Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir LÝÐVEDISMERKIÐ verður selt við kjörslaði á laugardaginn. Á myndinni eru Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, Kristinn Skæringsson, framkvæmdastjóri Landgræðslu- sjóðs, Þorvaldur S. Þorvaldsson, formaður Landgræðslusjóðs, og Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Islands. Lýðveldis- merkið selt við kjörstaðina MERKIÐ sem gefið var út við lýðveldiskosningarnar árið 1944 hefur verið endurútgefið og verður til sölu við kjörstaði um allt land á kjördegi við sveitar- stjórnarkosningarnar 28. maí. Ágóði af sölunni rennur í Land- gpræðslusjóð. Þegar atkvæði voru greidd dagana 20.-23. maí 1944 um hvort stofna ætti lýðveldi á Islandi fékk hver kjósandi barmmerki, sem var hringur með þremur bjarkar- laufum. Landsnefnd kosninganna valdi þjóðaratkvæðagreiðslunni þetta merki. Skyldi merkið þvi næst verða fjársöfnunarmerki Landgræðslusjóðs, sem stofnaður var fyrir atbeina landsnefndar samtímis lýðveldiskosningunum og til minningar um þær. Val merkisins og stofnun sjóðsins var byggt á þeirri hugsun að sjálf- stæðisbaráttan sem slík héldi áfram og skyldu bjarkarlaufin minna Islendinga sérstaklega á „að eftir að hið stjórnaifarslega sjálfstæði er fengið, verður merk- asti þátturinn í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar að klæða landið skógi og öðrum nýtilegum gróðri." Barmmerkið hefur nú verið endurútgefið og verður til sölu við kjörstaði á kjördag næstkom- andi laugardag. Nokkrir listamenn ætla að leggja söfnuninni lið. Lag og ljóð Jóhanns G. Jóhannssonar „Yrkj- um ísland" verður útgefið að nýju undir stjórn Björgvins Hall- dórssonar. Skífan gefur lagið út en íslenska útvarpsfélagið mun sjá um kynningu ásamt fleiri aðilum. Námsáföngum fjölgað á starfsári Sumarskólans „VIÐ verðum með fleiri framhaldsskólaáfanga í sumar en við höfum boð- ið upp á áður eða alls 65 og þetta virðist ætla að verða mjög vel sótt,“ segir Ólafur H. Johnson, annar tveggja rekstraraðila Sumarskólans hf. Starfsemi Sumarskólans hf., sem starfar í húsnæði Fjölbrautarskólans í Breiðholti, hefst 30. maí. Innritun stendur yfir þessa dagana. Sumarskól- inn starfar frá lokum maí til loka júní. Ólafur sagðist gera ráð fyrir að 30-40 kennarar störfuðu við skólann í sumar. í áföngum sem standa til boða fyrir framhaldsskólanemendur er m.a. boðið upp á tungumálanám, bókfærslu, eðlis- og efnafræði, fé- lagsfræði, jarðfræði og líffræði og viðskiptareikninga og þjóðhag- fræði. Ólafur sagði að áfanganámið í Sumarskólanum væri allt mats- hæft á milli framhaldsskólanna en það byggir á námsskrá mennta- málaráðuneytisins. Sagði hann að nemendur kæmu víða að og það hentaði líka nemendum í sumar- vinnu, því kennsla færi fram frá kl.,17.30 til 22. í sumar mun Sumarskólinn einn- ig bjóða starfsmönnum fyrirtækja í sérstakt fyrirtækjanám, sem er sérstaklega ætlað þeim sem ekki hafa mikla framhaldsmenntun en vilja styrkja stöðu sína og bæta sig í starfi. Ólafur sagðist telja að fyrir- tækjanámið, eins og því verður háttað í Sumarskólanum, væri nýj- ung hér á landi. Ofaglærðu starfsfólki sjúkrahúsa verður boðið upp á nám í líffæra- og lífeðlisfræði, heilbrigðisfræði og skyndihjálp og aðstandendum sjúkra og aldraðra býðst nám sem nýtist við aðhlynningu í heimahús- um. Loks er nám í uppheldisfræðum fyrir dagmæður og aðstoðarfólk á leikskólum nýr áfangi, sem boðið er upp á í sumarskólanum. „Þetta er annað árið sem við rek- um skólann. Það var reynt að setja lögbann á okkur í fyrra en okkur tókst að hrinda því og það lítur út fyrir að við fáum að vera með þetta alveg í friði í ár,“ sagði Ólafur. Ungur fiðluleikari hlýtur meistaragráðu Askonin að verða einleikari á fiðlu Júdith hlaut meist- aragráðu í fiðluleik frá „Cleveland Inst- itute of Music“ við „Case Western University“ í liðinni viku, ásamt því að veita viðtöku verðlaunum sem kennd eru við Joseph Scharff, sem jafnan hafa fallið framúrskarandi fiðlu- leikurum í skaut. Júdith er tveimur árum yngri en þeir samstúdentar hennar sem hlutu meistaragráðu á sama tíma. Hún hlaut einnig fyrir nokkrum dögum fyrstu verðlaun „Marcia Polayes National Violinist Comp- etition" í New Haven í Connecticut-ríki. Ásamt verðlaunum hlaut hún samninga um tónleika á ýmsum stöðum í Bandaríkj- unum á næstu misserum. Fyrir ári hlaut Júdith fyrstu verðlaun í „Le- opald Shopmaker Mid-America Violin Competition" í Kansas City og hefur síðan þá tekið þátt í fimm samkeppnum um fiðluleik og borið sigur úr býtum í fjórum þeirra. Júdith hefur leikið á meistara- námskeiðum hjá ekki ómerkari fiðluleikurum en Gingold, Stern, Milstein, Ricci, Silverstein, Spi- vakov, Schneider og Miriam Fried. Eftir tvær vikur verður hún ein- leikari í flutningi á konsert eftir Samuel Barber með sinfóníuhljóm- sveit Kansas City og leikur á næsta ári með sinfóníuhljómsveit New Haven í Connecticut. Júdith starfar sem aðstoðar- kennari hjá virtum fiðluleikurum, Lindu Sharon og R. Vernon í „Westem Reserve Academy" í sumar en mun vinna doktorsverk- efni sitt við „Cleveland Institute of Music“ næsta vetur. „Ég ætla í doktorsnámið ein- göngu til að læra hjá tilteknum kennara sem getur leiðbeint mér og undirbúið fyrir tónleikahald í framtíðinni,“ segir Júdith. „Ég stefni að því að verða einleikari á fiðlu að atvinnu og bíð þess að umboðsmaður fái augastað á mér, en það krefst bæði mikillar heppni og enn meiri vinnu. Miðað við árangur þann sem ég hef náð í samkeppnum, tel ég ástæðu til bjartsýni á því sviði en veit þó að óvissuþátturinn er stór. Sam- keppnir virka hvetjandi. á mig, því ekki aðeins fylgir þeim umfjöllun og viðurkenningar sem skipta máli fyrir ferilinn, heldur fær mað- ur einnig tækifæri til að leika fyr- ir fræga fiðluleikara ------------ sem dæma í slíkum keppnum.“ -Þú óttast ekki þá óvægnu samkeppni sem fylgir atvinnumennsku? „Nei, í raun og veru ekki. í gegnum tónleikahald mitt og ferðalög þeim samfara, hef ég kynnst andanum í greininni, við- móti fólksins og þeim kröfum sem gerðar eru til tónlistarmanna. Ég veit því hvernig landið liggur og óttast ekki að starfa sem atvinnu- tónlistarmaður — það er miklu frekar að ég sjái það sem áskor- un. Ég mun gera mitt besta og reyni að sætta mig við þann árang- ur sem næst.“ Aðalkennari hennar í Curtis- tónlistarháskólanum var rússneski fiðluleikarinn Jascha Brodsky, og segir Júdith spilamennsku sína hafa orðið fyrir áhrifum frá „russneska skólanum". Hún segir að rússneska aðferðin boði ýmsar áherslur og blæbrigðamun í leik sem greini hana frá öðrum aðferð- um, hún sé t.d. útleitnari og tján- ingarríkari. Útkoman sé þó í raun ekki mjög frábrugðin tónlistar- sköpun fiðluleikara sem leita í Júdith Franziska Ketilsdóttir ►JÚDITH Franziska Ketils- dóttir er fædd í Reykjavík 13. maí 1973. Hún flutti til Banda- ríkjanna árið 1980 ásamt for- eldum sínum, Úrsúlu Fassbind Ingólfsson, sem starfar nú sem píanóleikari og tónlistarkenn- ari í Philadephia, og dr. Katli Ingólfssyni, stærðfræðingi. Yngri systir hennar, Míijam, er sellóleikari og lauk nýverið námi í Curtis-tónlistarháskól- anum. Júdith stundaði tónlist- arnám hérlendis og í Banda- ríkjunum frá barnæsku og hóf síðan nám í Curtis-tónlistarhá- skólanum í Philadephia árið 1987. Þar var hún nemandi rússneska fiðluleikarans Jasc- has Brodskys og lauk námi með frábærum vitnisburði vor- ið 1992. Síðan hefur hún stund- að nám við „Cleveland Institute of Music“ hjá David Cerone, sem er forseti háskólans. smiðju til annarra skóla. „Ég held samt sem áður að bandaríski kenn- arinn minn sem leiðbeinir mér nú og hérlent umhverfi, hafi leitt til að ég hafi þróað með mér eigin leikaðferð og tón, sem mótast af ýmsum áhrifum. Þeir fiðlumeistar- ar sem hafa kennt á námskeiðum, hafa líka miðlað mér alþjóðlegri og um leið einstaklingsbundinni reynslu sem hefur þroskað með mér sýn á fiðluleik sem ég hefði aldrei öðlast að öðrum kosti," seg- ir hún. Júdith hefur ekki komið til ís- lands í fimm ár og kveðst of ryðguð í ís- lensku til að beita henni. Hún talar hins vegar þýsku reiprennandi, enda er það tungumálið sem oftast er notað á hennar vegna uppruna Hún segist gjarnan Hlaðin verð- launum og viðurkenning- um heimili móðurinnar. vilja heimsækja íslands og spila, þó að slíkt sé ekki í bígerð. „Ég held að uppruni minn hafi hafi haft mikil áhrif á þá ákvörðun mína að verða tónlistarmaður og segja má að andrúmsloftið á heim- ili mínu hafi kynt undir þann áhuga frá byrjun. Ég er stolt af því að vera íslendingur að hálfu og Svisslendingur að hálfu, og held að auðug og ólík menning þessara landa hafi hjálpað mér við að móta tjáningu og einstakling- seinkenni. Mér fínnst sjóndeildar- hringur minn stærri fyrir vikið. Ég ólst líka upp við tónlist, hún er hluti af mér og móðir mín var mér fyrirmynd að mörgu leyti. Um tíma hugleiddi ég að vísu að nema sálfræði sem ég hef áhuga á, en tónlistin varð fyrir valinu sem ævistarf og tjáningarform og ég sé ekki eftir því.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.