Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 31
30 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 31 JltaQpuiÞliifetfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SfMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. „GRASRÓTAR- HREYFING“ GAM- ALLA FLOKKA! Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni R-listans, hélt því fram á fundi, sem Stöð 2 efndi til í gærkvöldi á Hótel Borg, að valið í borgarstjórnarkosningunum á morgun stæði um flokksvald Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eða „hreyfingu fólksins“, sem hún sagði R-listann vera. Þetta eru mikil öfug- mæli, svo að ekki sé meira sagt. Framboðslistinn, sem Ingibjörg Sólrún veitir forystu, er eng- in grasrótarhreyfing, sem spratt upp á meðal almennings í Reykjavík. Þvert á móti varð R-listinn tii með baktjaldamakki gamalla stjórnmálaflokka, sem sumir hveijir þorðu ekki að bjóða fram einir. Baktjaldamakkið hófst, þegar vinstri menn sáu nið- urstöður skoðanakannana, sem bentu til þess, að sameiginlegt framboð þeirra mundi hafa meiri möguleika gegn Sjálfstæðis- flokknum en flokksframboð. Þá hófust miklar samningaviðræð- ur á milli fulltrúa flokkanna fjögurra, sem strönduðu aftur og aftur vegna þess, að mikil andstaða var innan einstakra flokka gegn því að taka þátt í sameiginlegu framboði. R-listinn varð til með gamaldags baktjaldamakki milli gam- alla stjórnmálaflokka. Þar kom engin fjöldahreyfing fólksins í borginni við sögu. Þegar Ingibjörg Sólrún sjálf var valin til setu á R-listanum, gerðist það heldur ekki með því, að fjöldahreyfing fólksins í Reykjavík gerði hana að borgarstjóraefni, heldur fóru fram samningaviðræður á milli hennar og fulltrúa flokkanna fjögurra um að hún tæki þetta hlutverk að sér. Hún varð við þeim óskum. Ástæðan fyrir því, að hún skipar 8. sæti R-listans er ekki sú, sem hún lét í veðri vaka í umræðunum á fundi Stöðv- ar 2 í gærkvöldi, að hún vildi standa og falla í þessari baráttu, heldur hin, að þar með taldi hún sig lausa allra mála, ef meiri- hluti næðist ekki. „Flokksvaldið", sem Ingibjörg Sólrún kallaði svo, þegar hún fjallaði um Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, hagaði vali frambjóð- enda sinna á annan veg. Það var gert í opnu prófkjöri, sem þúsundir stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins tóku þátt í. Fram- boðslisti Sjálfstæðisflokksins er skipaður í samræmi við niður- stöður þessa prófkjörs í öllum meginatriðum. Árni Sigfússon, borgarstjóri, náði kjöri í annað sæti í því prófkjöri og tók við borgarstjórastarfinu og fyrsta sæti listans eftir að Markús Örn Antonsson hafði dregið sig í hlé. Þegar þessi bakgrunnur framboðslistanna tveggja er skoðað- ur er auðvitað ljóst, að það jaðrar við lýðskrum, þegar borgar- stjóraefni R-listans heldur því fram, að hinn sameiginlegi fram- boðslisti vinstri manna sé „hreyfing fólksins" gegn „flokks- veldi“ Sjálfstæðisflokksins. Það hefur vissulega gerzt í íslenzk- um stjórnmálum, að fram hafi komið öflugar almannahreyfing- ar, sem hafa látið að sér kveða í kosningum og hægt var að segja með sanni, að væru grasrótarhreyfingar sprottnar upp á meðal fólksins í landinu. Vel má vera, að borgarstjóraefni R-listans hafi talið sjálfri sér trú um, að hún sé frambjóðandi slíkrar almannahreyfingar. En veruleikinn er allt annar. R-list- inn er framboðslisti þriggja gamalla vinstri flokka og eins nýrri vinstri flokks, sem orðinn er til með baktjaldamakki og samn- iíigaþófi á milli fulltrúa þessara flokka. Reykvíkingar hafa töluverða reynslu af opinberum störfum fulltrúa þessara flokka. Þeir höfðu meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í fjögur ár. Þeir hafa nokkrum sinnum á lýðveldis- tímanum myndað ríkisstjórnir saman. Undantekningarlaust hef- ur Samstarf vinstri flokkanna, hvort sem er í borgarstjórn eða ríkisstjórn, endað með ósköpum. Hvers vegna ættu borgarbúar að gera eina slíka tilraun enn? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gagnrýndi Sjálfstasðisflokkinn fyrir skattahækkanir á fundi Stöðvar 2 í gærkvöldi. Árni Sigfús- son, borgarstjóri, benti á, að vinstri flokkarnir hækkuðu alla þá skatta á Reykvíkingum, sem þeir gátu, þegar þeir höfðu meirihluta í borgarstjórn um fjögurra ára skeið. Allar vinstri stjórnir, sem hér hafa setið hafa lagt sig fram um að hækka skatta á landslýð eins og framast var unnt. Eftir að Sjálfstæðis- flokkurinn lýsti því yfir, að flokkurinn mundi beita sér fyrir lækkun hitaveitugjalda í Reykjavík spurði Morgunblaðið borgar- stjóraefni R-listans um afstöðu hennar til slíkrar lækkunar. í ljós kom, að borgarstjóraefni R-listans hafði allt á hornum sér vegna þessa fyrirheits Sjálfstæðismanna. Það má gagnrýna Sjálfstæðismenn fyrir margt í skattamálum. Þeir komast þó hvergi nálægt vinstri flokkunum í skattaálögum. Miðað við fengna reynslu eiga Reykvíkingar því ekki von á góðu í þeim efnum, ef R-listinn fær meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur á morgun. AF INNLENDUM VETTVANGI BORGARSTJÓRNARKOSNINGARNAR skrifstofur. Einar Örn sagði nokkur hundruð manns hafa lagt á plóginn og hefði starf sjálfboðaliðanna helst einkennst af því að dreifa bækling- um og blöðum til kjósenda. Þá fæl- ist starfið í því að taka á móti gest- um, skipuleggja viðveru frambjóð- enda og hringja í kjósendur. Síð- ustu dagana hefur R-listinn hringt í marga kjósendur og spurt hvort þeir teldu Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur eiga erindi í borgarstjórn, og sagði Einar Örn að það væri einungis gert til að meta stöðuna en það væri ekki nýtt í neinum ákveðnum tilgangi. ' Aðalbækistöð sjálfstæðismanna í kosningabaráttunni er í Valhöll, en auk þess eru starfandi sjö kosn- ingaskrifstofur í hinum þrettán hverfum borgarinnar. Að sögn Ág- ústs Ragnarssonar hefur í hverri hverfaskrifstofu verið einn starfs- maður sem notið hefur fulltingis eins stjórnarmanna í viðkomandi hverfafélagi, en þegar nær kjördegi tók að líða komu auk þess til starfa umdæmisfulltrúar og hundruð sjálf- boðaliða. Á kjördag bætist síðan enn í hópinn til að liðsinna kjósendum sem leita eftir upplýsingum um allt milli himins og jarðar. Ágúst segir starfið á kosningaskrifstofunum hafa fyrst og fremst verið fólgið í því að ræða málin við kjósendur og taka á móti frambjóðendum sem haft hafa viðveru á hveijum stað og rætt við kjósendur. Hverfaskrif- stofurnar hafa séð um að dreifa öllu efni sem frá Sjálfstæðisflokkn- um hefur komið í tilefni kosning- anna. Þá hafa þær auk þess verið með sitt eigið kosningastarf, sent út bæklinga sem eingöngu eru ætl- aðir viðkomandi hverfi, og auk þess verið með alls kyns uppákomur. „Almennt hefur þetta verið fólg- ið í því að vera í sem mestri snert- ingu við fólkið, og síðan jafnhliða þessu undirbúningur starfsins á sjálfan kjördaginn. Þá hvetjum við fólk til að fara að kjósa, en allt kosningastarf miðar auðvitað að því að ná sem bestum árangri,“ segir Ágúst. Kjósendur aðstoðaðir á kjördag Á kjördag bjóða báðir framboðs- listarnir kjósendum upp á akstur á kjörstað, og verða bílamiðstöðvar D-listans starfræktar á kosninga- skrifstofunum og bílamiðstöð R- - listans verður í kosningamiðstöð- inni í Glæsibæ. Opið hús verður í hverfamiðstöðvum framboðslist- anna á kjördag og kosningavökur. Sjálfstæðisflokkurinn verður samkvæmt venju með fulltrúa í hverri kjördeild sem fylgist með því hveijir koma og kjósa. Hins vegar mun R-listinn ekki hafa þann hátt- inn á, en nokkrir starfsmenn á hans vegum verða þó á kjörstöðum og fylgjast með og aðstoða þá sem þess óska. Ágúst Ragnarsson bend- ir á að af hálfu R-listans hafí verið fylgst með utankjörstaðakosning- unum og flokkarnir fjórir sem að R-listanum standa hafí fram til þessa gert hið sama og nánast alls staðar á landsbyggðinni hafi flokk-. arnir fulltrúa sína í hverri kjördeild. „Þetta er því ekkert einsdæmi og raunverulega er þetta grund- vallaratriði i sambandi við kosning- ar um allan heim,“ segir hann. Lokasprettur baráttunnar Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson R-listinn á Ingólfstorgi R-listinn hélt útiskemmtun á Ingólfstorgi í gær. Aðalræðumaður dagsins var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni listans. Fyrst var safnast saman í Hljómskálagarðinum og síðan var gengið með lúðrablæstri og bum- buslætti niður á Ingólfstorg. í Lækjargötu var kórsöngur og á Ingólfstorgi skemmtu ýmsir listamenn fundarmönnum með glensi og söng. Nú stendur lokaspretturinn í kosningabaráttu sjálf- stæðismanna og sameig- inlegs framboðs minni- hlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur um hvor aðilinn nær umboði meirihluta kjósenda til að fara með stjórn borgarinnar á næsta kjörtímabili. Kosningabar- áttan að þessu sinni hefur einmitt verið sérstök fyrir þá sök að nú á Sjálfstæðisflokkurinn aðeins við einn öflugan andstæðing að etja og hefur það óneitanlega sett sitt mark á kosningaslaginn. Hafa kosningar til borgarstjórnar senni- lega aldrei verið jafn tvísýnar og einmitt nú, enda benda niðurstöður nýjustu skoðanakannana til þess. Dagurinn í dag er lokaspretturinn í þeirri áróðursbaráttu sem átt hef- ur sér stað milli aðila í kosninga- undirbúningnum, en á morgun, kjördaginn sjálfan, beinist starfs- orka þeirra sem staðið hafa í eldlín- unni í kosningaslagnum að mestu í annan farveg en verið hefur fram að þessu. Einar Örn Stefánsson kosninga- stjóri R-listans segir kosnin- gaundirbúninginn allan hafa gengið ljómandi vel og menn hafi starfað saman í fullkominni einingu eins og um einn samstæðan og samhent- an flokk væri að ræða. Kosninga- baráttan hafi verið meira spennandi og raunverulegri þar sem aðeins tveir stórir og sterkir framboðslist- ar væru að keppa, og skilin væru skýrari og andstæðurnar skarpari heldur en áður hefði verið. Ásdís Halla Bragadóttir, fram- kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæð- isflokksins, sem starfar að kosning- arundirbúningi flokksins í Reykja- vík, er sammála því að kosninga- baráttan hafi verið mjög jöfn og spennandi og það hafi verið öðru- vísi en áður fyrir Sjálfstæðisflokk- inn að vera í kosningabaráttu við einn framboðslista. Það hafi verið nokkuð á brattann að sækja og því hafí þurft að hugsa hvem þátt bar- áttunnar betur en oftast áður þegar talsvert mikill meðbyr hafi verið. Kosningaslagurinn í tvísýnustu borgar- stjómarkosningum sem fram hafa farið í Reykjavík er nú kominn á lokastig. Hallur Þorsteinsson kynnti sér kosningastarfið hjá báðum framboðslistunum og ræddi við tals- menn þeirra um kosningabaráttuna. í Morgunblaðið/Sverrir D-listavagninn í Mjódd D-listavagninn var við Álfabakka í Mjódd síð- degis í gær. Þar voru frambjóðendurnir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Helga Jóhannsdóttir og Þorbergur Aðalsteinsson á ferð og flutti sá fyrstnefndi stutta ræðu. Síðan var leikin djass og hverfafélögin í Breiðholti buðu upp á úti- grill. Á myndinni er Þorbergur Aðalsteinsson að ræða við fundarfólk. Engu að síður hafi það verið mjög skemmtilegt að starfa í kosninga- baráttu og vera undir og saxa síðan stöðugt á forskot keppinautarins. Því hafí fylgt mikil stemmning og árangurinn af starfinu hafi verið sýnilegur dag frá degi. „Að R-lista standa margir flokk- ar sem núna hafa gengið í kosn- ingabandalag og því er kosninga- baráttan óneitanlega öðruvísi. Frá byijun vissum við að hveiju við gengum, en það var þó nokkur munur á fylgi framboðslistanna til að byija með samkvæmt skoðana- könnunum. En jafnt og þétt hefur dregið úr þessum mun og núna er það þannig að lítill munur er á fylgi flokkanna. Síðustu dagar hafa því einkennst af vaxandi spennu," seg- ir Ásdís Halla. Hún segir kýnningu Sjálfstæðis- flokksins á stefnu flokksins og árangri á síðustu þrem kjörtímabil- um sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með meirihluta í borgarstjórn hafa komist vel til skila og gaman hafi verið að sjá hve borgarbúar hafa tekið vel við sér þegar þeir hafi velt þessu fyrir sér. Einmitt þetta væri greinileg skýring á því hve saxast hefði á forskot R-listans. Einar Örn Stefánsson segir að R-listinn hefði frá byijun gert sér grein fyrir að mjög mjótt yrði á mununum og markmiðið hefði alltaf verið það að ná átta manns inn í kosningunum, og þrátt fyrir mikinn meðbyrð í skoðanakönnunum í byij- un kosningabaráttunnar hefði þetta sjónarmið ekkert breyst. „Þetta hefur verið óvenjuleg kosningabarátta að því leyti að við höfum reynt að halda uppi já- kvæðri og málefnalegri umræðu og fjöri. Við höfum lagt áherslu á að það sé kominn tími til að breyta og gefa Sjálfstæð- isflokknum frí eftir nær samfellt nær 60 ára völd í borgarstjórn Reykjavík- ur. Við teljum að það sé engum flokki hollt að sitja svo lengi, hvar sem hann er í hinu pólitíska litrófið. Það er einfaldlega nauðsyn fyrir lýðræðið.“ Ásakanir um óheilindi Talsmenn R-listans hafa upp á síðkastið vænt sjálfstæðismenn um að hafa beitt óheiðarlegum vinnu- brögðum í kosningabaráttunni. Ein- ar Örn Stefánsson kosningastjóri R-listans segir kosningabaráttuna hins vegar hafa verið heiðarlega og málefnalega af hálfu R-listans og þar á bæ hafi allir reynt að halda ró sinni. „Mér finnst Sjálfstæðisflokkur- inn hafa beitt gífurlegum fjármun- um í þessari kosningabaráttu og langt er síðan maður hefur séð annað eins. Þar að auki eru ótal margar aðferðir sem flokkurinn hefur beitt sem kannski er ekki hægt að tengja beint kosningunum en hefur engu að síður verið áróður. Þá fínnst mér flokkurinn hafa gengið óvenju langt í því að ata einstaklinga aur, t.d. í auglýsingum sem hann hefur þurft að draga til baka. Mér finnst því kosningabaráttan hafa verið óvenju persónuleg og rætin af hálfu Sjálfstæðisflokksins en við höfum reynt af fremsta megni að falla ekki í þá sömu gryfju. Við höfum stundum gert góðlátlegt grín að þeim en ekki gert árásir á menn,“ segir Einar Orn. Ágúst Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri fulltrúaráðs Sjálf- stæðisflokksins, segir að tölur um auglýsingamagn Sjálfstæðisflokks- ins séu fjarstæðukenndar og úr lausu lofti gripnar. Það að flokkur- inn hafí eytt mörgum tugum millj- óna í kosningabaráttuna sé rangt. „Að Sjálfstæðisflokknum stendur fjöldahreyfing og sjálfstæðismenn í Reykjavík eru alls 14 þúsund tals- ins. Ef hver þeirra greiðir 1.000 kr. til flokksins í kosningabarátt- unni eru það 14 milljónir, sem er ekki fjarri því sem kosn- ingabaráttan kostar. Þá er hægt að benda á að R-listinn hefur auglýst mjög mikið í þessari viku, bæði í dagblöðum og ljós- vakamiðlum, og síðastliðna daga höfum við frekar fengið ábendingar um að R-listinn hafí auglýst meira en Sjálfstæðisflokkurinn," segir hann. Ásdís Halla bætir við að R-listinn rugli saman rógburði og því að Sjálfstæðisflokkurinn dragi fram staðreyndir um það sem einstaka frambjóðendur R-listans hafa hald- ið fram. Hún segir jafnframt að ásakanir R-listans um rógburð og ómálefnalega kosningabaráttu séu mjög merkilegar. í auglýsingum á vegum D-listans hafi einungis verið dregið fram hvað frambjóðendur R-listans hefðu sagt, og jafnframt það sem D-listinn hefði gert. „Þegar við höfum rifjað upp ummæli þeirra á ákveðnum tíma- punktum þá erum við sögð ómál- efnaleg og þau vilja setja lögbann á eigin orð. Þau vilja einfaldlega ekki að borgarbúar fylgist með því sem þau hafa sjálf sagt vegna þess að þau fara í svo marga hringi. Það eru greinilega þau sem hafa eitthvað að fela og það eru þau sem vilja ekki að það sé dregið fram í dagsljósið." Líflegt kosningastarf Einar Örn segir gífurlegan fjölda sjálfboðaliða hafa starfað á vegum R-listans allan tímann sem kosn- ingabaráttan hefur staðið, og mikið Ú'ör, gleði og baráttuhugur hafi ein- kennt kosningabaráttuna í herbúð- um R-listans. Aðalkosningamið- stöðin er á Laugavegi í húsnæði þar sem Alþýðubankinn var á sínum tíma til húsa, en þar að auki hafa verið opnar þijár aðrar kosninga- Andstæðurn- ar eru skarp- ari en áður Baráttan hef- ur verið jöf n og spennandi Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Sverrir Erilsamt á kosningaskrifstofum HUNDRUÐIR sjálfboðaliða hafa mætt til starfa á kosningaskrifstof- um D-listans og R-listans og fjölmargir kjósendur hafa komið þang- að í heimsókn til skrafs og ráðagerða. Efri myndin var tekin í höfuð- stöðvum Sjálfstæðisflokksins í Valhöll þar sem margt var um mann- inn i gær, og á neðri myndinni sem tekin var í höfuðstöðvum R-Iist- ans við Laugaveginn sjást starfsmenn ræða við gesti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.