Morgunblaðið - 27.05.1994, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Tillögur um hámarksafla af þorski kynntar á mánudag
Sá guli verður
naumt skammt-
aður næsta ár
Þorsteinn Jakob Guðjón A.
Pálsson Jakobsson Kristjánsson
MIKLAR líkur eru á því að fiski-
fræðingar Hafrannsóknastofnunar
leggi nú fram tillögur um enn
minni þorskafla en á yfirstandandi
fiskveiðiári. Nú er þorskkvótinn
aðeins 165.000 tonn, minni en
nokkru sinni áður. Ljóst er að
heildarafiinn verður þó nokkru
meiri, eða um 185.000 tonn, vegna
veiða smábáta utan kvóta, línutvö-
földunar og flutnings aflakvóta
milli ára. Fiskifræðingar lögðu hins
vegar tii að aflinn yrði ekki meiri
en 150.000 tonn. Þar sem farið
verður fram úr tillögum fiskifræð-
inga um nálægt 40.000 tonn, eða
rúman fjórðung, hefur að þeirra
mati verið gengið um of á stofninn
og því þarf að mæta með frekari
niðurskurði.
Hafrannsóknastofnun mun
kynna niðurstöður sínar á rann-
sóknum nytjastofna og umhverfis-
þátta á yfirstandandi fiskveiðiári
og aflahorfur á því næsta á mánu-
dag. Þá mun stofnunin kynna til-
lögur sínar um afiahámark fyrir
sjávarútvegsráðherra og hags-
munaaðilum og fjölmiðlum að því
Ioknu.
Ekki verði tekið meira en 22%
úr veiðistofninum
Vinnuhópur um nýtingu fiski-
stofna hefur nýlega skilað af sér
áliti á nýtingu einstakra fiski-
stofna, þar á meðal þorsksins. í
álitinu kemur fram, að stefna skuli
að því að taka aldrei meira en 22%
úr veiðistofni þorsksins, en hann
er nú aðeins um 600.000 tonn.
Verði farið að þessari reglu, ætti
ekki að taka meira en 132.000
tonn á næsta ári. Vinnuhópurinn
telur reyndar hættumörk í þorsk-
veiðum vera um 175.000 tonna
bilið. í skýrslu hans kemur fram,
að líklega væri hagkvæmast út frá
þjóðhagslegum þáttum að taka
fyrst um sinn aðeins 125.000 tonn
á ári.
„Það er leið sem er mjög líkleg
til að stækka stofninn og skila
góðum hagnaði af veiðunum eftir
nokkur ár. Með afla sem nemur
Nýkeyptir
bílar skoð-
aðir þrátt
fyrir vanskil
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefúr
heimilað Bifreiðaskoðun íslands að
skoða allar bifreiðir sem keyptar
voru á tímabilinu 1. janúar sl. til
24. maí, þó svo að eldri bifreiða-
gjöld vegna þeirra séu í vanskilum.
Jafnframt þurfa eigendur þessara
bifreiða ekki að óttast að þeir verð-
ir krafðir um greiðslu á skuldum
sem gjaldféllu áður en þeir eignuð-
ust bifreiðina, og verða þær skuld-
ir innheimtar hjá þeim aðilum sem
voru skráðir eigendur þegar stofn-
að var til skulda.
Samkvæmt lögum á skráður
eigandi bifreiðar á gjalddaga að
greiða bifreiðagjald, og þarf nýr
eigandi að standa skil af greiðslu
hafi ekki verið tilkynnt um eig-
andaskipti. Neita ber eiganda um
skoðun hafi greiðsla ekki verið innt
af hendi.
Mistök lagfærð
Um áramót urðu þau mistök að
upplýsingar um skuldastöðu bif-
reiða féllu úr ökutækjaskrá Bif-
reiðaskoðunar íslands. Af þeim
sökum gátu kaupendur fengið þær
upplýsingar að engin vanskil væru
tengd bifreiðinni, en m.a. bílasalar
styðjast við skrána þegar þeir
ganga frá bílaviðskiptum. Þessi
mistök voru loks lagfærð 21. maí
síðast liðinn og kemur nú fram í
ökutækjaskrá hvort skuld er vegna
bifréiðar eða ekki.
175.000 tonnum á ári má ná svip-
uðum árangri í flestum tilvikum.
Sú leið hefur þó þann annmarka
að stofninn minnkar líklega fyrstu
árin með þessari veiði og því eru
niðurstöður mjög háðar forsendum
um orsakasamband milli hrygning-
arstofns og nýliðunar," segir í áliti
vinnuhóps um nýtingu fiskistofna.
Lögðu til 150.000 tonna
hámark í fyrra
í skýrslu Hafrannsóknastofnun-
ar frá síðasta ári kemur fram að
árgangar þorsksins árin 1985 til
1992 séu undir meðallagi, en þeir
ættu að vera uppistaðan í aflanum.
Nýrri rannsóknir hafa svo sýnt að
árangurinn frá 1993 er vel yfir
meðallagi og miklu betri en árang-
ar undanfarinna ára. Það er hins
vegar ávinningur, sem í fyrsta lagi
FRAMK V ÆMDIR eru vel á veg
komnar við byggingu nýrrar
bensínstöðvar Olíufélagsins við
Geirsgötu. Stöðin kemur í stað
bensínstöðvar fyrirtækisins við
Hafnarstræti sem verður lögð
niður. Nýja bensínstöðin er
þannig hönnuð að hægt verður
að aka af henni upp á bílastæð-
in ofan á Faxaskála. Bygging
skilar sér inn í veiðina 1997, og
er að auki sýnd veiði en ekki gefin.
Hrygningarstofninn er nú rúm-
lega 200.000 tonn og veiðistofninn
ríflega 600.000. í ráðleggingum
Hafrannsóknastofnunar á síðasta
ári kom fram að yrðu veidd
225.000 tonn af þorski 1994 og
1995, myndu bæði veiðistofn og
hrygningarstofn verða minni en
nokkru sinni áður. Við 200.000
tonna veiði myndu stofnarnir einn-
ig halda áfram að minnka, en við
175.000 tonn myndi veiðistofn
einnig minnka en hrygningarstofn-
inn standa í stað. Áðeins með því
að takmarka veiðina enn frekar
muni takast að stækka veiðistofn-
inn. Hafrannsóknastofnun lagði
því til að veiðin á yfirstandandi
fiskveiðiári færi ekki yfir 150.000
tonn.
bensínstöðvarinnar er hluti af
endurbótum á umferðarmann-
virkjum í miðbæ Reykjavíkur,
en viðamesti hluti þeirra er
gerð Geirsgötu. Sigurður
Skarphéðinsson, gatnamála-
sljóri, sagði að þær vonir sem
menn hefðu bundið við umferð-
arbæturnar sem áttu sér stað
með tilkomu Geirsgötunar
Hungurmörkin við 175.000
tonna markið?
Sjávarútvegsráðherra tekur
ákvörðun um heildarafla í samráði
við ríkisstjórnina á grunni ráðlegg-
inga fiskifræðinga og vinnuhópsins
um nýtingu fiskistofna. Ljóst er
að mörgum verður þá þröngur
stakkur skorinn, en Arnar Sigur-
mundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva, segir „hungur-
mörk“ fiskvinnslunnar vera við
175.000 tonna markið. Aðrir hafa
viljað veiða enn meira og er þar
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, framarlega í flokki.
Annars eru skiptar skoðnir um
hæfilega veiði miðað við stöðu
þorskstofnsins og hefur Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ, til
dæmis hvatt til mikillar varkárni
í þessum málum.
Þolinmæði til að byggja upp
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í vetur, þegar
í ljós kom að þorskárgangurinn frá
í fyrra, væri yfir meðallagi, að
ekkert tilefni væri til þess að auka
kvótann. Heldur yrðu menn að
hafa þolinmæði til að halda því
áfram að byggja þorskstofninn
upp. Annað væri glapræði.
Er niðurstöður vinnuhópsins
voru kynntar, sagði Þorsteinn að
áhætta varðandi þorskstofninn
væri vaxandi, enda væru hættu-
mörkin í þorskafla talin við
175.000 tonna markið. Sjávarút-
vegsráðherra hefur ítrekað lýst því
yfir, að fara beri að gát við þorsk-,
veiðarnar óg hefur leitazt við að
fara að tillögum Hafrannsókna-
stofnunar.
Niðurstöðu vinnuhóps um nýt-
ingu fiskistofna ber að sama
brunni, en þar er þjóðarhag talið
bezt borgið með því að halda þors-
kveiðinni í lágmarki fyrst um sinn.
Það er því ljóst að naumt verður
skammtað að þessu sinni eins og
á síðasta fiskveiðiári.
hefðu gengið eftir. Létt hefði
verulega á umferð um mið-
borgina. Þeir sem aka með
ströndinni þyrftu ekki lengur
að aka um miðborgina til að
komast vestur í bæ. Þeir sem
ættu raunverulegt erindi í mið-
borgina ættu þar af leiðandi
auðveldara með að komast leið-
ar sinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Mary Ann Owens og Gunn-
ar Garðarsson eru hér að
leggja síðustu hönd á upp-
setningu á mótífsafni Ow-
ens um fílinn.
Verðlauna-
sofn a fn-
merkja-
sýningu
LANDSSÝNING íslenskra frí-
merkjasafnara verður opnuð í
dag, 27. maí, í íþróttahúsi Haga-
skóla. Auk þess að kynna það
markverðasta sem á döfinni er
í frímerkjasöfnun hérlendis verð-
ur á sýningunni nokkur erlend
mótífsöfn fullorðinna safnara.
Á sýningunni verður m.a. til
sýnins mótífsafnið „Fíllinn" sem
er í eigu Mary Ann Owens frá
Bandaríkjunum, en það er nafn-
togaðasta mótífsafn í heiminum
um þessar mundir og hefur hlot-
ið heiðursverðlaun á fleiri sýn-
ingum en tölu verður á komið.
Owens er með fleiri söfn á sýn-
ingunni. Auk þess verða á sýn-
ingunni safn sem heitir „Eðvarð
VIII - Allt fyrir ástina“ sem
rekur ástir Eðvarðs Englands-
konungs og frú Simpson og
„Víkingarnir" sem er í eigu dr.
Dan Laursen, en hún hlaut gull-
verðlaun á Kólumbusarsýning-
unni í Chicago árið 1992.
Á sýningunni verður list
Þrastar Magnússonar kynnt sér-
staklega, en Þröstur hefur til
margra ára teiknað flest íslensk
frímerki. Frímerki hans hafa
unnið til margra verðlauna og
viðurkenninga á erlendum vett-
vangi.
Sýkna
hæstaréttar-
lögmanns
staðfest
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
sýknudóm Héraðsdóms Reykja-
víkur yfir tveimur þriggja manna
sem ákræðir höfðu verið fyrir
umboðssvik, misnotkun skjals,
tilraun til fjársvika og hlutdeild
í þeim brotum. Sá sem sýknaður
var af ákæru um hlutdeild í
brotunum er Jón Magnússon
hæstaréttarlögmaður. Þriðja
manninn, sem einnig hafði verið
sýknaður í héraði, sakfelldi
Hæstiréttur og dæmdi í 8 mán-
aða skilorðsbundið fangelsi.
Lést af
völdum
brunasára
ÖRN Arnarson, sem brenndist
í heitum potti að Flúðum, lést á
gjörgæslu-
deild Land-
spítalans í
gær. Öm var
23 ára gamall,
fæddur þann
26. ágúst
1970. Hann
var búsettur í
Bessastaða-
hreppi og var
ógiftur og barnlaus.
Morgunblaðið/RAX
Ný bensínstöð í miðbænum