Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 15 AKUREYRI LANDIÐ Morgunblaðið/Rúnar Þór Nýr Vædderen DANSKA eftirlitsskipið Vædderen liggur nú við Oddeyrar- bryggju á Akureyri en það kom í fyrradag og fer aftur í dag, föstudag, kl. 16.00. Þetta er nýtt skip sem leysir eldra skip af hólmi og er nýja skipið að koma í fyrsta sinn til hafnar á Akureyri. Á myndinni sést Lars H. Skotte skip- sfjóri í hópi gesta sem heimsóttu skipið í gær. Sumarbúðir við Vestmannsvatn SUMARSTARFIÐ á Vestmannsvatni er að hefjast en fyrsti barna- hópurinn kemur til dvalar í sumarbúðunum eftir mánaðamót. Þjóð- kirkjan hefur starfrækt sumarbúðir að Vestmannsvatni í röskan aldarfjórðung en stofnuð hefur verið sjálfseignarstofnun, „Kirkjum- iðstöðin við Vestmannsvatn“, sem á og rekur staðinn. Þorvalds- dalsskokk LANDSLAGSHLAUP eftir endilöngum Þorvaldsdal fer fram sunnudaginn 10. júlí í sumar. Dalurinn er opinn í báða enda, opnast norður á Árskógsströnd og suður í Hörgárdal. Hlaupið hefst við Fornhaga í Hörgárdal 60 metra yfir sjávarmáli og endar við Árskógsskóla sem einnig er 60 metra yfír sjáv- armáli en vegalengdin er 23 kílómetrar. Hlaupið er öllum opið sem treysta sér til að fara hlaupandi, skokkandi eða gangandi þess leið en tíma- töku verður hætt eftir 5 klukkutíma. Keppt er í fimm aldursflokkum. - Skipuleggjendur og framkvæmdaaðilar Þor- valdsdalsskokksins eru Ferðafélagið Hörgur, Ung- mennafélagið Reynir, Björgunarsveitin Ströndin og Ferðaþjónustan Ytri-Vík en Bjarni Guðleifsson á Möðruvöllum í Hörgárdal veitir nánari upplýsingar. Tónleikar í Dynheimum FJÓRAR hljómsveitir koma fram á tónleikum í Dynheimum í kvöld, föstudagskvöld, en þær eru Svið frá Húsavík, Hún and- ar frá Akureyri, Yúkatan frá Reykjavík, sem vann músíktil- raunir í fyrra, og Saktmóðigur frá Reykjavík. Á neðri hæðinni verður diskótek. Tónleikarnir heijast kl. 21.00. Sumarbúðirnar verða með nokkuð öðru sniði í sumar en verið hefur, en í hveijum dvalar- flokki verður nú lögð áhersla á sérstakt áhugasvið barnanna auk hins hefðbundna starfs. Aðalsteinn Bergdal verður i fyrsta flokknum ásamt Skralla trúði og kennir börnunum trúð- alist. Hestamennska verður við- fangsefni annars hóps, íþróttir þess þriðja og í þeim fjórða iðka ungmennin tónlist. Að auki verður margt í boði, siglingar, skógarferðir, varðeldar og upp- fræðsla í kristindómi. Stefán formaður FEN Eyjafjarðarsveit - STEFÁN Magnússon bóndi í Fagraskógi hefur verið kjörinn formaður Félags eyfiskra nautgripa- bænda, FEN, og tekur hann við af Oddi Gunnarssyni, sem gegnt hefur formennsku um árabil. Stefán er búfræðingur og stundaði framhaldsnám í bú- tækni í Noregi. Kona hans er Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari. Aðrir í stjórn eru Sigurgeir Páls- son, Sigtúnum, Sigurgeir B. Hreinsson, Hríshóli, Viðar Þor- steinsson, Brakanda og Benj- amín Baldursson, Ytri-Tjömum. Fjölskylduhá- tíð B-listans FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ B-listans verður haldin í dag, föstudaginn 27. maí, kl. 16.30 á Ráðhú- storgi. Ríótríó leikur, sem og akureyrska hljómsveitin Jazz Quartet og þá verður Skralli trúður á ferðinni. Frambjóðend- ur flytja ávörp. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og gos. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Lagt upp íferð Á MYNDINNI eru f.v. Haraldur Orn Olafsson, Sveinn Pálsson, bóndi á Aðalbóli, sem keyrði þá inn á Hnútu og Nils Hagen. Á skíðum yfir Vatna- jökul Vaðbrekku, Jökuldal - Norskur maður að nafni Nils Hagen lagði af stað á hvítasunnudag við ann- an mann gangandi á gönguskíð- um þvert suður yfir Vatnajökul. Áætluð gönguleið er úr kverk- inni milli Eyjabakkajökuls og Brúarjökuls austan í svokallaðri Hnútu við norðurbrún Vatnajök- uls. Þaðan í suðvestur vestur yfir Esjufjöll í Vatnajökli, þaðan suður gegnum Hermannaskarð. Um Snæbreið að Hvannadals- lmjúk sem á að ganga á í leið- inni, þaðan niður af Jöklinum um Sandfellsheiði í Öræfum milli Hofs og Svínafells. Áætluðu þeir að ferðin tæki fimm daga ef veður héldist gott og er ferð- inni því um það bil að Ijúka ef allt hefur hengið að óskum. Nils Hagen er menntaskóla- kennari í Osló með brennandi áhuga á jöklaferðum og hefur víða gengið á jökla. Þó þetta sé í fimmta skipti sem hann kemur til Islands hefur hann ekki fyrr en nú boðið íslenskum jöklum byrginn. Nils fór yfir Grænland- sjökul árið 1988 þegar 100 ár voru liðin frá því að Friðþjóf Nansen fór frægan leiðangur. Fór Nils sömu leið og Nansen og með sama útbúnað og hann. Leiðsögumaður með Nils í þessari ferð er Haraldur Örn Ölafsson þrautreyndur jöklafari, sem meðal annars hefur gengið yfir Grænlandsjökul 1993 og fór á fjallahjólum eftir endilöngum Vatnajökli af Hnútu suðvestur í Jökulheima 1992. Mikilfengleg náttúra Fréttaritari hitti þá félaga að máli í Snæfellsskála áður en þeir lögðu á jökulinn. I máli þeirra kom fram að þeir voru keyrðir á vélsleðum úr Hrafnkelsdal iu í Hnútu með viðkomu í íshellinum í Eyjabakkajökli sem þeim fannst mikilfengleg náttúrusmíð. Morgunblaðið/Tómas Grétar Ólason EBENESER Ásgeirsson og Gunnar Ólafur Benediktsson afhjúp- uðu höggmyndina á heimleið í höggmyndagarði Sólheima. Stytta afhjúpuð á Sólheimum HÖGGMYNDIN Á heimleið eftir Gunnfríði Jónsdóttir var afhjúpuð 8. maí í höggmyndagarði Sólheima í Grímsnesi. Myndin er gefin til minningar um Gunnar Ásgeirsson, stórkaupmann og sérstakan heimilisvin Sólheima. Gunnar var einn af stofnendum Lionsklúbbsins Ægis í Reykjavík og frumkvöðull að stuðningi klúbbsins við Sólheima. Gefendur eru erfíngjar Gunnars, Bílgreinasambandið og Bílaábyrgð hf. Ebeneser Ásgeirsson, bróðir Gunnars heitins og félagi i Ægi, og Gunnar Ólafur Benediktsson, heimil- ismaður á Sólheimum, afhjúpuðu styttuna að viðstöddu fjölmenni. Hallgrímur Gunnarsson, formaður Bílgreinasambandsins flutti ávarp fyrir hönd gefenda en Stefán Gunn- arsson, sonur Gunnars, þakkaði móttökur á Sólheimum. ' Við sama tækifæri afhenti Lions- klúbburinn Ægir 500 þús. kr. til byggingar Ólasmiðju en þar verða nýjar vinnustofur til húsa. Alls hefur klúbburinn gefjð 1.200.000 þús. kr. til byggingar Ólasmiðju. Á heimleið er fjórða höggmyndin sem komið er fyrir í höggmynda- garði Sólheima. Fyrir eru myndinar Verndarengillinn eftir Einar Jóns- son, Sáðmaðurinn eftir Ríkharð Jónsson og Barnaheimilið eftir Tove Ólafsson. Áætlað er að myndirnar verði alls 10, ein eftir hvern af frum- kvöðlum íslenskrar höggmyndalist- ar. Æðarfuglinn vitjar varp- stöðva við Skjálfanda ÆÐARFUGLINN er kominn í varp- löndin en kuidatíðin í vor varð til þess að klaka og snjó tók seint úr hreiðurstæðunum og sumstaðar voru miklar fannir sem töfðu fyrir þvi að fuglinn gæti sest. Vargfugl hefur sótt að vörpunum og eftir að notkun svefnlyfja var takmörkuð hefur æðarbændum reynst erfitt að veijast þeim mikla flugvargi sem til er meðfram ströndinni. Við Skjálf- anda eru æðarbændur frá átta jörð- um í félagsskap æðarræktenda sem starfað hafa í allmörg ár með vel- ferð æðarfuglsins að meginmarkm- iði. Og þó dúnninn sé í lágu verði, þá lætur fuglinn sér fátt um finnast og nýtur þess að vera til. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Tvær kollur, sem loksins geta farið að huga að hreiðrunum. Verður varpið óvenju seint á ferðinni vegna vorkuldanna fyrir norðan og snjóalaga. Morgunblaðið/Alfons Við sjávarsíðuna ÞESSIR ungu drengir, Unnar, Emanúel, Orri og Viðar, voru á vappi um aðallífæð bæjarins, höfnina, er sjómennirnir komu að landi með afla dagsins. Flestir ætla þeir sér að gerast sjómenn er þeir vaxa úr grasi og því ekki verra að vera búinn að kynnast þessu starfi aðeins áður en hald- ið er út í alvöru lífsins. Voru þessir u'ngu drengir að kynna sér hinar ýmsu fisktegundir er komu að landi og á myndinni eru þeir að kíkja á steinbítinn, og fara að öllu með gát. Steinbíturinn getur bitið fast og því eins gott að fara varlega og passa sig á að setja ekki hendurnar upp í fiskinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.