Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Grikkland
jrá 73
Það kostar minna !
en þig grunar að s
hringja til útlanda.
PÓSTUR OG SÍMI
Fréttamönnum leyft að ræða við „Toto“ Riina í réttarsal
Hótanir mafíósans
vekja ugg á Italíu
Róm. Reuter.
YFIRLÝSINGAR „Toto“ Riina,
„foringja foringjanna" meðal ít-
alskra mafíósa, hafa vakið nokkurn
ugg á Ítalíu en þær eru túlkaðar
sem bein hótun um að kunnir emb-
ættismenn og baráttumenn gegn
glæpasamtökunum verði myrtir.
Lét hann ummælin falla þegar
fréttamönnum var leyft að leggja
fyrir hann spumingar í réttarsal.
ítalska ríkisstjórnin hefur fyrirskip-
að tafarlausa rannsókn á þessu
máli.
Salvatore „Toto“ Riina, sem var
handtekinn á síðasta ári eftir að
hafa farið huldu höfði í nærri aldar-
fjórðung, sakaði „kommúníska"
lögregluforingja, sem færu fremstir
í baráttunni gegn mafíunni, um
samsæri gegn sér og hinni nýju
stjórn á Ítalíu. Nefndi hann sérstak-
lega aðalsaksóknarann í Palermo á
Sikiley, Gian Carlo Caselli, og Lue-
iano Violante, fyrrum formann
þingnefndar, sem fjallaði um maf-
íuna, og félaga í Lýðræðisflokki
vinstrimanna, arftaka kommúnista-
flokksins. Riina, sem hafði einnig
viðumefnið „Skepnan", nefndi einn-
ig á nafn Pino Arlacchi, sérfróðan
Salvatore „Toto“ Riina eftir
að hann var handtekinn í
fyrra.
mann um mafíuna og höfund
margra bóka um skipulagða glæpa-
starfsemi.
Forsetinn hneykslaður
Yfirlýsingar Riina voru fluttar í
sjónvarpi og ítalskir embættismenn
segjast taka þær sem morðhótun
og þeir og Oscar Luigi Scalfaro,
forseti Ítalíu, hneykslast á því, að
honum skuli hafa verið leyft að
ræða við fréttamenn. Var hann í
búri í réttarsal í Reggio Calabria á
Suður-Ítalíu þegar þeir lögðu fyrir
hann spurningar en verið er að rétta
í morðmáli gegn honum.
Riina úthúðaði einnig þeim fyrr-
verandi mafíósum, sem hafa gengið
yfirvöldum á hönd og vitnað gegn
glæpafélögum sínum, en á einu ári
hefur tala þeirra næstum tvöfaldast
og eru nú um 700.
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, sagði í gær, að dóms-
málaráðuneytið hefði hafið rann-
sókn á tildrögum þess, að frétta-
mönnum var leyft að ræða við Riina
og öryggisgæsla um mennina, sem
mafíuforinginn nefndi sérstaklega,
hefði verið aukin.
*73,50 kr.: Verð á 1 mínútu
símtali (sjálfvirkt val) til Grikklands
á næturtaxta m. vsk.
- kjarni málsins!
með frönskum og sósu
=995.-
TAKIÐMEÐ i i j j / TAKIÐMEÐ
- tilboð! WW - tilboð!
Jarfínn
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
Laugardaginn 28. maí 1994
frá kl. 14:00 til 17:00
Nýútskrífuðum grunnskóla-
nemum og aðstandendum
þeirra er sérstaklega boðið
að koma og kynna sér
skólann, námsefni og
félagslíf.
ALLIR VELKOMNIR
l
i
L
VERZLUNARSKOLI
ÍSLANDS
OFANLEITII • S: 688 400
3
J
Reuter
, Farkosturinn
FINNSKU ofurhugarnir leysa landfestar og leggja upp í Islands-
siglinguna. Ráðgera þeir að sigla opnum hraðbátnum á 20-25
hnúta hraða.
Á opnum hraðbáti frá
Helsinki til Islands
TVEIR fínnskir ofurhugar lögðu í síðustu viku af stað á opnum hraðbáti
til íslands. Hafa þeir viðkomu á mörgum stöðum á leiðinni en áætla að vera
í Reykjavík 9. júní eftir þriggja vikna ferðalag, að sögn fínnska blaðsins
Hufvudstadsbladet.
Farkosturinn er finnskur sjö
metra langur og tveggja og hálfs
metra langur sérstyrktur álbátur.
Er hann knúinn 175 hestafla
Evinrude utanborðsmótor sem und-
irbúinn hefur verið sérstaklega til
siglinga á Norður-Atlantshafi.
Finnarnir tveir, Pekka Piri blaða-
maður sem er leiðangursstjóri og
Matti Pulli skipstjóri, hafa mikla
reynslu af siglingum en báðir eru
48 ára. í gær voru íslandsfararnir
finnsku komnir til Kaupmannahafn-
ar en þeir höfðu tafist um sólarhring
á leiðinni þangað frá Helsinki. Þaðan
liggur leiðin um Gautaborg og Skag-
en í Danmörku, Kristjánssand, Sta-
vanger og Bergen í Noregi, Leirvík
á Hjaltlandi og Þórshöfn. Frá Fær-
eyjum liggur leiðin til Hafnar í
Hornafirði en það er lengsti áfang-
inn, um 300 sjómílur. Ekki sigla
þeir til baka til Finnlands heldur
verður báturinn fluttur með skipi frá
Reykjavík og síðar járnbrautarlest
til Stokkhólms. Þaðan sigla þeir til
Finnlands.
Upplýsingalína Sjálfstæðismanna
Reyfcjavík
Hrmgdu núna
Jeltsín
varar við
njósnurum
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
hvatti rússnesku leyniþjón-
ustuna til að leggja harðar að
sér því erlendir njósnarar ógn-
uðu rússnesku þjóðinni. Að
sögn Interfax-
fréttastofunn-
ar fullyrtu yf-
irmenn
gagnnjósna-
þjónustunnar
(FSK) á fundi
með forsetan-
um að erlendir
njósnarar
stunduðu
þjófnað á viðskiptaleyndarmál-
um í þeim tilgangi að skemma
fyrir útflutningsstarfsemi.
Tvísýnt í
Austurríki
FIMMTÍU prósent Austurríkis-
manna styðja aðild að ESB,
samkvæmt niðurstöðum Gall-
up-könnunar sem birtar voru í
gær. Andvígir aðild eru 38%
en 12% sögðust enn óákveðin.
Þjóðaratkvæði um ESB-aðild
fer fram í Austurríki 12. júní.
Finnar kjósa
um ESB í
október
ESKO Aho forsætisráðherra
Finnlands sagði í gær að þjóð-
aratkvæði um aðildina að Evr-
ópusamban-
dinu (ESB)
færi að öllum
líkindum fram
16. október.
Samkvæmt
skoðanakönn-
un frá í síð-
ustu viku
styðja 46%
Finna aðild að
ESB, 25% voru andvíg en 29%
óákveðin. Gert er ráð fyrir þjóð-
aratkvæði um ESB-aðild í Sví-
þjóð 13. nóvember og 28. nóv-
ember í Noregi.
Lítið friðarút-
lit í Bosníu
LITILL árangur hefur enn orð-
ið af viðræðunum um frið í
Bosníu en þær fara fram fyrir
milligöngu sáttasemjara í
franska bænum Talloires. Sök-
uðu Serbar múslima um „yfir-
gengilegar" landakröfur og
sögðu þá haga sér eins og þeir
væru sigurvegararnir í stríðinu.
Var að lokum sæst á það eitt
að hittast aftur bráðlega.
Vill eyju upp
í skuld
ÞÝSKUR kráareigandi, sem
tapaði miklu fé eftir að Sovét-
ríkin hrundu, hefur krafist lítill-
ar, rússneskrar eyjar í Finnska
flóa upp í skuldina og hyggst
breyta henni í ferðamannastað.
Er forsagan sú, að 1992 frysti
rússneski utanríkisviðskipta-
bankinn níu milljarða dollara
innstæður vegna mikils lausa-
fjárskorts, þar á meðal inn-
stæður erlendra fyrirtækja, en
borgaði þær síðan með skulda-
bréfum, sem eru lítils virði.