Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LARUSM. K. GUÐMUNDSSON + Lárus Mikael Knudsen Guðmundsson fæddist í Stykkishólmi 19. júni 1924. Hann lést í Reykjavík 17. þessa mánaðar. Foreldrar hans voru Lára Margrét Knudsen Lárus- dóttir og Guðmundur Elías Símonarson, sem bæði eru lát- in. Lárus kvæntist eftirlifandi konu sinni, Jónínu Nieljohnius- dóttur, 21. desember 1946. Börn þeirra eru: Ólafur, f. 18. mars 1947, Guðmundur Elías, f. 18. júní 1949, Ragnar, f. 13. júní 1952, og Lára Margrét, f. 21. mars 1958. Lárus lauk námi í bifvélavirkjun og starf- aði þjá Ræsi hf. í 50 ár. Útför hans fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag. MIKIÐ ER erfitt að kveðja þá sem eiga stóran stað í hjarta okkar. Tengdafaðir minn, Lárus Guð- mundsson, var aðeins 69 ára að aldri er hann lést. Kallið kom skyndilega og öllum á óvart. Það er vor í lofti og bjart yfír hér í borginni, þegar ég skrifa þessar línur á fögrum maídegi. Fyrstu kynni mín af Lalla og Nínu konu hans urðu fyrir um tutt- ugu árum, er þau voru að koma heim úr sumarfríi um landið sitt Island, sem þau nutu að ferðast um og skoða. Og voru móttökurnar eins og ég væri daglegur gestur, strax farið að sýna manni myndir úr ferðinni og segja frá, þannig að feimni hvarf strax. Þau hjón nutu að fara í ferðalög og útilegur um landið á sumrin. Fyrst með börnin lítil, svo fækkaði í hópnum er börnin uxu úr grasi, svo varð breyting á, aftur fóru bömin að fara með í útilegur, þá orðin fullorðin og komin með maka og börn, svo oft var líflegt og mik- ið fjör. Skrýtið fannst mér fyrst að fara í útilegu með væntanlegum tengdaforeldrum, en það var fljótt að hverfa því það var eins og að vera með jafnöldrum. Og nú síðari ár biðu bamabörnin spennt eftir afa og ömmu ef það átti að hittast einhvers staðar um landið. Meira ljúfmenni en Lalla hefí ég ekki kynnst. Það var sama hvort mann vantaði tiisögn, aðstoð eða huggun, alltaf var hægt að leita til hans. Og veit ég að hann var vel metinn af öllum er til hans þekktu. Margt er hægt að rifja upp við missi, en sorgin er erfíð og þung, og manni finnst maður svo van- máttugur, en þá er gott að hafa trú og leita í hana því hún gefur okkur styrk. Lárusar er sárt saknað af eigin- konu, börnum, tengdabörnum og niðjum þeirra, en minningin um góðan dreng mun lifa með okkur. Guðs blessun fylgi honum. Ó, vinur kær, ég sáran sakna þín, en samt ég veit, að ávallt hjá mér skín þín minning fögur, göfug hrein og góð, sem gimsteinn, lögð í minninganna sjóð. (Margrét Jónsd.) Eygló. Fótmál dauðans fljótt er stigið. Þetta kemur upp í hugann, þeg- ar skyndileg dauðsföli verða. Svo var þegar elskulegur mágur minn var hrifinn burt úr þessu lífi aðfara- nótt hin 17. þ.m. Um miðaftans- leytið daginn áður litu þau hjónin Nína og Lárus inn til mín, glöð og hress að vanda. Þau ætluðu að leggja af stað í bítið næsta morgun til ísafjarðar þar sem dóttursonur þeirra skyldi fermast á hvítasunnudag. Eigi má sköpum renna. Önnur ferð var ætluð Lárusi. Lárus mágur minn var myndarlegur á velli, dökkhærður og móeygður. Hann var góðlyndur og glað- sinna, gat verið stríð- inn en‘"það kom aldrei að sök. Hann var drengur góður. Foreldrar hans voru hjónin Lára Margrét Lárusdóttir Knudsen frá Stykkishólmi og Guðmundur Elías Símonarson sjómaður frá Bjama- stöðum í Ölfusi. Börn þeirra voru fjögur og var Lárus elstur. Faðir hans var mikið fjarverandi vegna starfs síns og kom þá í hlut Láru að sjá um börn og bú. Elsti sonur- inn var þá hennar hjálparhella enda alltaf mjög hlýtt og gott samband milli þeirra mæðginanna. Ég sá Lárus fyrst í Skíðaskála KR fyrir meira en fimmtíu árum. Hann var með Hrefnu systur sinni og fannst mér þau sérlega glæsileg ungmenni. Ég hugsaði eins og ís- lendinga er háttur: Hverra manna skyldu þau vera? Síðar átti ég eftir að kynnast Lárusi og hans góðu fjölskyldu betur, því að hinn 21. desember 1946 kvæntist hann Jón- ínu systur minni. Hann var þá við nám í bifvélavirkjun sem hann vann við þar til á síðasta ári, alla tíð í Ræsi hf. Einn vetur dvaldi hann í Stuttgart í Þýskalandi hjá Merce- des Bens-fyrirtækinu á vegum Ræsis hf. og dvaldi þá Nína með honum síðasta mánuðinn. Þau hjónin eignuðust fímm börn, þtjá syni og tvær dætur, sem öll eiga sín heimili. Barnabömin eru tólf. Nína og Lárus voru einstaklega samhent hjón, stunduðu íþróttir og voru þar í fremstu röð. Unnu þau oft til verðlauna á skíðamótum og síðar badmintonmótum. Á sumrin ferðuðust þau víða um land, bæði byggðir og óbyggðir, oft ásamt bömum sfnum og baúiabörnum. Einn staður var þeim afar kær, Vatn í Haukadal, þar höfðu þau alltaf bækistöð á sumrin. Systir mín hafði verið þar í sveit hjá frænku okkar Sigríði og Jömndi Guðbrandssyni bónda þar. Oft var glatt á hjalla þegar fjölskyldan var þar samankomin, börn, tengdaböm og bamabörn frá Reykjavík, Akur- eyri og ísafirði, svo og annað kunn- ingjafólk. Foreldrar mínir og bróðir mátu Láms mikils enda reyndist hann þeim alla tíð stoð og stytta og ekki síst, þegar aldur færðist yfír þau. Ekki fannst föður mínum verra að Láms var bæði Vesturbæingur og KR-ingur. Margt kemur fram í hugann á kveðjustund. Ég minnist þess ekki að Láms hafí komst í uppnám eða reiðst illa öll þau ár, sem við áttum samleið. Ég man þegar hann, einu sinni sem oftar, kom heim með vikukaupið í buxnavasanum og systir mín skellti öllu í þvottavél- ina, þá var bara brosað og gert gott úr öllu. Svona var Láras, allt var fært til betri vegar. Sár er nú söknuðuc systur minnar og fjölskyldunnar. Ég flyt þeim samúðarkveðjur okkar Guð- Fallegt og varan- legt á leiði Smíðum krossa úr ryðfríu stáli, hvíthúðaða. Stuttur afgreiðslufrestur. Sendum um allt land. Ryðfrftt stál - endist um ókomna tfð. Blikkverk sff.} sími 93-11075. mundar og fjölskyld- unnar með þakklæti í huga fyrir allar góðu stundirnar með Lárusi. Blessuð sé minning Lárusar K. Guðmunds- sonar. Sigfríður Nieljohni- usdóttir. Símhringing rauf kyrrð sumamæturinn- ar hinn 17. maí síðast- liðinn. Lárus mágur minn var allur. Lárasi Mikael Knudsen Guð- mundssyni bifvélavirkjameistara var mánaðar vant í að fylla sjötug- asta árið þegar kallið kom, öllum að óvörum. Mig langar með örfáum orðum að minnast hans og þakka honum samfylgdina á lífsleiðinni. Láms var nýlega hættur störfum hjá Ræsi hf. þar sem hann hafði starfað við verkstjóm um árabil. Hann var frábær fagmaður og leysti hvers manns vanda af alúð og kostgæfni enda sérlega vel lát- inn í starfí. Hann naut mikils trausts í starfsstéttinni og var um árabil prófdómari í bifvélavirkjun. Láms stundaði íþróttir frá ungl- ingsárum og starfaði mikið í skíða- deild KR. Hann hóf snemma að stunda badminton í TBR og komst þar fljótt í fremstu röð. Það vom ipargir sigrarnir sem þau hjónin Jónína og Lárus hlutu í gegnum árin bæði ein sér og saman. Þrátt fyrir frábært keppnisskap var Lár- us afar ljúfur, glaðvær og yfirveg- aður í daglegri umgengni. Lárus naut útivem og þess að skoða landið. Þau hjón hafa um árabil ferðast með tjaldið, og seinna tjaldvagninn, í nokkrar vikur á hvetju sumri og komið víða við. Það eru eflaust ekki margir staðirn- ir sem þau hafa ekki heimsótt. Við hjónin eigum ljúfar minningar frá fyrri ámm þegar við ferðuðumst með þeim hjónum og ekki síst sam- verustundirnar við Haukadalsvatn. Það hafði skapast sú hefð að Lárus og Jónína, bömin og barnabömin komu saman að „Vatni“ og nutu samverunnar minnst einu sinni á sumri. Það var gaman að vera gest- ur á þeim stundum og njóta gest- risni þeirra hjóna. Minningin um Lárus á þessum stundum mun ávallt lifa i hugum fjölskyldunnar. Það ríkir söknuður í Mávahlíð 16, elskulegur eiginmaður, faðir og afí hefur kvatt í hinsta sinn, en minningin um góðan dreng mun lifa. Elsku Nína, við hjónin og fjöl- skyldan biðjum þér og þínum guðs blessunar. Ragnar Þ. Guðmundsson. í dag kveð ég afa minn í hinsta sinn. Alla mína ævi hefur mér þótt vænt um hann. í fyrstu var um barnslega hrifningu að ræða. Ann- að var varla hægt því að afí gat galdrað og það enga venjulega galdra. Hann gat nefnilega galdrað puttann á sér í burt. Það var ekki fyrr en seinna að ég komst að því að puttann hafði alltaf vantað. Svo varð hrifningin að stolti yfír að eiga svona glæsilegan afa, einkum er ég fór með honum á jólaböllin í Frímúrarahúsinu, enda fannst mér enginn bera kjólfötin eins vel og hann og svo var hann að auki með orðu. Stoltið varð að aðdáun þegar ég lærði að lesa og gat lesið mér til um íþróttaafrek afa á skíðum og í badmintoni og komist að því að hann hafði verið íslandsmeistari til margra ára í þessum greinum. Eftir því sem ég varð eldri breyttist aðdáunin í gleði. Gleði yfír því að honum skyldi fínnast jafngaman og mér að skjóta upp flugeldum á gamlárskvöld og horfa á þá springa. Gleði yfir því að fá að kynnast landinu með honum og læra af honum að bera virðingu fyrir náttúrunni. Á síðari ámm varð afí svo að fyrirmynd minni á margan hátt. Það var margt í fasi hans sem ég hef reynt meðvitað eða ómeðvitað að tileinka mér. Hann kenndi mér að bera virðingu fyrir skoðunum mínum og jafn- framt að standa við þær, hvort sem öðmm fannst þær réttar eða rang- ar. Af honum lærði ég að æsingur og óðagot leiða sjaldan til farsælla málaloka, heldur að bestu lausnirn- ar fyndust oft í ró og næði. Síðast en ekki síst hafði hann þann ríka kost til að bera að æðrast ekki yfír örlögunum því hann hélt alltaf ró sinni hvað svo sem á dundi. Það sem hægt var að lagfæra var lag- fært, en það sem ekki var hægt að gera við eða bæta varð ekki bætt og við það sat. í Kína er til spakmæli á þá leið að maður geti ekki hindrað fugla sorgarinnar í því að fljúga yfir höfði sér, en maður geti hindrað þá í að gera hreiður í hári sínu. í því felst kjarni lífsviðhorfs afa. Með það í huga þakka ég honum sam- fylgdina og alla þá góðu hluti sem hann gaf mér, vitandi það að minn- ing hans lifir áfram innra með mér og að ég minnist hans best með því að reyna að tileinka mér alla góðu eiginleikana í fari hans. Með því lifír minning hans áfram. Ég bið Guð að styrkja ömmu mína sem hefur misst lífsförunaut og félaga, sem og föður minn og systkini sem hafa misst föður og vin. Ása. Okkur samstarfsmenn Lámsar setti hljóða að morgni þriðjudagsins 17. maí þegar okkur barst sú fregn að Lárus hefði orðið bráðkvaddur þá um nóttina. Láms hafði haft það fyrir sið að heimsækja okkur reglulega í vinnuna eftir að hann varð að hætta vegna veikinda í baki. Deginum áður en hann lést leit hann til okkar og var að venju sami hlýi andblærinn, sem fylgdi honum og var honum svo eiginleg- ur. Lárus starfaði hjá Ræsi hf. frá stofnun fyrirtækisins 1943 og náði því marki að vinna í 50 ár hjá fyrir- tækinu, áður en hann lét af störfum eins og áður sagði. Ef telja ætti upp þá menn, sem mest og best hefðu mótað starfsemina, væri Láms þar í allra fremstu röð. Það er engin tilviljun að svo er, Lárus hafði til að bera þá mannkosti sem prýði er að og settu hann sjálf- krafa í fremstu röð. Þegar Lárus hóf störf á bifreiða- verkstæði Ræsis hf. vom aðstæður allt aðrar en í dag. Reyndi þá mik- ið á útsjónarsemi og fagmennsku þar sem varahlutir vom oft á tíðum illfáanlegir og upplýsingar oft af skornum skammti. Ollum verkefn- um var sinnt af alúð og þau nán- ast án undantekninga leyst og reynslunni miðlað til samstarfs- mannanna. Láras hafði til að bera þann eiginleika að kunna að miðla þekkingu og reynslu, ekki bara með orðum heldur á enn betri hátt, með fordæmi sínu. Það eru gömul sannindi og ný að það læra bömin sem fyrir þeim er haft en ekki það sem þeim er bara sagt. Þetta nýtt- ist heilli kynslóð bifvélavirkja vel, sem ólst upp hjá Lámsi á verkstæð- inu og enn fleiri nutu leiðsagnar hans þó í minna mæli væri, t.d. var hann í mörg ár prófdómari við próf í bifvélavirkjun og einnig virkur þátttakandi í félagi bifvélavirkja og var formaður félagsins um nokkurt skeið. Lárus var þannig óumdeildur foringi og sjálfkjörinn sem verkstæðisformaður og þjón- ustustjóri Ræsis hf. En minnisstæðastur er Láms okkur samferðamönnunum fyrir hve næmt auga hann hafði fyrir mannlegu hliðinni. í Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson segir að „Aðgát skal höfð í nær- veru sálar“ og má með sanni segja að þá list kunni Láms. Hvort sem um var að ræða samstarfsmenn eða viðskiptavini þá kunni hann að gleðjast með þeim þegar vel gekk og taka þátt í mótlæti af nærgætni og samúð. Þegar á bjátaði var allt- af hægt að leita til Lárusar og oft- ar en ekki hafði hann frumkvæði að því sjálfur því hjálpsemi og hug- ulsemi hans gerði að hann vildi hvers manns vanda leysa. Að leiðarlokum langar mig að færa Lárusi alúðarþakkir fyrir góð kynni, vinsemd og traust fyrr og síðar með ósk um að hugarfar og verklag Lárusar megi lifa með okk- ur _sem leiðarljós til framtíðar. Ég votta þér, kæra Jónína, og allri fjölskyldunni mína innilegustu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Blessuð sé minnig Lár- usar Guðmundssonar. Hallgrímur Gunnarsson. Lárus Guðmundsson var þekktur bifvélavirki og veitti stóm bifreiða- verkstæði í Reykjavík forstöðu um áratuga skeið. Hann var fjölmörg- um Reykvíkingum og öðmm lands- mönnum að góðu kunnur af þeim verkum. Það er þó ekki vegna þeirra starfa hans, sem ég minnist hans nú, heldur vegna afreka hans í badminton og starfa hans í þágu Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur (TBR). Lárus var reyndar ekki aðeins góður badmin- tonleikari heldur einnig fjölhæfur íþróttamaður í öðmm greinum. Á badmintonvelli mátti greinilega sjá tilþrif, sem sýndu kunnáttu og tækni, er tengdust öðmm íþróttum. Á sjöunda áratugnum varð Láms þrisvar sinnum Islandsmeistari 5 badminton í tvíliðaleik og einnig þrisvar í tvenndarleik og þá ásamt konu sinni, Jónínu. Hann keppti einnig á mörgum öðrum mótum og var ávallt mjög hressilegur andblær í kringum hann, enda var hann mjög skemmtilegur keppnismaður. Þau Lárus og Jónína voru afar samtaka á vettvangi íþróttanna og voru bæði eftirsóttir félagar vegna glaðværðar, drenglyndis og ann- arra mannkosta. Þegar þau hjón hættu að taka þátt í keppni þótti mörgum badmin- tonmönnum skarð þeirra vandfyllt og söknuðu félagsskapar þeirra. Hins vegar lifír minningin um góð- an íþróttamann og kveðja félagar í TBR hann nú með virðingu og þakklæti. Undirrituð sendir Jónínu og allri fjölskyldu þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Lovísa Sigurðardóttir, for- maður Tennis- og badminton- félags Reykjavíkur. INGIBJÖRG ODDSDÓTTIR + Ingibjörg Oddsdóttir fædd- ist 13. janúar 1916. Hún lést 8. maí 1994. Útför hennar var gerð í kyrrþey 16. maí. HIMINN og jörð, sól og máni, við munum lifa í þessu umhverfi án þín, því tilvist þín er nú á öðm sviði. Við lifum án þín, en samt ekki, því minningamar um þig lifa ávallt í hugum okkar. Bros og hlátur þinn verður alltaf lifandi og þú munt jafnvel koma til okkar í draumi. Og þegar þú Iítur til baka á himin- inn, jörðina og svo sólina og mán- ann, þá sérð þú margar persónur sem geisla af kærleik til þín. Við kveðjum þig nú í hinsta sinn og vonum að sál þín muni njóta af því ljósi og kærleika sem þér nú gefst. Elsku amma mín, ég vil þakka þér fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig. Ég elska þig. Þín Elísabet. i i i i i i i i i i I i i ( ( ( I I I I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.