá Sheffield Wed-
nesday. Nott. For. og QPR hafa
. hug á að fá hann til sín, en Woods
hefur leikið með báðum félögunum.
Hann er metinn á 500 þús. pund.
■ PAT Bonner, markvörður
Celtic og írska landsliðsins, hefur
fengið ftjálfa sölu hjá Celtic. Einn-
ig Charlie Nicholas.
■ BOB Weiss, þjálfari Los Ang-
eles Clippers í NBA-deildinni hefur
verið rekinn frá félaginu, eftir að
hann hafði aðeins starfað í eitt ár
af þeim þremur sem hann var samn-
ingsbundinn.
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
Landsliðinu boð-
ið til Argentínu
KSÍ gat ekki þekkst boðið vegna íslandsmótsins
KNATTSPYRIVIUSAMBAIMD
íslands fékk í fyrradag boð
frá Knattspyrnusambandi
Argentínu um að leika æf-
ingalandsleik í Buenos Aires
í næstu viku. KSÍ gat ekki
tekið þessu rausnarlega
boði vegna íslandsmótsins,
sem hefst um helgina, og
afþakkaði það í gær.
MT
Arangur íslenska landsliðsins
að undanfömu hefur vakið
athygli. Liðið hefur leikið fjóra
æfingalandsleiki á skömmum
tíma, þar af þrjá við landslið, sem
leika í úrslitakeppni heimsmeist-
arakeppninnar í Bandaríkjunum,
og aðeins tapað gegn Brasilíu-
mönnum, en sigrað í tveimur
þeirra, gegn Bandaríkjamönnum
og Bólivíumönnum.
Bandaríkjamenn og Brasilíu:
menn buðu landsliðinu út KSÍ
að kostnaðarlausu og að sögn
Eggerts Magnússonar, formanns
KSI, var boð Argentínumanna
enn rausnarlegra. „Þetta er
ánægjuleg þróun, en því miður
gátum við ekki þegið boð Arg-
entínumanna að þessu sinni
vegna íslandsmótsins,“ sagði
Eggert við Morgunblaðið.
Eggert sagði ennfremur að
afsökun aðstoðarþjálfara Bólivíu
þess efnis að aðeins þrír af lykil-
mönnum liðsins hefðu leikið
gegn íslandi stangaðist á við það
sem forráðamenn liðsins hefðu
sagt sér. Þvert á móti væru leik-
mennirnir, sem hér léku, hluti
af hópnum, en í DV í gær kom
fram að níu af 13 mönnum, sem
spiluðu, voru með liðinu í riðla-
keppni HM.
Marfc Þorvaldar eftirsótt
Sigur íslands gegn Bólivíu
vakti ekki síður athygli hjá sjón-
varpsstöðvum í Evrópu. Pantanir
um myndir frá leiknum og eink-
um markinu streymdu til RÚV
í gær og að sögn Ingólfs Hannes-
sonar, íþróttastjóra, var þriggja
mínútna bútur sendur til 40 sjón-
varpsstöðva í Evrópu í gær.
ÍA byrjar titil-
vömina heima
1. UMFERÐ1. deildar karla í
knattspyrnu verður á mánudag
og hefja íslandsmeistarar ÍA
titilvörnina á heimavelli þar
sem þeir taka á móti silfurhöf-
um FH.
Opnunarleikurinn verður á Val-
bjarnarvelli, en þar mætast
Fram og nýliðar Stjörnunnar kl. 17.
Hinir Ijórir jeikirnir heflast allir
klukkan 20. Á Akranesi leika gull-
og silfurlið ÍA og FH, nýliðar UBK
taka á móti KR á Kópavogsvelli,
Þór og ÍBV leika á Þórsvelli á Akur-
eyri og ÍBK sækir Val heim að
Hlíðarenda.
Samtök fyrstu deildar félaga
gerðu þriggja ára samning við eign-
arhaldsfélag Sólar hf. og nefnist
deildin Trópi-deildin á samnings-
tímabilinu.
■Nánar verður fjallað um 1. deild-
ina í sunnudagsblaðinu.
Sigurður Jónsson, fyrirliði ís-
landsmeistara ÍA.
KR spáð meistaratign
Þjálfarar og fyrirliðar liðanna í 1. deild karla gera sér það til gamans
að spá fyrir um lokastöðu Iiðanna í deildinni. Síðastliðin tvö ár hefur
KR verið spáð sigri og á því varð engin breyting nú. Spáin, sem lögð
var fram á kynningarfundi Samtaka 1. deildarfélaga með biaðamönn-
um í fyrradag, er sem hér segir: 1. KR 283 stig, 2. ÍA 273, 3. FH 196,
4. ÍBK 191, 5. Valur 175, 6. Stjarnan 128, 7. Fram 126, 8. Þór 119,
9. UBK 102, 10. ÍBV 57.
HANDKNATTLEIKUR
Kristján Halldórsson
landsHðsþjálfari kvenna
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Undanúrslit Austurdeildar
Indiana- Atlanta..............98:79
■Indiana vann 4-2 og leikur til úrslita við
annað hvort Chicago eða New York. Þetta
er í fyrsta skipti sem lið Indiana kemst í
úrslit Austurdeildar.
Undanúrslit Vesturdeildar
Denver-Utah..................94:91
■Staðan er jöfn, 3-3. Utah vann þijá fyrstu
leikina, en Denver hefur sigrað í þremur
síðustu.
Phoenix - Houston............103:89
■Staðan er jöfn, 3-3.
Íshokkí
NHL-deildin
Úrslit Austurdeildar
New Jersey - NY Rangers.........2:3
■Eftir tvíframlengdan leik. New York er
2-1 yfir.
KRISTJÁN Halldórsson, sem
þjálfaði UBK í 2. deild karla í
vetur, var í gær ráðinn lands-
liðsþjálfari kvenna íhandknatt-
leik til tveggja ára. Kristján tek-
ur við af Erlu Rafnsdóttur og
verður einnig með U-21 árs lið
kvenna.
Kristján er íþróttakennari að
mennt og hefur starfað sem
4>jálfari um árabil, en hann þjálfaði
m.a. karla- og kvennalið í Molde í
Noregi í tvö ár áður en hann tók
við liði UBK.
„Ég hef fylgst með þróuninni og
hef á tilfinningunni að ég sé rétti
maðurinn, þvi annars hefði ég ekki
gefið mig í starfið," sagði Kristján
við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann
sagðist hafa ákveðnar hugmyndir
um þjálfun liðsins og ætlaði að út-
færa þær. Aðspurður um hvernig
sagði hann að það kæmi í ljós, en
þar sem engin verkefni væru fyrr
en eftir áramót ætlaði hann að gefa
stúlkunum frí í sumar og byrja með
haustinu. „Ég ætla að byggja þetta
upp í samvinnu og samráði við þjálf-
ara 1. deildar félaganna," sagði
hann.
Einar fræðslufulltrúi
Einar Þorvarðarson, sem hefur
þjálfað 1. deildar lið Selfyssinga
undanfarin þijú ár, jiefur verið ráð-
inn í fullt starf sem fræðslufulltrúi
hjá HSI fram yfir heimsmeistara-
keppnina að ári. Hann kemur til
með að starfa með fræðslu- og út-
breiðslunefnd auk þess að sjá um
ýmss sérverkefni, en verður áfram
aðstoðarþjálfari Þorbergs Aðal-
steinssonar, iandsiiðsþjáifara.
UMHELGINA
Knattspyrna
1. deild karla
Mánudagur:
Valbjarnarv.: Fram - Stjarnan....17
Akranesv.: ÍA - FH...............20
Þórsv.: Þór-ÍBV..................20
Valsv.: Valur-ÍBK................20
Kópavogsv.: UBK-KR...............20
• Blikar vilja vekja athygli nýjum bílastæð-
um, austan við Kópavogsvöíl. Besta leiðin
þangað er af Amameshæðinni.
1. deild kvenna
Laugardagur:
Ásvellir: Haukar - Dalvík.............14
Mánudagur:
Kópavogsv.: UBK-KR....................14
Egilsstaðav.: Höttur-ÍA..............fr.
Þriðjudagur:
Valsv.: Valur-Stjarnan................20
2. deild kvenna A
Mánudagur:
Ásvellir: Fjölnir - Selfoss...........14
Kaplakrikav.: FH-ÍBV..................14
ísafjarðarv.: BÍ-ReynirS..............14
4. deild
Laugardagur:
A-riðill:
Leiknisv.: Leiknir R. - Ökkli.........14
B-riðill:
Gervigras: Árvakur - Gk. Grindav......14
Njarðvíkurv.: Njarðvík - VíkingurÓ....16
Grýluv.: Hamar-Léttir.................14
C-riðiH:
Blönduósv.: Hvöt - Kormákur...........14
Hólmavíkurv.: Geislinn - HSÞ-b........14
Siglufjarðarv.: KS - Þrymur...........14
D-riðill:
SeyðisQarðarv.: Huginn-KVA............14
Vopnaijarðarv.: Einheqi - Neisti D...fr.
Þriðjudagur:
C-riðUl:
Melar: SM - Geislinn..................20
Golf
Eldri kylfingar
í dag, laugardag, verður haldið
opið mót í Leirunni, Leirumótið, fyrir
50-54/55 ára og eldri. Skráning í s.
92-14100.
LEK-mót verður á Kjalarvelli í
Mosfellsveit á morgun, sunnudag.
Ræst út frá kl. 08. Skráning í s.
667415.
Opin mót
Opna Endurvinnslumótið í golfi verður á
Strandarvelli í dag. Leikinn verður 18 holu
höggleikur með og án forgjafar. Ræst út
frá kl. 08. Skráning í s. 98-78208.
Opna Hexamótið verður á Keilisvelli í
Hafnarfirði á mánudag. Keppt verður í
kvenna- og kariaflokki, punktakeppni 7/8
forgjöf. Skráning í s. 653360.
Hjólreiðar
Fyrsta umferð bikarkeppni Eimskips í
fjallahjólreiðurn fer' fram við Helgafell
sunnudaginn 22. maí kl. 13. Mæting og
skráning er norðan við Kaldársel kl. 12.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum: A og
B flokkur karla (19+), 16-18 ára og 13-15
ára drengir, 9-12 ára drengir og stúlkur,
kvennaflokkur 17 ára og eldri og 12-17 ára
stúlkur.
Hlaup
Breiðholtshlaupið verður í dag og hefst
kl. 14 við íþróttahúsið Austurberg. Hægt
er að velja um 2 km, 5 km eða 10 km hlaup.
Knattspymufélagið Valur gengst fyrir
almenningshlaupi að Hlíðarenda í dag og
hefst það kl. 14 (2 km og 4 km). Skráning
kl. 11 til 13.30.
Frjálsíþróttir
Vormót frjálsíþróttadeildar Aftureldingar
fer fram á Varmárvelli í dag. Keppni í ungl-
ingaflokkum hefst kl. 12, en kl. 13.30 í
fullorðinsflokkum. Viðbótarskráning á
mótsstað.
Tennis
Tennisklúbbur Víkings hefur starfsemi
sína um helgina og m.a. er boðið upp á
kynningarnámskeið fyrir fullorðna og tenn-
isskóla fyrir börn og unglinga. Skráning
stendur yfír (s. 33050).
FELAGSLIF
Firmakeppni KR í körfu
Firmakeppni körfuknattleiksdeildar KR
hefst föstudaginn 27. maí. Leikið verður í
íþróttahúsi KR og Hagaskóla. Skráning á
skrifstofu deildarinnar (s. 626782 frá og
með þriðjudegi kl. 12 til 15.
„Streetball" körfukeppni
Adidasumboðið Sportmenn hf. gengst
fyrir „Adidas Streetball“ körfuboltakeppn-
inni í Laugardalnum 4. júní. Keppt verður
í sex flokkum, 6 til 99 ára. Skráning stend-
ur yfir á skrifstofunni í Laugardal kl. 13
til 18 (s. 682420) til 31. maí.
Landsbankahlaupið
Hið áriega Landsbankahlaup fer fram i
niunda sinn laugardaginn 28. mai, en hlaup-
ið er samstarfsverkefni Landsbanka íslands
og Fijálsíþróttasambands íslands. Hlaupið
verður á 39 stöðum á landinu, þar sem
Landsbankinn hefur útibú, en einnig verður
hlaupið i Mosfellsbæ og Garðabæ. Rétt til
þátttöku hafa allir 10 til 13 ára krakkar
og stendur skráning yfir f öllum útibúum
Landsbankans, hjá Stjömunni í Garðabæ
og Aftureldingu í Mosfellsbæ.