Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ Alger umskipti í leikskólamál- um í Kópavogi FUÓTLEGA eftir að núverandi meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs ^tók við stjórntaumun- um gerði hann sér grein fyrir kalli okkar tíma. Menn hlustuðu á það sem kjósendur í bænum óskuðu helst eftir í hinum ýmsu málaflokkum. Það kom í ljós að Kópavogur hefur lengi verið á eftir öðrum bæjarfélögum með ýmiskonar þjón- ustu, sem bæjarfélög inna af hendi og þykir ekki nema sjálfsögð. Eitt þeirra atriða sem greinilega var langt á eftir voru leikskólar fyrir 2 til 6 ára böm í bænum. • ‘ Leikskólar eru meðal homsteina nútíma samfélags. Samfélagsgerðin hefur breyst frá því þegar fjölskyl- dufaðirinn dró einn björg í bú, nú er það nánast reglan að foreldrarnir vinni báðir utan heimilis og ekki að sjá að á því verði breyting í framtíð- inni. Þetta er að sjálfsögðu skiljan- legt, konur vilja fá að njóta sín úti á vinnumarkaðnum, ekki síst þær fjölmörgo sem orðið hafa sér úti um góða menntun á ýmsum sviðum. —/ 85% fj ölgun leikskólarýma á kjörtímabilinu Bæjarstjórn Kópavogs tók á leik- skólamálunum svo um munaði. Leikskólaplássum fjölgaði um 85% frá því að núverandi meirihluti tók við, hvorki meira né minna, eftir að tekinn var í notkun nýr leikskóli á nýbyggingasvæðinu í Smára- hvammi í síðustu viku. Leikskóla- pláss á vegum bæjarins eru orðin 940 í Kópa- vogi, en voru 508 árið 1990 þegar skipt var um stjómendur bæjar- ins. Sjálfstæðismenn í Kópavogi telja að því fé sem varið hefur ver- ið til leikskólauppbygg- ingarinnar á skömmum tíma sé vel varið og vona ég að bæjarbúar séu mér sammmála um það. Erlendar rann- sóknir hafa sýnt að með tryggri dagvistun bama hafá ijarvistir fólks á vinnustöðum minnkað, af- köst þess eru betri - og þeir sem öruggrar þjónustu njóta þjást ekki af streitusjúkdómum í sama mæli og þeir sem njóta hennar ekki. Sj álfstæðisflokkurinn mun ganga milli bols og höfuðs á illræmdum biðlistum eftir leikskóla- plássi, segir Gunnar Birgisson, fái hann til þess kjörfylgi. Mikið talað, minna framkvæmt hjá fyrrverandi meirihluta Auk þess að fjölga svo stórlega leikskólaplássum hefur verið unnið mikið starf af starfsfólki leikskól- anna í Kópavogi til að geta veitt Gunnar Birgisson. sem allra fullkomnasta þjónustu. Við erum svo heppin í Kópavogi að hafa í okkar þjónustu afar vel menntaða og hæfa starfskrafta. Gæði leikskólanna okkar em því mikil og það er engin spurning að leikskólarnir veita börnunum mikla og góða fræðslu og þar þroskast þau af visku og viti. í tíð A-flokkanna svokölluðu var mikið rætt um leikskólamál, en minna varð úr framkvæmdum. Nú- verandi meirihluti ræddi málin í sín- um hópi eftir að ógnarlangir biðiist- ar um leikskólarými lágu fyrir, - og framkvæmdi það sem gera þurfti. Nýr leikskóli var opnaður 1991; leikskólinn við Fögmbrekku var stækkaður; byggt var við leik- skólann við Bjarnhólastíg; leikskól- anum við Hábraut var gjörbylt og hann nánast endurbyggður, enda viðhaldsvinnu þar ábótavant um árabil; - og nú hefur verið opnaður nýr leikskóli í Smárahvammi. Leik- skóii er nú í hönnun fyrir íbúa í Nónhæð og þess ekki langt að bíða að framkvæmdir hefjist. Auk þess- ara leikskóla eru tveir einkareknir leikskólar í bænum og Kópavogsbær niðurgreiðir vistun fyrir börn sem eru á leikskólum Ríkisspítalanna. Þá er öflugt dagmæðrakerfi í bæn- um, sem minnkar í takt við fleiri rými í leikskólum bæjarfélagsins. Gæsluvellir eru víða um bæinn og bjóða örugga gæslu, auk fjölda op- inna leiksvæða. Burt með biðlistana! Fái Sjálfstæðisflokkurinn kjör- fylgi til að fara með stjórn bæjarfé- lagsins næstu ijögur árin, mun hann ganga milli bols og höfuðs á hinum illræmdu biðlistum eftir leikskóla- plássi. Þeir listar hafa stöðugt verið að styttast undanfarin fjögur ár. Markmið okkar er einfaldlega þetta: Burt með biðlistana! Allar bamafjölskyldur eiga að fá aðgang með börn sín að leikskólum bæjarins strax og þær óska þess. Það er ekki annað en sanngjörn og eðlileg krafa í nútíma þjóðfélagi. Við þetta munum við standa, sjálfstæð- ismenn. Höfundur er efsti maður á D-Iista í Kópavogi. Hvert er það siðgæði? HÚN kostar sitt í ár, kosningabaráttan í Kópavogi. Merihluti Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks eys nú óspart úr sjóðum bæj- arfélagsins og sendir frá sér hvern glæsibæklinginn á fætur öðrum. Svo mik- ill er ákafinn að ekki er gætt að því að stór hluti þeirra upplýs- inga, sem fram koma er úreltur eftir nokkra mánuði enda var það ekki upplýsingaþörfin, sem bjó að baki útgáf- unni. Kosningabarátta Sigurðar Geirdal og Gunnars Birgissonar er nú þegar búin að kosta Kópa- vogsbúa hátt í 10 milljónir og fieira er á leiðinni. Þeir voru víst búnir að hugsa sér eitthvað þessu líkt, Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík. Gefa út nokkra litprentaða bækl- inga um hvað allt væri gott í henni Reykjavík. En þeim var ráðlagt frá þessu. Kosningaráðgjafar flokks- ins töldu að fólk myndi bregðast illa við svo auðsæju bruðli með almannafé. En þeir hafa ekki áhyggjur af því í Kópavogi. Fimm, sex, sjö eða átta bæklingar, allir prentaðar á glansandi pappír, litur á hverri síðu, ekkert til sparað og hvergi hugað að mengun og um- hverfi. Og hvers vegna skyldu mennirn- ir líka spara? Nú skuldar Kópavog- ur að vísu helmingi meira en þegar þeir félagar settust að völdum eða þrjá milljarða. Hins vegar er við- skiptafræðingurinn í bæjarstjórn- arstólnum búinn að skuldbreyta þannig að þegar loks kemur að skuldadögum verður hann búinn að draga sig í hlé frá amstri hvers- dagsins. Og ætti að geta lifað ágætu lífi af einum saman vöxt- um þess sem hann getur lagt fyrir af bæj arstj óralaunum sínum. Það eru hins vegar ég óg mín kyn- slóð, sem situr í súp- unni. Við fáum að borga eyðslu og sukk síðustu ára, við fáum að borga kosningabar- áttu Framsóknar- flokksins og Sjálf- stæðisflokksins. Fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar skrifaði Gunnar Birgisson forystu- grein í blað Sjálfstæðisflokksins, Voga (4. tbl. 1990). Hann sagði þar meðal annars: „I kosningabar- Yið fáum að borga kosningabaráttu Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, segir Flosi Eiríksson, um bæjarmál í Kópavogi. áttu sinni virðast A- flokkarnir einskis svífast. Gefnir eru út bækl- ingar á kostnað bæjarsjóðs í áróð- ursskyni fyrir þá... Á hvaða stigi er siðgæði manna sem þannig vinna í skjóli aðstöðu sinnar?“ Það er nú það. Það er sitthvað hérland og þarland. Höfundur er húsasmiður og skipar þriðja sætiá G-Iista íKópavogi. Flosi Eiríksson Kvennalistinn setur leik- skóla í forgang Á YFIRSTAND- ANDI ári fjölskyld- unnar keppast stjórn- málamenn við að lýsa því yfir hve annt þeim er um fjölskyldur þessa lands. Orð eru vissulega til alls fyrst, en hugur verður þá að fylgja máli. Kvennalistakonur hafa frá upphafi lagt ríka áherslu á málefni fjölskyldna í víðum skilningi þess orðs, ^ekki aðeins í kosn- ingaslagorðastíl, held- ur m.a. með tillögu- flutningi á Alþingi sem sjaldnast hefur hlotið hljómgrunn meðal annarra flokka. Á sama hátt og Byggingarfyrirtæki á Spani leitarað sölumanni til að markaðssetja lúxus- íbúðirfyrirtækisins, sem eru á einstökum stað á Costa Blanca. Há umboðslaun. Fáið nánari upplýsingar hjá: La marquesa Golf & Country Club. Apartadode Correos No 6 03170 Rojales (Alicante) Spáni, eða sím- bréf: 90 34-6-671 9174. x við kvennalistakonur höfum sagt að öll mál séu kvennamál má segja að öll mál séu fjölskyldumál með einum eða öðrum hætti. Sá málaflokkur sem foreldrar ungra barna ræða sennilega einna oftast sín á milli og hafa áhyggjur af eru leikskólamálin. Það má ekki gleymast í umræðunni um Ieik- skóla að fæðingaror- lofið er aðeins sex mánuðir og margar mæður verða að fara að vinna utan heimilis strax að loknu fæð- ingarorlofi. Segja má að svo til eina úrræðið á þeim tímapunkti sé gæsla hjá dagmæðrum. Fátítt er að börn komist inná leikskóla fyrr en í fyrsta lagi við tveggja ára aldur. Biðlistar á leikskóla Það er álit margra að staðan í leikskólamálum í Kópavogi sé mjög góð a.m.k. miðað við önnur bæjarfélög. Sumir halda jafnvel að öll börn sem sótt er um pláss fyrir í Kópavogi komist inn við tveggja ára aldur. Svo er ekki. I október 1993 voru 488 börn á bið- lista eftir leikskólaplássi í Kópa- vogi. Nú eru 865 leikskólapláss í Kópavogi og nú hafa 130 pláss bæst við á nýjum leikskóla í Smárahvammi. Miðað við tölur yfir fjölda barna á leikskólaaldri í Kópavogi má gera ráð fyrir að biðlistinn styttist lítið á þessu ári, þrátt fyrir viðbótarpláss. Það eru því alltof margir foreldrar í Kópa- Öll mál eru kvennamál, fjölskyldumál, segir Sigrún Jónsdóttir, og kvennalistakonur leggja ríka áherslu á hvaðeina sem kemur fjölskyld- unni til góða. vogi sem þurfa enn um sinn að að bíða eftir plássi fyrir börn sín. Sérstakt átak í leikskólamálum ætti að vera forgangsverkefni bæjarfélagsins á ári fjölskyldunn- ar. Hærri leikskólagjöld í Kópavogi en í nágrannasveitarfélögum Fjölskyldur í nágrannasveit- arfélögum Kópavogs búa síður en svo við nægt framboð leikskóla- plássa, það er hins vegar stað- reynd að leikskólagjöld í t.d. Hafn- arfirði og Reykjavík eru töluvert lægri en í Kópavogi. I Kópavogi er gjald fyrir níu stundir með máltíðum 19.800 kr. á mánuði, í Hafnarfirði og Reykjayík er gjald- Sigrún Jónsdóttir ið 16.000 kr. Samtals greiða for- eldrar í Kópavogi 45.600 kr. meira á ári en foreldrar í Reykjavík og Hafnarfirði fyrir heilsdagspláss á leikskólum. Fyrir sex stunda pláss greiða foreldrar í Kópavogi 10.200 kr. meira á ári en foreldrar í ná- grannabæjunum tveim. Það getur svo sannarlega munað um þessar upphæðir á erfiðum tímum. í báð- um þessum bæjarfélögum greiða námsmenn lægra gjald en aðrir foreldrar fyrir heilsdagspláss, þ.e. í Hafnarfirði 14.000 kr. ef annað foreldri er í námi og í Reykjavík 14.400 kr. Slíku er ekki til að dreifa í Kópavogi. Þama munar því töluverðu á aðstöðu foreldra í námi í Kópavogi annars vegar og Reykjavík og Hafnarfirði hins veg- ar. Við kvennalistakonur teljum nauðsynlegt að endurskoða leik- skólagjöldin með tilliti til þessa munar og aðstöðu námsmanna. Ég er ekki viss um að foreldrar í Kópavogi viti almennt af þessum mun. Ung kona sem er í námi hafði orð á því að ef hún hefði gert sér grein fyrir þessum að- stöðumun námsmanna hefði hún svo sannarlega hugsað sig tvisvar um áður en hún festi kaup á hús- næði í Kópavogi. Þessi málefni skipta vissulega máli þegar ungt fólk velur sér búsetu og ljóst má vera að nægt framboð er af hús- næði á almennum markaði í Kópa- vogi í dag, þannig að bæjarfélagið verður að gera sitt til að laða fólk að. Aðrir valmöguleikar Þó að leikskólar reknir af bæjar- félaginu sé sá kostur sem flestir foreldrar kjósa er ekki þar með sagt að einkareknir og/eða for- eldrareknir leikskólar eigi ekki að vera til staðar. Kvennalistakönur í Kópavogi telja að slíkir möguleik- ar eigi vissulega að vera fyrir hendi, en gæta þarf þess að þeir uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til leikskóla. Eins og staðan er í dag í leik- skólamálum er nánast útilokað að koma börnum undir tveggja ára aldri að á leikskóla. Þar hafa dag- mæður komið til sögunnar og brú- að bilið, starfsemi dagmæðra í Kópavogi hefur eflst með árunum og margar þeirra hafa nú mikla reynslu og góða aðstöðu. Stuðn- ingur og eftirlit bæjaryfirvalda með þessari starfsemi er nauðsyn- legur, þó að tilvist dagmæðrakerf- isins megi ekki verða til þess að draga úr framkvæmdum við leik- skóla. Gæsluvellir, eða róló eins og þeir eru kallaðir í daglegu tali, er þjónusta við barnafjölskyldur sem hlúa þarf að. Gæta þarf þess við skipulag vallanna að umhverfið bjóði upp á fjölbreytta leikaðstöðu og að fyllsta tillit sé tekið til örygg- is barnanna. Krónur og aurar? En koma ekki tillögur Kvenna- listans í leikskólamálum til með að kosta bæjarfélagið alltof mikið? Fer hið skuldsetta bæjarfélag ekki einfaldlega á hausinn? Nei varla. Kostnaður við byggingu leikskól- ans í Smárahvammi mun vera u.þ.b. 70 milljónir króna. Benda má á í þessu sambandi að skatt- tekjur bæjarins eru áætlaðar á þessu ári 1,6 milljarðar, þannig að hér gildir sem fyrr að forgangs- raða verkefnum með tilliti til þess sem talið er brýnast hverju sinni. Kvennalistinn setur leikskólamálin í forgang. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og skipar annað sæti á lista Kvennalistans íKópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.