Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Voði fyrir sunnan
Frá Bimi Egilssyni:
NÚ ER voði fyrir sunnan. Borgin er
að falla. Út af þessu heyrast rama-
kvein úr fjarlægð, vestan af Fjörðum
og norðan af Langanesi.
Landsfólkinu er ekki sama. Séð
úr fjarlægð er Reykjavík fögur borg
með ráðhús í Tjörn og kirkjutuma á
hæðum.
Hvað gerist þegar borgin fellur?
Það gerist að vinstri menn ná meiri-
hluta í stjórn borgainnar og ráða
lögum og lofum í fjögur ár, stjóma
bæði vel og illa.
Þetta er að gerast nú og sagt að
vinstri menn hafi bijóstvit naumlega
í meðallagi og alls ekkert peningavit.
Það hefur aldrei kunnað góðri
lukku að stýra þegar smáflokkar
draga sig saman.
Orðin hægri og vinstri maður í
stjómmálum eiga sér langa sögu.
Stjórnarbyltingin í Frakklandi
markaði tímamót í stjórnmálasögu
Evrópu seint á 18. öld. Þeir sem vildu
skerða auð og völd lorda og lávarða
tóku sér stöðu vinstra megin í þing-
sal Frakklands og voru kallaðir
vinstri menn.
Ég horfi löngum til vinstri manna.
Ég hef alltaf verið einhvers staðar
vinstra megin, aldrei meira en hálfur
inni í íhaldinu.
Mér hefur geðjast vel að Jóhönnu.
Hún er vel ættuð þó hún sé ekki
heilög.
Vinstri menn eru ekki vondir upp
til hópa. Þetta eru meinlausir menn
sem vilja vinna sín verk vel, eins og
góðir vinnumenn á stóru heimili.
Hið sama gildir um alþingismenn
og þá sem stjórna málefnum Reykja-
víkurborgar. Þeir em meinlausir og
tiltölulega sómakærir.
Bíð eftir Morgunblaðinu
Við hér í Neðra á Króknum höfum
það gott. Okkur líður vel.
Við fáum að borða mikinn og góð-
an mat sem Jón Baldvin lætur kaupa
oní okkur. Hitinn í húsinu kostar
ekki neitt. Hann kemur úr Áshildar-
kotsvatninu.
Á hverjum degi sit ég lengi frammi
við dyr að bíða eftir Morgunblaðinu.
Ég vil verða fyrstur að lesa það.
Það er hlegið að mér þegar ég sit
við dyr. Það hefur engin áhrif á mig.
Sauðþráinn hefur alltaf komið mér
að gagni. Sumir tala til mín og ég
tek undir, ef ég er ekki fúll.
Það em ekki allir sammála sem
láta til sín heyra.
Þegar ég segi að Morgunblaðið sé
besta blað norðan Alpafjalla, þá eru
sumir sem fussa og sveia og segja
að Mogginn sé ómerkilegur blaðs-
nepill sem ætti að brenna.
Innfluttar plágur
íslendingar hafa fyrr og síðar flutt
til landsins bæði gott og vont.
Á 18. öld fluttu þeir fjárkláðann
inn og síðar riðuveiki, garnaveiki,
mæðiveiki og mink.
Og þessum innflutningi er alls
ekki lokið. Það er eftir að flytja inn
gin- og kaufaveiki og aðrar plágur,
sem upp kunna að koma suður í hinni
svörtu Afríku.
íslendingar lifðu af svarta dauða
og móðuharðindi og enn munu þeir
hjara suðrænar plágur þó þeir losni
aldrei við bandorminn og minkinn.
Hvað veldur?
Því veldur seiglan og þrjóskan sem
býr í þessum norræna kynþætti.
Landsmenn brotna ekki þótt þeir
svigni.
Noregskonungar fluttu kristindóm
til íslands fyrir þúsund árum. Þá var
bannað að bera út börn og útburðar-
væl heyrðust ekki lengur. Það var
góð innkoma og þeim lögum hefur
ekki verið breytt.
Úlfur, úlfur!
Það er gott að vara við hættum.
Það er gott fyrir okkur hér fyrir
Léleg gufubaðsaðstaða við
Sundlaug Kópavogs
Frá Jóni Stefánssyni:
ÉG GET ekki á mér setið að taka
mér penna í hönd, í sambandi við
Sundlaug Kópavogs. Þótt við íbúar
Kópavogs getum státað af góðri og
stórri sundlaug, er það ekki nóg.
Það þarf að halda við hlutum og
þrífa sem best. Það hefur nú farið
úr böndunum hjá sundlaugarstarfs-
mönnum. Ég tók eftir þessu þegar
nýja sundlaugin var tekin í notkun.
Það var eins og gamli hlutinn af
sundlauginni væri ekki til í augum
starfsmanna sundlaugarinnar. Ég
spurði einn af nýju starfsmönnunum
af hveiju þeir sinntu ekki skyldum
og þrifum í gömlu lauginni, var svar-
ið á þá leið: „Ég var ekki ráðinn við
gömlu sundlaugina." Mér fannst
þetta skrýtið svar.
Það sem ég vil tala um er gufu-
baðið, sem tilheyrir gömlu sundlaug-
inni. Eftir að nýja laugin tók til
starfa tók ég eftir því að þeir sem
fóru í gufu voru ekki í eins góðu
sambandi við starfsfólk og áður og
þrifín fóru versnandi. Eg skrifaði
stjórn sundlaugar og bæjarstjórnar-
mönnum og benti á öryggismálin og
þrifín. Það eina sem kom út úr því
var öryggishnappur sem er vita
gagnslaus þar sem staðsetning hans
er röng, að öðru leyti voru engin
önnur viðbrögð af þeirra hálfu. Mað-
ur taldi sér trú um að þetta gæti
ekki versnað en annað kom nú á
daginn.
Aðstaðan minnkuð
Eftir að þeir lokuðu lauginni um
tíma hugsaði maður að nú tækju
þeir þetta almennilega í gegn og
kæmu með nýja gufubaðsaðstöðu,
þar sem margir notfæra sér þau
þægindi að fara í gufubað og sund,
það myndi nú ekki draga úr aðsókn-
ini að lauginni. Eftir að þeir opnuðu
gömlu laugina aftur var maður í
hálfgerðu sjokki, það var búið að
minnka gufubaðsaðstöðuna um
helming og sementryk yfir öllu í
gufubáðinu og er enn í axlarhæð í
dag, en það er ekki búið að mála
yfir þá bletti sem púsað var upp í.
Gufubaðsofninn slær út í tíma og
ótíma, og hefur ekkert verið gert
við það. En mér finnst verst að missa
plássið þar sem við gátum teygt á
okkur og gert ýmsar æfingar, en í
dag er engin aðstaða til neins í gufu-
baðinu. í því plássi sem var er nú
nuddari, sem er nánast ekkert við
og fékk þessa aðstöðu tilbúna og
tekið af framkvæmdafé sundlaugar-
innar.
Kasta krónunni og spara
aurinn
Ég veit að ég er ekki sá eini sem
er búinn að kvarta bæði við stjórn-
armenn og bæjarfulltrúa. Þeir eru
búnir að bjóðast til að framkvæma
þær breytingar á gufubaðinu með
þeim skilmálum, að þeir borguðu
efnið. Þessu hefur verið hafnað af
hálfu stjórnarmanna. Ég verð að
segja að það er furðulegt að eitt stórt
bæjarfélag geti ekki rekið eitt gufu-
bað með reisn. Svo skil ég ekki þau
kaup á þremur pottum sem komnir
eru. Þeir eru alltof litlir og grunnir
og gagnslausir að mínu mati. Það
hefði verið nær að fá tvo eins og
fyrir eru með nuddi í báðum, þar sem
þeir sanna gildi sitt.
Þessir menn sem eiga að stjórna
eru ekki starfi sínu vaxnir, og fram-
kvæma eitthvað út í bláinn eins og
gufubaðið sýnir. Ég verð að segja
að krónunni er kastað og aurinn hirt-
ur í Sundlaug Kópavogs. Þannig lítur
þetta út frá mínum bæjardyrum séð.
Með von um einhveija úrlausn
mála læt ég nú staðar numið.
JÓN STEFÁNSSON,
Engihjalla 4 Kópavogi.
laugavegi 45 simi 21255
í kvöld:
Dos Pilas
útgáfupartý ítilefni
af nýrri plötu.
Allir velkomnir.
Ókeypis inn.
Laugardagur:
2 fyrir 1 til miðnættis.
Black out skemmtir.
Sunnudagur:
2001 Los Reptilicus.
f
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1994 49
norðan að heyra hróp og köll að
sunnan.
Voði, voði, úlfur, úlfur. Reykjavík-
urborg er að falla. í dæmisögunni
kom úlfurinn aldrei og það mun verða
eins nú.
Fyrir nokkrum árum stjórnuðu
vinstri menn Reykjavíkurborg eitt
kjörtímabil.
Það var glundroðastjórn að sagt
var.
Hvað er glundroði?
Glundroði er það, þegar engin
stefna er mörkuð, hvorki upp né nið-
ur, út eða suður. Það heitir stjóm-
leysi. Það stjórnarfar var austur í
Rússlandi áður en Rússakeisari féll.
Það skiptir ekki sköpum, þó
Reykjavíkurborg falli um árabil. í
fyllingu síns tíma rís borgin aftur á
grænum grundum, þar sem gras er
nóg í fjallahlíðum og feitir sauðir og
stóðhestar með reistan makka ganga
þar um fijálsir ferða sinna.
Og það verður fullt samræmi í
ríki náttúrunnar. Allt hold er gras.
Þetta gerist þó ekki verði kominn
nýr himinn og ný jörð. Sú breyting
tekur tíma.
Allir strangheiðarlegir
Ég er alinn upp í góðu plássi.
Sigurður sýslumaður Skagfirðinga
lét svo ummælt fyrir löngu að heiðar-
leiki væri Lýdómönnum svo eiginleg-
ur að þó snærisspotti lægi við veginn
væri hann ekki tekinn.
Sumir segja að það sé ekki ljótt
að stela frá ríkum. Ég veit það ekki.
Það hefur aldrei verið stolið frá mér.
Ég er hvorki ríkur né fátækur, er
einn af þessu svokallaða almúgafólki.
Þjófsart er lúmsk, kemur stundum
í þriðja og fjórða lið. Ég hef verið
að leita að þjófum í mínum ættum
og hef ekki fundið nema einn sem
var hýddur.
Það er alltaf eitthvað að gerast
hér á Króknum. Nýlega stálu tveir
strákar hér. Það hlýtur að vera af-
brigðilegt því hér er gott fólk.
Mér fannst það sérstaklega
ánægjulegt þegar ég frétti að Sveinn
Guðmundsson hefði verið sæmdur
riddarakrossi. Hann átti það sannar-
lega skilið fyrir áratugastörf að
hrossarækt. íslenski hesturinn var
og er einn þráður í menningu Evrópu.
BJÖRN EGILSSON,
Sauðárkróki.
úr UJ
glasfiber f—
\A
Með
öllum
búnaði
Verð
6 metra kr. 24.450. ■
7metrakr.26.670.-
8 metra kr. 28.820,-
SNARI
TRANAVOC11
SlMI 682850
FAX6828S6
<
z
<
LL.
<
tí.
<
z
\A
i
i
I
i
}
|
í
íslensk
hönnun
°g
hondverk
PYRIT
GULLSMIÐJA
ÖNNU MARIU
Vesturgata 3 sími 20376
Þorvald
Gunn
ná upp go
dórsson
vason
emmningu
Þcegilegt umhverfi
- ögrcmdi vinningarl
OPIÐ FRA KLUKKAN 1 9:00 - 03:00
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI Ó85090
Gömlu og nýju dansarnlr
í kvöld frá kl. 22-3
Hljómsveitin Tónik leikur
Miðaverð kr. 800.
Miða- og borðapantanir i simum 685090 og 670051.