Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1994 27 KOSNINGARNAR 28. MAÍ D-listinn er listi atvinnu- uppbyggingar ATVINNUMÁL setja sterkan svip á kosningabaráttuna, og á það sérstaklega við um Akureyri. Það er eðlilegt. Um og eft- ir 1990 áttu mörg af stærstu fyrirtækjum bæjarins í miklum rekstrarlegum erfið- leikum, en sum voru að þrotum komin. Af þeim sökum hefur at- vinnuleysi verið veru- legt. Merkilegt starf er unnið í Punktinum, þar sem leiðsögn og aðstaða er til þess sem í daglegu tali er kallað heimilisiðn- aður. Eg hef orðið var við, að ýmsir frambjóðendur, einkum úr röðum Framsóknarflokksins, vilja kenna atvinnuleysið Sjálfstæðisflokkn- um. Eg skorast ekki undan ábyrgð- inni og skal hlaupa yfir sviðið. Kappsamlega hefur verið unnið að því að endurreisa þann rekstur, þar sem áður voru SlS-verksmiðj- urnar. Ég nefni Foldu, sem ber höfuð og herðar yfir aðra útflytj- endur á ullarvörum með 80% mark- aðsaðild. Og með sameiginlegu átaki tókst okkur að láta skinna- iðnaðinn halda velli þrátt fyrir ýmsar úrtöluraddir. Skinnaiðnaður hf. hefur mjög styrkt markaðs- stöðu sína og náð hærra verði en áður. Niðursuðuverksmiðja K. Jóns- sonar varð gjaldþrota, sem var dapurlegur endir á miklu braut- ryðjendastarfi. En verksmiðjan er hin fullkomnasta hér á landi, sem gerði það auðveldara en ella að halda rekstrinum áfram. Strýta hf. er fyrirtæki í góðum vexti. Skipasmíðaiðnaðurinn hefur staðið höllum fæti um árabil og sameining Slippstöðvarinnar og Vélsmiðjunnar Odda stóðst ekki. Nú er unnið að því að styrkja inn- viði skipasmíðaiðnaðarins á nýjum grunni og lögð hafa verið drög að því, að flotkví verið keypt. Það er nauðsynlegt vegna mikilvægis togaraútgerðarinnar á Akureyri, sem hvergi er rekin með meiri dugnaði og festu. Það er athyglisvert í þessu sambandi, hversu sterk fjárhags- staða bæjarins er, þeg- ar tekið er tillit til þess hversu miklum fjár- munum Akureyri hef- ur varið til atvinnu- uppbyggingar. Minni- hlutaflokkamir hafa varast að víkja að þeim þætti málsins í kosn- ingabaráttunni, sem er skiljanlegt. Góðir Akureyringar! Eins og á þessari stuttu upprifjun sést er mikið að gerast í bænum okk- ar. Og er þó ýmislegt ótalið eins og ný viðbygging við Sjúkrahúsið og kennaradeildin við Háskólann, sem hvort tveggja á eftir að skapa ófá atvinnutækifæri, þegar fram líða stundir. Að síðustu nefni ég, að sam- Kappsamlega hefur ver- ið unnið við endurreisn í þeim rekstri, þar sem SlS-verksmiðjur voru áður, segir Halldór Blöndal, og telur Foldu skara fram úr í útflutn- ingi á ullarvörum. gönguleg einangrun Akureyrar er að rofna. Á næstu mánuðum verð- ur komið bundið slitlag til Reykja- víkur og uppbygging vegarins austur á land er hafin, en sú fram- kvæmd var ekki á blaði hjá síðustu ríkisstjórn. Við höfum því ástæðu til bjartsýni, ef rétt verður að málum staðið. Og reynslan sýnir, að það verður best tryggt með því að Sjálfstæðisflokknum verði áfram falið að hafa forystu í bæjar- málum Akureyrar. Höfundur er samgöngu- og landbúnaðarráðherra. Halldór Blöndal í meir en hálfa öld hefur versluninVeiðimaðurinn þjónað sportveiðimönnum dyggilega með úrvali af gæðavörum og góðum ráðum. Hvort sem þú ert að byija í sportveiðinni eða ert einn af fengsælustu veiðimönnum landsins, þá átt þú erindi til okkar. • Glæsilegt úrval fatnaðar til að sækja Island heim. • Sportveiði-vörur á verði við allra hæfi. • Viðgerðarþjónusta. Láttu fagmanninn leiðbeina þér um valið! OPIÐ í SUMAR: Mánudaga til fimmtudaga kl. 9 - 18 Föstudaga kl. 9 - 19 Laugardaga kl. 9 - 17 Sunnudaga kl. 11 - 17 Vertu viss um að geta landað þeim stóra HAFNARSTRÆTI 5 -REYKJAVÍK • SÍMAR 91-16760 & 91-14800 I I TIL LONDON MEÐ FLUGLEIÐUM • TIL LONDOIM MEÐ FLUGLEIÐUM • TIL LOIMDOIM MEÐ FLU á mnnninn í tvíbýli í 4 daga og 3 nætur á St. Giles Hotel. Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifetofurnar eða í síma 690300 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 - 19 og á laugard. frá kl. 8 - 16.) « a manninn i viku m.v. u (2 fullorðna og 2 bijrn, 2-11 ára) í bíl í A-flokki. 41.140 kr.* á manninn í viku m.v. 2 í bíl í A-flokki. Náðu þér í ferðabæklinga Flugieiða, Út í heim og Út í sól. * Flugvallarskattar innifaldir. 14 daga bókunarfyrirvari. ** Flugvallarslcattar ckki innifaldir. 21 dags bókunarfyrirva.ri. FLUGLEIÐIR Trausíur íslenskur ferdafélagi TfL LOIMDOIM MEÐ FLUGLEIÐUM ------- -rtt-t -'-vi v-'i-t-S—: r-’—• r;”" FLUG OG GISTING FLUG OG BILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.