Morgunblaðið - 27.05.1994, Page 6

Morgunblaðið - 27.05.1994, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tölvunefnd heimilar að merkt sé við kjósendur á kjörstað Samrýmist lítt lögum um einkalífsvernd TÖLVUNEFND hefur úrskurðað að umboðsmönnum framboðslista sé heimilt að vera viðstaddir kjör- fundi, skrá upplýsingar um hverjir kjósa og senda á skrifstofur við- komandi framboðslista, samkvæmt. ákvæðum í kosningalögum. Nefnd- in telur þó að þessi réttur umboðs- manna til skráningar á þeim sem sækja kjörfundi, sé „lítt samrýman- legur grundvallarsjónarmiðum laga nr. 121/1989 um einkalífsvernd.“ Úrskurður nefndarinnar er til- kominn vegna fyrirspurnar Odds Benediktssonar, prófessors í tölvun- arfræðu, um hvort nefndin hafi heimilað umboðsmönnum fram- boðslista að vera viðstaddir kosn- ingar á einstökum kjörstöðum og senda upplýsingar um hverjir hafa kosið á skrifstofu viðkomandi fram- boðslista. Taldi hann það stangast á við fyrrgreind lög um frá 1989 um skráningu og meðferð persónu- upplýsinga. í svari nefndarinnar kemur fram að hún hafi ekki heimil- að umrædda skráningu, enda „hef- ur henni ekki borist erindi þar að lútandi." Eðlilegt að fari leynt Lögin frá 1989 taka til hvers konar kerfisbundinnar skráningar á upplýsingum varðandi einkamálefni einstaklinga, sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari. Með kerfis- bundinni skráningu upplýsinga er átt við söfnun og skráningu ákveð- inna og afmarkaðra upplýsinga í skipulagsbundna heild. Töivunefnd telur að skráning á því hveijir mæta til kjörfundar og kjósi, sé skráning persónuupplýsinga, sem „sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari. Þá verður slík skráning, sem hér um ræðir, ótvírætt talin kerfis- bundin í skilningi laganna.“ Undantekningu má þó gera frá meginreglu laganna, standi til þess sérstök heimild samkvæmt öðrum lögum, og telur nefndin að ákvæði kosningalaga taki ekki afstöðu til þess með berum orðum hvort um- boðsmönnum sé heimilt að safna upplýsingum um hvetjir mæti til kjörfundar. Þar megi þó finna slíka heimild. „Við túlkun á afstöðu lög- gjafans til slíks er til þess að líta, að með lögum nr. 91/1957, um breytingu á þágildandi lögum um kosningar til Alþingis, var umboðs- mönnum listanna bannað að hafa meðferðis á kjörfundi kjörskrá eða aðra slíka skrá til að rita þar til minnis nöfn þeirra, sem neyta at- kvæðisréttar eða hveijir hafa ekki sótt kjörfund. Með giídistöku laga nr. 52/1959 var þetta bann hins vegar numið úr gildi, og verður að telja, að með því hafi löggjafinn heimilað umrætt atferli á nýjan leik,“ segir í úrskurði nefndarinnar. Atvinnu- málin verði númer eitt í SKOÐANAKÖNNUN sem Félagsvísindastofnun Háskól- ans gerði fyrir Morgunblaðið fyrr í vikunni voru kjósendur í Reykjavík spurðir hvaða málaflokk þeir vildu að ný borgarsljórn Reykjavíkur leggði mesta áherslu á. Nærri helmingur kjósenda nefndi at- vinnumál, en þar á eftir komu dagvistarmál og skólamál. Kjósendur R-listans leggja meiri áherslu á dagvistarmál og skólamál en kjósendur D- listans. Kjósendur D-listans leggja hins vegar alla áherslu á atvinnumál. Framkvæmda- stjóri Sjálfstæð- isflokksins Ummælin ekki slitin úr samhengi KJARTAN Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins segist alls ekki telja að ummæli Péturs Jónssonar sem notuð voru í auglýsingu Sjálfstæðisflokksins sem Is- lenska útvarpsfélagið stöðvað, birtingu á hafa verið slitin úr samhengi. I auglýsingunni var notuð hljóðupptaka úr frétta- þættinum 19.19 þar sem rætt var um atvinnumál við Pétur sem skipar 4. sæti R-listans., og sagði Elín Hirst fréttastjóri að viðtalsbúturinn hefði verið notaður í heimildarleysi og orð Péturs slitin úr samhengi. Kjartan Gunnarsson sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri óneitanlega viss dráttur að kvikindisskap að auglýsa ummæli Pétur á þann hátt sem gert hefði verið, þar sem hann hefði gert sig beran að því að sýna að málflutning- ur hans varðandi atvinnumál væri afskaplega lítið trúverð- ugur. „Það væri mikill barnaskapur að ætlast til þess að svona barátta væri háð án þess að menn reyni að finna snögga bletti hvor á öðrum,“ sagði Kjartan. Einvígi í beinni útsendingu STÖÐ 2 og RÚV standa í sam- einingu fyrir beinni sjónvarps- útsendingu í kvöld frá umræð- um borgarstjóraefna fram- boðslistanna í Reykjavík um málefni borgarinnar. Dagskrárliðurinn sem kall- ast Gengið að kjörborði hefst kl 21.10 og er áætlað að hon- um verði lokið kl. 22.35. Þau Árni Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir munu sitja fyrir svörum hjá fréttastjórun- um Elínu Hirst og Boga Ág- ústssyni. A hvaða málaflokk finnst þér að borgarstjérn Reykjavíkur eigi að leggja mesta áherslu á komandi kjörtímabili? Atvinnumál 53,9% 45,9% 50,4% 8 46,6% T.a. Ka. Ko. D B Ó Dagvistarmál &//// 16,8% 'to 'Q 11,6% T.a. Ka. Ko. D R Ó mRHBPSBBPSSiBPBBBnSSBBBBnnnp Skólamál 11,2% 11'7% 9,1% T.a. Ka. Ko. D R Ó Málefni fjölskyldu 8,1% 8,1% Iú 1 m 4'2% rii T.a. Ka. Ko. D R Ó Málefni aldraðra 7,8% 6,8% 4,9% ■ 4,9% T.a. Ka. Ko. D R Ó Samgöngur 2,9% 4,2% ” S? 3,4% □ T.a. Ka. Ko. D R Ó Fjármálastjórn 3,9% g * | mu 2,6% ■ T.a. Ka. Ko. D R Ó Fjölgun atvinnutækifæra 2,2% í^% g. í 3^J ■ nl nl 1 1 T.a. Ka. Ko. D R Ó Heilbrjgðismál 2,0% Umhverfismál 1,8% S5 ígf ■ QBöiS T.a. Ka. Ko. D R Ó Félagsl. þjónusta 1,5% 5- s Br' 1'7% □ T.a. Ka. Ko. D R Ó Iþróttamál ss s? 2? 1,4% “L S§ 1’7% ■ DSi Qs □ T.a. Ka. Ko. D R Ó Málefni unglinga 0,8% ss 1,7% □ T.a. Ka. Ko. D R Ó Kjaramál S * g £ S B1 I ' Irgrsa I ipwn I I T.a. Ka. Ko. D R Ó m----------------5---& 0,7% Nýsköpun í atvinnulífi g g í g T.a. Ka. Ko. D R Ó t tv' tx ■ ' w ■- .............‘■Ms j ■ g| ■ m | Ungir sjálfstæðismenn efna til tónlistardags í miðborg Reykjavíkur Kosningarokk NOKKRIR þeirra sem koma fram á tónleikum ungra sjálfstæðis- manna á Ingólfstorgi. F.v. Ari Einarsson, Sigrún Eva Ármanns- dóttir, Cecelia Magnúsdóttir í Þúsund andlitum, Eyþór Arnalds í Bong, Gunnar Bjarni Ragnarsson og Starri Sigurðarson. Rokktón- leikar á Ing- ólfstorgi UNGT sjálfstæðisfólk efnir í dag til tónlistardags í miðbæ Reykjavíkur í dag og kvöld. Meðal þeirra sem koma fram eru hljómsveitirnar Nýdönsk, Jet Black Joe, BONG, Vinir vors og blóma og Þúsund andlit. Frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík verða á ferli og gefst vegfarend- um kostur á að ræða við þá. Þetta er í fyrsta skipti sem rokk- tónleikar eru haldnir á torginu og segir Guðlaugur Þór Þórðarson, for- maður Sambands ungra sjálfstæðis- manna, að markmið tónleikanna sé að kynna Ingólfstorg sem tónleikast- að og að gefa frambjóðendum tæki- færi til að hitta ungt fólk. „Stefnan er að á Ingólfstorgi verði þjóðhátíðar- stemmning, enda eru frábæri lista- menn að skemmta," segir Guðlaugur og vonandi væru þessir tónleikar þeir fyrstu af mörgum fleiri í framtíð- inni. Dagskráin hefst á hádegi á Aust- urvelli við Café Paris, á Ingólfstorgi og í Austurstræti þar sem farandtón- listarmenn verða á ferð. Klukkan 16.00 hefjast á Ingólfs- torgi tónleikar nokkurra af yngri rokkhljómsveitum landsins. Þær hljómsveitir sem koma fram eru Lipstick Lovers, Cranium, Maus, Tjalz Gizur, Blackout og Wool. Klukkan 21.00 hefjast svo Áfram Reykjavík stórtónleikar þar sem fimm af vinsælustu hljómsveitum landsins leika en það eru Nýdönsk, Jet Black Joe, Bong, Vinir vors og blóma og Þúsund andlit. Standa tón- leikarnir til kl. 20. Kynnir verður Pálmi Guðmundsson. Þeir sem hafa aldur til fá boðs- miða á tíu skemmtistaði í miðborg- inni og segir Guðlaugur að miðamir séu ekki ávísun á ódýrt áfengi. Skáís og ÍM-Gallup Munur er ekki marktækur EKKI er marktækur munur á fylgi framboðslistanna í Reykja- vík ef marka má könnun sem IM-Gallup hefur gert fyrir Ríkis- útvarpið og sagt var frá í gær- kvöldi. Samkvæmt könnunni ætla 48,4% af þeim sem tóku afstöðu að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn, en 51,6% R-listann. Könnunin var gerð 23.-25. maí. Úrtakið var 1200 manns sem valið var með tilviljunarúr- taki úr þjóðskrá. Nettósvörun var rúmlega 70%. Samkvæmt skoðanakönnun sem Skáís gerði fyrir Eintak og birt er í blaðinu í gær fengi R-listinn 52,5% atkvæða og 8 borgarfulltrúa en Sjálfstæðis- flokkurinn 47,5% og sjö borgar- fullrúa ef kosið væri nú. Munur- inn á fylgi listanna er innan skekkjumarka og því ekki töl- fræðilega marktækur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.