Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 9
VEIÐI
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Laxinn mættur
og skilyrði
virðast góð
LAXVEIÐI á stöng hefst í fyrstu
ánum á miðvikudag, 1. júní. Það
eru Norðurá, Þverá og Laxá á
Ásum sem þá opna, en síðan koma
aðrar fljótlega á eftir. Laxinn er
mættur í þessar ár og skilyrði virð-
ast góð, utan að vatn er enn tals-
vert kalt í ánum. Eðlilegt er að
menn sjái hvað mest af laxinum
í Norðurá, þar er veiðisvæðið til-
tölulega stutt á þessum tíma sum-
ars og hægt að skyggna ána ofan
af klettum. Erfiðara í alla staði
er t.d. að fylgjast með fiskför i
Þverá, en áður gáfu netaveiðarnar
í Hvítá nokkra vísbendingu um
þær göngur.
Breyting í Langá
Samþykkt mun hafa verið á síð-
asta aðalfundi veiðifélags Langár,
að fyrir næsta sumar verði þess
freistað að leigja ána út í einu
lagi. Oft hefur þetta komið upp á
áður, en jafnan verið fellt, eða þar
til nú. Langá hefur verið leigð út
í mörgum stubbum, Langárfoss
og Ánabrekka verið saman neðst
í ánni, Jarðlangsstaðir, Hvítsstaðir
og Stangarholt saman með mið-
bikið og síðan Grenjar og Litla
Fjall á svokölluðu „Fjalli". Langá
er svo „löng“, að hún er ein hér
og önnur þar eftir því hvenær
sumars er að ræða. Þannig er til
dæmis veiði farin að stórminnka
á neðstu svæðunum er Fjallið fer
að gefa afla. Svona staðreyndir
kunna að flækja málin er svona-
tilraunir eru gerðar, en tíminn leið-
ir í ljós hvernig málin fara.
„Hafbeitarárnar"
Svokallaðar „hafbeitarár“, það
er að segja ár sem sleppt er í villt-
um hafbeitarlaxi, hafa verið vin-
sælar meðal margra veiðimanna,
ekki síst vegna þess að þær hafa
kostað til muna minna en aðrar
ár og menn vita að hverju þeir
ganga. Nú stefnir í að ár þessar,
þ.e.a.s. þær sem opna í júní, verði
ef til vill öruggustu júníárnar, en
göngur tveggja ára laxa í júní síð-
ustu ár hafa verið skrykkjóttar.
Ein þessara áa, Núpá í Eyjahreppi
á Snæfellsnesi, sem gaf tæpa 250
Iaxa á tvær stangir í fyrra, er
Lokasigur...
gott dæmi um „hafbeitará“. Hún
á að vísu sinn eigin stofn, en hann
er lítill og aðalveiðin í ánni hefur
verið bleikja og sjóbirtingur. Einn
leigutaka Núpár, Eiríkur S. Eiríks-
son sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sleppt yrði 250 til 300
iöxum í ána í sumar, þeim fyrstu
um miðjan júní. „Það verða ein-
ungis stórlaxar, 10 til 20 pund,
en síðan eykst hlutfall smálaxins
jafnt og þétt,“ sagði Eiríkur.
Upplýsingalína Sjálfstæðismanna
G120S4
Hringdu núna
Reykjavílc
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - simi 17800
BARNANÁMSKEIÐ
1 .-14. júní fyrir 8-11 ára.
Flugdrekagerð, víkingaskartgripir, þæfing,
pappírs- og bókagerð, ofl.
SÍÐUSTU INNRITUNARDAGAR
Innritun í síma 17800 frá kl. 9-13.
TILBOÐSDAGAR - TILBOÐSDAGAR
- Við rýmum fyrir nýjum vörum -
Næstu daga bjóðum við 15-30% afslátt
af öllum vörum í verslun okkar.
Gríptu tœkifœrið
og gerðu góð kaup.
\/
BORGARKRINGLUNNI
L
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
40 milljónir
Dagana 19. til 25. maí voru
samtals 40.489.810 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar
og fjöldinn allur af öðrum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur: Upphæö kr.:
19. maí Háspenna, Hafnarstræti...... 103.849
20. maí Háspenna, Laugavegi........ 107.761
20. maí Háspenna, Laugavegi........ 96.009
21. maí Pizza 67, Hafnarfirði......... 123.225
21.maí Pizza 67, Hafnarfirði......... 84.302
23. maí Mónakó......................... 76.325
24. maí Háspenna, Hafnarstræti...... 136.624
25. maí Kringlukráin................... 132.586
Staða Gullpottsins 26. maí, kl. 13:30
var 5.300.000 krónur. I
o
o
>-
Silfurpottarnir byrja alltaf (50.000 kr. og Gullpottarnir (2.000.000 kr.
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.
HAGKAUP
Barnakerrur
Bremsur, snúningshjól, öryggisbelti,
stillanlegt bak, hlíf yfir fætur,
skyggni meö plastglugga.
Kr. 9.995,-
lsland
Sækjum
það heim!
Regnhlífarkerrur
Bremsur, snúningshjól,
öryggisbelti.
^L-3.995,-
Ef Hagkaup er ekki í byggðarlaginu, þá minnum
við á grænt númer póstverslunar 99 66 80.