Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGIAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNAltSTRÆTl 85 LAUGARDAGUR 21. MAÍ1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sparisjóðirnir tilkynna lækkun inn- og útlánsvaxta um allt að 1% Yfirdráttur fyrirtækja lækkar mest SPARISJÓÐIRNIR tilkynntu í gær um lækkun á nokkrum liðum inn- og útlánsvaxta, einkum af lánum til fyrirtækja. Vextir af viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum lækka frá og með degin- um í dag um 0,5% og 1. júní næstkomandi tekur gildi 1% lækkun á yfirdráttarlánum til fyrirtækja. Þá lækka vextir af víxlum og óverðtryggðum skuldabréfum í dag um 0,15%. Margrét Skúladóttir Sigurz Fegurðarsamkeppni Islands „Við teljum að það þurfi að lækka vexti á óverðtryggðum liðum núna en viljum fara hægt af stað og frem- ur reyna að koma til móts við at- vinnulífið. Ég vona að það geti orðið framhald á þessum lækkunum," sagði Baldvin Tryggvason, spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis.“ Baldvin sagði að ákveðið hefði verið að lækka ekki vexti af yfir- dráttarlánum einstaklinga. Kvaðst hann vilja ráðleggja fólki að taka frekar lán á lægri vöxtum en að notfæra sér dýr yfirdráttarlán. Eftir vaxtalækkunina eru kjör- vextir sparisjóðanna af víxlum 8,1%, vextir af yfirdráttarlánum fyrir- tækja 12,5% og vextir af skuldabréf- um 7,85%. Vextir af viðskiptavíxlum eru nú 12,75% og vextir af viðskipta- skuldabréfum 12,9%. Samkvæmt upplýsingum Seðla- bankans breyttust inn- og útláns- vextir bankanna ekki að neinu marki í gær nema á gengisbundnum liðum. Munar 200% á barnaís ÍS í brauðformi er almennt mun ódýrari í Reykjavík en á landsbyggð- inni, samkvæmt skyndikönnun Morgunblaðsins. Stór ís í brauðformi kostar 80 krónur í Ishöllinni við Melhaga þar sem hann er ódýrastur, en 195 kr. í Eden í Hveragerði, þar sem hann er dýrastur. Hlutfallslega er meiri verðmunur á barnaís, sem kostar 50 kr. þar sem hann er ódýrastur en 160 kr. þar sem hann er dýrast- ur. Verð var kannað á 23 sölustöðum á landinu og sögðu sumir að verð- stríð væri milli íssala á höfuðborgar- svæðinu. ■ Verðstríð/16 Hótað að vísa Grikkj- um úr HM FIFA, alþjóða knattspyrnusamband- ið, hefur hótað Grikkjum að þeir fái ekki að taka þátt í úrslitakeppni HM í sumar vegna deilna knattspyrnu- sambands Grikklands og ríkisstjórn- ar landsins. Grikkir voru í riðli með íslending- um í undankeppni og ísland virðist næsta lið inn í úrslitakeppnina í Bandaríkjunum, sem hefst 17. júní, verði Grikkir ekki með. ■ Grikkjum vísað/53 Morgunblaðið/Þorkell 212 hvítir kollar TVÖ HUNDRUÐ og tólf nýstúd- entar brautskráðust frá Verzlun- arskóla íslands í gær. Þórólfur Jónsson varð dúx skólans með 9,76. Þorvarður Elíasson, skóla- stjóri, lagði í ræðu sinni áherslu á að þó venjubundnu skólanámi væri lokið stæði nám yfir að ei- lífu. Sérstaklega bæri að huga að heimspekilegum og siðferðisleg- um viðfangsefnum enda gæfist lítill tími til að sinna þeim í fram- haldsskólum. 18 nýstúdentanna Iuku einnig verslunarmenntaprófi, ■ Reyni að læra/8 Margrét var valiii MARGRÉT Skúladóttir Sig- urz, 21 árs ungfrú Reykjavík, var í gærkvöldi valin fegurðar- drottning Islands, en 21 stúlka keppti til úrslita um titilinn á Hótel íslandi. Bima Bragadóttir, Álfta- nesi, varð í 2. sæti og Unnur Guðný Gunnarsdóttir, 18 ára Reykvíkingur, í 3. sæti. Besta Ijósmyndafyrirsætan var valin Bryndís Fanney Guðmunds- dóttir. Stúlkumar völdu vin- sælustu stúlkuna úr sínum hópi og varð Hafrún Ruth Bachman fyrir valinu. 14 feta báts- skrokki stolið BÁTSSKROKKI var stolið í Hafnarfirði í vikunni. Um er að ræða hvítan 14 feta rrefjaplastskrokk af hraðbáti sem stóð fyrir fyrir utan fyrirtækið TreQar við Stapahraun. Einnig var stolið ýmsu lauslegu sem tengist bátasmíðinni. Lög- reglan segir ljóst að menn hafi þurft að vera með kerm til að koma skrokknum á brott og telur * að þeir hafi þurft að athafna sig á svæðinu í nokkum tíma til að koma skrokknum á kerru og á braut. Félagsfundur meinatækna fjallar um nýjan kjarasamning í dag Skrífað undir samning eftír sjö vikna verkfall MEINATÆKNAFÉLAG íslands skrifaði í gærkvöldi undir kjara- samning við ríkið, Reykjavíkurborg og Landakotsspítala og gildir samn- ingurinn til áramóta. Samningurinn verður borinn upp á félagsfundi meinatækna í dag, og ræðst þá hvort frestað verður verkfalli sem staðið hefur í tæpar 7 vikur, eða síðan 5. apríl. Nýr kjarasamningur meina- tækna var ekki gerður opinber í gærkvöldi, en Edda Sóley Óskars- dóttir formaður Meinatæknafélags- ins sagði að lítið hefði breyst eða bæst við frá því slitnaði upp úr við- ræðum deiluaðila um síðustu helgi. Þá lá fyrir tilboð frá ríkinu sem svaraði til um 6% launahækkunar að jafnaði til meinatækna en þá var deilt um röðun í launaflokka. Náðum ekki lengra Ríkissáttasemjari kallaði samn- inganefndirnar óvænt til fundar í gær að undangengnum samtölum við oddvita þeirra, og var skrifað undir kjarasamning á 10. tímanum. Morgunblaðið/Kristinn Samningur á borðinu ARNA Antonsdóttir og Edda Sóley Óskarsdóttir frá Meina- tæknafélaginu, Þorsteinn Geirsson og Indriði II. Þorláksson úr samninganefnd ríkisins, skrifa undir nýjan kjarasamning meina- tækna í gærkvöldi. Fyrir aftan standa Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari og Geir Gunnarsson vararikissáttasemjari. Það sem einkum mun hafa leyst málið var að möguleikar meina- tækna á að fá starfsheitið verkefn- isstjóri, og hækka þar með um launaflokk, voru rýmkaðir frá síð- asta tilboði ríkisins. Edda Sóley sagðist telja samn- inginn viðunandi. „Við mátum það svo að í þessum áfanga næðum við ekki lengra og ákváðum því að ganga að þessu,“ sagði hún. Þorsteinn Geirsson formaður samninganefndar ríkisins sagði að samningurinn væri viðunandi að mati ríkisins og innan þeirra marka sem þar hefði verið lagt upp með. Hann sagðist ekki óttast að þær launahækkanir sem samið hefði verið um til meinatækna hefðu áhrif á aðra kjarasamninga, en yfirlýst var að verið væri að samræma samninga meinatækna við samn- inga sambærilegra stétta. I nýja samningnum er meðal annars gert ráð fyrir að settur verði á stofn vísindasjóður fyrir meina- tækna til að standa straum af end- urmenntun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.