Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1994 37 BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ Skipulags- mistök í miðbæ Garðabæjar FYRSTU tillögur að miðbæ í Garðabæ voru gerðar fyrir u.þ.b. 20 árum. Samkvæmt til- lögunni var verslunar- kjami meðfram Vífils- staðavegi og allt versl- unarsvæðið ásamt gönguleiðum yfirbyggt. Hótel var fyrirhugað á því svæði þar sem Hrísmóamir eru núna. Engar umsóknir bámst bænum um að byggja samkvæmt þessu skipu- lagi og frumkvæði bæj- aryfirvalda var ekkert. Skipulaginu var þá breytt og hefur sú stefna ríkt hjá bæjaiyfirvöldum að láta skoðanir og hagsmuni byggjenda hveiju sinni ráða þar mestu. Húsnæði fyrir stórmarkað var byggt og við göngugötuna komu þjón- ustufyrirtæki. Síðan var skrifstofu og bankahúsi klesst þar fyrir framan og hætt við yfírbyggingu göngugötunn- ar. íbúðablokkir vom byggðar norðan verslunarlq'amans í Hrísmóunum. Erfíðlega hefur gengið að reka verslanir í miðbænum og kenna flest- ir skipulaginu um. Svæðið er óaðlað- andi og skipulagið gengur þvert á viðurkennd vinnubrögð við skipulag miðbæjarsvæða. Þrengt að kirkjunni Miklar deilur vom á sínum tíma um staðsetningu húsa fyrir aldraða. Bæjarfulltrúar Alþýðubandalags og Framsóknar vildu byggja á svæði neðan Lundahverfís milli leikskólans Kirkjubóls og Vífílsstaðavegar. Bæj- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sam- þykktu hins vegar núverandi stað- setningu húsa aldraðra, en þar átti m.a. að vera skrúðgarður samkvæmt skipulagi bæjarins. Eins og flestir sáu fyrir var þetta erfíð byggingarlóð og urðu íbúðimar af þeim ástæðum rán- dýrar, þótt traustur og ódýr verktaki byggði húsin. Húsin þrengja einnig verulega að kirkjunni. Enn aukið á óskapnaðinn Eins og bæjarbúar hafa eflaust tekið eftir er að rísa nýtt hús í austanverðum miðbæn- um. Þetta hús er orðið eitt aðalumræðuefni bæjarbúa. Húsið er með slíkum ósköpum gert að fólk rekur í roga- stans. Turninn gnæfir við himin og er í full- komnu ósamræmi við allar aðrar byggingar í nágrenninu. Ofan á hann á eftir að koma turnspíra yfir 20 metrar á hæð. í baksýn er turn Vídalínskirkju eins og peð, eða það sem af honum sést. Byggingin skyggir á útsýni íbúa í húsum aldraðra við Kirkjulund, og efast margir um að þeir sem þar keyptu íbúðir hafí verið upplýstir nægilega um hvernig framtíðar- skipulaginu væri háttað. Lítið selst af húsnæðinu Fyrsti hluti húsnæðisins hefur nú verið á annað ár í byggingu og orð- inn fokheldur, en sáralítið hefur selst. Bæjarstjóður hefur keypt eina hæð undir bæjarskirfstofumar og félags- málastofnun. íslandsbanki verður á fyrstu hæðinni, auk þess hárgreiðslu- stofan Rún, en lítil hreyfing hefur verið á öðmm hlutum hússins. Verði ekki veruleg breyting á em því allar líkur til þess að byggingarfram- kvæmdir stöðvist eða verktakinn sitji uppi með stóran hluta af húsinu óseldan. Eins og oft áður þegar lítil forsjá er við framkvæmdir leita „einkaframtaksmenn“ á náðir ríkis- ins. Því er nú sótt fast á heilbrigðis- ráðuneytið að fá heimild til að kaupa húsnæði fyrir heilsugæsluna í húsi Álftáróss. Hilmar Ingólfsson Sótt um bæjarábyrgð Þann 24. febrúar sl. barst bæjar- stjórn bréf frá Álftárósi, sem er byggingaraðili hússins, um að bær- inn ábyrgðist lán sem fyrirtækið hyggst taka vegna bygginarfram- kvæmda í miðbænum. Erindi þessu var hafnað, enda ekki fýsilegt fyrir sjálfstæðismenn að leggja í kosn- ingabaráttu með slíkt mál í fartesk- inu. Óvíst er hvernig verður fjallað um þetta mál að loknum kosningum. Yfirbygging göngugötunnar Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar lofuðu sjálfstæðismenn að bærinn myndi byggja yfir göngugöt- una í miðbænum í samvinriu við hús- eigendur þar. Þetta loforð hefur verið svikið. Nú dreifa þeir enn í hús í Garðabæ Sjálfstæðismenn í Garðabæ flagga nú teikningum af yfir- byggðri göngugötu, segir Hilmar Ingólfs- son, sem staðhæfir, að sama loforð hafi verið gefið fyrir síðustu kosn- ingar - en ekki efnt. teikningum af yfirbyggðri göngu- götu, og sjálfsagt trúa einhveijir að alvara búi að baki, jafnvel þó sjálf- stæðismenn hafí flaggað ámóta yfír- byggingum allt frá árinu 1974. Er ekki mál að linni? Ekki enda öll ævintýri vel Miðbæjarævintýri af þessu tagi getur á endanum kostað bæjarbúa stórfé. Bærinn hefur nú þegar keypt húsnæði fyrir um 130 milljónir króna án þess að knýjandi þörf sé fyrir hendi. Á sama tíma skortir fé í nauð- synlegar framkvæmdir. Mikið fram- boð er nú á skrifstofu- og verslunar- húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Það eru því miður mestar líkur tii þess að við sitjum uppi með þessar fram- kvæmdir hálfkláraðar um ófyrirsjá- anlega framtíð. Höfundur er skólastjóri og skipar fyrsta sæti á G-lista í Garðabæ. Utivistarsvæðið við Astjöm HAFNARFJÖRÐ- UR er frá náttúrunnar hendi eitt af fegurstu bæjarstæðum lands- ins. Þetta er fuliyrðing sem allir Hafnfírðing- ar geta tekið undir og þó víðar væri leitað. En þegar við skoðum þau spor sem við íbú- arnir höfum sett á umhverfið í áranna rás þá koma fram ólík sjónarmið, það sem einum finnst fallegt fínnst öðrum ljótt og fegurðarskynið er tengt hagsmunum og þörfum. Við skipulag bæja þarf að taka tillit til margra ólíkra hagsmuna og þarfa, svo sem íbúa, fyrirtækja, bæjarfélags og síðast en ekki síst náttúrulegs umhverfis. Tækin og tæknin Á árum áður má segja að ófull- komin tæki hafi verndað náttúruna. í Hafnarfirði voru hús byggð inn í kletta og hraunbolla í bókstaflegri merkingu og eru þessi hús í dag meðal sérkenna bæjarins. Með haka og skóflu að vopni var umhverfi ekki spillt meira en nauðsyn krafð- ist í dag háir okkur hvorki tækja- né tækniskortur. Það þarf ekki að leita langt, nægir að rölta niður í miðbæ Hafnarfjarðar, til að sjá dæmi um stórhuga framkvæmda- gleði, þar sem tækin og tæknin fá að njóta sín. Að margra mati hefur þó gleymst að taka til- lit til náttúrulegs um- hverfis og þeirrar byggðar sem fyrir er. Umhverfisfræðsla er ung fræðigrein og þeir sem nú ráða ríkj- um hafa hlotið mjög takmarkaða umhverf- isfræðslu. Þeir eru því ekki meðvitaðir um gildi náttúruverndar við skipulag og fram- kvæmdir, þá skortir framsýni. I dag ætti umhverfisfræðsla að vera ein mikilvægasta námsgrein í skólum. Okkar er valið Við Hafnfirðingar verðum að ákveða hvaða stefnu við viljum taka í skipulagsmálum. Viljum við búa í bæ sem leitast við að lifa í sátt við náttúrulegt umhverfi sitt? Bæ sem getur boðið íbúum og gestum upp á fallegt umhverfi, ósnortna náttúru við bæjardyrnar, göngu- og hjólastíga vítt og breitt um bæjarlandið, höfn þar sem fískibátar, stórir og smáir, gleðja augað og hægt er að bjóða gestum í sjóstangaveiði og skak án þess að skammast sín fyrir það umhverfi sem blasir við? Eða viljum við breyta Hafnarfirði í borg? Borg með kringlu, uppfyll- ingum undir gáma langt út í sjó með tilheyrandi kranaskógi og sjón- mengun, óheftum byggingafram- kvæmdum sem fá að vaða yfir allt sem fyrir verður, hvort sem það Hafnfirðingar verða að ákveða, segir Guðrún Guðmundsdóttir, hvaða stefnu þeir vilja taka í skipulagsmálum. heitir Ástjörn eða eitthvað annað? Okkar er valið. Við berum ábyrgð Við höfum val. Við þurfum að velja hvaða hagsmuni við setjum í öndvegi, hagsmuni okkar í dag, hagsmuni annarra, lífvera sem við eigum reyndar framtíð okkar undir eða hagsmuni þeirra sem erfa land- ið. Við berum ábyrgð ekki aðeins í nútíð heldur ekki síður gagnvart börnum framtíðarinnar. Við höfum ekki ótakmarkaðan rétt til að ráðsk- ast með náttúruna til að uppfylla þarfir okkar og óskir, hér og nú. Við skulum ekki gleyma að jörðin er bústaður mannsins og annarra lífvera. Við þurfum breytt viðhorf, nýja lífssýn, jafnvel lífsstíl. Ástjörn Samkvæmt aðalskipulagi 1992- 2012 er fyrirhuguð íbúðabyggð í Áslandi við Ástjörn. Kvennalista- konur í Hafnarfirði hafna alfarið þessum hugmyndum og hafa lagt til við bæjaryfirvöld að öll kvosin kringum tjörnina verði friðuð. Fyrir því eru margvísleg rök. Guðrún Guðmundsdóttir Skólamál: einsetn- ing grunnskólans Hvað er einsetning? UMRÆÐAN um skipulag grunnskólans og skólatíma grunn- skólabarna hefur aldrei verið eins mikil og nú. Hvergi nema á íslandi þekkist fyrirkomulagið tvísetning, þ.e. sumir bekkir eru fyrir hádegi og aðrir eftir hádegi í skólanum. í öðrum löndum eru skólar einsetnir. Allir bekkir byija daginn snemma um kl. 8 og eru í skólanum fram til um kl. 14 á daginn. Hjá okkur eru börnin ýmist fyrir eða eftir hádegi í skólanum og þeg- ar báðir foreldrar vinna utan heimil- is, eins og nú er hjá flestum, þá gengur dæmið hreinlega ekki upp lengur. Skólatími yngri barnanna er stuttur og það neyðir marga for- eldra til þess að láta bömin sjá um sig sjálf. Nýlegar athuganir sýna að börn allt niður í sex ára aldur eru ein heima daglega klukkustundum sam- an og oft eru börn gerð ábyrg fyrir yngri systkinum. Óreglulegur svefn- tími íslenskra barna er einnig áhyggjuefni, en óreglulegur skóla- tími er án efa ein aðalorsökin fyrir þeim vanda. Aðrir kostir við einsetningu em að fyrri hluti dagsins er besti tími einstaklingsins til bóklegs náms og einbeitingar. Eftir skólalok, um kl. 14, gefst börnum tækifæri að sinna öðrum hugðarefnum svo sem tón- listarnámi og íþróttum á eðlilegum „dagvinnutíma". frá ríki til sveitarfé- laga. Almennt hafa sveit- arfélög lýst sig reiðu- búin að taka við skól- unum svo framarlega sem þau fá til þess fjár- magn frá ríki. Þá fyrst geta sveitarstjómir haft raunveruleg áhrif á skipulag grunnskól- ans. Sveitarstjómar- menn sem standa nær kjósendum finna best hvar skórinn kreppir og hafa þess vegna komið að rekstri skólanna án þess að hafa til þess skyldur né fjármuni. Hvernig er staðan? Á landsbyggðinni er víða einset- inn skóli, en í þéttbýliskjörnunum eru skólarnir almennt tvísetnir. í aðeins einu sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu, Seltjarnar- nesi, hefur verið rekinn einsetinn skóli í tæp tvö ár. í Reykjavík eru gerðar tilraunir með svokallaðan „heilsdagsskóla" sem er ekki lengd- ur skóli (aukin kennsla) heldur lengd viðvera bamanna í skóla, sem er Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa sýnt metnað og vilja í verki, segir Sigrún Gísladótt- ir, til þess að búa vel að grannskólunum. Sigrún Gísladóttir Hver ber ábyrgð á grunnskólanum? Menntamálin og skipulag gmnn- skólans hefur verið og er enn verk- efni ríkisvaldsins en ekki sveitarfé- laga. Nú eru umræður uin flutning verkefna eins og rekstur grunnskóla Við Ástjörn og í landinu umhverf- is er bæði fjölskrúðugt og mikið fuglalíf. Þessu veldur margbreyti- legt landslag, gróðurfar og annað dýralíf. Ástjörn er eini staðurinn á suðvesturhorni landsins sem flór- goði verpir á. Það gefur augaleið að Ástjörn og öll kvosin í kring hefur mikið útivistar- og fræðslugildi jafnt í nútíð sem framtíð. Þarna er í raun einstök náttúruperla rétt við bæjar- dyrnar. Rétt er að minna á að náttúru- friðun er nýting á landi t.d. til kennslu, rannsókna og til að njóta. Áslandið er sjálfsagt kjörið land fyrir stór og falleg íbúðarhús, en réttur okkar er takmarkaður og við verðum einfaldlega að sætta okkur við næstbesta kostinn. Breytt umhverfisvitund Nú er þörf breyttra viðhorfa. Skipulagsmál eru umhverfismál. Sýnum umhverfinu sem við erum hluti af virðingu. Það er sannfæring mín að eftir 5-10 ár detti engum í hug að fórna þessu svæði undir byggingar. Margt bendir til þess að umhverfis- vitund fólks sé að breytast. Margir íslendingar búa tímabundið erlendis og venjast þar allt öðrum viðhorfum til umhverfis en hér tíðkast. Fólk gerir sér grein fyrir að auðlindir eru takmarkaðar og margir hafa tileinkað sér þann lífsmáta að end- urnýta það sem hægt er, endur- vinna og nota minna. Höfum það hugfast að það eru ekki bara ráðamenn og sérfræðing- ar sem bera ábyrgð. Ábyrgðin er mín og þín. Höfundur skipar 8. sæti á franiboðslista Kvennalistans í Hafnnrfirði. allt annar hlutur og hefur auk þess verið greiddur af foreldrum. Bæjarstjórn Garðabæjar ákvað í fyrra að leggja fram fímm milljónir kr. árlega til þess að borga aukna daglega kennslu yngstu bamanna. Það leiddi til þess að öll börnin fengu í vetur meiri kennslu og lengdan skólatíma. Auk þess hafa skólamir boðið foreldrum gæslu fyrir börnin, gegn vægu gjaldi, til þess að lengja viðveru þeirra enn frekar. Hvað þarf að gera til að ná fram einsetningu? Samtímis einsetningu grunnskól- ans verður að fjölga þeim kennslu- stundum sem nemendum eru ætlað- ar þannig að skólatíminn sé frá kl. 8-14 daglega. Eins þurfa að koma til nýir og gjörbreyttir kjarasamn- ingar við kennarastéttina. Vandi sveitarfélaganna verður að leysa úr skorti á skólahúsnæði með því að byggja fleiri skólastofur. Þetta er vandamál allra í þéttbýlinu en í einsetningu þarf kennslustofu fyrir hvern einstakan bekk. Skólamenn og allir þeir sem l’áta sig varða menntun og uppeldi æsk- unnar hljóta að fagna þeirri hugar* farsbreytingu sem hefur átt sér stað varðandi málefni grunnskólans. Loks virðast menn skilja að þetta fyrirkomulag sem verið hefur við lýði á íslandi gengur ekki lengur í breyttu þjóðfélagi. Óg loks átta menn sig á því að núverandi ástand er dýrara þegar upp er staðið heldur en að færa skólana til nútíma horfs þ.e. ein- setja alla skóla og lengja skóladag- inn. Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa sýnt í verki metnað og vilja til þess. að búa vel að grunnskólum bæjar- ins. Þeirri stefnu halda þeir ótrauðir áfram með því að stefna markvisst að yfirtöku grunnskólans frá ríkinu, lengri skóladegi og - einsettum grunnskólum fyrir öll börn í Garðabæ á næstu 4-6 árum. Höfundur cr skólastjóri Flataskóla í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.