Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 17 VIÐSKIPTI VIÐURKENNIIMG - Fortsvars- menn fýrirtækjanna sem tóku þátt í verkefninu og á innfelldu myndinni er Júlíus Karlsson frá Afli ásamt Jóni Ásbergssyni framkvæmda- stjóra Útflutningsráðs en Júlíus fékk sérstök verðlaun. liUIUUJI.l-lll J Verkfræðistofan Afl verðlaunuð Seðlabankinn og Þjóðhagsstofnun Sjá engin merki þenslu ÞAÐ er ekki að sjá nein merki þenslu i þjóðfélaginu að mati Eiríks Guðnasonar, Seðla- bankastjóra, og Þórðar Frið- jónssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar. í nýjasta hefti Hagtalna mánaðarins kemur fram að peningamagn og sparifé hafði í lok mars sl. aukist um 10% á síðustu tólf mánuðum þar á undan. Þorvaldur Gylfason pró- fessor sagði í viðtali í viðskipta- blaði Mbl. í gær að ef þetta aukna peningamagn í umferð væri ekki bara bóla sem hjaðn- aði fljótlega væri full ástæða til varúðar og vísaði þar til hættu á aukinni verðbólgu. „Svona tölur geta verið við- vörunarmerki, en eins og sakir standa teljum við þær ekki gefa vísbendingu um verðbólgu- hættu vegna þess hve dauft er yfir efnahagslífinu,“ segir Ei- ríkur. „Annað væri upp á ten- ingnum ef hér væri til dæmis full atvinna." Aðhaldssemi mikilvæg Þórður segir nokkrar sér- stakar ástæður liggja að baki aukins peningamagns í mars sl. og því beri að túlka tölurnar með varúð. Þar komi m.a. til gríðarlega mikill útflutningur fyrstu mánuði ársins og sú ákvörðun að flýta greiðslu launa fyrir páska. „Mér sýnist að það ráði mestu um framhaldið hvaða stefnu verði fylgt í ríkisfjármál- um á næstu misserum. Ef stjórnvöld hafa ekki trú á að- haldssemi á þessum tíma er lík- legt að annað tveggja gerist, vextir hækki eða verðbólga láti á sér kræla,“ sagði Þórður. VERKFRÆÐISTOFAN Afl hlaut í gær sérstök verðlaun fyrir þátttöku sína í verkefninu „útflutningsáukning og hagvöxtur" sem staðið hefur yfir sl. 12 mánuði á vegum Útflutningsráðs íslands. Þetta er þróunarverk- efni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa áhuga á að hefja útflutn- ing eða festa í sessi útflutning sem þegar er hafinn. Átta íslensk fyrir- tæki tóku þátt í verkefninu að þessu sinni en því var slitið formlega í gær við hátíðlega athöfn. Fyrirtækin átta sem þátt tóku í verkefninu voru auk Verkfræðistof- unnar Afls, Austmat hf., Nýjar víddir hf., Hótel Saga, Hótel Oðal á Akureyri, Stilling hf., Fiskur hf. og Miðlun hf. Sérstök dómnefnd hlýddi á fulltrúa fyrirtækjanna kynna áætlun sína og fór yfir þau gögn sem unnin hafa verið á undan- förnum mánuðum. Niðurstaðan varð sú að áætlun Júlíusar Karls- sonar, framkvæmdastjóra verk- fræðistofunnar, varð fyrir valinu sem besta markaðssóknin. Verkfræðistofan var stofnuð árið 1987 og hefur sérhæft sig í gerð hugbúnaðar. Hyggst fyrirtækið markaðssetja erlendis sjálfvirkt birgðaupplýsingakerfi fyrir olíufé- lög. Þessi hugbúnaður var þróaður í samvinnu við Olíufélagið Esso hf. og hefur verið settur upp í birgða- stöðvum í Örfirisey, Hafnarfirði og Keflavíkurflugvelli. Kerfið byggir á Oracle-gagnagrunni. Leitar fyrir sér á Noregsmarkaði Verkfræðistofan hyggst leita fyr- ir sér á Noregsmarkaði með hug- búnaðinn enda eru aðstæður þar svipaðar og hér á landi. Hefur þeg- ar komið fram áhugi hjá olíufélög- unum á að skoða þetta kerfi. Verkefnið ,;útflutningsaukning og hagvöxtur" er írskt að uppruna og var þróað hjá Stjórnunarfélagi Irlands í samvinnu við Útflutnings- ráð írlands og fleiri aðila. Var það fyrst reynt þar í landi árið 1986 en vegna góðrar reynslu hefur af- notaréttur af því verið seldur til átta landa og eru nú fjórtán aðilar reglulega með það á dagskrá. Þetta er þriðja yfirferð verkefnisins hér á landi og hafa 23 fyrirtæki tekið þátt. T23ZSZXSSZS Okkur vantar sjálfboðaliða til margvíslegra starfa fram að kjördegi og á kjördag 28. maí. Komdu á næstu hverfaskrifstofu og fáðu allar nánari upplýsingar. Vesturgata 2 Símar: 18400* 18401 • 18402 Valhöll Sími: 880903 Grensásvegur Símar: 880905 • 880906 • 880907 Skandia komin með 3 milljónir króna af Stöðvar 2 bréfum í sölu Viðskiptum virðist lokið ENGIN viðskipti voru með hlutabréf í íslenska útvarpsfélaginu í gær. Fjárfestingarfélagið Skandia sem ásamt Handsali hefur á síðustu dögum keypt bréf í félaginu fyrir óþekkta aðila hefur frá því seinni hluta miðviku- dags verið með bréf að nafnvirði 3,0 milljónir króna í sölu eftir að hafa verið fyrst og fremst kaupandi bréfa fram að því. Þykir nú allt benda til þess að þeim aðila eða aðilum sem einkum hafa staðið fyrir þessum kaupum á hlutabréfum í Stöð 2 hafi tekist ætl- unarverk sitt og jafnframt að breyt- ing á valdahlutföllum hafi orðið í félaginu, eða að viðkomandi sé þar kominn í einhvers konar lykilaðstöðu. Þróunarfélagið var meðal þeirra aðila sem seldi hlutabréf á síðustu dögum. Félagið keypti hlutabréf í íslenska útvarpsfélaginu í apríl að nafnvirði 5 milljónir á genginu 2,5 en seldi um helming þeirra á síðustu dögum á genginu 3,0. Guðjón Odds- son, einn af fjórmenningunum svo- nefndu ásamt Jóni Ólafssyni, Jó- hanni J. Ólafssyni, fyrrum stjórn- arformanni, og Haraldi Haraldssyni staðfesti í samtali við Morgunblaðið að hann hefði selt lítinn hluta bréfa sinna en það hefði verið í síðasta mánuði og því ótengt kaupkapp- hlaupinu síðustu daga. Þá hefur Árni Samúelsson í Sambíóunum staðfest að hann hafi síðustu daga selt hlut sinn í stöðinni til félaga sinna innan Áramótahópsins svonefnda sem hafa verið ráðandi innan félagsins síðustu misseri. Einnig mun Tryggingamið- stöðin hafa selt hlut sinn í félaginu nú í vikunni en ekki náðist í forsvars- menn félagsins til að fá um það nán- ari upplýsingar. Þýzkaland Minnsta verðbólga í þrjú ár Frankfurt. Reuter. VERÐBÓLGA í vesturhluta Þýzkalands hefur minnkað í maí og er innan við 3% í fyrsta skipti í rúm þijú ár, að sögn yfirvalda. Verðbólgan hefur ekki verið eins lág síðan í apríl 1991, þeg- ar verðlag lækkaði um 2,8%. Hagfræðingar gera ráð fyrir að verðbólga haldi áfram að minnka síðar á þessu ári vegna launasamninga, sem voru gerð- ir í fyrra og voru ekki verð- bólguhvetjandi. Verð á neyzluvarningi hækk- aði um 2,9% í maí miðað við sama mánuð í fyrra og um 0,2% miðað við apríl. * Alver Alusuisse selt stjómendum STJÓRNENDUR álvers í Essen í Þýzkalandi, sem Alusuisse hugðist loka, hafa gengið frá kaupum á verinu. Starfsmenn nýja fyrirtæk- isins, Aluminium Essen GmbH, verða 400. Kerskálar þeir sem voru seldir voru upphaflega þrír og tveimur þeirra hafði þegar verið lokað. Þegar enn var starfað með fullum afköstum 1992 nam sala fyrirtæk- isins 273 milljónum marka. Þegar næstsíðasta kerskálanum var lok- að í fyrra nam salan 189 milljónum marka. Hagstæð skilyrði á málmmörk- uðum greiddu fyrir kauþum stjórn- endanna á fyrirtækinu að sögn Alusuisse. (Wall Street Journal) Royal -uppáhaldið mitt!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.