Morgunblaðið - 27.05.1994, Síða 21

Morgunblaðið - 27.05.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1994 21 „Vál merkisins og stofnun sjóðsins var byggð á þeirri hugsun að sjálfstœðisbaráttan sem slík héldi áfram s og skyldu bjarkarlaufin minna Islendinga sérstaklega á að eftir að hið stjómarfarslega sjálfstœði er fengið verður merkasti þátturinn í sjálfstœðisbaráttu framtíðarinnar að klceða landið skógi og öðrum nýtilegum gróðri.” * Árið 1944 kom sú hugmynd fram í landsnefnd þeirri sem sá um framkvæmd lýðveldisstofhunar' innar að marka þessi tímamót í sögu þjóðarinnar á þann hátt sem til gagns mætti verða í framtíðinni. Tillaga nefndarinnar var sú að landsmenn hæfu skógrækt í stærri stíl en áður þekktist fyrir fé sem safnast myndi með almennum samskotum. Landsnefndin valdi þjóðaratkvæðagreiðslunni merki, þrjú bjarkarlauf, og mælti svo fyrir að það skyldi einnig verða fjáröflunarmerki Landgræðslu- sjóðs sem stofnaður var samhliða lýðveldiskosn- ingunum. Með þessari ákvörðun var stigið stórt skref í baráttunni við landeyðinguna á Islandi. Aðaltekjulind Landgræðslusjóðs allt fram til ársins 1982 var svokallað vindlingafé, sem var viss upphæð af hverjum seldum sígarettupakka. Frá þeim tíma hefur fé hins vegar komið af fjárlögum til starfsemi sjóðsins, auk þess sem hann hefur haft tekjur af jólatréssölu, frjálsum framlögum og fleiru. I dag er því starfsemi sjóðsins meir en áður háð stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Allt frá stofnun Landgræðslusjóðs fyrir 50 árum hefur sjóðurinn veitt skógræktarstarfi marghátt- aðan stuðning og verið bakhjarl þess þótt ekki hafi farið hátt um starfsemi hans út á við. Við landnám teygðu skógur, kjarr og gróður sig langt upp eftir fjallshlíðum Islands. Birkiskógar þöktu þriðjung landsins. Á þeim 1100 árum sem síðan eru liðin hefur gróðureyðingin hins vegar verið slík að ekkert annað land í Evrópu norðan Alpafjalla hefur orðið fyrir öðrum eins skemmdum. Ef rekja mætti aðalástæðu þessara skemmda til náttúruaflanna gætum við lítið að gert. Staðreyndin er hins vegar sú að umgengni mannsins við landið er helst um að kenna. Það kemur því í okkar hlut að snúa við þessari öfugþróun. I dag nýtur skógrækt á Islandi mikillar velvildar þjóðarinnar. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg og tekið þátt í endurheimt skóga og annarra landgæða. Reynsla síðustu áratuga sýna líka að hér á landi geta dafnað mun fleiri trjátegundir en nokkur þorði að vona og myndað skóg. Engu að síður eru uppblástur og landeyðing ennþá alvarlegasta umhverfisvandamál Islands. Og því höldum við áfram störfúm. Laugardaginn 28. maí 1994 munu sjálfboðaliðar, félagar í skógrœktar- félögum landsins, minnast 50 ára afmœlis Landgrœðslusjóðs með sölu barmmerkja á öllum kjörstöðum v bœjarstjómarkosningamar 1994. Á kjörstað er valið einfalt. Þú segir já takk þegar þér er boðið merki Landgræðslusjóðs og leggur um leið þitt af mörkum til sjálfstæðisbaráttu framtíðarinnar. *Sigurður Ólason, hæstaréttarlögmaður, 1944 ESSEMM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.